Helgarpósturinn - 11.12.1986, Síða 12

Helgarpósturinn - 11.12.1986, Síða 12
BOKMENNTIR Stórvirki lokiö Siguröur A. Magnússon: Úr snöru fuglarans Uppvaxtarsaga (294 bls.) Mál og menning 1986 Verd kr.: 1690 Úr snöru fuglarans er fimmti hluti hinnar miklu uppvaxtarsögu Sigurðar A. Magnússonar sem hófst með Undir kalstjörnu árið 1979. Verkið allt er orðið nærri 1400 síður og þarmeð ein viða- mesta saga sem rituð hefur verið á þessari öld. Af uppvaxtarsögum má einnig helst líkja þessu verki við Fjallkirkju Gunnars Gunnars- sonar, ekki síst vegna þess að Sig- urður beitir ekki ólíkri aðferð og Gunnar. Sigurður hefur ekkert farið í launkofa með það að í þessu verki er hann að segja sína eigin sögu. Ekki síst þess vegna beitir hann aðferðum skáldsögunnar við að segja söguna, breytir nöfnum per- sóna og mótar þær fyrir lesand- ann eins og skáldsagnahöfundur. Einnig veitir þessi aðferð höfundi svigrúm til þess að skapa spennu og losa sig undan ýmsum skyldum í atburðarakningu sem hefð- bundnir ævisöguritarar telja sig hafa. Ég held að það sé rétt hjá Sig- urði að skáldsaga geti einmitt ver- ið sannari lýsing á raunveruleika, samfélagi og hugmyndum, en saga sem á að vera sönn frásögn. Minni manna er brigðult og hug- urinn umskapar veruleikann í minningunni og því er það í raun- inni biekking að ævisaga byggð á endurminningum sé eitthvað sannari en hver önnur frásögn. En hversu gott, athyglisvert, for- vitnilegt eða fræðandi efni sem liggur í og við æviferil eins manns kann að vera, þá er það samt sem áður svo að það er úrvinnsla þess og framsetning sem ræður því hvort það snertir lesanda og hvort honum finnst sér koma það við. Þegar litið er á þetta verk í heild kemur í ljós að það er ákaflega fjölbreytt og það prýðir flest sem prýða má gott skáldverk. Margar persónur eru eftirminnilegar og ber föðurinn þar einna hæst, en einnig má nefna móðurina og systur hennar, vini Jakobs og fleiri og fleiri. Persónusköpun er skýr og margþætt, fólkið sýnt frá mörgum hliðum. Að nokkru leyti er um ald- arfarslýsingu að ræða og er hlutur hennar mestur í fyrri bókunum, í kreppunni og á stríðsárunum. En Finnlands og hittir hana aftur þar stutta stund. Árið eftir fer hann enn til Finnlands og hittir hana og enn gerist lítið, þrátt fyrir bréfa- skriftir um veturinn og árið þar á eftir kemur stúlkan á kristilegt mót á fslandi. í raun hafði hún lítið gefið út á þessa ofurást Jakobs og ekki síst er sagan sálfræðileg þar sem fjallað er um sálarlíf og tilfinn- ingar Jakobs sjálfs. Þar er á ferð- inni djúpsæ sálarkrufning og hreinskilin. Fjallað er ákaflega nærgöngult um allan þroskaferil- inn frá barnæsku til fullorðinsára. Þarna er lögð á borðið sköpunar- saga manns sem er full af mót- sögnum, átökum, spennu, lýst bælingu og útrás sem vart á sinn líka. Um alla þessa þætti er fjallað af magnaðri stílíþrótt þar sem hvergi er slakað á ýtrustu kröfum. í Úr snöru fuglarans segir frá rétt eftir tvítugt, þegar Jakob hefur ný- lokið stúdentsprófi og hefur há- skólanám í guðfræði, í samræmi við aðaláhugamál sitt sem fjallað er ítarlega um í síðustu bók, Skilningstrénu. En þrátt fyrir áð ekki sé allt sem sýnist í hinni kristilegu veröld ákveður Jakob samt sem áður að fara í guðfræði. Hugmyndaheimur hans er svipað og í Skilningstrénu markaður af rammri togstreitu viljans til að lifa kristilegu líferni og þeirri hugmyndafræði sem því fylgir og þeim margbreytilegu freistingum sem verða á vegi ungs manns, og er það einna helst kynhvötin sem býður syndinni heim, bæði andlega og líkamlega. Er þessi sálartogstreita eitt aðalviðfangsefni þessarar bókar. Það er þó hvorki guðfræðin eða syndin sem skipta hér mestu máli heldur er það ástin. Kannski væri réttara að segja blekkingin eða öllu heldur sú blinda (eða blekk- ing) sem ástin getur valdið. Sumar- ið eftir stúdentspróf fer Jakob á kristilegt stúdentamót í Dan- mörku og þar hittir hann finnska stúlku sem hann verður yfir sig ástfanginn af. Hann eltir hana til hann ekkert komist með hana þessi skipti sem þau hittust. En að lokum gerir hún honum grein fyr- ir því að hann eigi enga von til þess að eignast hana. Allan þenn- an tíma hafði mynd hennar blasað fyrir sjónum hans og þessi ást hans truflað allt hans tilfinningalíf og gert honum nánast ókleift að lifa eðlilegu lífi. Þessi ást hans (eða tál- mynd) er annar póllinn í togstreitu sálar hans en hinn er sem fyrr bar- áttan við hinar hversdagslegu freistingar sem hann nú fellur fyrir í auknum mæli. Skoðað út frá ann- arri vídd er hér náttúrulega um að ræða hina eilífu baráttu milli hug- myndanna og hugmyndaheimsins annarsvegar og hinsvegar þess kalda raunveruleika sem við þrátt fyrir allt erum neydd til þess að lifa í. Það er þessi sálarlífslýsing sem er meginviðfangsefni Úr snöru fuglarans. En auðvitað kemur margt fleira við sögu, nýtt fólk og eftirminni- legt, en einna sterkust er lýsingin á 30. mars 1949 þegar Alþingi samþykkti inngönguna í NATO og stjórnin sigaði táragasvæddri lög- reglu og hvítliðum á mannfjölda á Austurvelli. í sögulok þegar veröld Jakobs hrynur enn einu sinni þegar stúlk- an segir honum sannleikann ákveður hann að hverfa af landi brott um sinn eða fyrir fullt og allt til þess að finna sjálfan sig. Ákveðnum þætti í lífi hans er lokið og þar með uppvaxtarsögunni. Uppvaxtarsaga Sigurðar A. er stórvirki, það má dást að honum fyrir úthald og seiglu, hreinskilni og sálarkrufningu, en þó fyrst og síðast fyrir að hafa sagt eftirminni- lega sögu sem lesanda finnst sér koma við í fullri alvöru. G.Ást. 12 B HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.