Helgarpósturinn - 11.12.1986, Síða 13

Helgarpósturinn - 11.12.1986, Síða 13
BOKMENNTIR 17 ára ólétt (og ekki í sambúð) Andrés Indriðason: Með stjörnur í augum Mál og menning 1986 164 bls. Verö 980.- kr. Aðalpersóna og sögumaður okkar er 17 ára stúlka í M.R., Sif Ólafsdóttir lögfræðings og konu hans, eldra barn þeirra hjóna; hið yngra er hann Diddi, unglingur í gaggó. Auk þeirra koma ýmsir við sögu, afi og amma, frændur, ná- grannar, en einkum og sér í lagi Arnar, dökkhærður sjarmör í 5. bekk M.R., og kunningi hans, Gutti flugfreyjusonur og forstjóra í einbýlishúsi í Grafarvogi, síbyrgur af bjór og aldrei blankur, því for- eldrarnir kaupa þögn hans um framhjáhaldsmál sín. Hann á vin- konur, sem allar eru „glanspíur". Sagan gerist í Reykjavík og ná- grenni á einu hausti, hér og nú. Söguþráðurinn er í stuttu máli sá, að Sif og Arnar „byrja saman", eins og nú er sagt. Hún á afskipta- lítinn föður og móðir hennar er skilningsrík og góður félagi. Hann býr hjá móður sinni og stjúpa, Sæmundi leigubílstjóra, sem hon- um lyndir illa við. Þau stunda partý og bíiferðir, kyssa og kela og þar kemur að þau sofa saman og hún verður ófrísk. Vitaskuld geng- ur á ýmsu í sambandi þeirra, af- brýðisemi og uppstyttu, stælum og stillingu o.s.frv. (Við skulum hins vegar láta sögulokin Iiggja milli hluta í þessari ritfregh.) Ég hef áður sagt, að Andrés Ind- riðason skrifar prýðilegan stíl, sem ég held að nái vel til unglinga. Samtöl eru yfirleitt eðlileg og óþvinguð (sjá t.d. bls. 100—101), þótt umræðuefni og viðbrögð sögupersóna orki kannski tvímæl- is í mínum huga (t.d. bls. 157—158). Tungutak unglinga er að þeirra hætti, án þess þó að allt sé fullt af slettum, en þrungið gildishlöðnum orðum óg hástemmdum. Hávaðasöm rifrildi og upphrópanir eru sett með hástöfum til að auðkenna geðsveiflurnar, og sér í línu standa ýmsar hugleiðingar sögumanns, sem miklu varða um líðan hans. I þessari bók eru lengri málsgreinar en í fyrri sögum Andrésar; orðin streyma viðstöðulaust af vörum persónanna (95) eða hver hugsunin rekur aðra í kolli sögumanns, og stundum eykur þetta hraða frásagnarinnar: „Amma, Golla Garfield, að stíga upp úr sundlauginni fyrir framan stóru villuna, kona bráðum sex- tug, gat verið tuttugu árum yngri, ótrúlega Iétt á fæti, var hún orðin rauðhærð eða var þetta hár- kolla?“ (122) Aukapersónur eru dregnar skýr- um og einföldum dráttum; Álfur afi var „fyrirferðarlítill, hæruskot- inn maður með syfjuleg augu og áberandi fjólubláa tauma í stóru nefi, pakkaður inn í svartan, klæð- skerasaumaðan frakka, hnaus- þykkan og virðulegan eins og hæf- ir hæstaréttarlögmanni og nýbök- uðum stjórnarformanni í hlutafé- lagi um fiskútflutning í gámum". (20) Og persónusköpunin er víða blandin kímni, með vísunum út og suður í bókmenntir og samtíma: Fröken Júlía heitir norsk vinnu- kona hjá nágrönnum. Albert Sveinsson frændi er „rauðhærður og stórfreknóttur jaki... Berti kveikti sér í stórum vindli." Andrés er lipur líkingasmiður; „Svo hló hann þessum gráthlægi- lega hlátri sínum, þessum hlátri sem kemur bara upp úr hans lík- um þegar raddböndin eru eins og lausskrúfaðir strengir í óþekktu hljóðfæri..og amma var „grönn og fíngerð eins og postu- línið frá Bing og Gröndal sem hreykti sér bak við gler í fjallháum skáp...