Helgarpósturinn - 14.02.1985, Page 9
HP greinir nánar frá ólöglegu fasteignasölunum
lýsing frá fasteignasölu, þar sem ein-
ungis er getið nafns fyrirtækisins
ólögleg.
Jafnframt er lögð áherzla á
ábyrgð löggilts fasteignasala við frá-
gang skjala.
Eins og fram kom í síðasta Helgar-
pósti var lagt fram í fyrra frumvarp
til nýrra laga um þessi mál. I grein-
argerð með frumvarpinu er tæpt á
leppunarvandanum:
„Farið í kringum
lögin. . .“ segir
hæstaréttardómari
„Ljóst er, að margir menn starfa
að fasteigna- og skipasölu sem svo-
nefndir „sölumenn" án þess að hafa
fengið leyfi til starfa sem fasteigna-
eða skipasalar, en jafnan mun þó
vera forstöðumaður skrifstofu með
réttindum að lögum. Sjálfsagt er hér
pottur brotinn, en illt að koma í veg
fyrir það, enda fasteigna- og skipa-
sölum að sjálfsögðu heimilt og oft
nauðsynlegt að hafa starfsliði á að
skipa í umsýslu sinni. Er því ekki að
leyna að oft heyrist að hér sé farið
í kringum lögin og forstaða skrif-
stofu lítið annað en orðin tóm. Er
það mál, sem ástæða er til að gefa
gaum.“
Höfundar þessara orða eru dr. Ar-
mann Snævarr hæstaréttardómari,
Einar Sigurðsson hæstaréttarlög-
maður og dr. Gaukur Jörundsson
prófessor.
Félagi fasteignasala var sent frum-
varpið og óskað eftir athugasemd-
um. Þar er fjallað um leppunarvand-
ann og sagt meðal annars:
„Til þess að setja undir þennan
leka, þarf að binda það í lögum að
þar sem fasteignasala auglýsir skrif-
stofu sína , sé ávallt til staðar fast-
eignasali í skilningi laganna, og að
hann hafi starfsstöð sína á staðnum,
en ekki einhvers staðar úti í bæ . . .“
Framangreint er greinargerð um
lagatæknileg og raunveruleg atriði,
sem skipta máli varðandi löglegar
og ólöglegar fasteignasölur. Allar
ritaðar heimildir sem HP hefur
kannað staðfesta skilning okkar á
lögunum og staðfesta jafnframt, að
leppunarvandamálið hefur verið
lengi við lýði og löngu viðurkennt
sem slíkt.
Einu mennirnir, sem ekki vilja
fallast á staðhæfingar HP í þessu
máli, eru þeir sem reka ólöglegu
fasteignasölurnar. Og þegar öllum
þeim ólöglegu fasteignasölum, sem
hringdu vanstilltir flestir í okkur eft-
ir útkomu síðasta blaðs, var bent á
hina löglegu leið, stóðu þeir fast á
því að þeir væru löglegir,eða þá að
„það er einmitt núna verið að inn-
rétta skrifstofuna fyrir lögfræðing-
inn“.
Samkvæmt talningu okkar eru
nálægt sjö lögfræðingar að fá nýjar
skrifstofur á næstunni.
„Viljum
opinbert eftirlit
og að farið sé
að lögum
— segir Þórólfur Halldórsson,
varaformaöur Félags
fasteignasala
„Mergurinn málsins er sá, að þeir,
sem fá leyfi lögum samkvæmt til
þess að meðhöndla aleigu fólks,
verða að vera ábyrgir menn og
það eru gerðar tilteknar menntun-
arkröfur til þess að þeir megi
stunda fasteignasölu,“ sagði Þór-
ólfur Halldórsson, lögfræðingur
og fasteignasali hjá fasteignasöl-
unni Eignamiðlun. Þórólfur er
varaformaður Félags fasteigna-
sala. Þórólfur benti á að leyfið
væri bundið nafni einstaklingsins
en ekki firma eða félagi.
„Neytandinn sem slíkur á ótví-
ræða kröfu um að geta gengið
inn á auglýsta skrifstofu fasteigna-
sölu hvenær sem er á venjulegum
opnunartíma slíkrar skrifstofu og
hitt þar fyrir fasteignasala, það er
þann mann sem hefur leyfi lögum
samkvæmt til að stunda þessa
starfsemi á auglýstum stað. Neyt-
andinn á ekki að þurfa að sæta því
að skráður fasteignasali sitji ein-
hvers staðar annars staðar úti í
bæ,“ sagði Þórólfur.
Um þá deilu sem Helgarpóstur-
inn hefur reifað um löglegar og
ólöglegar fasteignasölur sagði
Þórólfur, að krafa Félags fasteigna-
sala væri einfaldlega sú, að farið
væri að lögum „og að lögreglu-
stjóraembættið, sem gefur út leyfi
til fasteignasölu í lögsagnarum-
dæmi Reykjavíkur, og jafnvel
dómsmálaráðuneytið, fylgist
hreinlega með framkvæmd þess-
ara mála. Við viljum að það sé
opinbert eftirlit með því að það sé
farið að lögum við fasteignasölu.
Þar hefur pottur verið brotinn,
sem lýsir sér meðal annars í þess-
ari leppun."
— Nú eru sumir sem draga í efa
réttmœti þess ad skipta fasteigna-
sölum upp í annars vegar löglega
og hins vegar ólöglega?
„Þeir sem draga þetta í efa eru
náttúrlega fyrst og fremst þeir sem
telja á sig hallað vegna þess að
þeirra málum er ekki farið
nákvæmlega eins og ætlast er til
samkvæmt lögunum. En vissulega
eru til nokkur vafatilvik. Það
eru uppi ólíkar túlkanir á því hvað
sé raunveruleg tilætlun laganna
en á það hefur ekki beinlínis
reynt. Þess vegna verður að túlka
þær réttarheimildir sem eru fyrir
hendi, meðal annars greinargerð-
ina sem fylgdi lögunum á sínum
tíma, hæstaréttardóma og fleira."
