Helgarpósturinn - 29.08.1985, Page 2
FRETTAPOSTUR
1
Samruni BÚB og ísbjarnarins
Borgarráð samþykkti á fundi sinum á þriðjudaginn, með
þremur atkvæðum sjálfstæðismanna gegn tveimur atkvæð-
um minnihlutans, að taka upp viðræður við eigendur frysti-
hússins ísbjarnarins um hugsanlega samvinnu eða sam-
runa ísbjarnarins og Bæjarútgerðar Reykjavíkur. í skýrslu
sem gerð hefur verið um þetta, kemur meðal annars fram,
að auka megi hagkvæmni í rekstri beggja fyrirtækjanna
með þessu móti. Samkvæmt skýrslunni mun gert ráð fyrir
að í sameinuðu fyrirtæki verði starfsmannafjöldi 460—500
manns og togarar 6—7.
Greiöslustöðvunarbeiðni Víðis
Bæjarfógeti Kópavogs hefur fallist á beiðni stjórnar tré-
smiðjunnar Víðis hf. um greiðslustöðvun til handa fyrir-
tækinu frá og með sl. föstudegi, til að endurskipuleggja fjár-
hag fyrirtækisins. Greiðslustöðvunin er til 2ja mánaða.
Ráðgert var að nauðungaruppboð færi fram á þriðjudag, en
vegna greiðslustöðvunar varð ekki af því. Stjórn fyrirtækis-
ins segir að taprekstur undanfarinna ára geri það að verk-
um að nauðsynlegt sé að endurskipuleggja fjármálin.
Borgin kaupir Verndarhúsið
Borgarráð hefur samþykkt að borgin kaupi húsið að
Laugateigi 19, og mun Vernd því koma sér fyrir annars stað-
ar í borginni með starfsemi sína. íbúar í Teigahverfi mót-
mæltu því harðlega að Vernd hæfi rekstur sambýlis fyrrum
fanga í hverfinu, og boðuðu til fundar með borgarstjóra
vegna þessa.
Verulegur samdráttur í byggingariðnaði
í byggingariðnaðinum hafa horfur ekki verið jafn dökkar
síðan 1968. Er spáð 5% samdrætti í íbúðarbyggingum á
þessu ári miðað við það síðasta. Færri lóðum hefur verið út-
hlutað í Reykjavík en í fyrra og færri fokheldnivottorð bor-
ist miðað við sama tíma í fyrra. Engin eftirspurn er eftir
mönnum til starfa í byggingariðnaði, en venjulega er hún í
hámarki á þessum tima.
Kennarar úr BSRB
Allt bendir til þess að kennarar gangi úr BSRB um næstu
áramót. Fulltrúaráð Kennarasambands íslands hefur hafn-
að beiðni stjórnar BSRB um að endurtaka allsherjarat-
kvæðagreiðslu kennara um úrsögn úr BSRB, en ósætti hefur
ríkt vegna þeirrar niðurstöðu fulltrúaráðs BSRB að taka
ekki tillit til auðra seðla úr atkvæðagreiðslu Kennarasam-
bandsins sem fram fór í vor um úrsögn úr bandalaginu.
SÍS, ASÍ og BSRB í eina sæng. . .
Fulltrúar þessara þriggja hittust í vikunni til að ræða
möguleika á sameiginlegu fjölmiðlafyrirtæki. í samtölum
við fréttamenn sögðu þeir þetta könnunarviðræður, og eng-
ar ákvarðanir hafa verið teknar. Hins vegar er ákveðið að
hittast aftur í næstu viku. . .
1S milljón króna sýning
Sýningin „Heimilið ‘85“ opnar með pompi og prakt í
Laugardalshöll í dag, og verður þar margt sér til gamans
gert; tískusýningarflokkur frá París, Cinema 2000 og fleira.
Heildarkostnaður við sýninguna er nærri 15 milljónir
króna, og þurfa 40—50 þúsund gestir að skoða sýninguna
svo endar nái saman. Mesta athygli vekur að RÚV er nú í
fyrsta skipti með bás á sýningunni, og Alþýðuflokkurinn
fyrstur stjórnmálaflokka.
Ráðist á sjötugan mann
Ráðist var á sjötugan mann í húsi við Hverfisgötu í fyrra-
kvöld, þar sem hann var gestkomandi ásamt tæplega fertug-
um árásarmanni. Lögreglan kom að manninum með áverka
á höfði fyrir utan húsið og var hann fluttur á slysadeild.
Árásarmaðurinn var handtekinn skömmu síðar.
Ungadauöi við Mývatn
Talning á ýmsum andastofnum á Mývatni hefur leitt í ljós
að þeir hafa minnkað verulega á siðustu árum. Hafa svipað-
ar talningar verið gerðar á Laxá, en leitt í ljós að stofnar þar
hafa stækkað á sama tíma. Skortur á átu í vatninu veldur því
að ungarnir drepast, og nú er algengt að andahjón á Mývatni
komi ekki upp einum einasta unga.
Fréttapunktar
• Á vegum landlæknisembættis og heilbrigðisráðuneytis
fer nú fram könnun á lagalegri stöðu heilbrigðisyfirvalda
gagnvart sjúklingum sem þjást af ónæmistæringu, þ.e. þeg-
ar fyrsta tilfelli greinist.
• Grænfriðungar eru farnir frá íslandi, og ekki búist við
þeim aftur á þessu hausti. Hins vegar íhuga þeir mótmæla-
aðgerðir á meðan á opinberri heimsókn Vigdísar Finnboga-
dóttur, forseta íslands, í Hollandi stendur.
