Helgarpósturinn - 03.10.1985, Síða 4
Fréttaskýring um Hafskipsmálið 4 mánuðum síðar:
SAMEININ6
EIMSKIPS 06
HAFSKIPS ÚT í HÖTT
Hörður Sigurgestsson forstjóri Eimskips:
Áttum viðræður við Hafskipsmenn um Norður-Atlantshafssiglingarnar
Að undanförnu hafa menn velt
talsvert vöngum yfir framtíð Haf-
skips hf. Því hefur verið haldið fram,
að í uppsiglingu sé sameining fyrir-
tækisins og Eimskipafélagsins.
Hördur Sigurgestsson forstjóri Eim-
skips vísar sameiningarhugmynd-
um á bug og einn heimildarmanna
Helgarpóstsins, sem þekkir til starf-
semi beggja fyrirtækjanna segir:
„Sameining er út í hött.“
Meðal Eimskipsmanna er niður-
staðan klár. Sameining kemur ekki
til greina. Hjá Hafskip skiptast
menn hins vegar í nokkra hópa, en
þó einkum tvo: Annars vegar þá,
sem vilja gera allt til þess að ná fram
einhvers konar samstarfi eða sam-
vinnu, og svo hins vegar þá, sem
telja, að „skollaleiknum'1 verði ekki
haldið áfram og um aðeins eitt sé að
ræða hjá félaginu núna, nefnilega
að leyfa því að fara á hausinn.
Stjórnendur fyrirtækisins vilja
klóra í bakkann, en áhrifamiklir
hluthafar segja, að tími sé kominn
til þess að hætta þessari rándýru
leiksýningu, sem felst í því að halda
líkinu volgu.
Nái þessi hópur sínu fram er jafn-
framt gert ráð fyrir því, að allir for-
ráðamenn fyrirtækisins verði látnir
fara án miskunnar og eru í þessum
hópi Björgólfur Gudmundsson for-
stjóri, Ragnar Kjartansson stjórnar-
formaður, Jón Hákon Magnússon
framkvæmdastjóri markaðssviðs,
Sigurþór Gudmundsson bókari,
Baldvin Berndsen, Hafskip-USA,
Porvaldur Björnsson hægri hönd
forstjóra og fleiri. Tæpt hefur verið á
hugmyndum um, að haldið verði í
t.d. flutningamiðlunarfyrirtækið
Cosmos í New York og í Evrópu en
það þykir mönnum heldur ekki fýsi-
legt, þar sem rekstur þess gengur
ekkert of vel og talsverðar skuldir
hvíla á fyrirtækinu. Hins vegar gæti
þetta orðið leið til þess að koma í
veg fyrir meiri háttar „hallarbylt-
ingu" í fyrirtækinu. Yfirborðið
myndi síður gárast.
I ár hefur reksturinn gengið illa og
spá forstjórans um „bezta ár í sögu
félagsins" liggur nú þegar kylliflöt.
Út á við bera forsprakkar Hafskips
sig vel. Segja, eins og aðrir í þessari
atvinnugrein, að þetta séu erfiðir
tímar, en samt gangi þetta þokka-
lega. Þessu trúa fáir.
I sjálfu fyrirtækinu ríkir mikil
óvissa á meðal starfsmanna um
framtíð sína og sérstaklega er farið
að bera á áhyggjum hjá starfsmönn-
um, sem hafa unnið hjá fyrirtækinu
árum saman. Þessir starfsmenn fá
lítið að vita um reksturinn og verður
að gera ráð fyrir því, að stjórnendur
Hafskips geri starfsmönnum grein
fyrir stöðu mála á næstunni með yf-
irlýsingu eða öðrum hætti.
SKIPIN SELD LANGT
UNDIR MATI
Fram til þessa hafa starfsmenn
heyrt vangaveltur manna úti í bæ
um sameiningu við Eimskip eða
samstarf, eða þá hrun fyrirtækisins.
