Helgarpósturinn - 03.10.1985, Qupperneq 2
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
VEGNA BORGARSTJÓRNARKOSNINGA INNAN SEILINGAR:
FRETTAPOSTUR
I Ránskjör á lánum
íslendingar hafa þurft að greiða allt upp í tæp 30% hærra í
afborganir og verðtryggingu á síðustu misserum en sem
nemur launahækkunum á sama tímabili. Þetta kemur fram
í línuriti sem birtist í nýútkomnum Hagtíðindum frá Hag-
stofu íslands. í september var lánskjaravísitalan H8,8 mið-
að við launavísitöluna hundrað.
Fjórlagafrumvarpinu steypt
Sameiginlegur fundur þingflokks og miðstjórnar Sjálfstæð-
isflokksins í Stykkishólmi um helgina var fundur mikilla
átaka og harðrar gagnrýni á störf og stefnu ríkisstjórnar-
innar, einkum í efnahagsmálum. Innan flokksins vex þeirri
skoðun fylgi að rjúfa beri þing og efna til kosninga. Megin-
niðurstaða fundarins var að meira yrði skorið niður í fjár-
lagafrumvarpinu, en ríkisstjórnin hafði tilkynnt rúmri
viku áður að samkomulag hefði náðst um fjárlagafrumvarp.
DV / skoðanakönnun um fylgi flokkanna: 41,8% óákveðin
Samkvæmt skoðanakönnun sem DV gerði um helgina hefur
Alþýðuflokkurinn misst forskotið sem hann hafði fram yfir
Framsókn og Alþýðubandalag. Þessir þrir flokkar mega
heita jafnir að fylgi. Sjálfstæðisflokkur og Alþýðubandalag
vinna á en 41,8% eru óákveðin eftir stjórnmálalognmollu
sumarsins. Fylgi Bandalags jafnaðarmanna og Samtaka um
kvennalista minnkar örlítið miðað við síðustu könnun, og
Flokkur mannsins er á blaði með 1% fylgi.
Óvíst með bvaða hætti greiðslujöfnun lána verður háttað
Framlengdur umsóknarfrestur á greiðslujöfnun húsnæðis-
lána rann út 30. sept. Alls hafa nú borist um 700 umsóknir.
Enn vantar þó Húsnæðisstofnun allar forsendur fyrir út-
reikningum á greiðslujöfnun frá félagsmálaráðherra og hef-
ur það gert starfsfólki hennar mjög erfitt fyrir að gefa al-
menningi skýra mynd af því hvaða áhrif greiðslujöfnun
húsnæðislána hafi á greiðslubyrði lántakenda. Því hafa
mun færri sótt um greiðslujöfnun en reiknað hafði verið
með.
Sjóvá kaupir hlut ríkisins í Eimskip
A mánudagskvöld varð Sjóvá stærsti einstaki hluthafinn í
Eimskipafélagi íslands hf. er tryggingafélagið keypti hluta-
bréf ríkissjóðs í Eimskip fyrir 48 milljónir og 360 þúsund
krónur á núvirði. Það er 10,9-falt nafnverö en Einar Sveins-
son framkvæmdastjóri Sjóvár metur kaupin svo að þegar
bréfin hafi verið greidd að fullu eftir tíu ár væru þau keypt
á um fjórföldu nafnverði. Albert Guðmundsson fjármála-
ráðherra kveðst mjög ánægður með sölu bréfanna.
Engin kennsla í mörgum greinum
Kennsla fellur niður í ýmsum greinum vegna kennara-
skorts í mörgum skólum landsins. Aðallega er um listgrein-
ar að ræða. Þá þarf að fella niður heimilisfræði viða í Reykja-
vík og á Reykjanesi og víða vantar sér- og hjálparkennara.
