Helgarpósturinn - 29.08.1985, Side 14
FREE
STYLE
FORMSKÍ JM
L'OREAL
rrrrrYi r 1 ~ n^a ^gningarskúmib
SKUM í hánd?
leikur einn.
Framúrakstur á vegum úti krefst kunnáttu og skynsemi. Sá sem ætlar
framúr þarf að gefa ótvírætt merki um vilja sinn, og hinn sem á undan
ekur þarf aö hægja ferð. Stefnuljósin er sjálfsagt að nota. Minnumst
þess að mikil inngjöf leiðir til þess að steinar takast á loft, og ef hratt
er farið ökum við á þá í loftinu.
yUMFERÐAR
RÁÐ
YOGASTÖÐIN
HBISUBOT
Hjálpcir þér að losa
streitu úr hugcinum
SlaKa á stífum vöövu
liöKa liöamótin,
halda líKamsþunganum i sKefjum.
. MarKmiö oKKar er að draga ur
hrörnun og efla heilbrigöi á
sál og liKama. Undir Kjöroröinu
fegurö — gleði — friöur. '
Láttu eftir þér aö lita inn.
Pantaöu tima.
Morguntimar — Dagtímar— Kvöldtimar
Saunabaö — Ljósalampar
Reyndir leiöbeinendur.
YOGASTÖÐIN HEIISUBÖT
Hátúni 6a sími 27710 og 18606
SYNINGAR
Árbæjarsafn
Sumarsýningin er farandsýning frá þjóð-
minjasafni Grænlendinga og lýsir græn-
lensku bátunum „qajaq" og „umíaq". Hún
er hingað komin á vegum Útnorðursafnsins,
en svo nefnist samstarf nokkurra menning-
arsögulegra safna í Færeyjum, á Grænlandi
og á Islandi. Sýningin er opin á opnunartíma
safnsins frá kl. 13.30 til 18 alla daga nema
mánudaga.
Ásgrímssafn
Sumarsýning: Úrval verka Ásgríms. Opið
alla daga nema laugardaga kl. 13.30 — 16.
Ásmundarsalur
Ragna Björg sýnir olíu- og vatnslitamyndir
málaðar síðustu tvö ár og er þetta hennar
önnur einkasýning, opin til 1. september.
Gallerí Borg
Pósthússtræti 9
Á sumarsýningu gallerísins gefur að líta um
100 myndverk, aðallega grafík, pastelmynd-
ir, vatnslitamyndir og teikningar eftir alla
helstu listamenn þjóðarinnar, einnig list-
muni úr keramiki og gleri. Þessi fjölbreytta
sýning verður opin í ágúst virka daga frá kl.
12 til 18, og mun taka einhverjum breyting-
um frá degi til.dags. Gallerí Borg verður lok-
að um helgar í ágúst, nema með sérstöku
samkomulagi við einstaklinga eða hópa.
Gallerí Langbrók
Amtmannsstíg 1
Sýning á fellistólnum Sóley eftir Valdimar
Harðarson arkitekt. Sýndar verða ýmsar út-
gáfur af stólnum auk Ijósmynda af frum-
gerðum hans. Þá verða á sýningunni úr-
klippur úr fjölda erlendra blaða og tímarita.
Jafnframt verða sýnd verðlaunaskjöl sem
Valdimar Harðarson hefur hlotið vegna
þessa stóls. Sýningin er öllum opin ókeypis.
Virka daga er opið frá 10—18 og laugar- og
sunnudaga frá kl. 14—18.
Gailerí Salurinn
Vesturgötu 3
,,Óðurtil íslands": Gunnar Karlsson sýnir
olíumálverk og skúlptúr til 13. september.
Opið kl. 13—18 alla daga, fimmtudaga til 22
en lokað mánudaga.
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
Á laugardag hefst sýning Septemhópsins í
Austursal og í Vestursal sýning Jóns Reyk-
dal. Opið kl. 14—22 alla daga.
Listasafn ASÍ
Sigurlaugur Elíasson sýnir málverk og graf-
íkmyndir í Listasafni alþýðu, Grensásvegi
16. Sýningin verður opin virka daga frá kl.
16—20, og um helgar frá kl. 14 — 22. Hún
stendur fram til 1. september.
Listasafn Einars Jónssonar
Hnitbjörgum við Njarðargötu
Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá
kl. 13.30—16. Höggmyndagarður safnsins
er opinn daglega frá kl. 11 —17.