Þegar er búið að selja tvö skip fé-
lagsins, Laxá og Langá, fyrir 19
milljónir króna en samkvæmt sjálf-
stæðu mati, sem HP varð sér úti um
í sumar, voru skipin metin á rúma
31 milljón. Mismunurinn er heilar
tólf milljónir króna í mínus fyrir Haf-
4 HELGARPÓSTURINN
skip. Þá herma staðfestar fregnir, að
uppi séu áform um að selja að
minnsta kosti eitt „Fred Olsen skip-
anna" svokölluðu, en hvert þeirra
(eru 3 talsins) er metið á eina og
hálfa milljón dollara. Skipamiðlarar
hafa komið um borð í erlendum
höfnum og skoðað skipin. Hafskips-
menn vilja a.m.k. vera við öllu búnir
því eigi fyrir alllöngu var áhöfn eins
þessara skipa beðin um að hafa
vegabréf með sér í siglingu til örygg-
is. Kunnugir telja, að brátt verði Haf-
skipsflotinn orðinn helmingi minni
en hann var. Þessar skipasölur
hljóta að vera gerðar í samráði eða
samkvæmt skipun Útvegsbankans,
en þeim banka skuldar fyrirtækið
upphæð á bilinu 500—600 milljónir
króna. Þar af vantar bankann veð
fyrir upphæð, sem nemur um
230—240 milljónum króna.
Því má bæta viö, að samkvæmt
heimildum HP hafa viðskipti Haf-
skips og Útvegsbankans verið í sér-
stakri athugun hjá Seðlabankanum.
Þórður Ólafsson í bankaeftirlitinu
vildi hvorki neita þessu né játa.
En lítum aðeins á sameiningar-
hugmyndina. Sagan segir, að Albert
Guðmundsson fjármálaráðherra sé
mjög áfram um, að Eimskip komi á
einhvern hátt inn í það dæmi. í
þessu sambandi er rétt að rifja upp,
að fjármálaráðherra var fram að
myndun núverandi ríkisstjórnar for-
maður bankaráðs Útvegsbankans á
sama tíma og hann var formaður
stjórnar Hafskips.
Hörður Sigurgestsson forstjóri
Eimskipafélagsins sagði í samtali
við Helgarpóstinn, að sameining
skipafélaganna tveggja væri ekki á
dagskrá núna. Hinu væri ekki að
neita, að í þessari atvinnugrein sem
öðrum veltu menn stöðugt fyrir sér
nýjum möguleikum, hagkvæmni
samvinnu, t.d. með hliðsjón af hag-
kvæmni stærðarinnar. „En samein-
ing Eimskips og Hafskips hefur ekki
verið sérstaklega á dagskrá hjá okk-
ur,“ sagði Hörður.
ENDURSKOÐANDI
EIMSKIPS
„GÁTTAÐUR"
Helgarpóstinum er kunnugt um,
að endurskoðandi Eimskips hefur á
undanförnum vikum unnið að sér-
stakri úttekt á fjárhagsstöðu Haf-
skips og mun niðurstaðan vera jafn-
vel verri en sagt hefur verið, t.d. hér
í Helgarpóstinum. Raunar munu
virðulegir endurskoðendur vera
„gáttaðir" og segja ársskýrslur Haf-
skips fyrir nokkur sl. ár vera bein-
Iínis rangar, vísvitandi eða ekki. í
þröngum hópi er sagt sem svo, að
þessar ársskýrslur líkist meira Rosn-
ingaáróðri en alvarlegum skýrslum
um fjárhagsstöðu fyrirtækis.
Þegar HP bar það undir Hörð Sig-
urgestsson hvort ekki væri rétt, að
endurskoðandi fyrirtækisins hefði
kannað sérstaklega bókhaid Haf-
skips, kvað hann það eingöngu hafa
verið athugun á stöðu fyrirtækis
sem væri í sömu atvinnugrein og
Eimskip. Slíkt væri alþekkt.
