Helgarpósturinn - 14.02.1985, Page 12

Helgarpósturinn - 14.02.1985, Page 12
HP-VIÐTALIÐ ER VIÐ ANDRÉS INDRIÐASON DAGSKRÁRGERÐARMANN SJÓNVARPS SEM SNÝR SÉR NÚ EINVÖRÐUNGU AÐ RITSTÖRFUM eftir Sigríði Halldórsdóttur mynd Jim Smart Fyrir tuttugu árum var auglýst eftir starfsfólki á flunkunýja stofnun, íslenska Sjón- varpið. Andrés Indriðason var þá blaðamaður á Mogganum, stundaði kennslu og var með annan fótinn í Háskólanum. Hann sótti um starf á þessu „varpi" sem þá hlýtur að hafa verið draumadjobb ungra manna. Fékk stöðu sem ekkert orð var yfir í ís- lenskri orðabók, frekar en orðia sjónvarp, nefnilega sem dagskrárgerðarmaður. Allt er þetta nú liðin tíð, Andrés Indriðason ætlar að snúa sér að því eldgamla starfi að skrifa bækur. „Sjónvarpið gleypti mig eiginlega, sendi mig í nám og starfsþjálfun til Kaupmannahafnar svo ég væri klár í slaginn 1966 þegar þetta fór af stað“, segir Andrés Indriðason, sem nú segir starfi sínu lausu sem einn reyndasti dagskrár- gerðarmaður Sjónvarpsins. Greta Garbo „Vissulega er þetta stór ákvörðun hjá mér að segja upp starfi sem ég hef sinnt í 20 ár og fara að sinna ritstörfum. Þó er ekki þar með sagt að ég vilji segja alveg skilið við dagskrárgerð. Ég hefði áhuga á að vinna við þetta sem lausamað- ur eftir því sem aðstæður leyfa af og til seinna meir. Það er nauðsynlegt að blanda geði við fólk, finna straumana í lífinu fyrir utan glugg- ann. En mér finnst ekkert einmanalegt að vinna sem rithöfundur, ég uni mér vel við skrifborðið. Ég finn líka að ég hef þörf fyrir að breyta til eftir öll þessi ár hjá sjónvarpinu. Það er ýmislegt í bígerð hjá mér. Núna um páskana kemur út barnasaga hjá Máli og menningu, „Elsku barn!“, og svo er verið að vinna leikrit eftir mig fyrir út- varpið, „Greta Garbo fær hlutverk". Mér finnst mjög gaman að skrifa fyrir útvarp. Það hefur verið vanræktur miðill hjá íslenskum höfundum fram til þessa, finnst mér, þó að það bjóði upp á nánast óendanlega möguleika. Ég hef líka fengið góða uppörvun frá leiklistarstjóra út- varpsins, Jóni Viðari Jónssyni. Ágúst Guð- mundsson leikstýrir þessu, þetta er fyrsta leik- stjórnarverkefni hans í útvarpinu. Svo á ég leik- rit sem er í athugun hjá Þjóðleikhúsinu og annað hjá Leikfélaginu". Árið 1974 var fyrsta verk Andrésar sýnt í Þjóð- leikhúsinu. Það var barnaieikritið „Köttur úti í rnýri". 17 verk hefur hann samið á 10 árum, síðast unglingasöguna „Töff týpa á föstu“, sem er síðasta bókin af þrem úr lífi stráksins Elíasar Þórs. Næstu daga er að koma út í Zúrich í Sviss sagan Polli er ekkert blávatn í þýskri þýðingu Jóns Laxdals. „Við Jón erum kunningjar frá fornu fari. Ég sýndi honum bækurnar og hann fór með þær út með sér og sýndi þær forleggjara í Sviss, hringdi svo í mig og óskaði mér til hamingju; bækurnar voru teknar hjá stóru fyrirtæki, Benziger Verlag sem hefur höfuðstöðvar í Zúrich og teygir anga sína til V-Þýskalands. Mér finnst þetta geysilega spennandi; nú er möguleiki á að bækurnar verði einnig gefnar út á öðrum tungumálum. Þeir ætla að hafa þessar bækur á bókasýningum og ganga í að kynna þær.“ Krakkar og vandamól — Hversvegna skrifaröu barna- og unglinga- bœkur? „Það hefur kannski gegnum árin ekki verið hátt skrifað að vera barnabókahöfundur. En þetta er að breytast. Þeir höfundar sem skrifa fyrir börn eru að komast í manna tölu. I starfi mínu sem dagskrárgerðarmaður vann ég á ár- um áður lengi að „Stundinni okkar" og fór þá að skrifa litla þætti fyrir börn og útfrá því þróuðust stærri verk. Svo var það árið '79 að ég sendi sögu í samkeppni sem Mál og menning efndi til, „Lyklabarn", og datt í þann lukkupott að hljóta verðlaun. Þetta var geysileg uppörvun fyrir mig. Upp frá þessu var eins og skrúfað væri frá krana, ég hellti mér út í ritstörfin." — Ætti sjónvarpiö ekki aö sinna því betur aö gera íslenskt barnaefni? „Vissulega mætti gera betur. Sérstaklega hvað varðar leikið efni. En auðvitað er þetta spurning um peninga. Það kostar jafn mikið að gera mynd fyrir börn og fyrir fullorðna á sama hátt og það er jafndýrt að prenta barnabók einsog bók fyrir fulíorðna. En auðvitað á að virkja höfunda sem vilja skrifa fyrir börn. Ég hefði sjálfur áhuga á að taka til höndum og gera myndir úr lífi barna.