Listasafn íslands
við Suðurgötu
I tilefni 100 ára afmælis Listasafns íslands
var efnt til sýningar í safninu á verkum fjög-
urra frumherja í íslenskri málaralist; þeirra
Þórarins B. Þorlákssonar, Ásgríms Jónsson-
ar, Jóns Stefánssonar og Jóhannesar S.
Kjarvals. Sýningin er opin fyrst um sinn um
helgar frá 13:30 til 22 en virka daga frá kl.
13:30 til 18 og stendur til ágústloka.
Listmunahúsið
Lækjargötu
Alfreð Flóki sýnir 40 teikningar, unnar með
tússi, rauðkrít, svartkrít og litkrít. Myndirnar
eru unnar á sl. 2 árum. Opið virka daga kl.
10—18, laugardag og sunnudag kl. 14—18.
Síðasta sýningarhelgi.
Norræna húsið
Sýningin Jöklarannsóknir á íslandi, sögu-
legt yfirlit: íslensk kort og bækur auk efnis
frá öðrum Norðurlöndum. í sýningarsöl-
um sýna Kaare Espolin Johnsson og Knut
Skinnarland frá Noregi málverk og högg-
myndir 25. ágúst til 10. september. Munið
líka Opna húsið á fimmtudagskvöldum.
Nýlistasafnið
Vatnsstíg 3b
Sýning á málverkum eftir Tuma Magnússon
af ýmsu tagi frá þessu ári, unnum á íslandi
og Englandi. Tumi hefur haldið nokkrar
einkasýningar og tekið þátt í mörgum sam-
sýningum heima og erlendis. Sýningin er
opin frá 16—20 virka daga og frá 14 — 20
helga daga.
Þjóðminjasafn islands
í Bogasal stendur yfir sýningin Með silfur-
bjarta nál, íslenskar hannyrðakonur og
handverk þeirra. Á sýningunni eru hannyrðir
íslenskra kvenna undanfarinna alda. Opið
kl. 13.30—16 daglega.
Þrastarlundur
v/Sog
Sigríður Gyöa Sigurðardóttir sýnir olíu- og
vatnslitamyndir, alls 23 verk. Sýningin
stendur til 8. sept.
BÍÓIN
★ ★ framúrskarandi
★ ★ ágæt
★ ★ góð
★ þolanleg
o iéleg
Regnboginn
örvæntingarfull leit að Súsönnu
(Desperately Seeking Susan)
Söngstjarnan Madonna í aðalhlutverki.
Sjá Listapóst.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15.
Hernaðarleyndarmál
(Top Secret)
★
Framleiðendur: Jon Davison og Hunt Lowry.
Leikstjórn og handrit: Jim Abrahams, David
og Jerry Zucker ásamt Martin Burke. Kvik-
myndun: Christopher Challis. Tónlist: Maur-
ice Jarre. Aðalleikarar: Val Kilmer, Lucy Gutt-
eridge, Warren Clarke, Jeremy Kemp, Omar
Sharif.
. . .samfellan Ktil ÍTop Secret. Áherslan er öll
á hvern brandara hverju sinni, þeir eru í engu
byggðir upp, heldur skellt bláköldum framan
í áhorfendafésin frammi í sal, sem að sönnu
vita ekkert hvað bíður þeirra næst og allt þar
til flippið endar. Leikendum myndarinnar er
vorkunn. .. — SER.
Sýnd kl. 3.05, 5.05, 7.05, 9.05 og 11.05.
Vitnið
(The Witness)
★★★
Handrit: Earl W. Wallace/William Kelley.
Kvikmyndataka: John Seale. Tónlist: Maur-
ice Jarre. Leikstjóri: Harrison Ford, Kelly Mc-
Gills, Josef Sommer, Lukas Haas, Jan Rub-
es, Alexander Godunov og fl.
Sýnd kl. 3.10, 5.10, 7.10, 9.10 og 11.10.
Löggan í Beverly Hills
(Beverly Hills Cop)
★★★
Bandarísk, árgerð 1984.
Aðalhlutverk Eddie Murphy. Þrælgóður að
vanda. Leikstjóri Martin Brest.
Sýnd kl. 3.15, 5.15, 9.15 og 11.15.
