Helgarpósturinn - 11.12.1986, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 11.12.1986, Blaðsíða 2
texti: Anna Kristine Magnúsdóttir mynd: Jim Smart. Rœtt við Þuríði Pálsdóttur um bókina „Líf mitt og gleði“ MINNISVERÐAR MINNIN ENGIN ÆVISAGA ,,Eg vil helst ekkert tala um þessa bók — bara þad ad hún er að koma út!“ sagði Þuríður Pálsdóttir söng- kona og brosti við. Tilefni viötalsins var að grennslast örlítið nánar um bókina sem Jónína Michaelsdóttir skráði og ber nafnið ,,Líf mitt og gleði“ og Forlagið gefur út. Hún seg- ir að þetta sé auðvitað engin ævi- saga: „Þetta eru minnisverðar minningar og ég held það sé mikil- vœgt atriði í svona bók aö vera heið- arlegur varðandi það hvernig mað- ur upplifði sjálfan sig, sína œsku, sína foreldra og œttingja og sitt sam- starfsfólk — hvernig maður komst í gegnum þetta." MERKILEGT AÐ OKKUR SKYLDI ALDREI LENDA SAMAN! Tildrög bókarinnar segir Þuríður vera þau að fyrir tveimur, þremur árum hafi Jóhann Páll Valdimarsson hjá Forlaginu haft samband við sig varðandi aðra bók sem hann var að gefa út. Hann minntist á hvort Þuríður vildi ekki gefa út sínar minningar ,,og fékk einhvern auga- stað á mér — eins og reyndar fleiri. En þar sem Jóhann Páll varð fyrstur til að nefna þetta við mig auk þess sem hann var duglegur við að hringja til mín og minna mig á þetta, afréð ég að láta hann gefa út bókina. Eg treysti reyndar aðeins einni manneskju til að skrá þessa bók . . . Jónínu Michaelsdóttur hafði ég kynnst fyrir nokkrum árum þegar hún hafði við mig viðtal fyrir Vísi og við urðum mjög góðar vinkonur upp frá því. Mér finnst hún hafa fal- legan penna og kynnast viðmæl- anda sínum vel og er aldrei með óþarfa málskrúð. Þótt ég tali mikið þá er ég ekki fyrir orðagjálfur eins og að segjast hafa verið „umkringd rósrauðum bjarma" eða að „hjartað hafi verið að springa"! Jónína hefur skapað sér sinn stíl og hefur náð mér vel. Hún leggur mér aldrei í munn það sem ég hef ekki sagt, eins og aðrir myndu kannski gera. Jón- ína er mjög vönduð og þroskuð kona og mér finnst hún afskaplega gáfuð og þekkja vel allar hliðar mannlífsins." Þuríður viðurkennir að mun meiri tími hafi farið í að vinna bók- ina en hana hefði órað fyrir: „Við eyddum drjúgum hluta sumarsins saman, gengum um miðbæinn og ræddum saman. Jónína notaði ekki segulband heldur bara punktaði hjá sér það sem ég sagði. Síðan dvöld- um við í fjóra daga á Þingvöllum og fórum saman yfir punktana og síð- an hóf Jónína sína vinnu. Það var óskapleg vinna því hún var með fullt af bréfum og blaðadómum og erfitt að velja og hafna. Eftir að vinnan var hafin var málið að mestu leyti komið úr mínum höndum þar til handritið lá fyrir." Hún minnist á það að nokkur hluti bókarinnar fjalli um uppruna sinn og ættir hennar raktar: „Það sýndi mér kannski glöggt hvernig aðrir sjá hlutina öðruvísi en maður sjálf- ur. Jónína hafði áhuga á að rekja ættir mínar því henni fannst sam- hengið svo áhugavert. Móðuramma mín, Jórunn Norðmann var merkis- kona sem sendi öll sín börn í listnám í kringum aldamótin sem var mjög sérstakt og þennan tónlistaráhuga minn má því rekja langt aftur — það var ekki aðeins pabbi sem var tón- listarmaður. — Jónína valdi nafnið á bókina eftir að legið hafði verið yfir mörgum nöfnum. Henni fannst hún hafa þetta nafn í höndunum, „Líf mitt og gleði" og ég er ánægð með það. Samvinna okkar var afar góð — og eins og Jónína hefur sjálf sagt þá er merkilegt að okkur skyldi aldrei lenda saman, eins ákveðnar og við erum báðar!" og þessari fullyrðingu fylgir skellihlátur. „En maður má heldur ekki taka sig of hátíðlegan," bætir hún við. „Það er ekki hægt að skrifa neina ævisögu í 270 blaðsíðna bók — það er bara tóm vitleysa. Sjáðu bara þessar ævisögur sem hafa komið út, þetta er í mörgum bindum og sumir ekki orðnir nema tvítugir í fjórðu bókinni. Ef ég ætlaði að gera mín- um vinnuferli skil, líkt og stjórn- málakonur gera sínum stjórnmála- ferli skil, þá yrði það efni í margar bækur. í þessari bók er farið yfir helstu atriðin, á því hvernig maður upplifði sjálfur lífið og leysti úr sín- um vandamálum auk þess sem minni æsku eru gerð nokkuð góð skil. Þetta er í stuttu máli saga konu sem vildi ekki gefast upp og gerði það sem hugur hennar stóð til. Ein- föld saga um konu sem gerir það sem hún finnur sig knúna til að gera, þótt allir hlutir mæltu í raun- inni gegn því.“ SEKTARKENNDIN SÖM VIÐ SIG Það sem mælti gegn því að Þuríð- ur héldi utan til náms, var m.a. að hún var þá gift og átti Kristínu, 4 ára dóttur: „Auðvitað þótti þetta alveg agalegt, þú getur rétt ímyndað þér!