Helgarpósturinn - 13.02.1986, Qupperneq 38
HELGARDAGSKRÁVEIFAN
Föstudagurinn 14. febrúar
19.15 Döf.. .
19.25 Innlent barnaefni. Sjónvarpið hefur
ákveðiö að hefja endursýningu á end-
ursýndum endursýningum og er
þetta fyrsta endursýningin hvað börn-
um við kemur.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli. Áður sýnt
haustið 1967.
20.00 Fréttir. Áður skeöar í júlí '83.
20.35 Rokkarnir. . . Fótboltahljómsveitin Tic
Tac ofan af Skaga flautuð til leiks.
21.00 Þingsjá.
21.15 Kastljós.
21.50 Sjálókur Hólms kemst að niður-
stöðu. . .
22.40 Seinni fréttir.
22.45 Drengirnir frá Brasilíu (The Boys from
Brazil) ★★★ Bresk-bandarísk bíó-
mynd frá '78 eftir sögu Iru Levin. Leik-
stjóri Franklin J. Schaffner. Aðalleikar-
ar Gregory Peck, Laurence Olivier,
James Mason og Lilli Palmer. Heldur
ólíkindaleg saga um skipulagt eldi á
litlum Hitlerum í Suður-Ameríku, en
sumpart frumleg og frekar hrollvekj-
andi á köflum. Spenna og góður
leikur.
00.55 Myrkur, af því að nóttin er komin!
Laugardagurinn 15. febrúar
14.45 Bein.
17.00 Skakkur Bjarni.
19.25 Bjarnabyggð . . . allt morandi í búr-
um.
19.50 Fréttaágrip af fingrum fram.
20.00 Vinnukonugrip um Ingva Hrafn.
20.25 Slomósjón dömubindaauglýsing-
ar. . .
20.29 Þula smælar fram efni kvöldsins, á
bullandi...
20.30 Higg, altso Staupasteinn. Hlæjandi:
Guðni Kolbeinsson og fjölskylda.
20.55 Sá gamli kemur í heimsókn (The Plea-
sure of His Company) ★★ Bandarísk
frá '61 í leikstjórn George Seaton.
Aðalleikarar Fred Astaire, Lilli Palmer,
Debbie Reynolds og Tab Hunter.
Fremur vandræðaleg saga um mið-
aldra heimshornaflakkara sem snýr
heim til að vera við brúðkaup dóttur-
innar, en líkar ekki mannsefniö. Ágæt-
ur leikur svo langt sem hann nær.
Slappt tempó, þreytuleg leikstjórn.
22.45 Lífið er stutt (Vivre pour vivre) ★★★
Frönsk-ítölsk bíómynd frá '67 í leik-
stjórn Claude Lelouch. Aðalleikarar
Yves Montand, Candice Bergen og
Annie Girardot. Talsvert sterk saga
um erfiðleika frægs sjónvarpsfrétta-
manns í hjónabandi. Mjúkur leikur.
Sjarmi í Bergen og Montand nýtur sín
í mörgum fallega skotnum senum.
00.50 Guöni Kolbeinsey þýðir þetta ekkert
lengur. . .
Sunnudagurinn 16. febrúar
16.00 Guð minn góður.
16.10 Á slóðum gullgrafara: Á ferö með Fjár-
laga- og hagsýsludeild um Vatnsmýr-
ina, eða svo gott sem. . .
17.05 Feim. Bandarískur væmni- og veimil-
títuþáttur með þykkum súkkulaði-
hjúp.
18.00 Stundin. Krakkaskarinn trélímdur við
kassann.
18.30 Valin brot út Glugganum (gömlum
þætti um pukur, pervisma og fleira,
þið munið).
19.30 Hlé.. . og þó, sjálfsagt ein bein frá
Bjaddna.
19.50 Vísifingur, vísifingur. . .
20.00 . . . hvar ert þú. . ?
20.25 Hér er ég, hér er ég. ..
20.35 ... góða kvöldið, kvöldið, kvöldið. Nú
hefst þriðji þátturinn á slóðum fálka.
