Helgarpósturinn - 14.02.1985, Síða 4
ÓmöguleQ*
ið hafa
ramkvaema0’
„ióraRUV
í steininum-
_ .'.twarnsráðs
I
l
Það verður Elva Björk hún
er'íanghæfust umsaekjenda,
inúmæltummeðÆvan^
anssyni í stoðuna\ sag^
en fyrri daginn .
Sjáðu nú til, vinur", sagði
. ,"2Laldur ábúðarmikill. „Þaö
mm
varpsstarfsmannafráihaust.
geníufetki að framkvaemda-
Jjód RÚV sitji í stem.num!
0q bávitum viðhver ödög
ÆvarsKjartanssonarverða...
\
I
Veislusalir
Veislu- og fundaþjónustan
Höfum veislusali fyrir hverskonar
samkvœmi og mannfagnaði.
Fullkomin þjónusta og veitingar.
Vinsamlega pantið tímanlega
RISIÐ Veislusalur
Hveríisgötu 105
. símar: 20024 - 10024 - 29670.
Indversk kvöld
á Keisaranum
frá Kína
★ Veitingahúsið Keisarinn frá
Kína bryddaði um síðustu helgi
upp á þeirri nýbreytni að bjóða
upp á indverska karrýrétti, með
kjúklingum, lambakjöti eða fiski
(verð 300 — 500 kr.). En alla
jafna býður Keisarinn gestum
sínum og ölkeldunnar, á hæð-
inni fyrir ofan, annars vegar
upp á kínverskan matseðil, hins
vegar blandaðan matseðil þar
sem m.a. er að finna „Reykta
ýsu Savoy" og „Lambasteik
Denna Dæmalausa".
Sigurður Tómasson mat-
reiðslumeistari Keisarans sagði
HP að hin indverskættaða dans-
og söngvamær, Leoncie Martin,
sem búsett hefur verið hér-
lendis um allnokkurt skeið,
hefði kennt þeim kokkunum að
elda þessa indversku karrýrétti.
•„Hún stóð yfir okkur í eld-
húsinu þangað til við vorum
búnir að ná þessu. Við ætlum
að endurtaka þessa nýbreytni
um næstu helgi og þá þar-
næstu ef undirtektir verða
góðar", sagði Sigurður.
Síðar um kvöldið kemur
Leoncie svo fram í ölkeldunni
og flytur frumsamin lög og
dansa á borð við „Go with me
if you want to have fun" (þau
eru semsé ekki af indverskum
toga). „Leoncie vill hafa vaðið
fyrir neðan sig", sagði Sigurður
Tómasson. „Þegar hún er búin
að semja nýtt lag og texta fer
hún og fær stimpil hjá öorgar-
fógeta til að vera með höfund-
arréttinn á hreinu".
Það kvöld sem HP var í vett-
vangskönnun við Laugaveg og
naut gestrisni þeirra Sigurðar
matreiðslumeistara og hins
,/:yníska" barþjóns á Ölkeld-
unni, Sveins Kragh, framdi
Leoncie listir sínar við umtals-
verðan fögnuð karlkynsgesta
staðarins. Kvenfólkið var ekki
alveg jafn hrifið. „Þeir, sem ekki
reyna að klípa, sýna það með
augunum að þeir fíla þetta.
Ekta remba!", sögðu þær Ragn-
heiður Sigurðardóttir og Kristín
Þorgeirsdóttir, nemendur í
Námsflokkum Reykjavíkur, og
litu fyrirlitningaraugum til
„rembnanna" hinum megin í
salnum.
Semsé: Indverskt víf og veit-
ingar á Keisaranum frá Kína nk.
föstudags- og laugardagskvöld;
matargestir geta valið á milli
missterkra karrýrétta — „hot,
for those who like it really
hot"!t!r
\
\
\ Framtfð Arnarhóls
\
^SSS&WCSSSfíSES
____________________I
m
★ Viljiði láta stækka Ingólf Arn-
arson upp í 40 m og setja inn í
hann veitingastað, gallerí og
verslanir? Ekki það. Hvað þá
með útimarkað og rómverskt
útileikhús við Kalkofnsveg?
Á Kjarvalsstöðum gefst fólki
kostur á að virða fyrir sér þær
tillögur arkitekta sem bárust í
hugmyndasamkeppni sem
haldin var á vegum borgarinnar
um hlutverk og mótun Arnar-
hóls og umhverfis hans.
Gestum gefst jafnframt kostur á
að segja álit sitt á þessum til-
lögum á þar til gerðum eyðu-
blöðum. Sýningin er opin fram
á sunnudagskvöld.^
(MBO)
Reiknivélar
Fyrsta flokks vélar
á skrifstofuna
á góðu verði
Teg. 1015
Teg. 1030
Teg. 1230
Teg. 2000
kr.: 3.560
kr.: 4.680
kr.: 5.280
kr.: 7.950
NON HF.
Hverfisgötu 105 S. 26235
4 HELGARPÖSTURINN