Þá hefur í fyrsta sinn í langan tíma reynst erfitt að fá rétt-
indakennara í Reykjavík og erfiðlegar hefur gengið að
manna skólana en nokkru sinni fyrr. Jón R. Hjálmarsson,
fræðslustjóri Suðurlands, telur að lögfesta beri starfsheiti
kennara hið fyrsta og hækka laun þeirra til að stöðva þann
flótta úr stóttinni sem nú er.
Nýtt verfl á síld og loðnu
Á mánudag var samþykkt i Verðlagsráði sjávarútvegsins
nýtt lágmarksverð fyrir síld og loðnu með atkvæðum selj-
enda og oddamanns gegn atkvæðum kaúpenda. Þessi verð-
lagning er með allt öðrum hætti en verðlagning á öðrum
fiski og stjórnast fyrst og fremst af mörkuðum erlendis.
Óskar Vigfússon, formaður Sjómannasambands íslands,
telur að miðað við aðstæður hefði ekki verið hægt að ná
hærra verði en þarna náðist.
Barnaheimilið Sólbrekka brann
Mikið tjón varð er barnaheimilið Sólbrekka við Suðurströnd
á Seltjarnarnesi brann á þriðjudagsmorgun. Er húsnæðið
talið nánast ónýtt. Engin slys urðu á mönnum.
Orðin hommi og lesbía bönnufl
Á fundi í útvarpsráði á föstudag var fjallað um auglýsingar
frá Samtökunum ’78. Meirihlutinn tók afstöðu gegn auglýs-
ingum þar sem orðin hommi og lesbía eru notuð á þeirri for-
sendu að þau væru ekki nógu íslensk. Ingibjörg Hafstað,
Kvennaframboði, lét bóka að hún teldi að með þessari
ákvörðun hefði útvarpsráð framið mannréttindabrot með
því að banna hommum og lesbíum að auglýsa undir eigin
nafni.
Jón Páll stefnir ÍSÍ
Jón Páll Sigmarsson aflraunamaður hefur stefnt Iþrótta-
sambandi íslands fyrir að dæma sig í keppnisbann fyrr á
þessu ári. Dómkrafan er sú að meðferð ÍSÍ á máli hans verði
gerð ómerk og óhlutgengisúrskurðurinn ógiltur. Þá hefur
Jón PáU í hyggju að stefna ÍSÍ fyrir ærumeiðingar.
Fréttapunktar
• Rafiðnaðarskóli hefur verið stofnaður til að koma til móts
við auknar kröfur um endurmenntun rafvirkja og rafeinda-
virkja.
• 1. október hækkuðu öll laun hjá ASÍ og BSRB um 4,5% og
sama hækkun varð á öllum bótum almannatrygginga.
• Samkvæmt nýsettum bráðabirgðalögum hækkaði bensín
um H,5% 1. okt.
• Frammarinn Ómar Torfason hlaut „Gullskó Adidas" sem
markahæsti leikmaður íslandsmótsins í knattspyrnu árið
1985.
• 38 ára gamall framkvæmdastjóri verktakafyrirtækis í
Reykjavík hefur viðurkennt að hafa svikið 8 milljónir króna
út úr Innkaupastofnun ríkisins með því að falsa ávísanir
sem hann fékk sem greiðslur vegna byggingar sundlaugar
við Grensásdeild Borgarspítalans í Reykjavík.
• Hafskip hefur í sumar selt tvö af elstu skipum sínum,
Langá og Laxá, fyrir samtals um 19 milljónir króna.
STEFNIR I
HÖRKUSLAG
— BORGARFULLTRÚUM FÆKKAR
OG ÞARMEÐ /fÖRUGGUM/7 SÆTUM
eftir Guðmund Árna Stefónsson ■■^^■■■■■■^^■■■■^^^■■■■■^■^^^HHBMHB^^^HBBBBHHBMH
Það eru sveitarstjórnakosningar
að vori. Eins og fyrri daginn beinast
sjónir manna einkum að Reykjavík-
urborg í því sambandi, enda virðist
það óneitanleg staðreynd að þróun
mála fyrir borgarstjórnarkosning-
arnar hefur veruleg áhrif á niður-
stöður kosninga í öðrum kaupstöð-
um landsins, þá einkum og sérílagi
í nágrannabyggðarlögum höfuð-
borgarinnar.
