Helgarpósturinn - 14.02.1985, Page 7
Helgarpósturinn tekur áskorun Almennu fasteignasölunnar
ÞVINGAR VIÐSKIPIAVIN
TIL AÐ SELJA HJÁ SÉR
Lögmaðurinn bara upp á punt í næsta herbergi?
eftir Halldór Halldórsson myndir Jim Smart
Helgarpósturinn upplýsti
lesendur sína í síðasta blaði
um það, að í Reykjavík og ná-
grenni væru a.m.k. 27 starf-
andi ólöglegar fasteignasölur.
Fasteignasalar í hópi hinna
ólöglegu brugðu hart við og
létu skömmum og hótunum
rigna yfir ritstjórn HP. Ein
fasteignasalan gekk metra að
segja svo langt að birta sér-
staka auglýsingu í Morgun-
blaðinu undir titlinum: Að
gefnu tilefni: Vegna rógs-
greinar. Hér var á ferðinni
Almenna fasteignasalan, sem
mun vera „25 dögum yngri en
hið íslenska lýðveldi", eins og
segir í auglýsingunni.
Þar er talað um alvarlegar
ásakanir HP, atvinnuróg,
upploginn áburð, ósannindi
og höfundur greinarinnar í
HP sakaður um að hafa skrif-
að hana með gróðavon í huga.
í sjöunda lið „auglýsingar-
innar“, sem Almenna fast-
eignasalan fékk birta með
30% afslætti, segir svo:
„Er hér með skorað á róg-
berana að nefna þó ekki væri
nema eitt dæmi þess sem þeir
leyfa sér að fullyrða varðandi
Almennu fasteignasöluna sf.
og lögmann og annan eiganda
hennar, Jóhann Þórðarson
hdl.“
Áður hefur komið fram í
auglýsingatexta fasteignasöl-
unnar, að lögmaðurinn hafi
vinnuherbergi við hliðina á
fasteignasalanum á sömu
hæð.
Helgarpósturinn tekur
áskorun Almennu fasteigna-
sölunnar.
Þegar við settum saman
skrána um ólöglegu fast-
eignasölurnar var okkur vel
kunnugt um að Jóhann Þórð-
arson, lögmaður Almennu
fasteignasölunnar, hefði
skrifstofu á sömu hæð og fast-
eignasalan. En vissum við
einnig að afskipti hans af
störfum Lárusar Valdimars-
sonar væru lítil sem engin.
Um það höfðum við staðfestir
heimildir sem ekki var ætlun-
in að birta sérstaklega. Við
vildum ekki draga þessa fast-
eignasölu sérstaklega út úr
hópnum.
En nú er beðið um það.
Helgarpósturinn hefur
undir höndum skjöl sem
sanna að lögmaður Almennu
fasteignasölunnar lætur sig
litlu varða hvað sölumaður-
inn gerir. Við höfum undir
höndum skjöl sem sölumað-
urinn Lárus Valdimarsson
hefur undirritað en ekki Jó-
hann Þórðarson lögmaður.
Ein af skyldum einstakl-
ings sem hefur rétt til fast-
eignasölu er að yfirfara
og/eða semja kaupsamninga,
ganga frá skjölum o.s.frv. (sjá
grein á næstu bls.).
Við höfum til dæmis undir
höndum kaupsamning sem
saminn er af Lárusi Valdim-
arssyni, sölumanni Almennu
fasteignasölunnar, og undir-
ritaður af honum. í þessum
■
Sölumaöur fasteignasölunnar Ibúðar:
„Bísaöi“ handriti
blaðamannsins!
Blaðamaður HP varð fyrir svo-
lítið sérstakri reynslu í gær, þegar
hann var að vinna að umfjöllun
blaðsins um löglegu og ólöglegu
fasteignasölurnar: Handriti að
viðtali var stolið, og sá sem hafði
það undir höndum neitaði að láta
það af hendi þrátt fyrir ítrekaðar
óskir um skil og samþykki hans
þar um í hvert sinn sem við mann-
inn var talað.
Þannig er mál með vexti, að
Gunnar Gunnarsson hjá íbúð, fast-
eignasölu, hringdi til blaðsins á
föstudaginn var og hellti úr skál-
um reiði sinnar, eins og svo margir
félaga hans. Þegar hann fór að ró-
ast spurði blaðamaðurinn Gunnar
hvort ekki væri í lagi að hafa eftir
honum nokkur tiltekin atriði, sem
talin voru upp fyrir hann. Hann
svaraði því játandi og kvaðst
standa við allt sem hann segði og
endurtók ræðuna.
