Helgarpósturinn - 29.08.1985, Page 24
lorgunblaðið vegur stór-
lega að ráðherraliði Sjálfstæðis-
flokksins þessa dagana. Sl. laugar-
dag birti Mogginn leiðara undir heit-
inu „Fjármálaráðherra og varnar-
samningur". Þar er því haldið fram
að Albert Guðmundsson fjár-
málaráðherra sé ekki lengur með
ábendingar varðandi kjötinnflutning
til varnarliðsins, heldur almennar
athugasemdir um varnarsamning-
inn sem slíkan. Morgunblaðið
skammar ráðherrann fyrir að koma
með þólitískar yfirlýsingar og segir
hann faráinn á starfssvið viðskipta-
ráðherra og utanríkisráðherra
vegna yfirlýsinga um gjaldeyrisvið-
skipti varnarliðsins. Albert svaraði
fyrir sig í grein sem birtist í Morgun-
blaðinu sl. þriðjudag. En þá tók
Mogginn fram stórskotaliðið og birti
í gær, miðvikudag, þriggja dálka
leiðara sem hét „Albert Guðmunds-
syni svarað". Þar stendur Morgun-
blaðið fast á öllum fyrri skoðunum á
vinnubrögðum Alberts Guðmunds-
sonar varðandi þetta tiltekna mál.
Þar er fjármálaráðherra einnig sak-
aður um að hafa átt þátt í að draga
úr hópvinnu innan ríkisstjórnarinn-
ar. Hinar ofsafengnu árásir Morgun-
blaðsins munu hafa farið fyrir
brjóstið á mörgum sjálfstæðismönn-
um og vakið nokkra furðu og kímni
annarra. Skýringin á viðbrögðum
Moggans mun vera margþætt. í
fyrsta lagi hefur Morgunblaðið
ávallt verið á móti núverandi ríkis-
stjórn og notar hvert tækifæri til að
finna á henni höggstað. Morgun-
blaðið er eina áþreifanlega stjórnar-
andstaðan í dag. í öðru lagi hefur
Albert Guðmundsson aldrei verið
hátt skrifaður í Moggaveldinu. Þeg-
ar deilur hans og Geirs Hallgríms-
sonar utanríkisráðherra vegna
kjötinnflutningsins mögnuðust,
sauð upp úr hjá Morgunblaðinu.
Gejr er nefnilega stjórnarmaður í
Árvakri, útgáfufélagi Moggans og
einn áhrifamesti maður bak við
blaðið. Morgunblaðið tók því þegar
afstöðu með Geir í þessu máli. Geir
er hins vegar hógvær maður eins og
alþjóð þekkir, og því líklegt að
Morgunblaðið sé komið langt fram-
úr þeim velsæmismörkum sem ut-
anríkisráðherra telur að við eigi. En
þeir sem kunnugir eru skrifum og
afstöðu Morgunblaðsins vita að þeg-
ar Mogginn hefur sagt eitthvað í
leiðara þá telur blaðið það sann-
leika og sögulegar staðreyndir.
Albert virðist því búinn að fá reisu-
passann hjá ritstjórum Moggans...
^PÍ/^iorgunblaðið hunsar ekki
aðeins Albert: Staksteinar sem hafa
verið pólitískt holræsi blaðsins ár-
um saman, fjalla um annan ráð-
herra Sjálfstæðisflokksins í sögu-
legri grein sl. þriðjudag. Þar er eng-
inn annar en Matthías Á. Mathie-
sen viðskiptaráðherra tekinn á
beinið og tuskaður til fyrir að skrifa
undir nýjan viðskiptasamning við
Tékkóslóvakíu, 17 árum eftir innrás
Varsjárbandalagsins. Þar er
Matthías sagður hafa fallið fyrir
áróðursvél kommúnista og innrásin
gjörsamlega fallin í gleymsku hjá
viðskiptaráðherra. Matthías Á.
Mathiesen er greinilega einnig bú-
inn að fá reisupassann hjá Moggan-
um. . .
M
■ W *unu fyrrverandi fangar fá
heimilisaðstöðu á Sauðárkróki í
stað þess að flytjast niður í Teiga-
hverfi, eins og frægt er orðið? Svo
gæti allt eins farið, því nú þegar íbú-
ar í Teigahverfinu mótmæltu áform-
um Verndar um flutning í hverfi
þeirra, þá mun Vernd hafa fengið
upphringingu frá konu einni á Sauð-
árkróki sem bauð samtökunum ein-
býlishús, sem hún hefði til umráða
þar nyrðra. Hafði konunni ofboðið
afstaða borgarbúa til þessara
manna og vildi skjóta yfir þá skjóls-
húsi ef um allt þryti á höfuðborgar-
svæðinu. Það segir hins vegar lítið
af viðbrögðum Verndar við þessu
höfðinglega boði og enn minna af
áhuga fyrrum fanga að flytjast norð-
ur á land. Og svo spyrjum við um af-
stöðu íbúa Sauðárkróks, minnugir
harkalegra mótmæla fólksins í
Teigahverfinu. . .
■ restskosningar eru framundan
í Grindavík. Núverandi sóknarprest-
ur, Jón Árni Sigurðsson, hefur
þjónað þar um langt árabil, en lætur
nú af störfum aldurs vegna. Er talið
að ófáir prestar og guðfræðingar
verði um hituna í væntanlegum
prestskosningum og í góðsemi vegi
þar hver annan, enda slagurinn
óvíða harðvítugri en i jöfgum og
spennandi prestskosningum. Um-
sóknarfrestur er ekki útrunninn, en
sagan greinir frá tveimur lysthaf-
endum sem þegar eru komnir í
gang með kosningaprógrammið
þar syðra. Þetta eru þeir Örn Bárð-
ur Jónsson aðstoðarprestur í
Garðabæ og Baldur Rafn Sigurðs-
son prestur á Bólstað í Húnaþingi.
Það ku ekki spilla fyrir brauðinu að
í því er ný kirkja og nýlegur prests-
bústaður...
Hér nýtur japanskt hugvit sín til fulls. Elektrónískar ritvélar með
minni gerast ekki léttari og fyrirferðaminni. Brother verksmiðjurnar
framleiða um eina milljón véla árlega, sem er um 15% af markaðs-
þörf. Það ætti ekki að þurfa fleiri meðmæli.
Og hér er sú nýja litla BP — 30
Sú fyrsta í heiminum sem skrifar og teiknar í fjórum litum. Nú getur
þú skilað skýrslum fallega vélrituðum með viðeigandi línuritum og
allt í lit. Líttu inn til okkar og kynntu þér þessa litlu og léttu kjörgripi.
BORGARFELL HF.
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 23 - SÍMI 11372
GÍSLI J. JOHNSEN SF.
M
NÝBÝLAVEGI 16 • P.O. BOX 397 • 202 KÓPAVOGUR • SÍMI 641222
SUNNUHLlÐ, AKUREYRI, SÍMI 96-25004
s
ro
O
3
o
O)
c
I
I
<
24 HELGARPÖSTURINN