„Við förum alltaf í saumana á
reikningum fyrirtækja eins og Haf-
skips, en við höfum hins vegar ekki
farið í saumana á neinu bókhaldi,"
sagði Hörður Sigurgestsson.
Hörður Sigurgestsson: „Förum alltaf í
saumana á reikningum fyrirtækja eins og
Hafskips..."
HP veit á hinn bóginn, að þessi
athugun á Hafskip var víðtæk. Jafn-
framt hljótum við að benda á, að
þessi sérstaka athugun er enn í
gangi, heilum fjórum mánuðum
eftir að ársskýrsla Hafskips var lögð
fram. Þá beindist hún einnig að und-
anfarandi árum og hafa niðurstöð-
urnar verið kynntar forstjóra Eim-
skips og nánustu samstarfsmönnum
hans. Jafnframt hefur þess verið
vandlega gætt að ekkert fréttist af
þessari athugun. Það er Endurskoð-
un hf., sem hefur unnið þetta verk
fyrir Eimskip og er Ólafur Nilsson
löggiltur endurskoðandi tengiliður-
inn. Ólafur hefur verið óvenju tíður
gestur á skrifstofu Eimskips að
undanförnu og eru almennir starfs-
menn byrjaðir að pískra um þessa
leynd. Hjá Eimskip eru það í mesta
lagi fjórir einstaklingar fyrir utan
Hörð, sem eitthvað vita hvað er á
seyði.
Hér verða orð Harðar um alvana-
lega athugun á keppinaut ekki dreg-
in í efa. Hins vegar bendir margt til
þess að fleira búi undir. Sjálfur sagði
Hörður við HP, að fyrir nokkru
hefðu farið fram viðræður á milli
Eimskips og Hafskips um Norður-
Atlantshafssiglingarnar (Trans-
Atlantic), „en það kom ekkert sér-
stakt út úr því. Við sáum satt að
segja ekki, að það væri grundvöllur
fyrir því að bæta um í þeim rekstri
þannig að það væri ávinningur í
því.“
Björgólfur Guðmundsson: Hann og fé-
lagar hans bera sig vel — en búast má við
að til tíðinda dragi.
UPPGJÖR Á HAFSKIP
BLASIR VIÐ
Um upphaf þessara viðræðna
sagði Hörður það eitt, að þetta hefði
komið upp í samræðum manna.
Þarna var stigið fyrsta skrefið í átt
til samvinnu, en ef af sameiningu
hefði orðið, hefði það kostað Eim-
skip yfirtöku á öllum skuldum Haf-
skips. Og jafnvel Eimskip hefði ekki
ráðið við þær.
Fyrst ekki tókst að koma á sam-
vinnu, hvað þá sameiningu skipa-
félaganna tveggja, virðist aðeins
eitt blasa við Hafskip. Það er að fé-
lagið verði gert upp. Raunar eru
margir undrandi á því, að félagið
skuli enn vera í rekstri, fyrirtæki
sem skuldar langt umfram eignir.
Og sá galli er á gjöf Njarðar, að tím-
inn vinnur ekki með Hafskip. Hins
vegar má vera, að hann vinni með
tilteknum einstaklingum hjá Haf-
skip og öðrum, sem tengjast fyrir-
lækinu frá fyrri tíð og má þar nefna
Albert Guðmundsson fjármálaráð-
herra.
Albert Guðmundssyni er í mun að
bjarga Hafskip frá því að sökkva
vegna afskipta hans af fyrirtækinu
og lánafyrirgreiðslum Útvegsbank-
ans til þess á sínum tíma, en þær
voru ótæpilegar. Sumir ganga svo
langt að segja, að pólitísk framtíð
fjármálaráðherrans sé í veði. Fari
Hafskip á hausinn, eða verði réttara
sagt leyft (!) að fara á hausinn, komi
upp á yfirborðið staðreyndir um
fyrirgreiðslu ráðherrans og fyrrver-
andi bankaráðsformannsins, sem
taki út yfir allan þjófabáik. Að auki
skjótist svo upp á yfirborðið ýmsir
göróttir hlutir úr rekstri Hafskips,
sem kunni að kalla á sérstaka rann-
sókn.