Atómstöðin
íslenska kvikmyndin eftir sögu Halldórs Lax-
ness. Enskur skýringartexti. (English subtit-
les.)
Sýnd kl. 7.15.
Indiana Jones
Aðalhlutverk Harrison Ford.
Bönnuð innan 10 ára.
Sýnd kl. 3, 5, og 7.
Fálkinn og Snjómaðurinn
(The Falcon and the Snowman)
★★★
Fálkinn og Snjómaðurinn er bæði spenn-
andi og skemmtileg mynd, og það er ekki
síst að þakka afbragðsleik þeirra Penn og
Suchet, að ógleymdu vönduðu handverki,
sérstaklega klippingu. — IM.
Bönnuð innan 12 ára.
Sýnd kl. 9.15.
Háskólabíó
Rambó
Nýjasta mynd Sylvester Stallone. Evrópu-
frumsýning á íslandi!
Sjá Listapóst.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
Hrói höttur, Stjáni blái o.fl.
kl. 3 um helgina.
Nýja bíó
Steggjapartý
(Bachelor Party)
Með grínurunum Tom Hanks, Adrian Zmed,
William Tapper, og leikstjóranum Neal
Israel. Framleiðendur Ron Moler og Bob
Israel (Police Academy).
Endursýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bíóhöllin
Salur 1
Löggustríöið
(Johnny Dangerously)
Grínmynd um löggur og bófa á 3. áratugn-
um. Aðalhlutverk: Michael Keaton, Joe Pis-
coto, Peter Boyle, Dom Deluise, Danny De-
Vito.
Sjá Listapóst.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Salur 2
Vfg í sjónmáli
(A View to a Kill)
★★
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Salur 3
Hefnd Porkýs
(Parky's Revenge)
Tónlist í myndinni er leikin af Dave Edmunds
og George Harrison. Aðalhlutverk: Dan
Monahan, Wyatt Knight, Mark Herrier. Leik-
stjóri: James Komack.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Salur 4
í banastuöi
(Grand View USA)
Aðalhlutverk: Jamie Lee Curtis (Vistaskipti).
Leikstjóri: Randell Kleiser (Grease, Blue
Lagoon).
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Sagan endalausa
Sýnd kl. 3 um helgina.
Einnig eru 2.30 eða 3-sýningar á hinum
myndunum um helgina.
Salur 5
Hefnd busanna
(The Revenge of the Nerds)
Sýnd kl. 5 og 7:30.
Næturklúbburinn
(The Cotton Club)
★★★
Leikstjóri: Francis Ford Coppola.
Sýnd kl. 10.
Laugarásbíó
Salur A
Maðurinn sem vissi of mikið
í aðalhlutverkum eru þau Jamis Stewart og
Doris Day. Þessi mynd er sú síðasta í 5
mynda Hitchcock-hátíð Laugarásbíós. Sjá
Listapóst.
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Á laugardag verða hafnar sýningar á
kvikmynd Peter Bogdanowich Mask
(Gríma), með leik- og söngkonunni Cher,
sem fékk afbragðsdóma fyrir frammistööu
sína í Mask á kvikmyndahátíðinni í Cannes
á þessu ári.
Salur B
Morgunveröarklúbburinn
(The Breakfast Club)
★★★
Framleiðendur: Ned Tanen og John Hugh-
es. Leikstjórn og handrit: John Hughes. Tón-
list: Keith Forsey. Aðalleikarar: Emilio Estevz,
Paul Gleason, Anthony Michael Hall, Judd
Nelson, Molly Ringwald, Ally Sheedy.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Salur C
Að vera eða vera ekki
(To be or not to be)
★★
Gamla handritið eftir Edwin Justus Mayer er
það pottþétt, spennandi og fyndið og
atburðarásin svo snjöll að þessi endurgerð
verður vel heppnuð. Og kannski er það
ánægjulegast við þessa nýjustu Brooks-
mynd, að Mel Brooks (og Anne Bancroft)
þora að gera gengdarlaust grín að sjálfum
sér. _ |M.
Sýnd kl. 5 og 7.30.
Myrkraverk
(Into the Night)
★★
Handrit: Ron Koslow. Tónlist: Ira Newborn.
Kvikmyndataka: Robert Paynter. Framleið-
endur: George Folsey/Ron Koslow. Leikstjóri
John Landis. Aðalhlutverk: Jeff Goldblum,
Michelle Pfeiffer, Richard Farnsworth, Irene
Papas, Kathryn Harrold og fl.