— En telur þú þetta leppunarfyr-
irkomulag ólöglegt fyrirbœri?
„Já, á grundvelli gildandi laga
tel ég svo vera. Og ég vil bæta því
við, að samkvæmt frumvarpi til
laga um fasteigna- og skipasölu,
sem lagt var fram á Alþingi í fyrra,
er alveg girt fyrir þennan leka og
það er ekki að ástæðulausu að
tekið er á málinu í þessu frum-
varpi."
— Nú halda þeir því fram, sem
standa utan Félags fasteignasala,
ad þið viljid fækka fasteignasölun-
um, stœkka kökuna og fá stœrri
bita fyrir ykkur sjálfa?
„Það er alls ekki markmið þessa
félags að stækka okkar hlut. Mark-
mið þessa félags er fyrst og fremst
að vera hagsmunafélag og við vilj-
um hafa sem allra flesta fasteigna-
sala innan félagsins, að því til-
skildu að þeir uppfylli skilyrði laga
um fasteignasölu. Og helst af öllu
vildum við að félagið yrði gert að
skyldufélagi fasteignasala, eins og
gert er ráð fyrir í lagafrumvarp-
inu,“ sagði Þórólfur Halldórsson,
varaformaður Félags fasteigna-
sala.
„Réttindahafar
reki sölurnaru
— segir Jóhannes Gunnarsson,
formaður Neytendasamtakanna
„Það sem skiptir hér meginmáli
er að til þess hæfir menn og menn
með tilskilin réttindi gangi frá
samningum um kaup og sölu á fast-
eignum og séu um leið ábyrgir fyr-
ir þeim samningum sem þarna eru
gerðir," sagði Jóhannes Gunnars-
son, formaður Neytendasamtak-
anna, þegar HP bar undir hann
leppanir í fasteignaviðskiptum.
„Frá sjónarmiði Neytendasam-
takanna er því æskilegt að rétt-
indahafar reki fasteignasölur og
beri ábyrgð á öllum rekstri þeirra
og þar með talinni samningsgerð-
inni.
Hins vegar er ástæða til að
gagnrýna fasteignasala fyrir að
hafa komið sér saman um þá pró-
sentu, sem tekin er fyrir að hafa
milligöngu um kaup og sölu fast-
eigna. Á þann hátt m.a. halda fast-
eignasalar uppi of háu verði fyrir
þessa þjónustu. Þetta eru sam-
keppnishömlur sem ástæða er til
að gagnrýna,“ sagði Jóhannes
Gunnarsson, formaður Neytenda-
samtakanna.
„Þekki ekki
leppaöa
fasteignasölua
— segir Guðmundur Jónsson
„Ég álít okkur ekkert löglegri
þótt við séum í einhverju félagi
eða ekki,“ sagði Guðmundur Jóns-
son hjá Bjargi, fasteignamiðlun, í
samtali við Helgarpóstinn, en
Bjarg var ein af þeim fasteignasöl-
um sem lentu á skrá HP um ólög-
legar fasteignasölur.
Guðmundur kvaðst hafa lög-
fræðing í sinni þjónustu og hefði
alltaf haft, og yrði það til fram-
búðar.
„Það sem mér finnst kannski
verst við þessi skrif er, að þau skuli
hafa bitnað á mönnum sem hafa
verið í þessu, eins og Lárusi Valdi-
marssyni hjá Almennu fasteigna-
sölunni, áður en gaumgæfilegri
könnun væri gerð. Ég álít, að við
þurfum að koma þessum hlutum í
lag, en ekki að búa til stríð á milli
einhverra tveggja hópa innan
stéttarinnar. Ég óttast mest, að
þetta fari út í einhvers konar illindi
manna á milli,“ sagði Guðmundur.
— En hvers vegna tveir hópar?
Hvers vegna ekki ad ganga t.d. í
þetta Félag fasteignasala?
„Afhverju ætti maður að gera
það? Hvað hafa þeir eiginlega upp
á að bjóða? Við vitum að það eru
reknar fasteignasölur af lögmönn-
um sem eru ekki í félaginu."
— En telur þú FF ekki hafa upp
á neitt ad bjóda?
„Ég þekki félagið ekki neitt, en
ég álít að þeir sem reka löglegar
fasteignasölur séu jafnlöglegir,
hvort sem þeir eru í félaginu eða
ekki. Ég vil ekki nota blaðaskrif
til þess að þrýsta mönnum inn í
eitthvert félag."
— En hvað segir þú um þessa
gagnrýni, ad svona margar fast-
eignasölur séu leppaðar, eins og
raun ber vitni?
„Ég þekki ekki leppaða fast-
eignasölu."
— Enga?
„Ekki persónulega. Ég þekki,
satt að segja, ekki margar. En ég
þekki tvær sem þið nefnduð ólög-
legar og þær eru ekki leppaðar."
— Lítur þú á grein HP sem rógs-
grein um ykkur?
„Já, hún gæti verið það á vissan
hátt, því að mér finnst að það hafi
ekki verið gengið nægilega vel úr
skugga um hvernig sumar af þess-
um stofum eru reknar áður en
greinin var skrifuð."
— Dœmi?
„Almenna fasteignasalan og
Fasteignamiðlunin."
(Um Almennu fasteignasöluna
er fjallað sér á parti í blaðinu í dag,
en varðandi Fasteignamiðlunina
er skylt að geta þess, að skráður
lögmaður hennar hefur lög-
mannsstofu sína annars staðarJ-
HELGARPOSTURINN 9