Helgarpósturinn - 03.09.1987, Síða 2

Helgarpósturinn - 03.09.1987, Síða 2
eflir Ólaf Bjarna Guðnason — Sjáðu til, við viljum selja ríkisfyrirtækin. Okkur datt í hug að láta Landsbankann kaupa Útvegsbankann. Svo gætum við látið Póst og síma selja valda hluta til Orkustofn- unar meðan Orkustofnun erlendis yrði seld Aburðarverksmiðju ríkisins. Mér finnst eig- inlega eðlilegast að við seljum ríkisfyrirtækj- um ríkisfyrirtæki. Ég meina, sko! Það er bara ríkið sem hefur peninga til þess að kaupa stórfyrirtæki af þessu tagi. Ertu ekki sam- mála? Það má ekki gleyma félagslega þætt- inum. Og við erum öll íslendingar, þannig að það er ekki hægt að dreifa eignarhluta meira en gert er í ríkisfyrirtækjum, sem allir íslend- ingar eiga, í rauninni... Hinn kínverski kollegi utanríkisviðskipta- ráðherrans sýndi þessari löngu einræðu eng- an áhuga. Hann baðaði út öllum öngum í leit að útgönguleið undan tjöldunum, en fann ekki. Loksins gafst hann upp, sneri sér í hina áttina, opnaði glugga, stakk höfðinu út og dró djúpt andann. íslenski utanríkisviðskiptaráðherrann tók ekki eftir því að athygli kínverska kollegans hafði beinst að öðru. Hann hélt áfram að rekja raunir sínar. — Mér finnst það í rauninni alls ekki vond hugmynd að selja ríkisfyrirtæki, sérlega öðr- um ríkisfyrirtækjum. En ég er nú samt harð- ákveðinn í því, að selja Samtökum sauðfjár- bænda Landgræðslu ríkisins, þó Samtök sauðfjárbænda séu ekki ríkisstofnun. Þeir eiga þar mestra hagsmuna að gæta og lang- samlega eðlilegast að þeir eignist og reki Landgræðsluna. Þá verður loksins friður.. . — Fyrirgefið, hæstvirtur utanríkisvið- skiptaráðherra, hvislaði kínverski kolleginn, máttfarinn. — Fiskimjöl. .. — Blessaður vertu, það er nógur fiskur í Vestmannaeyjum. Og Utvegsbankinn er ein- mitt með útibú þar! — Sjáðu til, sagði íslenski utanríkisvið- skiptaráðherrann, og brosti með drengja- legri einlægni og hreinskilni framan í kollega sinn, sem komst ekki undan tjöldunum. — Sjáðu til, ég ætla ekki að leyna því, að það kæmi sér á ýmsan hátt vel að losna svona við Útvegsbankann. Við erum nefnilega í dá- litlum vanda, sjáðu til, það eru nefnilega komnar upp deilur og alls kyns illindi út af þessu máli. Kínverski kolleginn hafði nú gefist upp og beið þess aðeins þolinmóður að íslenski ut- anríkisviðskiptaráðherrann lyki máli sínu. — Það er nefnilega þannig að Sambandið vill fá bankann og okkur er erfitt að standa á móti Sambandinu. — Sambang? Hvað er Sambang? — Ja. . . sko, Sambang. . . fyrirgefðu Sam- bandið, það er ansi hreint stórt og vill fá að uaupa bankann og ég get ósköp lítið gert en vildi samt gjarna finna lausn og Samband- ið. . . — Sambang, já takk, sagði kínverski koll- eginn með stöðugum tón á „já“ og fallandi á ,,takk“. Heimildarmaður minn um kínverska tungu vildi ekki þýða þetta, en sagði bara að kínverski kolleginn væri frá Sjanghæ. Viðræðurnar bak við tjöldin urðu ekki lengri. UNDIR SÖLINNI Eins og þeir segja í Sjanghæ... og flokkur auka hagvöxt, vernda kaupmátt, festa gengi, auka framleiðni, jafna lífskjörin, efla hag þeirra sem minna mega sín. . . — Ég skil, ég skil, ég skil þegar skellur í tönnum! Almáttugur, er svona komið hjá ykkur líka, sagði íslenski utanríkisviðskipta- ráðherrann og brosti samúðarfullu brosi til síns kínverska kollega. — Þannig verður hæstvirtur kollegi að skilja, að slikt boð verður að bera undir hæst- virtan flokk og stjórn í Miðríkinu. — Ég verð að undirstrika það hér og nú, að það er stefna hæstvirtrar. . . ég meina ríkis- stjórnarinnar að selja ríkisfyrirtæki. Þannig hyggjumst við auka hagvöxt, vernda kaup- mátt, festa gengi, auka framleiðni. . . já, þú kannt þetta auðvitað. Órætt brosið á kínverska kolleganum var orðið breiðara og stífara en nokkru sinni fyrr. Islenski utanríkisviðskiptaráðherrann var farinn að þjást af loftleysi líka, en vildi ekki stíga fram undan tjöldunum