Af þessum sökum, meðal annars,
vill Albert Guðmundsson leggja allt
í sölurnar til þess að málið verði af-
greitt á hljóðlátan hátt. Raunar er
slík afgreiðsla málsins jafn mikilvæg
fyrir Utvegsbankann.
PÓLITÍSKUR
ÞRÝSTINGUR Á
EIMSKIP?
En heppilegasta lausnin er úti-
lokuð. Hafskip er sokkið og Eimskip
vill ekki taka við tætlunum.
í umræðum manna á meðal hefur
verið talað um það, að talsverður
pólitískur þrýstingur sé á Eimskip
vegna þessa máls. Raunar varð Eim-
skip hinn ímyndaði bjargvættur
strax eftir umfjöllun HP um Hafskip
snemma í júní. Þá, nokkrum dögum
eftir að HP birti greinina um Haf-
skip, sem sagði fyrirtækið á hausn-
um, sagði fjármálamaður með nef
fyrir íslenzkri pólitík við kunningja
sinn: „Ég yrði ekkert hissa, ef Hörð-
ur yrði, píndur til að kaupa allt
batteríið.” Maðurinn átti einfaldlega
við að fundin yrði pólitísk lausn á
málinu og Hörður Sigurgestsson for-
stjóri Eimskips þyrfti að súpa seyðið
af björgunaraðgerðum í þágu
stjórnmálamanna, sem hefðu mis-
notað herfilega aðstöðu sína í ein-
um ríkisbankanna.
Við bárum það undir Hörð hvort
hann hefði orðið fyrir pólitískum
þrýstingi vegna hugmynda um sam-
einingu Hafskips og Eimskips og
neitaði hann því alfarið.
Við tiltókum tvennt, sem nefnt
hefur verið í þessu sambandi og er
annað niðurfelling á innflutnings-
gjöldum vegna kranans mikla í
Sundahöfn, og hitt loforð um hækk-
un á farmgjöldum.
Um kranann sagði Hörður, að sú
undanþága hefði fengizt vegna
heimildarákvæðis í fjárlögum, sem
helgaðist m.a. af því að í nágranna-
löndum okkar tíðkaðist ekki að taka
toll af hafnarframkvæmdum sem
þessum. Eimskip hefði getað flutt
kranann inn í pörtum og fengið
verkið þá að einhverju leyti stimpl-
að sem innlenda framleiðslu og í
þriðja lagi hefði heimildarákvæðið
ekki gilt einvörðungu um hafnar-
krana fyrir Eimskip. „Við teljum
þannig, að okkur hafi ekki verið
veitt nein sérstök fyrirgreiðsla,"
sagði Hörður.
Um hækkun farmgjalda sagði
Hörður, að þau heyrðu undir við-
skiptaráðuneytið og verðlagsráð,
ekki fjármálaráðuneytið, og raunar
hafði ekki verið leitað þangað lengi.
„Við teljum óeðlilegt að fá mál af-
greidd í stjórnkerfinu með pólitískri
fyrirgreiðslu," sagði Hörður Sigur-
gestsson.
Um sameiningarkenningar og
pólitískan þrýsting sagði hann: „Ég
er mjög harður á því, að það er eng-
inn fótur fyrir neinu af þessu tæi.
Það hafa engir slíkir hlutir verið orð-
aðir við okkur."
Björgólfur forstjóri í ræðustól á fundi árið 1979, þegar hlutafé var aukið f Hafskip og
hluthöfum fjölgaði úr 100 manns ( u.þ.b. 500 manns samkvæmt ársskýrslu Hafskips.
ieftir Halldór Halldórssonl