Helgarpósturinn - 13.02.1986, Síða 39
FRÉTTAPÓSTUR
Hægt miðar í samningamálunum
Samninganefndir ASÍ, VSÍ og VMS funduðu á mánudag og
var farið yfir ýmsar hugmyndir úr undirnefndum. Engin
efnisleg niðurstaða varð af þeim fundum. Varðandi hús-
næðismál er verið að athuga með hvaða hætti lifeyrissjóð-
irnir geti í auknum mæli komið inn í fjármögnun húsnæðis-
málalánakerfisins sem yrði til þess að einfalda og samræma
kerfið og létta undir með húskaupendum og húsbyggjend-
um. Margt þykir benda til þess að tilboð frá atvinnurekend-
um sé í burðarliðnum.
Ríkisstjórnin lofar aðgerðum vegna samninganna
Ríkisstjórnin hefur lagt fram tillögur um aðgerðir vegna yf-
irstandandi kjarasamninga. Þar er gert ráð fyrir að verði
ekki verulegar breytingar til hins verra á viðskiptakjörum
eða öðrum ytri aðstæðum þjóðarbúskaparins frá því sem nú
horfir, sé unnt að draga svo úr verðbólgu á næstu mánuðum
,,að almenn verðhækkun frá janúar 1986 til janúar 1987
verði innan við 9 af hundraði". í þessum tillögum kemur
fram að forsenda verðbólguhjöðnunar sé stöðugt gengi
krónunnar og að almennt verði samið um hóflegar launa-
breytingar í áföngum. Takist það er ríkisst„órnin tilbúm til
að beita sér fyrir lækkun opinberrar þjónustu, lækkun
beinna skatta, lækkun nafnvaxta, verðlækkun á olíu og
bensíni og umbótum í húsnæðismálum og að aðhalds verði
gætt við ákvörðun búvöruverðs. Allt eru þetta aðgerðir sem
hafa bein og óbein áhrif á framfærslukostnað.
Kennaradeilan í hnút
Lausn virðist ekki vera í sjónmáli í deilu fjármálaráðuneyt-
isins og kennara i Kennarasambandi Islands. Baráttuvika
kennara er nú á þriðja degi. Aðgerðirnar felast m.a. í því að
leggja niður kennslu einn dag í hverjum landshluta. í dag,
fimmtudag, fellur kennsla þannig niður á Reykjanesi og
Austurlandi. Tilgangurinn með þessum aðgerðum er eins og
fram hefur komið að þrýsta á um jöfnun 5% mismunar
launa kennara sem eru i Kennarasambandi íslands og Hinu
íslenska kennarafélagi, og knýja á um viðræður um samn-
ingsréttarmál. Á þriðjudag safnaðist mikill fjöldi kennara
saman á þingpöllum þegar von var á að svarað yrði fram-
lagðri fyrirspurn um laun, samnings- og verkfallsrétt og
lögverndun á starfsheiti kennara á sameinuðu Alþingi. Svo
fór að svör fengust ekki við fyrirspurninni vegna fjarvista
fjármálaráðherra og létu viðstaddir kennarar óspart í sér
heyra af því tilefni.
Kvennalistinn í framboði til bæjar- og sveitarstjórnakosn-
inga
Kvennalistinn hefur ákveðið að bjóða fram í Reykjavik í
komandi sveitarstjórnakosningum og áhugi er meðal
kvenna um allt land um sérframboð í flestum kjördæmum
landsins. Þetta kom fram á fjölmennum fundi sem haldinn
var um helgina þar sem kosningarnar framundan voru
ræddar.
Brunamálastjóri verði rekinn
Guðmundur Einarsson formaður Bandalags jafnaðar-
manna hefur farið fram á það við Alexander Stefánsson fé-
lagsmálaráðherra að hann leysi Þóri Hilmarsson bruna-
málastjóra þegar frá störfum. I bréfi sem Guðmundur sendi
ráðherra á mánudag segir hann að ófremdarástand bruna-
mála hérlendis hafi nýlega komið í ljós þegar eldsvoði varð
á Kópavogshæli og í ljós kom að brunavarnir voru engar. í
bréfi sinu vikur Guömundur meðal annars að umf jöllun HP
á meintum hagsmunaárekstrum brunamálastjóra og
óánægju kunnugra með störf hans. Guðmundur telur ærna
ástæðu til að ætla að Brunamálastofnun gegni alls ekki
hlutverki sínu undir stjórn núverandi brunamálastjóra og
að brotin hafi verið lög um réttindi og skyldur opinberra
starfsmanna.
Reyklaust ísland árið 2000
Krabbameinsfélag íslands hafði frumkvæði að því að hér á
landi hafa verið stofnuð samtök, RÍS 2000, sem hafa það að
markmiði að ísland verði reyklaust árið_2000, en svipuð
samtök hafa verið stofnuð víða um heim. Ýmis samtök heil-
brigðisstétta standa að RÍS 2000 og eru nú á döfinni miklar
herferöir gegn reykinguin á almannafæri og gegn þeim sem
hagnast fjárhagslega á að selja tóbak.
Fréttamolar
• Borgarráð samþykkti á fundi í vikunni umsókn Guð-
björns Guðjónssonar, forstjöra í Reykjavík, um lóð fyrir
hótelbyggingu á horni Kringlumýrar og Sigtúns.
• Skráð atvinnuleysi í janúarmánuði var nú minna en i
sama mánuði sl. 4 ár. Alls voru skráðir rösklega 51 þús. dag-
ar á landinu öllu sem samsvarar um 2.370 atvinnulausum
allan mánuðinn.
• Skipadeild Sambandsins mun frá og með næstu viku
auka siglingatíðni sina um helming milli íslands og Vestur-
Evrópu. Hingað til hafa ferðir verið á hálfsmánaðar fresti.
9 Fréttamenn Rúvak, svæðisútvarpsins á Akureyri, þau
Erna Indriðadóttir og Jón Baldvin Halldórsson, hafa bæði
sagt starfi sínu lausu.
• Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins og Alþýðubanda-
lagið efna til baráttudaga gegn ríkisstjórninni 13. til 15.
þessa mánaðar. Af því tilefni verður staðið fyrir vinnustaða-
heimsóknum, félagsfundum og almennum stjórnmála-
fundum víða um land.
• Kona höfuðkúpubrotnaði þegar hún féll aftur fyrir sig
ofan af dansgólfinu á veitingastaðnum Broadway á laugar-
dagskvöld. Hún var að dansa þegar óhappið varð.
• Stjórn Dagsbrúnar hefur fengið verkfallsheimild hjá fé-
lögum sínum.
• Lögreglan var kölluð á geðdeild Landspítalans á laugar:
dagskvöld. Tilkynnt var um torkennilegan hlut sem gat allt
eins verið sprengja. Við athugun kom í ljós að hluturinn var
samansettur úr leir, virum og einangrunarbandi.
• Þritug kona hrapaði til bana í fjallinu Tunguhorni í
grennd við Bolungarvík á sunnudagskvöld. Hún var í fjall-
göngu ein síns liðs.
NQATUN
Nogar vörur i Noatuni
Nóatúni 17 sími 17261
Rofabæ 39 sími 671200
1
HELGARPÓSTURINN 39