Sjálfstæðisflokkurinn endur-
heimti meirihluta sinn í Reykjavík í
síðustu kosningum — 1982. Hann
gerði betur en að ná naumum meiri-
hluta, þ.e. 11 fulltrúum af 21, fékk
heila tólf borgarfulltrúa og þannig.
ríflegan meirihluta.
Það er erfitt að spá um stöðu mála
nú, enda 8 mánuðir í kosningar.
Hins vegar eru sjálfstæðismenn
mjög bjartsýnir og treysta á mátt
Davíðs Oddssonar borgarstjóra,
sem hefur verið mjög áberandi það
sem af er kjörtímabilinu. Svo áber-
andi að sumum borgarfulltrúum
Sjálfstæðisflokksins hefur þótt nóg
um og talið hann skyggja um of á
aðra fulltrúa flokksins í borgar-
stjórnarmálunum. En almennt er þó
talið að þessi miðstýring Davíðs í
borgarstjórnarmáium hafi skilað sér
þannig, að staða Sjálfstæðisflokks-
ins í borginni sé um þessar mundir
nokkuð sterk. Sjálfstæðisflokkurinn
virðist samstiga á sama tíma og
ýmsir erfiðleikar hafa steðjað að hjá
minnihlutaflokkunum. Þeir hafa
ekki megnað að standa saman sem
ein órofa heild í andstöðu við meiri-
hluta Sjálfstæðisflokksins og innan
sumra minnihlutaflokkanna sjálfra
hefur einhugurinn ef til vill ekki ver-
ið nægur.
En það á mikið vatn eftir að renna
til sjávar þar til kjördagur næsta vor
rennur upp. Kosningabaráttan kem-
ur til með að ráða miklu og ýmsir
eru þeirrar skoðunar að þegar út í
slaginn komi, þá verði það í senn
veikleiki og styrkleiki Sjálfstæðis-
flokksins að hafa einn óumdeildan
og máttugan foringja, þar sem
Davíð Oddsson er. Styrkleiki vegna
þess að Davíð getur upp á sitt eins-
dæmi tekið af skarið hvað varðar
ákvörðunartöku og afstöðu til ein-
stakra mála, á sama tíma og for-
ingjar annarra flokka hafa ekki
nándar nærri jafn víðtækt umboð til
að taka hiklaust og ákveðið á mál-
um. En hinn „sterki leiðtogi" getur
líka orsakað það, að aðrir frambjóð-
endur falli um of í skuggann —
hreinlega gleymist kjósendum. Og
það óttast ýmsir sjálfstæðismenn að
geti gerst í borgarstjórnarkosning-
unum að vori, þegar baráttan í fjöl-
miðlum og á götum úti fer í fullan
gang. Davíð geti vitanlega ekki ver-
ið alls staðar, en kjósendur og hugs-
anlegir stuðningsmenn Sjálfstæðis-
flokksins geri sig ekki ánægða með
neitt annað en Davíð. Það geti gert
kosningabaráttuna, og þá sérstak-
lega hin beinu tengsl við kjósendur
fyrir kosningar, dálítið erfiða.
Burtséð frá hugsanlegum kosn-
ingaúrslitum að vori, þá er fyrir-
liggjandi að nokkrir sitjandi borgar-
fulltrúar munu ekki ná endurkjöri.
Ástæðan er einfaldlega sú, að borg-
arfulltrúum fækkar um sex — úr 21
í 15 — í næstu kosningum. Sú fækk-
un var samþykkt með atkvæðum
sjálfstæðismanna.
Þetta þýðir, að 8 borgarfulltrúar
duga til meirihluta í borgarstjórn.
