Helgarpósturinn - 13.02.1986, Blaðsíða 34

Helgarpósturinn - 13.02.1986, Blaðsíða 34
POPP BAD — ekki sem verst eftir Ásgeir Tómasson THIS IS BIG AUDIO DYNAMITE — BAD Útgefandi: CBS/Steinar Síðan Mick Jones gítarleikari var rekinn úr hljómsveitinni Clash hefur sannarlega verið á brattann að sækja á því forna frægðarsetri. Henni tókst þó loksins að koma út plötu á síðasta ári sem því miður er að gæðum óra- vegu frá því þegar best lét í lok síðasta ára- tugar og byrjun þessa. Um svipað leyti og Clashplatan Cut The Crap kom út sendu Mick Jones og félagar hans frá sér sína fyrstu plötu. Platan nefnist This Is Big Auciio Dynamite og hljómsveitin heitir Big Audio Dynamite, oftast aðeins köll- uð BAD. Þetta er fjögurra manna flokkur. Jones hljómsveitarstjóri leikur á gítar og syngur. Með honum eru Don Letts, Leo „E- Zee Kill“ Williams, og Greg Roberts. Fimmti maðurinn í BAD er Dan Donovan. Hann tek- ur myndir auk þess að spila á hljómborð! Ekkert þekki ég til fyrri afreka þessara pilta. Hef reyndar heyrt því fleygt að þeir hafi ekk- ert kunnað á hljóðfæri áður en Mick Jones bauð þeim að stofna með sér hljómsveit. Hvort sem það er satt eður ei er platan This Is Big Audio Dynamite býsna forvitnileg. Eiginlega er tónlist BAD fyrst og fremst danstónlist í svonefndum dub stíl. — Clash var reyndar farin að fást við slíka músík á Sandinista! plötunum þegar tilraunastarf- semi hljómsveitarinnar var upp á sitt besta. — Laglínur eru yfirleitt sáraeinfaldar (stund- um er laglínu reyndar ekki til að dreifa) og þungur takturinn í forgrunni. Ég efast um að lögin á þessari fyrstu plötu BAD eigi greiðan aðgang undir nálarnar hjá plötusnúðum hér á landi. Til þess er tónlistin of tilraunakennd og ævintýraleg. Og þó svo að fjór- eða fimmmenningarnir í hljómsveit- inni hafi valið taktfast ,,dub-funk“ á fyrstu plötuna sína er ekki þar með sagt að þeir hafi ætlað sér frama á diskótekum heimsins. Enda hafa poppblaðamenn látið vel af frammistöðu félaganna á sviði og segja tón- list þeirra mun rokkaðari á hljómleikum en í stúdíói. Eitt lag af This Is Big Audio Dynamite kom út á lítilli plötu á síðasta ári: lagið The Bot- tom Line. Það vakti sáralitla athygli og er þó áheyrilegra en margt annað sem á greiðan aðgang að vinsældalistum heimsins um þessar mundir. When you reach the bottom line The only thing to do is climb. Svo segir á einum stað í texta lagsins The Bottom Line. Það gætu eiginlega verið ein- kunnarorð hljómsveitarinnar Big Audio Dynamite. Hún byrjar eins og svo margar rokksveitir síðasta áratugar í neðstu tröppu eða á grunninum. Þaðan getur leiðin aðeins verið upp á við. Miðað við fyrstu plötu BAD og þeim vænt- ingum sem Mick Jones hefur tjáð breskum poppblaðamönnum um hljómsveitina spái ég því að hún eigi eftir að ná sér vel á strik. Hljómsveitinni Clash hefur fatast flugið við brottrekstur Mick Jones. Hann á áreiðanlega eftir að ná sér vel upp aftur með nýjum mönnum. Gefið Big Audio Dynamite gaum í framtíðinni. PS: Mér var sagt fyrir skemmstu að platan væri komin á útsölur hér. Þeim mun meiri ástæða til að kynna sér fyrirbærið BAD. BITTER SWEET - King Útgefandi: CBS/Steinar Sumir geta dælt út lögum sem öll komast hátt á vinsældalista án þess að LP piötur þeirra séu neitt sérstakar. Vel þekkt smá- skífubönd frá því í gamla daga eru Small Faces og Dave Clark Five. Nú á dögum er Shakin’ Stevens til dæmis afkastamikill smellasjarmör og ekkert annað. Miðað við tvær fyrstu breiðskífur hljómsveitarinnar King er hún einnig í þessu sama fari. Ferill þessarar hljómsveitar er ekki langur. Hins vegar hefur hún komið hressilega við sögu á vinsældalistum síðustu mánuðina. Fyrst vakti King athygli fyrir lagið Love And Pride. Síðan komu Won’t You Hold My Hand Now, Alone Without You, The Taste Of Your Tears og nú síðast Torture. Flest eru þessi lög áheyrilegir smellir svokallaðir meðan þeir eru nýlegir. Þeir eldast hins vegar hratt og verða leiðigjarnir með tímanum. Dæmigerð dægurlög með öðrum orðum. Það verður að teljast afrek hjá ungri hljóm- sveit sem King að koma fimm lögum hátt á lista á innan við ári. Gildir þar einu hvort lög- in rista djúpt eður ei. Þessir listasmellir standa hins vegar upp úr lagasmíðum liðs- manna hljómsveitarinnar. Stærri hlutinn er aðeins meðalmennskulegt uppfyllingarefni. Upptökustjórinn Richard James Burgess á áreiðanlega stóran þátt í skjótri velgengn- inni. Þá er söngvarinn og framlínumaðurinn Paul King sjálegasti piltur. Hann kemur vel fram í sjónvarpi og er sætur á plakatamynd- um. Slíkt spillir ekki þegar baráttan um vin- sældir og hylli unglinganna er annars vegar. Mér sýnist meira að segja að Paul King sé far- inn að hafa áhrif á hártísku karlmanna. Ég var að fletta enskum vörulista á dögunum og sá ófáar King-eftirlíkingar þar. Hljómsveitin King á áreiðanlega eftir að láta að sér kveða í vinsældapoppi og smellaframleiðslu á þessu ári og kannski líka því næsta. En miðað við frammistöðu á LP plötunum Steps In Time og Bitter Sweet á hljómsveitin tæpast eftir að endast lengi. BÓKMENNTIR Öllu bókelsku fólki TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 1985, 1.-4. hefti, ritstjórar Silja Adalsteinsdóttir og Vésteinn Olason. í Ljóölist, bók Baldurs Ragnarssonar, eru taldar upp 48 íslenskar ritgerðir um ljóðlist, úr tímaritum, ritröðum og ritgerðasöfnum. Réttur þriðjungur þeirra er úr Tímariti Máls og menningar, TMM. Ef aðeins er litið á síð- asta áratuginn sem ritgerðaskráin nær til, 1973—82, vex hlutur TMM í helming, 8 af 16. Þetta gæti í sjálfu sér verið tilviljun, en ég hygg þó að það gefi nokkra vísbendingu um stöðu TMM í íslenskri bókmenntafræði og bókmenntaumræðu, ekkert frekar á sviði Ijóðlistar en annarra bókmennta. Og þó er TMM alls ekki lagt undir eintóma bók- menntafræði. Helgarpósturinn hefur stundum — ekki að staðaldri — flutt ritfregnir um einstök hefti TMM, en hér verður rætt um heilan árgang, 4. hefti. Þau eru samtals um 530 blaðsíður, á við mjög myndarlega bók, og er áskrift inni- falin í félagsgjaldi Máls og menningar. Nú er Mál og menning, eins og allir vita, vinstrimannafélag, á línu sem kannski má kenna við Alþýðubandalagið eða Þjóðvilj- ann eða kúltúrkomma. Þetta má líka sjá af Tímaritinu, þó miklu frekar af því hverjir skrifa