Helgarpósturinn - 03.10.1985, Side 11

Helgarpósturinn - 03.10.1985, Side 11
er skaðlaust ef það villir ekki heimildir á vörunni. Auglýsingar sem þessar eru dýrar og borga sig tæpast miðað við ár- angur, því að fjöldinn er hættur að lesa, kann það ekki eða nennir því ekki. Sjónvarpsgláp er komið í stað- inn fyrir bækur og blöð og það er þar sem ætti að auglýsa íslenskar vörur, þó dýrt sé. Betra er að binda sig við eina eða tvær borgir til að byrja með og auglýsa oft, því gildi auglýsinga virðist vera annað veldi af endurtekningu þeirra. Skilyrði fyrir slíkum auglýsingum er að tekið sé fram hvaða verslana- keðja selji íslenska fiskinn, annars gæti svo farið að allur fiskurinn í borginni yrði skyndilega íslenskur gæðafiskur. Þá væri athugandi hvort íslendingar gætu ekki orðið heimsfrægir fyrir eina sérstaka vörutegund, eins og t.d. Rússar fyrir styrjuhrogn, en ekki verður það án auglýsinga. Slíka vörutegund væri sjálfsagt hægt að finna, þótt ekki væri það hákarl eða brennivín. Hér er þó engan veginn slegið föstu að ekki væri hægt að gera Svartadauða að þekktri vöru, ef nógu miklu fé væri eytt í það. í ferðamannapésum sem gefnir eru hér út hef ég aldrei séð auglýsta fiskrétti og lagmeti, en vel má vera að það hafi farið fram hjá mér. Á umbúðum ætti að taka fram að fiskurinn sé veiddur í ómenguðu hafi og í auglýsingum ætti að segja að fiskneysla minnki hættu á hjarta- sjúkdómum. Ekki dreg ég í efa að bandaríska hjartaverndin, American Heart Association, vilji stuðla að aukinni fiskneyslu meðal Bandaríkja- manna. Þeir væru e.t.v. fáanlegir til að dreifa áróðurs- og kynningarrit- um um íslenskan fisk og benda á verslanakeðjur sem selja hann. Það þarf viðræður milli útflytjenda og hjartaverndarinnar. Hér er ekki um neitt smámál að ræða, því að árið 1969 dó í Bandaríkjunum rúmlega ein milljón manns úr æðasjúkdóm- um og vafaiaust hefur sú tala marg- faldast síðan. Kristján Jónsson lýsingar, áður en sýningar hefjast, ég hef alltaf haldið í þá barnalegu von, að einhverjir gagnrýnendur eða áhorfendur kæmu auga á, þeg- ar þannig er. Fyrir nú utan það, að fátt er nýtt undir sólinni t.d. eftir að æfingar hófust á Grímudansleik og heildarskilningur á verkinu var mótaður og línur dregnar, komst ég yfir bók eftir Julian Budden, einn fremsta Verdi-sérfræðing okkar tíma. Þar dvelst honum talsvert við hlutverk Ulricu, hafnar þar alfarið öllum fordæðuklisjum, sem hann telur gamaldags, og er í greiningu sinni mjög svo á svipuðum nótum og við Sigríður Ella. En góði maður, spyr nú einhver, ef þetta kemur nú alls ekki yfir í sýn- ingunni? Til hvers, spyr ég, kemur það ekki yfir? í öllum öðrum list- greinum er það talið til tekna, ef verk þolir sískoðun og fleira og fleira kemur í ljós. Og ég veit að glöggskyggnir áhorfendur hafa meðtekið þessa túlkun Sigríðar Ellu, og gert sér grein fyrir hvernig allt hennar fas og látæði og hennar meðhjálpara, sígaunanna þriggja í sýningunni, hverfist um þennan skilning, því að þeir hafa sagt mér það. Það er leitt, hvað sá barnasjúk- dómur ætlar að reynast langær hér á landi í leiksviðsgagnrýni, að þar sé mest um, að kveðnir séu upp dómar, lofsamlegir, eins og sá, sem hér varð tilefni til skrifa, eða að- finnslusamir, en síður greining á því, sem fyrir augu og eyru ber, greining og lýsing, sem lyki upp nýjum heimum fyrir áhorfendum, þeim til skilnings og ánægjuauka. Sveinn Einarsson. LAUSNÁ SKÁKÞRAUT 11. Þetta dæmi er minnisstætt fyrir villuspor sín — villuspor er leikur sem sýnist vera lykilleikur og leið- ir til máts á réttum tíma í mörgum tilvikum, en svartur á vörn við honum. Hér eru villusporin: (a) 1. Dc7 (hótar b8R mát, en svar- ar Hxb7 með Dxb7 mát). 1. - Hb5! (b) 1. Dc8 (hótar b8R++ og mát). 1. - Bxb4! (c) 1. Dd8 (hótar b8R mát). 1. - Bxb4! En 1. De5! nægir til máts í öllum tilvikum: 1. — Hxe5 2. b8R mát. 1. — Bxe5 eða Hxb7 eða Hh8. 2. Rc5 mát. 12. Þetta er ágætt dæmi um það hve góðan grip er unnt að smíða úr grönnum efniviði: 1. bdl Ke5 2. De4 mát. 1. - Ke3 2. Df2 mát. 1. - Kd5 2. Ke4 mát. 1. — Bc3 2. De4 mát. 1. — Bb2 2. Dc5 mát. Álfheimabakarí Álfheimum 6 og Hagamel 67 OPNUNARTÍMl: Virka da9a kl 8 tjl 18 Laugardaga kl. 8 til 16 Sunnudaga kl. 9 til 16 MIKIÐ ÚRVAL AF BRAUÐUM, KÖKUM OG ÖÐRU KAFFIMEÐLÆTI Stór lambavorrúlla - karrýsósa - steikt hrísgrjón — saiat. 160,- Álfheimumó—‘Reykjavík sími: 647-455 langstærsta bifreiðastöð borgarinnar með flesta 7 farþega bíla Fljót og góð afgreiðsla. Stæði um allan b HELGARPÓSTURINN 11

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.