21.00 Sjónvarp næstu viku. Guðrún Skúla-
dóttir segir hneyksluð frá.
21.25 Blikur á lofti. Áttundi þáttur: Ekki ein
einasta sekúnda af honum var tekin
einhverstaðar upp á íslandi, sem hefði
í sjálfu sér verið í frásögur færandi.
Þýðendur Jón og Edwald (til skiptis).
23.05 Þjóðsöngurinn. öxarárfoss, stingandi
strá og allt það. Alltaf jafn töfrandi.
©
Fimmtudagskvöldið 13.
febrúar
19.00 Frétt og frétt.
19.50 Daglegar svívirðingar Sigurðar Gé...
20.00 Leikritið „Bæn meyjarinnar" eftir
Stephen Mulrine í leikstjórn Ingu
Bjarnason.
21.10 Gestur í útvarpssal. Már Magg mætir
og gaular eitthvaö eftir Paoli Tosti og
fleiri...
21.35 Ljóð Árna Páls.
22.20 LP = Lestur Passíusálma.
22.30 Fimmtudagsumræðan. Fáeinar hræð-
ur spá í próblem, sem er ekki neitt
neitt þegar allt kemur til alls.
23.00 Rögnvaldur Sigurjóns uppgötvar
grammófóninn.
24.00 Góða nótt.
Föstudagurinn 14. febrúar
07.00 Upp, upp — mín sál.
07.15 Morgunógleðin.
07.20 Jónína skýtur skönkunum gegnum
veggi.
09.05 Barnatfmi.
09.45 Þingfréttir; slúðrað um helstu (póli-
tísku) framhjáhöldin viö Austurvöll.
10.40 „Ljáðu mér eyra". Málmfríður Sigurð-
ardóttir spáir í lýtalækningar nyrðra!
Rúvak.
11.10 „Sorg undir sjóngleri". Síra Gunnsi
Bjöss kjökrar þýðingu sína með
ekkasogum að fram komin af nef-
rennsli.
11.30 Dúndrandi þungir morguntónleikar.
12.20 Hádagsfrétt. Jón Múli leiðréttir skrif
fréttamanna, sem veröa feikifúlir
fyrir tfragðiö. . . og klaga f Markús,
auðvitað.
14.00 Miðdegissagan okkar.
14.30 Upptaktur. Gvendur Ben á vitlausum
hraða.
16.20 Kremjandi síðdegistónleikar.
17.00 Helgarúbart baddnanna.
Ég mœli med
Rás 1, föstudaginn 14. febrúar,
klukkan 11.10. ,,Sorg undir sjón-
gleri". Síra Gunnsi Bjöss kjökrar
þýðingu sína með ekkasogum, að
fram kominn af nefrennsli.
17.40 Út atvinnulífinu: Launþegum strítt á
lága kaupinu sínu.
19.00 Pétur Pétursson leiðréttir fréttir.
19.50 Daglegt mál. Margrét Jónsdóttir fer
með rétt mál.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thor-
oddsen tjúnnar upp í tækinu sínu og
kynnir þáttinn á ensku.
20.35 Landsleikur í handbolta. Sammi lýsir
sigri íslands yfir Norsurum í Höllinni.
Áður flutt í fyrra, ef ég man rótt.
21.30 Atli Heimir hlustar einn manna á nú-
tímatónrugl.
22.20 LP.
22.30 Kvöldtónleikar: Syfjandi leiðinlegir.
23.00 „Heyrðu mig - eitt orð". Kolbrún Hall-
dórsson sér um eitt orð.
00.05 Djassþáttur. Tommi fitlar við bassann.
Smitandi.
01.00 Suð. Suð. Austan. . .
Laugardagurinn 15. febrúar
07.00 Hírvígó .. .
07.15 Þulur velur og kynnir músík, því mið-
ur.
07.30 íslenskireinsöngvararog kórar syngja
hátt.
09.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þonn Steph-
ens kynnir hreint sjúklega góða tón-
list. Smitandi.
11.00 Heimshorn — Japan (Hæja-hagga-
hú).
12.20 Fréttir af firnamikilli fiskigengd f Mjóa-
firði.
