Helgarpósturinn - 11.12.1986, Side 3

Helgarpósturinn - 11.12.1986, Side 3
SETTIST Á SKÓLABEKK 38 ÁRA í lífi Þuríðar hafa skipst á skin og skúrir eins og lesendur bókarinnar munu kynnast. Hún hefur lent í næstum öllu sem hægt er að lenda í, bognað og brotnað en reist sig upp að nýju, búin meiri orku en fyrr. Þrjátíu og átta ára gömul settist hún á skólabekk ásamt jafnöldrum elstu dóttur sinnar og hóf nám sem tón- menntakennari. Síðastliðin tuttugu ár hefur hún kennt söng og verið yfirkennari Söngskólans í Reykjavík frá stofnun hans. Hún segir kennsl- una gífurlega krefjandi starf: ,,Ég sit kannski í sex klukkustundir í röð með nemendum mínum, spila á píanóið og gef þeim allt sem ég á. Tónlistarnám er orðið öðruvísi í dag en það var þegar ég var að byrja og auðveldara fyrir fólk að verða sér úti um þessa menntun núna en áður var. Ég hef afskaplega gaman af þessu starfi og margir nemenda minna eru þeir sem nú eru að verða stórsöngvarar íslensku þjóðarinn- ar.“ Hún segist ekki vera sú eina í fjölskyldunni sem sé listræn: „Systkini mín eru öll mjög listræn og við eigum öll auðvelt með að teikna. Þann hæfileika erfðum við frá pabba sem var góður teiknari. Þau eru líka músíkölsk þótt þau hafi aldrei haft þessa ríku þörf fyrir að syngja sem ég hef alltaf haft. Það er líkt og með börnin mín. Þótt þau séu öll músíkölsk vill ekkert þeirra fara í þetta. Barnabörnin virðast aftur á móti ætla að líkjast ömmu!“ Þuríður og eiginmaður hennar, Örn Guðmundsson, eiga þrjú börn, Kristínu sem er fertug og fimm barna móðir, Guðmund Pál 32 ára sem á einn son og Laufeyju 24 ára. Hún segir aðdáun barnanna á söng- ferli móðurinnar hafa verið æði mis- jafnan „og þegar Guðmundur var lítill vildi hann ekki kannast við mig út á við, honum fannst svo leiðinlegt að vera sonur „óperusöngkonu“!“ Það er stutt í húmorinn hjá Þuríði og margt skemmtilegt ber á góma. Hún nefnir að á æskuárum sínum þegar hún hafi dvalið mikið á barna- heimilum hafi hún sennilega verið „prógrammeruð" fljótt og vel því síðan hafi hún alltaf verið fljót til að hlýða! „Þegar ég var að alast upp var það þannig að börnin gerðu allt fyrir foreldrana og hlýddu afdráttar- laust. Á síðustu árum er þetta orðið öfugt: Foreldrarnir gera það sem börnin segja .. Hún segir ástæðu þess að hún hafi verið mikið „að heiman" sem barn hafi verið þá að foreldrar hennar hafi dvalið mikið erlendis auk þess sem móðir hennar átti lengi við veikindi að stríða. „Strákarnir, bræður mínir, voru oftast hjá fjöl- skyldunni en þegar hún gat ekki tekið við fleirum var stelpan sett til vandalausra. Ég held ég hafi bara haft gott af því enda var ég alltaf hjá prýðisfólki og það var mikið happ. Þetta held ég til dæmis að hafi gert mér auðveldara að fara ein til dvalar utanlands — en kannski var hluti af þessu lífi líka þess valdandi að ég hef lengi búið við taugaveiklun. Ég hef svosem ekki alltaf verið svona normal!" bætir hún við og skelli- hlær. Um þessa hlutisegist hún fjalla í bókinni, enda þar komið víða við á sviðum sem margir hefðu kannski viljað halda fyrir sig. FÓLK HELDUR KANNSKI AÐ ÉG SÉ SKRÝTIN! Náminu á Ítalíu er vel lýst í bók- inni og þeim tilfinningum sem bærðust með Þuríði á þeim tímum. Hún var aðeins 23 ára þegar hún lagði ein af stað til fjarlægs lands frá manni og barni talandi lítið sem ekkert í ítölsku. Hún segir ferðamát- ann hafa verið erfiðan: „Þá var sigit með skipi beint til Gíbraltar og við sáum bara himin og haf í tíu sólar- hringa. Þaðan lá leiðin til Genúa og frá því ég fór að heiman og þangað til komið var á áfangastað liðu sex- tán sólarhringar. Auðvitað var stórt stökk að fara þessa vegalengd, vit- andi það að maður gat ekki skropp- ið heim hvort sem um jól eða annað var að ræða. Maður hringdi að sjálf- sögðu aldrei heim til íslands en þess vegna á ég líka svona mikið af bréf- um ennþá frá þessum árum. Öll samskipti við fjölskylduna og vini fóru í gegnum póstþjónustuna." Þrátt fyrir langan vinnudag í Söngskólanum hefur Þuríður gefið sér tíma fyrir margt annað á síðustu árum. Hún er m.a. formaður Þjóð- leikhúsráðs, skipuð af Sjálfstæðis- flokknum og situr í menningar- málanefnd en þótt hún segist vera pólitísk segir hún að skrif sín um stjórnmál í bókinni séu ekkert endi- leg þæg fyrir flokkinn: „Annars er ég viss um að fólk heldur að ég sé eitthvað skrýtin þegar það les bók- ina!