Nú er staðan sú, að sjálfstæðismenn
hafa 12 fulltrúa, en minnihlutaflokk-
arnir samtals 9. Það er óhætt að slá
því föstu að borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins munu vera á bilinu
7—9, mögulega tíu, ef minnihluta-
flokkarnir stæðu með eindæmum
illa að kosningaundirbúningi og
framboðum sínum. Allt að einu
munu einhverjir þeir sitja úti í kuld-
anum sem nú verma borgarstjórn-
arstóla.
Margir kallaðir
Og ef litið er til Sjálfstæðisflokks-
ins sérstaklega, þá eru forkosningar,
eða prófkjör, innan seilingar. Próf-
kjörsdagar verða að öllum líkindum
23. og 24. nóvember. Og eins og áð-
ur eru margir kallaðir en fáir útvald-
ir.
Ennþá er ekki afráðið hverjar
prófkjörsreglur verða, en öll þróun
virðist í þá átt, að þrengja prófkjörin
fremur en víkka þau út. Galopin
prófkjör eru hverfandi hjá Sjálfstæð-
isflokknum. Samþykkt miðstjórnar
flokksins ekki alls fyrir löngu var
stimpillinn á þá þróun. Hins vegar
getur fulltrúaráðið ákveðið nánar
um prófkjörstilhögun. Þær þrjár
leiðir sem til greina koma varðandi
þátttökurétt eru eftirfarandi: 1. Að-
eins fyrir flokksbundna. 2. Fólk get-
ur skráð sig í flokkinn fram á próf-
kjörsdaga og þannig öðlast þátt-
tökurétt. 3. Fólk getur sérstaklega
skráð sig í prófkjörið og undirritað í
leiðinni stuðningsyfirlýsingu við
flokkinn, án þess þó að ganga í
hann.
Viðmælendur Helgarpóstsins
töldu það ekki skipta sköpum um
niðurstöður prófkjörsins hver þess-
ara þriggja leiða yrði ofan á. Að vísu
gæti það breytt nokkuð röð fram-
bjóðenda innbyrðis, en hvað varðar
möguleika nýliða inn á listann,
nýrra stjarna utan af götu, þá myndi
opið, hálfopið eða lokað prófkjör
ekki breyta þeirri staðreynd að
möguleikar nýrra andlita eru litlir
sem engir, sérstaklega við þessar
aðstæður, þar sem öruggum sætum
á listanum fækkar um þrjú til fimm.
Allir meö
Eftir því sem best verður séð, virð-
ast allir núverandi borgarfulltrúar
flokksins vilja halda áfram. Raddir
voru uppi um það á tímabili, að íngi-
björg Rafnar hygðist draga sig í hlé,
en talið er að af því verði ekki. Meira
að segja Albert Gudmundsson ætlar
að prófa mátt sinn og megin í borg-
arstjórnarprófkjörinu og er mikill
spenningur ríkjandi varðandi út-
komu hans, ekki aðeins innan Sjálf-
stæðisflokksins, heldur einnig í öðr-
um flokkum. Það er ekki á hverjum
degi sem starfandi fjármálaráðherra
leggur höfuð sitt að veði í prófkjöri
fyrir sveitarstjórnaframboð.
En ef litið er á stöðu einstakra
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
og möguleika þeirra á „öruggu"
sæti á lista flokksins, þá horfir
myndin þannig við, eftir víðtækar
athuganir Helgarpóstsins innan
sem utan Sjálfstæðisflokksins:
Davíd Oddsson verður í fyrsta
sæti eftir sem áður og hlýtur mjög
góða kosningu, að mati allra við-
mælenda HP.
Aðrir sem sterkt standa að mati
kunnugra, eru menn eins og Magn-
Hætta — Ifklega
Páll Gfslason
Ragnar Júlfusson
Ingibjörg Rafnar
2 HELGARPÓSTURINN