13.50 Hér og nú. Fréttamenn útvarps ger-
ast frumlegir.
15.00 Miðdegismúsfk. Drungaleg.
15.50 íslenskt mál fyrir Jón Pál og fleiri.
16.20 Listagrip: Sigrún Bjöss ullar á elítuna.
17.00 Framhaldsleikrit barna og unglinga.
17.35 Einsöngur í útvarpssal: Ágústa KGB
Ágústsdóttir gargar í mækinn sem
missir þrífótanna. . .
19.00 Fréttir, leiðréttar af Jóhannesi Ara-
syni.
19.35 Siggi Sigurjóns segir „Sama og þeg-
ið" össi og Kalli líka, og síðan aftur og
aftur. He-he. . .
20.00 Nikkan.
20.30 Endurflutningur fimmtudagsleikrits-
ins, að því að Markús missti af því þá.
Konan hans reyndar líka.
21.40 Kvöldtónleikar, ætlaðir móður Mark-
úsar. ..
22.20 . .. þó svo óþarfi sé að blanda henni
eitthvað í þetta. LP, núna.
22.30 Bréf frá Færeyjum.
00.05 Miðnætur Marinósson.
01.00 Rástengdur Marinósson.
Sunnudagurinn 16. febrúar
08.00 Guð minn almáttugur.
08.35 Létt morgunlög (til að vega upp byrj-
un dagskrárinnar).
09.05 Þungir morguntónleikar (til að vega
upp léttleikann).
10.25 Pælt í Passíusálmunum.
11.00 Mezza.
12.20 Fréttir, leiðréttar af Ragnheiði Ástu.
13.30 Dagsbrún 80 ára, ég 56. Aðrir, eitt-
hvað allt annaö.
14.30 Miðdegisþyngslin. Serenöður og ser-
enöður.
15.10 Spurningakeppni framhaldsskólanna.
16.20 Samband íslands og Danmerkur.
Gylfi Þonn flytur erindi um það ógeð.
17.00 Síðdegisþyngslin. Rómönsur og
rjómapönnsur.
19.00 Engar fréttir = góðar fréttir. Eða
hvað?
19.35 Milli frétta. Gunni Gunn hugsar upp-
hátt.
20.00 Stefnumót.
21.00 Ljóð og lag.
21.30 Útvarpssagan.
22.20 íþróttir.
22.40 Afríkusaga.
23.15 Kvöldtónleikar.
00.05 Milli svefns og vöku. Maggi Einars
mókir, tæknimaðurinn hrýtur. Hús-
vörðurinn einn eftir vakandi í hús-
inu...
00.55 ... þangað til nú: Dong.
eftir Sigfinn Schiöth
£
Fimmtudagskvöldið 13.
febrúar
20.00 Lög Hringjarans frá Pósti og síma.
21.00 Draugagangur. Ragga Dabbadú vofir
yfir.
22.00 Svabbi Gezz hú jú nó fitlar við mæk-
inn.
23.00 Tónlistarþáttur um spurningu. Ha,
ég? = Nei.
24.00 Tuttuguogfjögurnúllnúll.
Föstudagurinn 14.
febrúarvinna
10.00 Morgunþáttur: Mí Pol, jú Djonn.. .
12.00 Steikt ýsuflök í hádeginu. Hlé þess-
vegna.
14.00 . . .og kötturinn Njáll.
16.00 Jón.
18.00 Suð.
20.00 Dósahljóð.
21.00 Vínarbrauð.
22.00 Við Rabarbarinn.
23.00 Næturgagnið.
03.00 . . . og pelamó, púðursykur og
króna.
Laugardagurinn 15. febrúar
10.00 Morgunþáttur I meðallagi og/eða
meðalaglasi.
12.00 Suð. Suð. Vestan.
14.00 Svavar Dalton til Lukku-Láka: Bang-
bang.
16.00 Listapopp: Annar þáttur af fimm.
17.00 Hringborðið. Erna Arnar at arna, snýst
í...
18.00 Suð. Suð. Vestan. Fimm.
20.00 ÁDJ kynnir framsækna rokktónlist, x-
bó eins og ég hef alltaf sagt.