“ segir Þuríður. „Það er heilmik- ið um dulræn efni og drauma í bók- inni — og meira að segja um álf- konu. Pabbi gaf mér fingurbjörg þegar ég var 16 ára og henni fylgir álfkona og frá þessu segi ég í bók- inni.“ Þuríður er samt greinilega ekki á þeirri bylgjulengd að láta eitthvað gerast án þess að leita skýringa á því og meðal þess efnis sem hún sökkti sér niður í um tíma var breytingar- skeið konunnar. Hún varð sér úti um bækur sem fjölluðu um það efni og kynnti sér þetta af lífi og sál og þar kom að hún var beðin að flytja fyrirlestur hjá Málfreyjum fyrir níu árum: „Þetta kom nú bara í ein- hverju bríeríi, en síðan hlóð þetta utan á sig og síðastliðin ár hef ég flutt fyrirlestra varðandi breytingar- skeiðið í kvennaklúbbum. Ég gat hreinlega ekki annað þessu lengur svo við bættum við köflum úr þess- um fyrirlestrum aftan í bókina. Það er greinilegt að margar konur hafa áhuga á þessu efni og ég vona að þeim líki þessi hugmynd." Ekki þarf að undra að Þuríður geti ekki flutt fyrirlestra áfram ofan á alla sína vinnu, enda segist hún ekki mæta á alla þá staði sem hún þyrfti að láta sjá sig á: ,,Það er bara ekki svo auðvelt fyrir konur með heimili og fjölskyldu að mæta alls staðar," segir hún. „Mér hefur alltaf þótt fjöl- skyldan mikils virði og hef alla tíð verið mikil fjölskyldukona í mér. Samt sem áður myndi ég ekki hika við að velja sömu leið núna og ég valdi ef mér stæði til boða að byrja upp á nýtt. Ég er alveg viss um að ég hefði ekki notið mín hefði ég ekki orðið söngkona. En ég valdi fjöl- skylduna fram yfir sönginn að því leyti að ég hefði aldrei farið að starfa erlendis og fórna fjölskyldunni." SVOLÍTIL POLLÝANNA? Nafn bókarinnar, Líf mitt og gleði, er lýsandi fyrir bókina. Sjálf segir Þuríður að Jónínu hafi fundist nafn- ið við hæfi því henni finnst Þuríður svo oft hafa snúið dæminu við á rétt- an veg. Er hún svolítil Pollýanna í sér? „Já, veistu það, ég hugsa það bara. Ég held ég hljóti að vera það þegar allt kemur til alls.“ <<!c Aé' B2 Sigrún Eldjárn Nútímaævintýri fyrir káta krakka Dag nokkurn þegar Áki litli bregður sér út í garð hittir hann kostulega geimveru - með tvð höfuð og fjóra fætur - sem segist heita Bétveir. En hvað í ósköpunum er Bétveir að gera á jörðinni? Bækur Sigrúnar Eldjárn njóta mikilla vinsælda meðal yngstu kynslóðarinnar. Heillandi ævintýri með litmyndum á hverri síðu. Verð kr. 788.00 FRAKKASTÍG 6A, 121 RPtKJAVÍK, SÍMI-91-25188 Kaci’i SáM Kæri Sáli /h % Náifrttðinw-r Sigtryggur Jónsson Sálfræðingur svarar ungu fólki fðlk°g.ar ^eninSI j lýíll^ KíT* n##*** Fólk og fæningjar I kardemommubæ Thorbjörn Egner THORB3ÖRN EGNEfí : Hvað get ég gert til að bæta fjölskyldulífið heima? Er ekkert athugavert við það að unglingar detti í það um hverja helgi? Eiga unglingar rétt á því að fá getnaðar- varnir? Hvernig get ég öðlast meira sjálfstraust? í bókina geta unglingar sótt fróðleik, hvatn- ingu og góð ráð á því stórkostlega ævi- skeiði sem unglingsárin eru. Kæri Sáli er bók sem unglingum þykir bragð að - og fullorðnir ættu að kynna sér. Verð kr. 988.00 Hver kannast ekki við Kasper, Jesper og Jónatan? Nú er hún komin út aftur, sagan um ræn- ingjana þrjá og Soffíu frænku. Bókin kom upphaflega út fyrir aldarfjórðungi og hefur verið ófáanleg um langt skeið. Bókina prýðir mikill fjöldi litmynda sem höfundurinn hefur gert sérstaklega fyrir þessa útgáfu sögunnar. Hulda Valtýsdóttir og Kristján frá Djúpalæk þýða söguna. Verð kr. 788.00 Charles Dickens 1,^)11111"^" (laiiða||S Yoko Tsuno - • 1: ' ' ' : í [' : >*<2 , \1‘ ■yUsilí- DRÖTTfriNGAR DAUOANS „Mikillar þakkar vert að fá þessa skemmtilegu jólasögu í svo góðri þýð- mgu Örn Ólafsson, DV Sagan um nirfilinn gamla sem hatast við jólin og boðskap þeirra. Furðulegar sýnir ber fyrir augu hans á jólanótt, og þegar hann rís úr rekkju á jóladag lítur hann heiminn öðrum augum en áður. Ein fegursta jólabók ársins - prýdd fjölda teikninga og litmynda. Þorsteinn frá Hamri þýðir söguna. Verð kr. 888.00 Myndasögurnar um Yoko Tsuno hafa farið mikla frægðarför um Evrópu. Yoko og vinir hennar hafa komist í samband við íbúa á fjarlægri reikistjörnu. Skyndilega færist harka í leikinn. Ef drottning dauðans nær yfirhöndinni munu skelfilegir atburðir gerast. Verð kr. 487.00 HELGARPÓSTURINN 3 B

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.