Helgarpósturinn - 12.12.1985, Síða 14

Helgarpósturinn - 12.12.1985, Síða 14
Hrefna Bjarnadóttir, annar tveggja eigenda landsins Búrfells í Mosfellssveit, bendir á eign slna og sjálft Búrfellið sem Hafskipsmenn hugðust krukka í. Þarna fyrirfinnst eitt harðasta afbrigði graníts á Islandi. HAFSKIP H/F OG EINKAAÐILAR STOFN- UÐU NÁMUFÉLAG SUMARIÐ 1983, EN FREISTA ÁTTI ÞESS AÐ FLYTJA ÚT GRANÍT ÚR MIÐDAL FYRIR MILLJÓNIR MEÐ SKIP- UM HAFSKIPS: FÓRU YFIRGANGI IIM LAND Min leftir Sigmund Erni Rúnarsson mynd Jim Smart - SEGIR HREFNA BJARNADÓTTIR SEM ÁSAMT SIG- FÚSI THORAREN- SEN Á LANDIÐ BÚRFELL í MOS- FELLSSVEIT, EN ÞAÐ RANNSÖK- UÐU JARÐFRÆÐ- INGAR RANN- SÓKNARSTOFN- UNAR BYGGING- ARIÐNAÐARINS Á VEGUM NÁMUFÉ- LAGSINS, ÁN LEYFISOG VIT- UNDAR LANDEIG- ENDANNA. Othar örn Betersen, lögfræðingur og hluthafi Almenna námufélagsins: „Ég hvorki má né vil láta hafa nokkuð eftir mér um þetta mál," segir hann um meintan yf- irgang félagsins við rannsóknir á landi Búrfells og Miðdals 2, en alls óvíst er einnig að leyfisveiting fyrirtækisins fyrir námuréttindum á þessu svæði sé lögleg. • Hafskip hf. ásamt tengdu fyrirtœki, Reykvískri endur- tryggingu og einstaklingum stofnuöu Almenna námufélagiö hf. áriö 1983, en heimili þess og varnarþing er í pósthólfi Reyk- vískrar endurtryggingar. • Félagið fékk jaröfrœöing hjá ríkinu til aö rannsaka jaröveg í landi einstaklings, án vitundar hans eöa leyfis, en jaröfrœöing- urinn neitaöi síðan eigandanum um allar upplýsingar. • Hagvirki gerðist hluthafi í félaginu um þaö leyti sem „teppa- lagningirí' kom til greina, en rann- sóknir Almenna námufélagsins beindust einmitt aö efni í malbik. • Engin leiö var fyrir landeig- andann að lýsa lögbanni á verkiö sakir efnahags og fjarveru annars eigandu landsins, en þetta tvennt telur hann félagiö hafa nýtt sér. Þetta eru fáeinir punktar í máli sem Helgarpósturinn rakst á í vik- unni. Það snýst um fyrirtæki sem Hafskip og aðrir aðilar stofnuðu fyr- ir hálfu þriðja ári með það fyrir aug- um að hefja vinnslu á sérstaklega sterkri steintegund í Mosfellssveit, en hún gefst að sögn einstaklega vel í gerð malbiks. Þetta er og fágætt efni hérlendis, og reyndar víðar um álfur, en þessvegna er eftirspurn eft- ir því mikil. Almenna námufélagiö, en það er heiti firmans sem hér um ræðir, fékk leyfi til rannsókna á þessu efni og síðar vinnslu á svæðinu sem um get- ur. Að því er best verður séð, hafði sá sem það leyfi gaf, ekkert umboð til þess. Einn landeigendanna á staðnum frétti ekki af því að verið væri að rannsaka landareign hans uppi í Miðdal í sýnilegum órétti fyrr en seint og um síðir og þá af tilvilj- un. Hvað sem því líður þótti aðstand- endum Almenna námufélagsins það vera ljóst frekar fljótt, að þessi námavinnsla gæti skilað þeim drjúgum arði á innanlandsmarkaði, þrátt fyrir kostnaðarsamar rann- sóknir og annan undirbúning verks- ins. Jafnvel að firmað fengi bolmagn til að hefja útflutning á þessu efni til malbiksgerðar, en vitaskuld yrði því þá skipað út með flota Hafskips á hagkvæmum kjörum, enda einn hluthafanna þar á ferð. Að öllu samanlögðu var sem sagt fyrirsjáanlegt, að því er bjartsýnis- mönnum fannst, að hér væri í upp- siglingu milljónafyrirtæ'ki. Það hefði kannski orðið, ef undirstaðan — sem var að ná innanlandsmark- aðnum með trompi — hefði ekki klikkað: Fyrirtækinu Hagvirkja, sem um þetta leyti gerðist hluthafi að Almenna námufélaginu að eir.