21.00 Djass og blús. Venni Linnet getur ekki
ákveöiö sig.
22.00 Bárujárn. Siggi Sverris fflar botn-
inn...
23.00 Svifflugur. Hákon Sigurjóns í Sýr-
landi.. .
24.00 Orðið Fram Orðið Fram Valur Fjögur
Eitt.
03.00 Næturvaktinni allri lokið.
Sunnudagurinn 16. febrúar
13.30 Salt í samtíöina.
15.00 Jón Krossgátufari.
16.00 Vesældalistinn.
18.00 Norðan Átta.
Svæðisútvarp virka daga
17.03-18.00 Ingólfur Arnarson og ná-
grannar — FM 90,1 MHz.
17.03-18.30 Helgi magri og nágrannar —
FM 96,5 MHz.
17.03-17.02 Bjössi bolla og bræðurnir
Ormsson — FM 9,2 Y.
UTVARP
Vond ,,ritstýring“
SJÓNVARP
Breskur sjarmi
Það hefur lengi vantað ritstýringu á Rík-
isútvarpið. Þó hafa stöðugildi „ritstjóra" út-
varpsins verið til árum saman. Dagskrár-
stjóri og varadagskrárstjóri eiga að sjálf-
sögðu að bera ábyrgð á dagskránni sem
slíkri; þeir eiga að móta efni og hlustunar-
venjur almennings. Það verður að segjast
að útvarpinu hefur verið illa ritstýrt gegn-
um tíðina, og allt frumkvæði „ritstjóranna"
vantað. Það er ekki þar með sagt að góðir
þættir hafi ekki borist okkur hlustendum á
öldum Ijósvakans; síður en svo. En yfirleitt
hefur hið góða efni komið að utan, verið
framtak einstaklinga úti í bæ sem boðið
hafa vinnu sína (og yfirleitt fyrir smánar-
laun) dagskrárstjórum.
Dagskrárstjórarnir hafa hins vegar verið
linir gagnvart ýmsum þrýstingi frá getulitl-
um, utanaðkomandi aðilum og látið
ómerkilegt og leiðinlegt efni flæða inn í
stofnunina. Þannig geta alls konar einstakl-
ingar labbað niður á Skúlagötu og stamað
einhverri frásögn inn á segulband, aðilar
með sérþarfir þruglað um áhugamál og
ýmsir lausapennar og rithöfundar hampað
alls konar þýðingum framan í dagskrár-
stjóra sem kinka kolli til samþykkis nýjum
langlokulestri í útvarpinu. Þá virðast dag-
skrárstjórar ekki hafa rænu á að samræma
vinnu dagskrárgerðarmanna, heldur virð-
ast þeir ganga sjálfala innan stofnunar-
innar. Það þætti nokkuð lélegur ritstjóri
sem ekki héldi fundi með ritstjórn sinni
daglega til að samræma efni og vinnu. Ut-
koman verður einnig sú að Rikisútvarpið
(rás 1) býður upp á snubbótta, langdregna
og leiðinlega dagskrá sem þar að auki er
lítið samræmi eða jafnvægi í þegar á heild-
ina er litið. Dagskrárstjórar virðast ekki
heldur hafa rænu á að hafa samband við
aðra deildarstjóra eins og tónlistarstjóra.
Tónlistardeildin sýður saman einhverja
naglasúpu sem afhent er í pakka til þular
sem leikur plötubunkann fyrir landslýð.
Þannig myndast oft óeðlilegt vægi milli 1
lesins efnis og leikins. Þetta er dálítið sam- i
bærilegt við að ritstjóri blaðs leyfði öllum j
blaðamönnunum að skrifa það sem þeir
vildu (þegar þeir vildu) og allir lausapenn-
ar blaðsins mættu skrifa um ýmis efni að
eigin vild og það birtist bara eftir hendinni.
