Helgarpósturinn - 14.02.1985, Qupperneq 24
G*~
ans hefur sent kaffibaunamál Sam-
bands íslenskra samvinnuféiaga til
ríkissaksóknara og skattrann-
sóknarstjóra. Sigurður Jóhann-
esson hjá gjaldeyriseftirlitinu stað-
festi þetta í samtali við HP. Að öðru
leyti vildi hann ekki tjá sig um mál-
ið.
HP hefur hins vegar eftir áreiðan-
legum heimildum, að þess sé farið á
leit við ríkissaksóknara, að hann
meti hvort ekki sé ástæða til máls-
höfðunar á hendur SIS fyrir stórfellt
faktúrufals. Eftir því, sem næst verð-
ur komist, er ekki talið, að SÍS hafi
vanrækt gjaldeyrisskil til íslenskra
yfirvalda, þótt gangurinn í því hafi
verið brokkóttur.
Samkvæmt niðurstöðum Seðla-
bankans falsaði Sambandið faktúr-
ur að upphæð, sem nemur á bilinu
3—4 milljónir dollara. Heildar-
upphæð vegna kaffiinnkaupanna
margumtöluðu nam á árunum
1979—1981 um 16 milljónum doll-
ara faktúrum fyrir u.þ.b. 500 millj-
ónum króna (12—13 milljónir doll-
ara).
í íslenskum krónum er því talið,
að í faktúrufalsmálinu nemi upp-
hæðin 130—170 milljónum.
Upphaflega snerist kaffibauna-
málið um vanskil á 223 milljónum
íslenskra króna til Kaffibrennslu
Akureyrar vegna afsláttar, umboðs-
launa og tekna.
Þ
riggja manna nefndin, sem
fjallar um nýskipan bankamála und-
ir forystu Gylfa Þ. Gíslasonar, fyrr-
verandi alþingismanns, hefur gert
þá óformlegu tillögu að Útvegs-
bankinn og Búnaðarbankinn
verði sameinaðir. Steingrími Her-
mannssyni voru kynntar þessar
hugmyndir fyrir nokkru og leist
honum heldur þunglega á að málið
kæmist í gegn. Það reyndist rétt, því
stjórn Búnaðarbankans hafði vart
fyrr fengið þessar hugmyndir inn á
borð til sín en þaðan heyrðust rama-
kvein og mótmælahróp. Ástæðan er
einfaldlega sú, að fjárhagsstaða Út-
vegsbankans er ægislæm, og þeirra
sjóða sem eru í vörslu hans. Það var
svo í framhaldi af viðbrögðum Bún-
aðarbankans sem forsætisráðherra
tæpti á tillögunni um einn ríkis-
banka, þar sem Útvegsbankinn,
Búnaðarbankinn og Landsbankinn
gengju í eina sæng.
En hvað sem þessum vangavelt-
um líður, telja gamlir og vitrir Lapp-
ar að engin breyting verði á banka-
kerfinu, og ástæðan sé einfaldlega sú,
að ekki megi róta við pólitísku gæð-
ingunum sem sitja í stólum banka-
stjóranna...
iríðrik Friðriksson heitir ung-
ur maður um þrítugt, þjóðhagfræð-
ingur að mennt með sérgrein í
markaðssviði. Friðrik var kosninga-
stjóri Þorsteins Pálssonar í barátt-
unni um formannssæti Sjálfstæðis-
flokksins. Skömmu eftir tilnefningu
Þorsteins var Friðrik gerður að
framkvæmdastjóra þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins og mun vera sá
fyrsti sem gegnir þeirri stöðu án
þess að vera sjálfur á þingi. Nú hefur
IBM-samsteypan á íslandi ráðið
Friðrik framkvæmdastjóra fjár-
málasviðs og hefur það vakið
nokkra furðu hjá mönnum og þær
spurningar vaknað hvað vaki fyrir
fjölþjóðafyrirtækinu. Friðrik er
mjög hæfur maður, duglegur og öfl-
ugur og af mörgum talinn með efni-
legri pólitíkusarefnum Sjálfstæðis-
flokksmanna og m.a. formaður Fé-
lags frjálshyggjumanna frá upphafi.
Frami Friðriks virðist því fyrst og
fremst vera pólitískur, og heyrst hef-
ur að þarna sé IBM að spá í framtíð-
armann með mikil pólitísk tengsl,
sérstaklega innan Sjálfstæðisflokks-
ins...
náttúrugripasafns hafa að undan-
förnu verið að hleypa af stað vakn-
ingu um málið. Enginn skyldi lá
þeim það — Náttúrugripasafn ís-
lands hefur hírst í músarholu við
Hlemm í næstum 30 ár. Það sem
svíður náttúrugripasafnsmönnum
hvað sárast er aðgerðaleysi Há-
skóla íslands og menntamálaráðu-
neytisins í málinu. Þannig er, að
1947 var gerður samningur um yfir-
töku ríkisins á Náttúrugripasafni Is-
lands og kveðið á um að ríkið myndi
byggja yfir safnið. í lögum um Happ-
drætti H.í. er mælt fyrir um bygg-
ingu safnsins á háskólalóðinni.
Teikningar af húsinu voru gerðar
1951 en síðan ekki söguna meir.
Náttúrufræðistofnun hefur hin síð-
ari ár öðru hverju haft samband við
Háskólann og reynt að ýta á eftir
málinu en án árangurs. Nú eru
náttúrugripasafnsmenn orðnir
óþolinmóðir og vilja hreinar línur
um það hvort Háskólinn ætlar að
byggja hús yfir saf nið á lóð sinni eða
ekki. Ef ekki, hafa þeir hug á að
byggja safnið einhvers staðar ann-
ars staðar á einum hinna fjölmörgu
grænu blettum borgarinnar. . .
»fið heyrum öðru hverju um
sölu á fyrirtækjum. Nú mun Kokk-
húsið við Lækjargötu (við hliðina á
Skalla) vera til sölu...
Vfegna innlausnar spariskírteina ríkissjóÓs
VERDIRVGGÐA
ru-y
/ / í
UTLJ i
vaxtaieiknine
Allir afgreiðslustaðir Samvinnubankans annast innlausn
spariskírteina ríkissjóðs og bjóða sparifjáreigendum
verðtryggðan Hávaxtareikning með vöxtum.
Hávaxtareikningur er alltaf laus og óbundinn.
Kynntu þér Hávaxtareikninginn.
Betri kjör bjóðast varla
Samvinnubankinn