Helgarpósturinn - 13.02.1986, Blaðsíða 18
hefur verið sett á laggirnar. Það
heitir Útgáfufyrirtækið Grand hf. og
er í eigu þeirra félaga í Maxis Steen
Johansens og Sigþórs Hákonar-
sonar ásamt tónlistarmönnunum
Magnúsi Eiríkssyni og Pálma
Gunnarssyni. Þeir Steen og Sigþór
dreifðu plötu Pálma Friðarjól fyrir
jól með góðum árangri og nú á
næstunni er væntanleg ný plata
með Mannakorni frá Grand hf.. .
l^^imtudaginn 6. febrúar voru
opnuð útboð í eldvarnakerfi það
fyrir Kópavogshæli, sem Kiwanis-
menn eru að safna fyrir. Áður en
„athöfnin" hófst, stóð forsvarsmað-
ur ríkisspítalanna á fætur og las upp
pistil úr slúðurdálki Helgarpóstsins.
Þar sagði, að menn væru uggandi
um að fyrirfram hefði verið ákveðið
að Heimilistæki hf fengju þetta
verk, en þeir sem viðstaddir voru út-
boðið voru fullvissaðir um að svo
væri ekki og að vel og vandlega yrði
farið yfir öll tilboð.
Þess má síðan geta, að Skanis hf,
Norræn viðskipti var eitt þeirra
fyrirtækja, sem lögðu inn tilboð í
öryggiskerfi fyrir Kópavogshælið.
Menn minnti samt endilega að það
fyrirtæki verslaði einungis með ryð-
varnarmálningu. . .
l upphafi árs bárust þær fregnir
úr herbúðum Alþýðuflokksins að
Jón Baldvin og félagar hygðust
fara í aðra fundaherferð á borð við
þá sem maður Bryndísar fór í á fyrra
ári undir margtuggðu slagorði.
Hinni nýju herferð hafði jafnvel
verið gefið nafn og skyldi landinn
aftur tekinn með trompi, en síðan er
eins og baráttuandinn hafi lyppast
máttlaus niður. Ástæðan ku vera sú,
að bæði hugmyndin og tilkynningin
um fundaherferðina var komin frá
Ámunda Ámundasyni, umboðs-
manni með meiru, en honum hafði
láðst að fá samþykki „skemmti-
kraftanna" fyrir þessum uppákom-
um. Munu fréttir af þessu herbragði
jafnvel hafa komið Jóni formanni á
óvart og í opna skjöldu. . .
másagnakeppni Listahátíðarí i\ eykjavík
R
AÐEINS 2 MÁNUÐIR
TILSTEFNU
Frestur til að skila inn smásögum í keppnina rennur út
10. APRÍL
UM TILHÖGUN
SAMKEPPNINNAR
Yrkisefni
| sagnanna skal sótt í íslenskt nútímalíf, en að
öðru leyti hafa höfundar frjálsar hendur.
Skilafrestur
I er til 10. apríl 1986. Sögurnar skulu merkt-
ar dulnefni en rétt nafn höfundar fylgja i lokuðu umslagi
sem er merkt með dulnefninu og sendast í pósthólf Listahá-
tiðar, númer88,121 Reykjavík.
Dómnefnd
| smásagnasamkeppninnarskipa þag Þórdis
Þorvaldsdóttir borgarbókarvörður, Stefán Baldursson leik-
hússtjóri og Guðbrandur Gislason bókmenntafræðingur.
HEIM verða tilkynnt við opnun Listahátiðar 1986 þann
31. mai. Stefnt er að þvi að gefa út bestu sögurnar i bók
og er áætlaö að bókin komi út á afmæli Reykjavíkurborgar, 18. ágúst.
Verðlaun
eru mjög vegleg og verða visltölutryggð en þau eru:
1.
2.
3.
verðlaun
verðlaun
verðlaun
250.000,-
100,000,-
50.000,-
Aðeins ein saga hlýtur hver verölaun.
Listahátíó i
Raykjavik.
Reykjvikurtx)rg
Seöiabanki
Tökum að okkur alls konar
veislur. Fermingar, afmæli, árs-
hátíðir. Smurbrauð, ostabakkar
og pottréttir.
Getum einnig útvegað sal með
vínveitingaleyfi.
Ef þú ert með hugmynd talaðu
vio okkur og við getum fram-
kvæmt hana í sameiningu
Hafið samband í síma
14446-26007
FYRIR
K0NUR
Eykur starfsorku
Eykur andlegt atgervi
Eykur jafnvægi
Hjálpar konum á
breytingaaidri
Náttúrulækningabúðin hefur selt Melbrosia í
fjölda ára og á því tímabili hafa þúsundir kvenna
haft verulegt gagn af því til að auka starfsþrek
sitt og hæfni - til þess að takast á við lífið. Mel-
brosia hefur einnig hjálpað miklum fjölda
kvenna sem tekið hefur það inn á meðan breyt-
ingaaldurinn hefur gengið yfir. Þakklæti þeirra
hefur oft glatt okkur innilega. Það er og stað-
reynd að ýmis óþægindi sem fylgja gjarnan
breytingaaldrinum hafa horfið eins og dögg fyrir
sólu við daglega inntöku á Melbrosia.
En hvað er þetta Melbrosia mundi einhver sjálf-
sagt vilja spyrja.
Melbrosia samanstendur af tveim mikilvægum
efnum úr ríki náttúrunnar - frjódufti og Royal
Jelly.
Frjóduft er hreint og náttúrulegt „Pollen"
(blómafrjó - blómafræflar) unnið úr hunangskök-
um (honeycombs). Það er talið betra en frjó sem
unnið er beint úr blómum - vegna þess að það
hefur umbreyst á eðlilegan hátt í býflugnabúinu.
Þetta sérstaka frjóduft er þekkt undir nafninu
„Bee Bread".
Royal Jelly er umbreytt pollen sérfæði býdrottn-
ingarinnar. Lífaldur hennar er margfaldur aldur
annarra búflugna í búinu. Þegar býdrottningin
er upp á sitt besta framleiðir hún allt að 5000
egg á dag. Því er hún alin á þessu kraftmikla
fæði - Royal Jelly.
Náttúrulækningabúðin,
Laugavegi 25, símar: 10262/3 Heildsala Smásala Póstkröfur
18 HELGARPÓSTURINN