í það en hvað eða hvernig þeir skrifa. Þetta lið vinstrimanna — eða kúltúrkomma á Þjóðviljalínu — reynist þess fullkomlega umkomið að halda úti tímariti sem öllu bók- elsku fólki hlýtur að þykja varið í. Ljóð eru birt í hverju hefti TMM. Tímarit eru heppilegur vettvangur fyrir ljóðlist. Les- endur, sem naumast eru nógu ljóðelskir til að leggjast í heilar Ijóðabækur og lesa þær eins vandlega og þyrfti, fá þar hæfilega smáa skammta af ljóðum til að velta fyrir sér, og fá sæmilegt tóm til þess, því að tímarit les mað- ur ekki endilega í einni lotu eins og blað. Árgangurinn flytur upp undir 50 ljóð, flest stutt, eftir 22 skáld. Meirihluti þeirra er inn- an við 35 ára aldur, en af hinum eldri má nefna Stefán Hörð Grímsson (sem hefur ort manna mest í TMM á liðnu ári), Thor Vil- hjálmsson og Kristján Árnason, auk Ástu Sigurðardóttur, en hún er eina skáldið sem ekki er lifandi og starfandi enn. Lesendur TMM fá þannig talsvert úrval af ljóðlist líð- andi stundar, einkum af verkum ungra skálda og upprennandi. Svo flytur ritið smásögur, venjulega bæði þýdda sögu og frumsamda í hverju hefti. Raunar eru frumsömdu sögurnar aðeins þrjár á síðasta ári, eftir Sindra Freysson (ör- stutt saga eftir kornungan höfund), Elías Mar og Guðberg Bergsson (en Guðbergur hefur verið TMM drjúgur liðsmaður síðustu árin og birti þar í fyrra svipmyndir ,,úr dögum bylt- ingarinnar í Portúgal árið 1975“ undir nafn- inu „Brúðan”). Af þýddu sögunum er ein gömul, „Ævin- týr af Eggerti glóa“ sem Jónas og Konráð þýddu og birtu í Fjölni fyrir 150 árum. Hitt eru nýjar þýðingar, sögur eftir Milan Kund- era (og fylgir með viðtal við höfundinn, tekið af þýðandanum, Friðriki Rafnssyni), Margue- rite Yourcenar og Onelio Jorge Cardoso, all- ar þýddar úr rómönskum málum, snjallar sögur og hæfilegar stuttar fyrir tímarit; og skal sérstaklega vakin athygli á sögu Cardos- os fyrir afburðasnjalla þýðingu Ingibjargar Haraldsdóttur, sem einnig er eitt af ljóðskáld- um TMM. Ritdómar eru mikilvægur efnisþáttur TMM. Þeir eru birtir um einstaka fræðirit, en þó einkum um markverð íslensk skáldrit, og sinnir TMM þar hlutverki sem önnur tímarit (Skírnir!) leiða hjá sér. TMM hefur lánast að útvega ritdóma sem tímariti eru samboðnir, yfirleitt efnismeiri og dýpra unnir en gerist um bókadóma í blöðunum. Hins vegar eru dómarnir heldur fáir. Af skáldritum frá 1984 er aðeins búið að fjalla um 6 (ljóðabók, leikrit og 4 skáldsögur), þar af 4 útgáfubækur Máls og menningar. En eins og 1. heftið í fyrra flutti dóma um bækur frá 1983, þannig má búast við umsögn í næsta hefti um fleiri af bókunum frá 84. Þá er komið að meginefni TMM, fræðileg- um greinum og ritgerðum, einkum um bók- menntir. Þótt þær séu fræðimannlega fram settar, með formlegum heimildavísunum og ekki myndskreyttar nema sérstakt tilefni sé til, þá eru þær yfirleitt hóflega stuttar og vel og aðgengilega skrifaðar, svo að ég get þess vegna staðið við það sem fyrr var sagt, að TMM sé boðlegt öllu bókelsku fólki, ekki endilega lærdómsmönnum eða bókmennta- spekúlöntum. Líkt og ritdómarnir eru greinarnar í viss- um tengslum við útgáfubækur Máls