“ — „Töff týpa á föstu" er þetta rétt lýsing á heimi unglinganna áriö 1985? „Það var einn gagnrýnandi sem fann að því að persónurnar væru „vandamálasnauðar". Honum fannst eins og það vantaði allt púður af þeim sökum. Vissulega eru „vandamálaungling- ar“ í kringum okkur, en það eru líka til unglingar sem eiga ekki við alvarleg vandamál að stríða og mér finnst alveg réttlætanlegt að það sé skrif- að um þannig krakka líka.“ — Hvernig kynnistu unglingum? „Ég hef farið töluvert mikið í skóla og félags- miðstöðvar og lesið upp úr bókunum mínum og rætt við unglingana um þær. Bestu launin eru ef þeir finna sjálfa sig í þeim, og mér sýnist á öllu að þeir geri það.“ — Hefuröu áhuga á aö fjalla um dekkri hliö- ina á íslenskri æsku? „Já, en þá yrði ég að kynna mér hana, sökkva mér niðrí það.“ — Svo viö snúum okkur aö öörum störfum þínum; þú geröir kvikmynd hér um áriö, ,,Veiöiferöina „Þessi kvikmynd var gerð kvikmyndasumar- ið mikla ’79, á Þingvöllum á einum mánuði, ég tók sumarfríið í hana. Þetta var kaldasta sumar í manna minnum, snjóaði í fjöll annan daginn og rigndi einsog heilt væri úr fötu hinn. En það var geysilegur eldmóður í okkur. Við Gísli Gestsson gerðum myndina í félagi og með okkur konur okkar og þar fyrir utan hljóðmaður. Það var nú allt gengið. Hún gekk mjög vel, það komu 70.000 manns að sjá hana, hún fór vel í fólk, bæði unga sem eldri, mynd fyrir alla fjölskyld- una, eins og sagt er.“ Áramótaskaup — Þáttagerö hjá Sjónvarpinu; mér detta í hug áramótaskaupin öll sem þú átt mikinn þátt í. „Ég held ég gleymi seint fyrsta áramótaskaup- inu. Það var í þá daga þegar ekki var hægt að stoppa upptökutækið, ekki hægt að klippa neitt saman, þetta rúllaði bara í heilan klukkutíma. Annars eru mér sérstaklega minnisstæð skaupin sem Flosi Ólafsson samdi og leikstýrði og við unnum að saman. Það var mjög gott samstarf. Ég hugsa nú að Flosi hafi lagt grunninn að þess- ari týpu af skemmtiþætti, að vera með stutta spéspegla úr þjóðlífinu. í seinni tíð hef ég unnið að skaupum bæði sem upptökustjóri og höfund- ur í félagi við aðra.“ — Af hverju hefur sjónvarpiö láti duga aö gera einn skemmtiþátt á ári í 20 ár? „Það er nú kannski ekki alveg svo slæmt. Annars verður þú að spyrja ráðamenn sjón- varpsins að þessu. Skaupið er kapítuli út af fyrir sig. Þá situr öll þjóðin límd við sjónvarpið og allt ætlar af göflunum að ganga ef það er ekki snið- ugt. Það fer að verða erfitt að fá fólk í þetta, það liggur við að mannorðið sé í veði. Kannski er ástæðan einnig skortur á skemmtiefni al- mennt... Nei, ég held það sé enginn hörgull á húmoristum, þeir eru allt í kringum okkur, það þarf bara að virkja þá. En ég hef nú á tilfinning- unni að þetta standi til bóta... Það er líka í þessu fáliðaður mannskapur á Lista- og skemmtideild, fólk sem er bundið við að vinna að föstum þátt- um. Nú, ef það koma leikrit þá kippa þau pródú- senti úr sambandi í langan tíma. Það þarf að ráða fleiri dagskrárgerðarmenn og veita meira fé til þess að búa til íslenskt efni.“ Húrra fyrir kínverskum myndum — Hvernig sjónvarp vilja íslendingar? „Sjónvarp með menningarlegu yfirbragði, vona ég. Annars er bráðnauðsynlegt að hafa í gangi skoðanakönnun og reyna svo að taka eitt- hvert mið af því. — Erum viö á norrœnu línunni eöa þeirri ensk-amerísku? „Sjónvarpið á gott samstarf við norrænu

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.