“ sejgir hún aðspurð um það atriði. „Eg hafði áður hafið nám erlendis en uppgötvaði þá að ég átti von á barni og varð að snúa heim. Þegar þessi staða kom upp nokkrum árum síðar var það tengdamóðir mín sem hvatti mig til að fara, enda mikil kvennabaráttu-kona. Auðvitað fékk ég að heyra það frá öðrum að það væri nú bara eðlilegt að ég skyldi komast í nám, dóttir Páls ísólfsson- ar. Það fór lengi vel í taugarnar á mér að heyra þetta því ég vissi sem var, að ef þeir sem í hlut áttu hefðu sjálfir viljað fara í nám hefðu þeir getað það eins vel og ég. Þetta var barningur og alls ekki auðvelt að fara frá eiginmanni og dóttur til dvalar á Ítalíu á annað ár. En að það skipti máli að ég væri dóttir Páls ís- ólfssonar, það var fjarri lagi. Pabbi hvatti mig síst af öllum, því hann vissi manna best hvað það var að vera fátækur tónlistarmaður. Hann sagði alltaf að ég væri ekki nógu vond manneskja til að verða söng- kona! Það var nú að hluta til grín hjá honum, — honum fannst ég ekki nógu gribbuleg!" Þuríður hélt utan til söngnáms með sektarkenndina í farangrinum en studd af Erni manni sínum sem hvatti hana og hjálpaði fjárhags- lega: „Við leystum peningamálin saman og hann hjálpaði mér alltaf í mínu námi,“ segir hún. „En það er þessi sektarkennd sem stendur kon- um oft fyrir þrifum. Ég var haldin óskaplegri sektarkennd að fara frá barninu mínu en aftur á móti hafði mamma aldrei neina sektarkennd yfir því að setja mig á barnaheimili flest öll sumur þegar ég var yngri. Það held ég sé vegna þess að hún var ekki úti að vinna... Sektar- kenndin kemur um leið og við ætl- um að fara að gera eitthvað fyrir okkur sjálfar. Ég er ekkert merkilegri en aðrar konur, síður en svo, og var í rauninni mjög feimin við að láta skrifa þessa bók. En ég var alin upp við sér- kennileg skilyrði og held að konur hafi gott af að sjá að hlutirnir fást ekki nema við berjumst fyrir þeim. Ég er næstum því viss um að hefði ég verið dóttir einhvers annars, til dæmis iðnaðarmanns, hefði mér verið hjálpað til náms vegna þess að ég hafði greinilega hæfileika. Frænka mín ein sagði mér að ég hefði sungið mörg lög áður en ég fór að tala, söngurinn var mér greini- lega meðfæddur. Að sjálfsögðu var ég alin upp við tónlist á tónlistar- heimili en þetta var örugglega eitt- hvað í mér því ég vildi aldrei gera neitt nema syngja frá því ég fyrst man eftir mér. Um tíma heillaðist ég af myndlist og fór til náms í Mynd- lista- og handíðaskólann þar sem ég ætlaði að verða auglýsingateiknari en það varð aldrei nein ástríða hjá mér. Það var meira það að mér fannst gaman að teikna og mála og átti auðvelt með að ná svip fólks. I þessu námi var aldrei alvara því það var söngurinn sem dró mig áfram á hverju sem gekk. Að vísu hef ég ennþá unun af að mála og fæst tölu- vert við það og finnst það meira gaman en fást við handavinnu." ALDREI BÓHEM Þuríður leggur á það áherslu að það sé ekki það sama fyrir karl- menn að fara utan til náms eins og fyrir konur: „Það eru fáir karlmenn sem þurfa að fara frá heimili og fjöl- skyldu ef þeir vilja mennta sig er- lendis. Konurnar fylgja þeim oftast. Það er allt annað mál með konur. Hvaða maður færi að fórna starfi sínu og frama svo konan geti menntað sig? Það var varla til á þeim árum þegar ég var við nám og það er varla til enn. í rauninni hefur staða kvenna lítið breyst á þessum 35 árum. Það er líka alveg ljóst að það eru engar raddir í kvennahreyf- ingum sem breyta þessu. Breytingin verður að koma frá okkur konunum sjálfum. Það verður hver kona að finna það innra með sér. Ég hef í fjölda ára starfað með Soroptimista- klúbbi Reykjavíkur og líkt og aðrir kvennaklúbbar höfum við haldið flóamarkaði, basara, kökusölu o.fl. á meðan karlmennirnir hafa komið sér upp miklu einfaldara kerfi og selja ljósaperur og dagatöl — sem við konurnar allar kaupum!!! Við virðumst oft gera okkur æði erfitt fyrir. Ég var sjálf mjög venjuleg ung kona þegar ég ákvað að fara utan til náms. Ég var aldrei bóhem og hefði ekki mátt vera að því að eyða tíman- um í slíkt. Það eina sem gerði mig frábrugðna öðrum venjulegum kon- um á þeim tíma var kannski það að ég lét ekki deigan síga og gerði það sem hugur minn stefndi til. Það voru hins vegar margar konur af minni kynslóð sem hættu námi þegar þær giftust og stofnuðu heimili. “ „Þetta er einföld saga konu sem gerði það sem hugur hennar stefndi til." 2 B HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.