• Fram varð á sunnudag bikarmeistari í knattspyrnu 1985
er liðið sigraði ÍBK í úrslitaleik með þremur mörkum gegn
einu. Þetta var jafnframt þriðji meistaratitill þeirra á þessu
ári.
• Veðurfræðingar segja sumarið í ár aðeins í meðallagi gott,
þó það teljist það besta síðan 1980.
• Og í framhaldi af því er farið að snjóa á f jallvegum Aust-
fjarða og Norðausturlands. Mælst hefur næturfrost og
kartöflugrös víða um land eru fallin.
• Árangurslaus sáttafundur var haldinn í deilu iðnaðar-
manna í Áburðarverksmiðju ríkisins í Gufunesi og viðsemj-
enda þeirra. Þá er ráðgerður samningafundur í deilu vél-
stjóra hjá Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi á morgun.
• Nýlega var ráðið í dönskukennarastöðu við MH, þvert of-
an í úrskurð rektors og kennara við skólann. Mælt hafði ver-
ið með Auði Hauksdóttur en Peter Rasmussen fékk stöðuna.
• Um helgina verður almenn ráðstefna um kvennarann-
sóknir á vegum Háskóla íslands, með léttu yfirbragði, og
eru allir velkomnir til að hlýða á erindi sem þar verða flutt.
Guðni Guðmundsson rektor Menntaskólans (Reykjavík fagnaði gömlum nemend- Við vorum vfst á sjöunda hundrað sem hófum hlaupi
um sínum eftir hlaupið með orðunum; „Ég vissi að þið mynduð komast þetta á
skynseminni, strákar!"
Ritstjóri HP hleypur Reykjavíkurmea
Aðalatriðið ek
Sunnudagsmorguninn 24. ágúst
rann upp hlýr, vindlítill og léttskýj-
aður. A máli skokkara heitir þetta
hlaupaveður. Um hálftíuleytið
höfðu menn safnast saman fyrir
framan Fríkirkjuna, sumir í
íþróttafatnaði og hlauparalegir,
aðrir þungklæddir, greinilega að-
standendur þeirra fyrrnefndu og
með áhyggjuglampa í augum.
Reykjavíkurmaraþonið var að
hlaupa af stokkunum í annað sinn.
Undirritaður ritstjóri Helgar-
póstsins hafði gefið þau fyrirmæli
að blaðamaður ætti að hlaupa
maraþonið til að lýsa því ,,inn-
sæd“ en þar sem undirtektir voru
dræmar, féll hann á eigin bragði.
En svo vel vildi tii að gamail skóla-
bróðir undirritaðs, Jón Bragi
Bjarnason, dósent í lífefnafræði
við Háskólann (já, einmitt þessi
sem hellir ensýmum á síldina svo
hún þurfi ekki að leggjast í tunnu),
hafði byrjað að stunda skokk eftir
langan letitíma og dró ritstjóra HP
í hlaupaæfingar tveimur vikum
fyrir hlaupið. En þó að við hefðum
aðeins skráð okkur í skemmti-
skokkið (svartur húmor að kalla 7
km skemmtiskokk), nagaði óttinn
sálina vegna hremminganna
framundan. En nú var enginn tími
til iðrunar, Davíð Oddsson mættur
á svæðið í gráum buxum og dökk-
bláum jakka eins og íþróttafor-
maður, tilbúinn að ræsa hlaupið
með startbyssu.
Samkennd sóisjúkra
Okkur er raðað upp eins og fén-
aði enda tæplega sjö hundruð
manns samankomnir í hlaupið.
Fyrstir eru ekta maraþonsmenn
með 42,195 km fyrir framan sig,
þá 21 km menn og loks við
„skemmtiskokkarar" með ógn-
vekjandi 7 km hlaup fyrir augum.
Skotið ríður af og massinn fer á
hreyfingu. Dósentinn og ég höfum
komið okkur fyrir aftast til að eng-
inn hlaupi framúr okkur. Nú er
hlaupið létt og rólega og alls ekki
farið að ráðum bankastjóra eins
hér í borg sem ráðlagt hafði okkur
að taka forystuna strax og halda
henni.
Yfir Tjarnarbrúna, áleiðis suður
Suðurgötuna. Ennþá allt í lagi.
Þegar beygt er inn Hjarðarhagann
hafa nokkrir numið staðar og
gengið. En langflestir, krakkar á
öllum aldri, miðaldra og einstaka
roskinn borgari halda taktinum.
Niður Fornhagann og inn á Ægi-
síðuna. Á horninu stendur stúlka
og hrópar „Húrra!“ Dósentinn
brosir og veifar og hreytir út úr sér
til mín; „Brosa og taka við kompli-
mentinu!" Áfram Ægisíðuna.
Kemur ekki Páll Einarsson jarð-
fræðingur á hjóli framúr okkur!
Kallar; „Viljiði sitja aftan á?“ Við
látum sem við sjáum hann ekki,
en strögglum áfram. Nú er maður
farinn að anda þungt. Við erum
komnir inn í miðjan hópinn og
það er undarleg nautn að stunda
þessa hópþjáningu; eins konar
samkennd sálsjúkra. Á gangstétt-
inni stendur Guðmundur Arn-
laugsson fyrrverandi rektor og
skákdálkahöfundur Helgarpósts-
ins. Hann trúir greinilega ekki sín-
um eigin augum þegar ritstjórinn
Dav(ð Oddsson árnar Helgarpóstinum sérstaks velfarnaðar á næstu 7 kdómetrum.
2 HELGARPÓSTURINN