Helgarpósturinn - 14.02.1985, Blaðsíða 3
Verðlaunakrossgáta HP:
Ingunn hlaut
fyrstu verðlaun
Dregið hefur verið úr réttum
lausnum á verðlaunakrossgátu
HP er birtist í jólablaði Helgar-
póstsins í desember. Rétt lausn
átti að vera svohljóðandi vísa:
Sá ég öngul aka hratt
eftir krókaleiðum.
Gullinn fork með gamlan hatt
á gaffalbitaveiðum.
Sigríður Huld Jónsdóttir,
nemandi í 9. bekk grunnskóla
Sauðárkróks, sem verið hefur
undanfarna viku í starfskynn-
ingu hjá okkur á ritstjórn, dró
eftirfarandi verðlaunahafa úr
bunkanum sem barst:
1. verðlaun 3000 kr.: Ingunn
Árnadóttir, Reykjasíðu 11, Akur-
eyri.
2. verðlaun 2000 kr.: Þórdís
Eiríksdóttir, Silfurbraut 8, 780
Höfn.
3. verðlaun 1000 kr.: Haraldur
Hákonarson, cfo Isl. járnblendi-
fél. Grundartanga, 301 Akranes.
Eins og meðfylgjandi mynd
ber með sér, þá barst okkur
fjöldi svara, og þökkum við les-
endum kærlega fyrir þátttökuna
og óskum sigurvegurunum til
hamingju með verðlaunin sem
þeim verða send.
Allt að því
bílskúr
★ Bílskúrar eru ekki eins marg-
víslegir og bílarnir eru margir á
íslandi. Flestir eru þeir með
sama sniðinu, steyptir upp af
traustum grunni með tréþaki
yfir. Og hurðin fyrir er á hjólum,
kannski fjarstýrð. Innandyra er,
alla jafna, öllu er við kemur
bílnum raðað á smekklegan
hátt upp í hillur, og sumstaðar
rennibekkur fyrir endanum. En
annað verður sagt um þetta
sem myndin sýnir. Helgar-
pósturinn hefur valið þetta fyrir-
brigði einfaldasta en að mörgu
leyti mest sjarmerandi bíl-
skúrinn í Reykjavík. i þessu til-
viki hefur bíleigandi ráðist af
litlum efnum í gerð viðeigandi
skjóls fyrir bifreið sína og tekist
að gera það helt fyrir ofankomu
og einni vindátt. Takið líka eftir
hvað honum hefur tekist vel að
aðlaga þessa byggingu sína
umhverfinu, trjánum og næstu
húsum. Ef lesendur vilja skoða
nánar þetta verðlaunaverk Helg-
arpóstsins í snaggaralegri bygg-
ingarlist, er þeim bent á að
labba Smiðjustíginn milli Lauga-
vegs og Skólavörðustígs, helst
um hádegið þegar mest er
birta, en þá nýtur þessi bygging
sín best að mati okkar hér á HP.t^
MM MM MM >I*J [•!•
MM MM ['W [W EH
o
Bolholt Suðurver
6 vikna vetrarnámskeið 18. feb.—28. mars
í Suðurveri bjóðum við 40 flokka á viku yfir mesta annatímann, svo þú finnur
örugglega flokk við þitt hæfi Í Suðurveri
* Líkamsrækt og megrun fyrir konur á öllum aldri
* Morgun-, dag- og kvöldtímar
* Lausir tímar fyrir vaktavinnufólk
Fyrir þær sem eru í megrun:
3ja vikna kúr 4 sinnum í viku
vigtun — mæling — mataræði
lí
Líkamsrækt
JSB
Sturtur — sauna — Ijós
Kennarar: Bára, Sigríður, Anna og Sigrún j, /
Innritun í síma 83730
Gjald 2 sinnum í viku kr. 1.800
Ath: Ljósastofa J.S.B. er í Bolholti 6
Afsláttur á 10 tíma kortum fyrir alla sem eru
i skólanum
Kunna íslendingar
ekki móðurmálið?
Heimir Pálsson
„Það kunna náttúrlega engir nema islendingar. Hins vegar
verður maður að viðurkenna að vald manna á málinu er mis-
munandi og það hefur áhrif á hvernig þeir spjara sig ítilverunni.
Kunnáttan er alls staðar fyrir hendi, en það er hægt að þjálfa
þessa hæfni.