og menningar. Þannig skrifar Árni Bergmann um Glœp og refsingu Dostoévskís; Heimir Pálsson um útgáfu sína á Snorra-Eddu; Krist- ján Árnason um Raunir Werthers unga eftir Goethe; og Ástráður Eysteinsson um Astkon- una eftir Fowles. Þetta eru nýútkomnar eða væntanlegar útgáfubækur M&M, og er góð þjónusta við félagsmenn að birta um þær fróðlega umfjöllun. Venjulega er drjúgur hluti hvers heftis helgaður einu efnissviði. Fyrsta heftið fjallar mikið um íslenskar fornbókmenntir; Vé- steinn Ólason skrifar um íslendingaþætti, Haraldur Bessason um Völundarkviðu, Her- mann Pálsson um syndarhugtakið i Sólar- ljóðum og víðar, en Gunnar Karlsson og Vil- hjálmur Árnason taka hvor um sig til endur- mats þá deilu um siðferðisboðskap íslend- ingasagna sem Hermann vakti á sinum tíma. Þriðja hefti ber táknorðið „Hinn sálfræði- legi maður". Lýtur það væntanlega að meg- ingrein heftisins, sem Dagný Kristjánsdóttir ritar og nefnir „Loftur á „hinu leiksviðinu”. Nokkrar athuganir á Galdra-Lofti Jóhanns Sigurjónssonar í ljósi sálgreiningarinnar”; svo og styttri grein, „Strindberg og Freud" (um Draumleik) eftir Keld Gall Jörgensen. Svo vantar raunar ekki sálfræðina í smásögu Kundera sem fyrr getur; og við sálfræði má kannski líka kenna þær furðuhugmyndir austurríska aldamótamannsins Ottos Wein- inger sem Halldór Guðmundsson skrifar um. „Rómantík" er yfirskrift fjórða heftisins, og á hún við sumt af fyrrnefndu efni: Eggert glóa, Werther unga og Ástkonuna. En hér er einnig „Spjall um rómantík og þjóðernis- stefnu" eftir Gunnar Karlsson (hann á í ár- ganginum tvær veigamiklar greinar og rit- dóm að auki); grein Guðmundar Andra Thorssonar um rómantíkina og Jónas Hall- grímsson þar sem m.a. er lagt út af ljóða- flokknum „Annes og eyjar"; og grein eftir Þóri Óskarsson „um hlutverk listarinnar í heimssýn rómantískra skálda" þar sem mið er tekið af Benedikt Gröndal og „Hugfró” hans. Enn er ekki allt efni árgangsins talið. Hannes Lárusson og Gunnar Harðarson skrifa greinar um íslenska myndlist síðustu ár og áratugi. Ingunn Ásdísardóttir um síð- asta leikár í íslensku atvinnuleikhúsunum. Ágúst Georgsson segir og túlkar munnmæla- sögur um viðureign ameríska hersins í Hval- firði við drauga og álagabletti. Þýdd er rit- gerð eftir J.M. D’Arcy um orkneyskt ljóð- skáld, Brown; Helgi Grímsson ritar um ljóð- list Einars Braga; og Ragnhildur Richter skrifar um Huldu (rækilega og merkilega könnun á því hvernig viðhorf Huldu til skáld- skapar og kveneðlis birtist í ljóðum hennar). Loks á Helga Kress hér mjög rækilega (og harkalega) gagnrýnisgrein um norska þýð- ingu á Leigjandanum Svövu Jakobsdóttur. Það er lengsta grein árgangsins og skipt á tvö hefti, en annars eru greinar í hæsta lagi 20 síður, oft um og innan við 10 síður, og er ákjósanlegt að halda lengd þeirra þannig í skefjum. Meira varðar þó að greinarnar séu vandað- ar að hugsun og framsetningu, og það er mikill meirihluti þeirra, sem væntanlega má öðrum þræði þakka árvökulli ritstjórn. En rýmið leyfir mér ekki að segja kost og löst á þeim hverri fyrir sig. 34 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.