Helgarpósturinn - 29.08.1985, Qupperneq 19
s
^^^íðastliðinn sunnudag var
Pöbb-Inn á Hverfisgötu opinn í
hinsta sinn. Gylfi Gudmundsson
eigandi staðarins ákvað síðan að
loka staðnum fyrir fullt og fast og
hreinsa allt sitt hafurtask út í gær,
miðvikudag. Allt frá því að staður-
inn opnaði hefur Gylfi átt í hinum
furðulegustu vandræðum í viðskipt-
um sínum við kerfið, einkum lög-
reglustjóraembættið. Dómsmála-
ráðuneytið kemur einnig við sögu.
Eins og menn muna, lét Jón Helga-
son dómsmálaráðherra hafa eftir
sér í fjölmiðlum að mikið ófremdar-
ástand ríkti á einum, ónefndum
stað. HP upplýsti hins vegar að hér
átti Jón við Pöbb-Inn. Gylfi telur að
lögreglustjóraembættið hafi lagt sig
í einelti, lögreglu verið sigað á stað-
inn og allt reynt til þess að finna
hina minnstu vankanta á rekstrin-
um, m.a. mætti Signý Sen fulltrúi
lögreglustjóra ásamt föruneyti á
staðinn og efndi til eins konar lög-
reglurannsóknar án sjáanlegstilefn-
is. í framhaldi af því voru svo lög-
reglumenn sendir í nærliggjandi
hús til að safna saman kvörtunum
frá íbúum. Þá munu samskipti Gylfa
og Björns Guðmundssonar í
Brynju, eiganda húsnæðisins hafa
verið hin furðulegustu, eigandinn
veitt leyfi fyrir nauðsynlegum breyt-
ingum innanhúss, síðan snúið við
blaðinu, sent afturköllunarbréf, og
meira að segja farið á fund lögreglu-
stjórans Sigurjóns Sigurðssonar,
en þeir munu vera félagar frá fornu
fari. Hvað um það, með þessum
endalokum pöbbsins er Gylfi Guð-
mundsson kominn á hausinn og tíu
milljónir í fjárfestingar farnar í súg-
inn. Hann hefur leitað til tveggja
stjórnmálamanna, Davíðs Odds-
sonar, og Alberts Guðmunds-
sonar, vegna þessa máls en báðir
lýstu því yfir að um mannréttinda-
brot væri að ræða og annar þeirra
sendi meira að segja bréf til „kerfis-
ins“ þar sem hann talaði máli Gylfa.
En kerfið virðist hafa sigrað að lok-
um.. .
||
■ Hið nýja fyrirtæki sem sam-
einar BÚR og ísbjörninn mun að
sjálfsögðu hljóta veglega stjórn og
er þegar farið að ræða valdaupp-
bygginguna. Trúlega mun Ragnar
Júlíusson, formaður útgerðarráðs
BÚR, skipa sæti stjórnarformanns í
hinu nýja fyrirtæki. Sagan hermir
ennfremur að til standi að Brynjólf-
ur Bjarnason, framkvæmdastjóri
BÚR og Vilhjálmur Ingvarsson
framkvæmdastjóri Isbjarnarins
verði báðir framkvæmdastjórar
hins nýja fyrirtækis en Jón Ingv-
arsson hjá ísbirninum flytji sig al-
farið til Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna þar sem hann hefur verið
stjórnarformaður. Þá verði Ragnar í
fullu starfi sem stjórnarformaður
hins nýja fyrirtækis. Búast má þó
við að Ragnar fallist seint á tveggja
framkvæmdastjóra kerfi hjá hinu
nýja fyrirtæki enda hefur hann sjálf-
ur barist fyrir því að slíkt kerfi verði
lagt niður hjá BÚR. . .