Og meðan ritstjórinn sæti í kaffi eða orti
Ijóð, þá yrði blaðið tilbúið á einhvern tilvilj-
unarkenndan og allt að því undirfurðuleg-
an hátt. En í sjálfu sér skipti það ritstjórann
engu máli, því um væri að ræða ríkisútgáfu
hvort eð væri, og laun hans og eftirlaun
negld með lögum.
Ég þykist viss um að síðastliðin helgi hafi
verið mikil gróðahelgi fyrir þá, sem reka
vídeóleigur. Ekki einvörðungu vegna þess
að mánuðurinn var að hefjast og fólk átti
enn einhverja peninga, heldur einnig fyrir
þær sakir að sjónvarpsdagskráin þessa
daga var sérlega fátæk af freistingum.
Vonbrigðin hófust strax á föstudags-
kvöld, þegar mér þótti sannast að þættirnir
um Sherlock Holmes yrðu ekki til þess að
ég sæti um að sjá þá á kostnað annarrar
skemmtunar. Þó svo ekkert sé út á hlut-
verkaskipan og leik að setja, er eins og það
skorti meiri skerpu og spennu í atburðarás-
ina. Auðvitað bjóða sögurnar um Holmes
ekki upp á æsispennandi eltingarleiki a la
San Fancisco, eða þvi um líkt, en það er
tæpast hægt að láta „breska sjarmann" ein-
an um að halda uppi heilli þáttaröð.
Enska yngismærin, sem allt snerist um
hjá Holmes og Watson i þetta sinn, var ann-
ars fullkomið skólabókardæmi um muninn
á hlutverkaskipan í breskum og bandarísk-
um sjónvarpsþáttum og kvikmyndum.
Þetta var ósköp alþýðleg og hraustleg
stúlka, sem tæpast hefði komist lengra en
í hlutverk statista í henni Hollywood. Þar
vestra virðist oft skipta meira máli að leik-
konurnar séu eins og postulínsdúkkur í
Sue Ellen vaknar ávallt með nýblásið hár og
fullkomna andlitsförðun. . .
framan en að þær geti leikið skammlaust.
Það eru mistök, sem Bretinn lætur ekki oft
henda sig. Það getur verið reglulega hjarta-
styrkjandi að sjá enskar „söguhetjur" á
skjánum, sem maður gæti allt eins átt von
á að hitta niðri í Austurstræti — fyrir utan
þá ómældu gleði, sem fylgir því að sjá per-
sónur vakna með úfið hár og andlit „frá
náttúrunnar hendi".
Ekki vil ég trúa því, að ég hafi verið ein
um að láta það pirra mig þegar Dallas-
meyjarnar stigu silkiklæddar upp úr rúm-
inu, eins og þær væru að koma beint úr
hárgreiðslu hjá Salon Veh og snyrtingu hjá
Heiðari! Slíkar glansímyndir stuðla einmitt
að því álagi, sem vestrænar nútímakonur
þurfa að búa við. Hin ýmsu öfl í þjóðfélag-
inu, og þar á meðal framleiðendur sjón-
varpsefnis, eru stanslaust að senda út
óbein skilaboð um það hvernig hin full-
komna kona á að vera: Hún á að vakna
með snyrtilega blásið hár og fullkomna
andlits- og handsnyrtingu, vera þrumu-
kokkur og baka ávallt sín eigin brauð, skipa
ábyrgðarstöðu á vinnumarkaðnum, hjálpa
börnunum daglega með heimalærdóminn,
hlusta á öll vandamál eiginmannsins, vera
virk í félagsstarfi og liðast síðan niður í
hjónasængina með frygðarstunum að
loknum afrekum dagsins.
Það var ekki glætu að sjá í sjónvarpsdag- •
skrá iaugardagskvöldsins fyrir okkur, sem
heima sátum, en Blikur á lofti björguðu
sunnudagskvöldinu. Var ekki einu sinni
hægt að sletta í mann endursýndri mynd á
laugardaginn? Kúrekarnir John Wayne og
Lee Marvin nægðu alls ekki til þess að
bjarga málunum, jafnvel þó þeir væru farn-
ir af baki og sóluðu sig nú léttklæddir á ein-
hverri Suðurhafseyju.
38 HELGARPÓSTURINN