Helgarpósturinn - 03.10.1985, Side 21

Helgarpósturinn - 03.10.1985, Side 21
starfsmannanna að versla við eigin banka mun einkanlega felast í því að þeir eigi betri möguleika á lána- fyrirgreiðslu en áður. Bankinn hefur nákvæmt yfirlit yfir allar fjárreiður þeirra — laun, sparnað og útgjöld — og getur þar af leiðandi kannað greiðsluþol viðkomandi með auð- veldum hætti. Hann getur jafnvel notað sér þessa vitneskju um starfs- mann sinn til þess að gera framtíð- arspá um kjör hans og tekjuafgang. Með þessu fæst lánstraust, eða með öðrum orðum: Bankinn veit miklu meira um sína starfsmenn en aðra sem skipta við hann og getur þar af leiðandi veitt þeim meiri þjónustu. FJÁRMÁLAMISFERLI FYRIRBYGGÐ Hinsvegar er hagur bankans af því að starfsfólk hans skipti við hann en ekki keppinauta hans að mestu Ieyti fólginn í því að þar með getur hann fylgst nákvæmlega með fjárreiðum þess. Þetta er banka- stofnunum mjög mikilvægt vegna þess að með þessu stöðuga yfirliti eða eftirliti — allt eftir því hvað menn vilja kalla þetta — sér hann strax þegar eitthvað amar fjárhags- lega að sínu fólki. Hann getur fyr- irbyggt fjármálamisferli, svo sem fjárdrátt, með því að hafa samband við viðkomandi starfsmann áður en freistingin er orðin of stór og veitt honum ráðgjöf og jafnvel fjárhags- lega aðstoð út úr þeim tímabundna fjárhagsvanda sem hann hefur rat- að í. Að mati bankans er það hrein ögrun við mann sem er í fjárhags- kröggum að láta hann handleika tugþúsundir á dag. Og þá ögrun get- ur bankinn ekki fyrirbyggt með öðru móti en því að fylgjast ná- kvæmlega með öllum peningavið- skiptum starfsmanna sinna. Bankar erlendis leggja mikla áherslu á að starfsfólk sitt skipti við eigin banka af þessum sökum. Það tíðkast til dæmis á Norðurlöndum að bankar bjóði starfsmönnum sínum alls- konar hlunnindi gegn því að þeir geti með ofangreindum hætti fylgst með fjárreiðum þeirra. Og nokkrir bankar í Lundúnum til að mynda gera það að skilyrði fyrir því að fólk fái vinnu hjá þeim, að það skipti jafnframt við þann banka sem það ræður sig til. Bankastjórar hér heima segjast ekki sjá neina ástæðu til þess að þetta verði gert að skil- yrði hér heima, það muni gerast af sjálfu sér að starfsfólk fari að skipta við eigin banka, enda verði það á allan hátt heppilegra fyrir það. BANKASTJÓRAR ÞURFA EKKI Á LÁNUM AÐ HALDA! Sjálfir bankastjórarnir verða hins- vegar að slá hvern annan áfram, eða eins og einn stjóranna orðaði það í samtali við HP: „Það getur bara engan veginn gengið að við sé- um að slá sjálfa okkur. Það er ekki einasta hjákátlegt, heldur og sið- ferðilega háskalegt." Þegar þeir eru spurðir að því hvernig þeir beri sig að við lántökurnar, svara flestir því til að þeir hringi bara í kollegana. Enginn hafi fram að þessu sest inn á biðstofu annars bankastjóra. Og hvort þeim hafi einhverntímann verið synjað um lán? Því man eng- inn eftir. „Annars þurfa þessir kallar ekki á lánum að halda," sagði deild- arstjóri í einum bankanna við blað- ið. „Eg get að minnsta kosti ekki ímyndað mér að neinn þeirra standi í svo stórkostlegum framkvæmdum heima fyrir að hann þurfi að leita á náðir féíaga sinna. Þetta eru nú einu sinni menn sem eru búnir að koma sér almennilega fyrir í samfélag-

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.