H^Sinhvern tímann kemur að því
að flutt verður í allt nýja útvarpshús-
ið í Efstaleiti og þá spyrja menn um
nýtingu á gamla útvarpshúsinu við
Skúlagötu. Kunnugir telja víst að
Skúlagata fjögur verði þá alfarið hús
sjávarútvegsins hér á landi. Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins og
Hafrannsóknastofnun eru nú á
neðstu hæðum hússins og talið er
víst að sjávarútvegsráðuneytið
verði flutt þangað niður eftir, Fiski-
félagið jafnvel líka og hugsanlega
fleiri aðilar. Það verður því fiskur
undir steini í gamla útvarpshúsinu
við Skúlagötu áður en langt um líð-
ur...
mM
I ú lætur BHM reikna út
hver raunveruleg kauphækkun
heimilislækna er, eftir samkomulag-
ið sem gert var við þá síðarnefndu á
dögunum. Er það mat manna að
læknar hafi í raun fengið hækkun,
sem slagar upp í ýtrustu kröfur
BHM-R frá í fyrra og Kjaradómur
sinnti aðeins að litlu leyti. Reynist
þessi grunur réttur, má vænta mik-
illar ólgu og skæruhernaðar á ýms-
Ferðaáfangar mega ekki veraof langir - þá þreytast
farþegar, sérstaklega börnin.Eftir5til lOminútnastanságóðum
stað er lundin létt. Minnumst þess að reykingar í bílnum geta
m.a. orsakað bílveiki.
yUMFERÐAR
RÁÐ
FJÖLBREYTT
HELGARTILBOÐ
Frá kr. 150,-
Góður matur þarf ekki að vera dýr.
Opið alla daga kl. 11 —22
um vinnustöðum BHM-manna í
haust. . .
Litla ísland verður sífellt líkara
hinum stóra heimi Sáms frænda og
eitt merki þess eru hinar árlegu sýn-
ingar í Laugardalshöllinni. Samt um
margt góðra gjalda verðar. Nú býðst
þeim sem engan áhuga hafa á þak-
járni, tölvum eða kremkexi að finna
fyrir nýja vöru. Jón Baldvin
Hannibalsson og félagar hans í Al-
þýðuflokknum hafa tryggt sér bás á
sýningunni þar sem boðin verður
hugmyndafræði, líklega matreidd
eins og hver vill og ókeypis, — eins
og svo margt á svona sýningu. ís-
lenskur stjórnmálaflokkur verður
semsagt í fyrsta skipti með bás á
vörusýningu.
Sumir segja reyndar að fordæmið
sé til því Þjóðviljinn hafði bás 1979
og lét toppstjörnur flokksins standa
þar á vöktum og ræða við gesti og
gangandi. En með Alþýðuflokkinn
skal minnt á að þeir sem vilja finna
Jón sjálfan ættu að skunda fyrir
helgina því eftir helgi fer hann utan
og hinir minni spámenn taka við...
H
■ Hrafn Gunnlaugsson er
maður önnum kafinn eins og fréttir
síðustu vikna hafa borið með sér. Á
næstunni fer Hrafn til Svíþjóðar til
að gera kvikmynd fyrir sænska
sjónvarpið eins og komið hefur fram
í fréttum. Hrafn er hins vegar for-
maður Listahátíðar og sinnir að
sjálfsögðu því starfi lítið á meðan.
Valinn hefur verið staðgengill
Hrafns í formannsstöðuna meðan á
utanför hans stendur og er það
Knútur Hallsson hjá menntamála-
ráðuneytinu. . .
STJÖRN VERKAMANNABÚSTADA
í HAFNARFIRÐI
auglýsir hér með eftir umsóknum um
íbúðir í verkamannabústöðum í Hafn-
arfirði.
Um erað rœöa 15íbúöir, sem byggðar verða á árinu
1986 viö Þúfubarð.
Þeir sem koma til greina þurfa að uppfylla eftirtalin
skilyrði:
1- Hafa lögheimili í Hafnarfiröi, þegar sótt er um.
2. Eiga ekki íbuö, eöa samsvarandi eign.
3. Hafa ekki haft haerri meðaltalstekjur árin
1982—1983 og 1984 en 318.000.- kr. á ári auk
29.000.- kr. á hvert barn innan 16 ára aldurs.
Sérstök athygli er vakin á því aö eldri umsóknir þarf
ekki að endurnýja.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu verka-
mannabústaða að Móabarði 34, sem er opin á mánu-
dögum, þriðjudögum og miðvikudögum kl.
16.00—18.00.
Umsóknarfrestur er til 18. september n.k. og ber að
skila umsóknum á skrifstofuna í síöasta lagi þann dag,
eða í pósthólf 272, Hafnarfirði.
Umsóknir, sem síðar berast verða ekki teknar gildar.
ALDREI MEIRA
ÚRVAL
í barnaherbergið, í unglingaherbergið
Verslið þar sem
úrvalið er mest
og kjörin best.
— —J u-
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Simi 10600
HELGARPÓSTURINN 19