Myrkraverk er klikkuð og skemmtileg, þótt
ekki væri annað en að sjá stórstirni í auka-
hlutverkum (David Bowie, Dan Ackroyd,
Vera Miles, og leikstjórana Roger Vadim og
Paul Mazursky). Svo þvf ekki að kæla niður
sumarhitann í svölum sal Laugarásbíós,
spenna á sig öryggisbeltin og fljúga inn í
klikkaða nótt Landis og félaga?
Sýnd kl. 10.
Bönnuð innan 14 ára.
Austurbæjarbíó
Salur 1
Breakdance II
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Salur 2
Maðurinn sem gat ekki dáið
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Salur 3
Blade Runner
Sýnd kl. 5, 9 og 11.
When The Raven Flies
(Hrafninn flýgur)
Bönnuð innan 12 ára.
Sýnd kl. 7.
Tónabíó
Minnisleysi
(Blackout)
Evrópufrumsýning: ný, amerísk saka-
málamynd í sérflokki. Aðalhlutverk: Richard
Widmark, Keith Carradine, Kathleen Quinl-
an. Leikstjóri: Douglas Hickox.
Sjá Listapóst.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Salur A
Eiginkona Sluggers
(Slugger's Wife)
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Stjörnubíó
Salur B
Micki og Maude
Aðalleikarar: Dudley Moore, Richard
Muligan, Anna Renking, Amy Irving. Leik-
stjóri: Blake Edwards.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Salur A
Prúðuleikararnir
Sýnd kl. 3 um helgina
Salur B
Síðasti drekinn
(The Last Dragon)
Sýnd kl. 3 um helgina.
Bleiku náttfötin
Sýnd kl. 7 í B-sal.
Christine
Endursýnd kl. 9 og 11.
VIÐBURÐIR
Lögvernd
Ármúla 19
Samtökin Lögvernd opna skrifstofu í nýju
húsnæði að Ármúla 19, annarri hæö, á
fimmtudaginn 29. ágúst. Fyrst um sinn verð-
ur skrifstofan opin á kvöldin frá klukkan 18
til 21 alla virka daga. Þar verða félagsmönn-
um veittar upplýsingar og ráðgjöf í ýmsum
málum og reynt að hjálpa fólki við að ná rétti
sínum.
Algengast er aö fólk leiti til Lögverndar
vegna ýmissa vandamála sem upp koma í
sambandi við húsnæðiskaup og vaxtamál
og jafnvel okurlán í því sambandi. Samtökin
munu meðal annars aðstoða félagsmenn
við gerö samninga um íbúðarhúsnæði. Sími
Lögverndar í nýju húsakynnunum er 685399.
LEIKUST
Rokk-söngleikur
á faraldsfæti
„Ekkó — Guðirnir ungu" verður til sýnis á
eftirtöldum stöðum kl. 20.30 (dagskráin
verður áfram birt hér í áföngum): 28. ágúst
Akranesi, 29. ágúst Grundarfirði, 30. ágúst
Stykkishólmi, 31. ágúst Búðardal, 2. sept.
Patreksfirði, 3. sept. Þingeyri, 4. sept. Bol-
ungarvík, 5. sept. Hnífsdal.
TÓNLIST
Austurbæjarbíó
Afmælistónleikar Harðar Torfasonar, leik-
stjóra og lagahöfundar, verða haldnir í Aust-
urbæjarbíói þann 4. sept. nk. Þar
koma fram auk Harðar, sem í senn heldur
uppá tuttugu ára sviðsferil og fertugsafmæl-
ið, þau Megas, Bubbi Morthens, Bergþóra
Árnadóttir og Kristín Ólafsdóttir. Þessir
fimm listamenn teljast allir til kynslóðar ís-
lenskra trúbadúra, en meö fyrstu plötu sinni
1971 má segja að Höröur hafi rutt trúbadúr-
um braut hér heima. Tónleikarnir hefjast kl.
21 og verður leikarinn Viðar Eggertsson
kynnir á þeim. Forsala aðgöngumiða hefst
miðvikudaginn 28. ágúst í Austurbæjarbíói
og Bókabúð Lárusar Blöndal á Skólavörðu-
stíg 2.
14 HELGARPÓSTUFSINN