strax. Þetta Útvegsbankamál virðist ætla að verða eins og endalaus amerískur sjónvarps- þáttur. Það lengist og lengist og eftir því sem dregur úr áhuga þjóðarinnar reyna framleið- endurnir að flækja málið til þess að glæða áhugann að nýju. Spurningarnar hlaðast upp á hverjum degi. Koma fleiri tilboð? Koma hærri tilboð? Eru þau tilboð sem komin eru tilboð? Hafa kaupin nokkuð verið gerð? Er lærið selt? Getur tilboðunum fjölgað? Eru ekki allir ís- lendingar búnir að bjóða? Af hverju vilja menn kaupa gjaldþrota banka? Einni spurningu er ósvarað í þessu máli. Hún er sú hvað utanríkisviðskiptaráðherra Islands er að gera bak við tjöldin í þessu máli? Þeirri spurningu verður svarað hér! Allir sem fylgjast með fréttum vita að utan- ríkisviðskiptaráðherra Islands hefur átt langa fundi með sínum kínverska kollega síðustu daga. Opinberlega hefur það helst frést af þeim viðræðum að Kínverjar vildu fegnir kaupa af ísiendingum fiskimjöl, en benda hinsvegar réttilega á að það er ansi hreint langt frá íslandi til Kína. Þetta vilja menn halda fram að hafi verið megininntak viðræðnanna. Ég hef það hinsvegar eftir mjög áreiðan- legum heimildum, að menn hafi ekki ein- vörðungu rætt um fiskimjöl við hina austur- lensku gesti, heldur hafi utanríkisviðskipta- ráðherra íslands, í leynilegum viðræðum, bak við tjöldin, boðið sínum kínverska koll- ega Útvegsbankann til kaups. Einhverjum kann að þykja þessi saga ótrú- leg og spyrja hvernig hafa má fréttir af slík- um tilboðum, sem gerð eru bak við tjöldin. Hið sanna í málinu er að tjöldin sem þeir brugðu sér á bak við voru gluggatjöld og það sást til þeirra af götunni fyrir utan. Þar vildi svo heppilega til að stóð maður, sem getur lesið varamál bæði á kínversku og íslensku. Þetta kynni sumum að þykja ótrúleg tilvilj- un, en þannig er þetta nú samt og sannast enn hið fornkveðna að enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sínu, fyrr en allt of seint. Nú vilja lesendur auðvitað umfram allt fá að vita hver viðbrögð hins kínverska kollega íslenska utanríkisviðskiptaráðherrans voru við þessu óvænta tilboði. Hinn tvítyngdi, varamálalesandi vegfarandi segir að kínverski kolleginn hafi svarað með óræðu brosi og sagt: ,,Já takk!“ (Lesendum til viðvörunar má þó bæta því við, að brosið óræða kann að hafa stafað af óskilgreindum vöðvaherpingi, sem ekkert hafði að gera með geðhrif kínverska kolleg- ans vegna hins skyndilega tilboðs. Enn frem- ur ber að geta þess, að „Já takk!" þýðir ekki endilega það sama á íslensku og kínversku. Á kínversku skiptir ítónun miklu máli og segi maður t.d. „Já takk!“ með fallandi tón á fyrra atkvæði en rísandi á því síðara þýðir það „Nei, ómögulega!" á mandarínamállýsku. Sé það hinsvegar sagt með stöðugum tón á fyrra atkvæði og fallandi á því síðara þýðir það „Ætlar hann aldrei að stytta upp?“ Þenn- an merkingarmun vantar í Kantonmállýsku, þar sem ítónunarmynstur eru mun einfald- ari. Menn skyldu hins vegar varast að segja „Já takk!“ með stöðugum tón á fyrra at- kvæði og fallandi á því síðara, í Sjanghæ. Heimildarmaður minn um kínverskt mál og menningu kunni ekki við að útskýra fyrir mér af hverju slíkt væri bannað, en sagði aðeins: „Maður segir bara ekki svoleiðis!" Síðan bætti hann því þó við, að það væri alls óhætt að segja þetta hvar sem væri í Góbí- eyðimörkinni. En snúum okkur aftur að efn- inu.) Viðbrögð hins kínverska kollega íslenska utanríkisviðskiptaráðherrans, þegar sá síð- arnefndi (utanríkisviðskiptaráðherrann) bauð hinum fyrrnefnda (kolleganum) Út- vegsbankann (gjaldþrota) til kaups (gegn greiðslu), voru sem sagt óræð, eins og við- brögð austurlandabúa eiga að vera. — Mjög leitt, en það er háttvirt stefnumál hæstvirtrar ríkisstjórnar og flokks í Beijing að efla einkaframtak og draga úr ríkisaf- skiptum. Þannig hyggst hæstvirt ríkisstjórn AUGALEIÐ 2 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.