- um þriðja, var ekki sleppt á veginn í kringum landið. Trompið; „teppa- lagningin" sem að efninu til átti auð- vitað að fást úr Miðdal, reyndist ekki nógu hátt. Pappírsfyrirtæki Almenna námufélagið hf. er pappírsfyrirtæki. Forsvarsmenn þess neita ekki þeirri staðhæfingu. Þannig segir stjórnarformaður þess til að mynda; „Þetta er bara að nafn- inu til.“ Fyrirtækið hefur aldrei náð svo langt að opna skrifstofu, skipa prók- úruhafa ellegar framkvæmdastjóra; heimilisfangið (og varnarþingið) er pósthólf 874, 121 í Reykjavík, en það er sama box og Reykvísk endur- trygging hf. hefur, en það firma er að mestu í eigu Hafskipsmanna. Forstjóri Reykvískrar endurtrygg- ingar, Gísli Lárusson á Rein í Mos- fellssveit, er jafnframt stjórnarfor- maður „Alnámu“ eins og hann og aðrir hluthafar og stofnendur fyrir- tækisins stytta nafn þess í daglegu tali. Þessir hluthafar eru auk Gísla Björgólfur Guömundsson, forstjóri Hafskips, Eggert Waage vinnuvéla- stjóri, Einar Tryggvason i Miðdal, Ingimar Haukur Ingimarsson, arki- tekt (sem nú er hættur afskiptum af félaginu), Othar Örn Petersen, hæstaréttarlögmaður og formaður Verktakasambands íslands, Hafskip hf. og Reykvisk endurtrygging. Stjórn félagsins skipa utan Gísla í formannssætinu, þeir Björgólfur og Gísli Friöjónsson (fyrir hönd Hag- virkja, en Ingimar Haukur var í sæti Gísla áður) sem meðstjórnendur og Eggert og Einar sem varamenn. Endurskoðandi er Sveinn Jónsson, en lögfræðingur félagsins Othar Örn Petersen. Hlutafé félagsins var ein milljón í upphafi og lagði hver hluthafanna fram 150 þúsund, utan Hafskip og Reykvísk endurtrygging sem hvort um sig lögðu aðeins 50 þúsund í pottinn. Hlutafjárloforð Hagvirkjamanna að einum þriðja hluta af heildarhlutafé fyrirtækisins, átti að felast í framlagi vinnuvéla til rannsókna og vinnslu. í hlutafjárlögum félagsins segir orðrétt; „Heiti félagsins er Almenna námufélagið hf„ (á ensku General Mining Company). Heimili og varn- arþing er í Reykjavík. Tilgangur fé- lagsins er efnisvinnsla hvers konar, sala og dreifing á efni, útflutningur á efni og allt sem viðkemur framan- greindum rekstri. Jafnframt er til- gangur að eiga og reka fasteignir og lánastarfsemi." GMC, en það væri skammstöfun félagsins á enska vísu, er ennþá til, að því er stjórnarfor- maður þess segir HP. Mestar líkur eru samt á því að það lognist út af innan tíðar, enda þykir fullreynt við arðsama námavinnslu. Óvirðing eignar- réttar Eftir stendur að minnsta kosti einn brúnaþungur landeigandi í Miðdal sem telur að félagið hafi troðið á sér, farið með yfirgangi um eign sína en leyfið til rannsókna á svæðinu hafi verið illa fengið. Þetta er Hrefna Bjarnadóttir. Hún var gift Sigfúsi Thorarensen allt þar til fyrir nokkrum árum að þau slitu samvist- ir. Nokkur síðustu misseri hefur Sig- fús verið við störf í Yemen á vegum ístaks, en Hrefna búið í Reykjavík. Faðir Sigfúsar, Stefán Thorarensen lögregluþjónn, lést fyrir hálfum öðr- um áratug. Hann keypti landið sem allt snýst um. Það heitir Búrfell. Stefán keypti það af Ríkharöi heitnum Jónssyni myndhöggvara og Pétri Þorsteins- syni sem núna er sýslumaður Dala- manna, en bjó áður á Dallandi í Mosfellssveit. Saman áttu þeir Mið- land 2, sem Búrfell er úr. Kaupin voru í tveimur áföngum; í fyrri kaupsamningnum í janúar 1953 var kveðið á um áframhaldandi náma- rétt seljenda af landinu (en í þessu landi hafði fundist gull um síðustu aldamót, sem reyndist ekki nógu mikið til arðbærrar vinnslu). í seinni kaupsamningnum, sem jók á Iand- areign Stefáns, var hinsvegar ekkert kveðið á um frekari námarétt selj- endanna tveggja. Ríkharður Jónsson, annar selj- enda Búrfellslandsins, féll frá á.iO 14 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.