“ Unglingarnir í þessari bók Andr- ésar eru aðeins eldri en söguhetj- ur hans í fyrri sögum, en söguefn- ið keimlíkt að breyttu breytanda. Enn sem fyrr er Reykjavík sögu- sviðið, hér og nú, músík dagsins glymur í eyrum, Dire Straits og Madonna, krakkarnir stunda partý og fá sér í glas, reykja ekki. Þetta virðist vera regla í unglinga- i bókum nú til dags, og ég hef áður sagt, að þetta sé of mikil einhæfni; unglingar gera ýmislegt annað en fara í partý og hlusta á tónlist. Ég vildi gjarnan sjá sögulegar íslenzk- ar unglingasögur (sbr. t.d. Kross- ferð á gallabuxum). Tilbreyting væri áð fá unglingasögu, sem gerðist að sumarlagi við leik og störf. Skólinn þarf ekki endilega að vera umgjörð unglingasagna, þótt krakkar séu 9 mánuði á ári í skóla o.s.frv. Ég er orðinn leiður á partýum og madonnum. Ég óska sem sagt eftir því að Andrés beiti ótvíræðum hæfileik- um sínum og leikni til að semja bitastæða skáldsögu handa ungl- ingum, sögu sem þolir tímans tönn, óháða tízkustraumum. Þótt hér sé sett út á efnisval Andrésar, er sagan eftir sem áður góður afþreyingarlestur, og tekið er á vandamálum sem unglingar velta flestir fyrir sér. Lausnir liggja ekki á lausu, og lesendur verða sjálfir að svará ýmsum spurning- um í sögulok, hver eftir sínu inn- ræti. Ég fékk ekki varizt þeirri hugsun að bera þessa sögu saman við met- sölubók siðastliðins árs, Sextán ára í sambúð, þar sem sami vandi blasir við tveimur táningum. Þar eru allar lausnir nauðaeinfaldar og vandamálin gufa upp við súkkulaðidrykkju á síðkvöldum. Sambúðin er því sem næst leikur, og tíu til tólf ára lesendur bókar- innar sjá þau Árna og Lísu í rós- rauðum hillingum ástarbjarmans, ,sambúð unglinganna er beinlínis eftirsóknarverð. Andrés skefur ekkert utan af hlutunum. Það er enginn leikur að verða ólétt 17 ára (hvað þá 15!) og aðdragandi þess er ekki með nein- um ólíkindum. SS jfiMH nmtHeg Örn Ólafsson, DV. jiörgvinssonar er femur vlöa vtft °0 ®r /elaðdragasama , ormfráþvl sem les irgmann, ÞjóövHHnn- ____anflual og siálf hugarf'ug --iKiuöftarskemi vlða neima, dann sýna úts'lónarsei andinnáhelstv í Sjounucr Guöm órs Guðbrandssona^f_fS(r n. Jy V sem HaUd ' otsMifast studer arþarsem.hamv^nnur verksm ö Hamrah'ið. G he(ðarbre. ■enhÖ''fwÍum sem t'ökastt ilingum á W ®> m hogarórum ð þvi að v’9.\ nsæislegum frá n stefmr 1 ertt vintýrum, spal m vangaveltum, sy6rnm.áb ðingum um ^nd u%. útkoman spáttum og 9oð 09 rslaiuii og sK 4sáSSSm- Allt meinhægt. Fjallar nokkuö ítarlega um fjóra daga úr llfi 35 dra bankastarfs- manns. Við förum með honum í vinnuna, tökum þátt i æsilegum næturævintýrum hans á diskótek- um borgarinnar og fylgjumst með þvl sem hann er að bauka þegar hann er einn heima hjá sér. Og viö sjáum ýmislegt sem hann yröi sjálfsagt ekkert of dnægður með að aörir vissu um. Kr. 399.- Guömundur Björgvinsson er fæddur I Reykjavík 1954. Hann hefur und- anfarin dr unniö jöfnum höndum að rit- störfum og myndlist. Fyrir utan þær tvær skáldsögur og matreiðslubók sem hér eru kynntar hefur hann haldiö 7 einkasýningar i Reykjavlk, eina I Kaupmannahöfn og 8 í sjávarplássum íslands. Allar bækur Guð- mundareru að sjálfsögóu myndskreyttaraf honum sjálfum. Matreiðslubók fyrir maka- lausa kjallaraboruhokrara með eina hellu erómissandi fyr- ir alla einbúa sem vilja lifa mann- sæmandi llfi, hvort sem þeir hýr- ast I 4 fermetra risherbergi, kjall- araboru eða 300 fermetra einbýlis- húsi I Laugarásnum. Kr. 99.- lÍFSmARH Hringbraut 41, 10T Rvk. S: 11338 híPsmnRK Má setja ófrímerkt i póst >€ Eg undirritaöur/-uó óska eftir aö kaupa: □ Næturflug í sjöunda himni eint. □ Allt meinhægt eint. □ Matreiöslubók fyrir makalausa eint. hringbraut 41 10* Rvk. SVARSEÐILL Nafn . Heimili Staóur. HELGARPÓSTURINN 13 B

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.