Þar að auki höldum við, aðstandendur þessa skóla, að hægt
sé að veita mönnum tilsögn við samningu texta og bókmennta-
lestur og yfirleitt allt sem við tengjum notkun móðurmálsins.
Af langri kennarareynslu vitum við að við gerum ekki esseysta
á borð við Sigurð Nordal, úr neinum upp úr þurru, en við getum
aðstoðað fólk við að setja mál sitt fram.
Margir Ifta á ritmál sem verulegan þröskuld, eru hræddir við
að stafsetja hlutina. Það er þvíafar mikilvægt að fólk geti fengið
einhvers konar aðstoð við þetta."
— Er Móðurmálsskólanum að einhverju leyti ætlað
að keppa við kerfisskólana?
„Nei, hugmynd okkar er engan veginn að stofna skóla í sam-
keppni við skólakerfið, heldur að við getum auglýst: Segðu
hvað þú vilt og við útvegum þér hæfan kennara. Ef til dæmis
blaðamenn Helgarpóstsins biðja um að fá að læra stafsetningu
Eggerts Ölafssonar og vilja gefa blaðið út með þeirri stafsetn-
ingu, þá útvegum við kennara til slfka Og ef saumaklúbbur vill
fara á Njáluslóðir skulum við lesa Njálu með honum og fara
með í ferðina ef því er að skipta."
— Bjóðið þið upp á eitthvað fleira en beina kennslu?
„Við höfum líka auglýst að við tökum að okkur þjónustu fyrir
stofnanir eins og að setja upp ársskýrslur, búa þær til prentunar
og fylgja þeim eftir f gegnum prentsmiðju ef óskað er."
— Hver er tfmafjöldi þeirra áfanga sem nú eru í boði
hjá ykkur?
„Yfirleitt 20 tímar. Annars fer það algjörlega eftir viðfangsefn-
inu. Hugmyndin er sú að hægt sé að klæðskerasníða tímastakk
sem hentar hverju viðfangsefni."
— Hvað eru margir einstaklingar í bekk eða hópi?
„Hvenær sem við höfum 5 einstaklinga til að leggja stund á
eitthvað tiltekið myndum við hóp. En í hverjum hópi verða
aldrei fleiri en 10, það álítum við að sé sk.ynsamlegt hámark."
— Hvenær hófst kennsla f Móðurmálsskólanum?
„I janúarlok. Við fórum rólega af stað, en við þykjumst finna
strax að talsverð eftirspurn er eftir þeim námskeiðum, sem við
erum með í boði núna, og öðrum. Nú erum við með í gangi
einkakennslu fyrir útlendinga og eins stafsetningarnámskeið,
bapði fyrir skólafólk sem gengur illa og eins fólk t.d. af almenn-
um vinnumarkaði, s.s. skrifstofufólk."
— Fer kennslan fram á einhverjum ákveðnum tfma
dags?
„Nei, von er til að tímarnir séu haldnir þegar fólki hentar
best."
— Nú hefur þú sagt upp kennarastarfi þfnu hjá ríkinu
frá og með 1. mars. Varstu með stofnun Móðurmáls-
skólans að tryggja þér örugga atvinnu ef þú neyöist til
að ganga úr föstu starfi þfnu um næstu mánaðamót?
„Stofnun þessa skóla er gamall draumur sem við Þórður höf-
um lengi alið með okkur og höfum nú látið rætast. En ég get
ekki neitað því að þróun kjaramála hér undanfarin ár hefur ýtt
á mann frekar en hitt. Ef þjóðin mín kærir sig ekki um að ég
vinni fyrir mér með venjulegri kennslu, þá verð ég sem venju-
legur fjölskyldufaðir að hafa eitthvað til að hverfa að."
Heimir Pálsson er (slenskukennari við Menntaskólann við Hamrahlíð
Nýverið stofnaði hann ásamt Þórði Helgasyni, íslenskukennara við
Verslunarskóla íslands, Móðurmálsskólann, sem býður einstaklingum
og hópum upp á margvfslega kennslu ( málnotkun, framsetningu og
bókmenntum, auk þess sem aðstandendur skólans taka að sér ýmiss
konar þjónustu, t.d. fyrir fyrirtæki og stofnanir.
EEI HH PH [•!•] BIil MM [>T«1 ÞH BB MB MM
HELGARPÓSTURINN 3