í gær hringdi svo blaðamaður-
inn í Gunnar og spurði hvort ekki
mætti senda ljósmyndara til hans,
jafnframt því sem ljósmyndarinn
myndi koma með viðtalið og hann
gæti þá gert sínar athugasemdir á
meðan ljósmyndarinn biði.
í millitíðinni hefur Gunnar haft
samband við lögfræðing sinn (sem
er skrifaður fyrir fasteignasöl-
unni), því þegar ljósmyndarinn
kom, neitaði hann myndatöku.
Hann fékk handritið í hendur og
sagði við ljósmyndarann, að hann
þyrfti að fara vandlega yfir það og
hann skyldi koma því upp á HP
sjálfur.
Af því varð ekki og nú situr
Gunnar Gunnarsson í fasteignasöl-
unni íbúð með iila fengið handrit
að viðtali, sem aldrei hefði birst
hvort sem var, því þegar allt kom
til alls, þá vildi hann ekki standa
við sín orð.
kaupsamningi er ákvæði sem
er brot á hugsanlega þremur
lagagreinum, annars vegar í
lögum um samningsgerð, um-
boð og ógilda löggerningu, og
hins vegar í lögum um bann
við okri, dráttarvöxtum o.fl.
í sem stytztu máli er
ákvæðið í kaupsamningnum
þannig, að kaupandi eignar,
sem seld var fyrir milligöngu
Almennu fasteignasölunnar,
er beinlínis skikkaður til þess
að selja hana ekki aftur nema
fyrir tilstilli þessarar sömu
fasteignasölu.
Viðkomandi sagði í samtali
við HP, að hann hefði alls ekki
áttað sig á þessu ákvæði né
tekið sérstaklega eftir þvi fyrr
en hann ætlaði að selja eign-
ina. Þá var viðkomandi kom-
inn í vandræði og þurfti að
selja.
Almenna fasteignasalan
mat eignina upp á H50—1200
þúsund krónur. í vandræð-
um sínum fór viðkomandi til
annarrar fasteignasölu og
viku síðar var búið að selja
eignina fyrir röskar 1300
þúsund krónur. Mismunur
upp á 100 þúsund krónur að
minnsta kosti.
HP bar þetta þvingunar-
ákvæði undir virtan lögmann
hér í borg og sagði hann að
það stæðist engan veginn,
nema þá að viðkomandi hefði
verið gerð glögg grein fyrir
ákvæðinu og afleiðingum
þess fyrirfram. Annars væri
verið að nota sér fákunnáttu
kaupandans.
Almenna fasteignasalan
bað um dæmi. Þetta er dæmi.
Ef lögmaður hefði lesið
þennan kaupsamning yfir,
má gera ráð fyrir að þetta
ákvæði hefði ekki verið látið
standa.
Viðkomandi kaupandi, sem
seinna vildi selja, kveður eng-
an lögmann hafa komið ná-
lægt þessari samningsgerð.
Önnur heimild HP segir að
lögmaðurinn hafi komið af
f jöllum, þegar hann var innt-
ur eftir þessu máli.
Þetta ætti að nægja sem
dæmi um það, að fasteignasali
eigi að vera fasteignasali en
ekki bara lögmaður upp á
punt í næsta herbergi.
Til viðbótar má geta þess, að
Almenna fasteignasalan hef-
ur það fyrir vinnureglu að
brjóta lögin um fasteignamat
og fasteignaskráningu. í H.
grein reglugerðar um Fast-
eignamat rikisins segir:
„Til að auðvelda Fasteigna-
mati ríkisins gagnasöfnun,
sbr. 13. grein laga nr. 94/1976,
til úrvinnslu upplýsinga um
gangverð fasteigna við kaup
og sölu og breytingar á því, er
skylt bæði fasteignasölum og
öðrum aðilum er milligöngu
kunna að hafa um fasteigna-
viðskipti að senda Fasteigna-
mati ríkisins samrit allra
kaupsamninga strax og þeir
hafa verið gerðir. . .“
Þessum fyrirmælum hlítir
Almenna fasteignasalan ekki.
HELGARPÓSTURINN 7