Helgarpósturinn - 03.09.1987, Blaðsíða 26
MAL OG MENNING
Málmhaugar
í sumar virðist hugur margra hafa beinzt
að nafni á skánskri borg, sem á sænsku nefn-
ist Malmö, en á íslenzku hefir ýmist verið
kölluð Málmey eða Málmhaugar. Einkum
hefi ég orðið þessa áhuga var í lesendabréf-
um til Velvakanda Morgunblaðsins, sbr. Mbl.
15. og 21. ágúst 1987. Slíkur áhugi á örnefn-
um er virðingarverður. Ég hafði ekki hugsað
mér að leggja orð í belg um þetta mál. En
þegar gamall og góður nemandi minn, Þór-
hallur Guttormsson cand. mag., hvatti mig til
að fjalla um þetta efni í HP-þáttum mínum,
hlaut ég að verða við beiðni hans.
Örnefnafræði er mjög erfið fræðigrein,
enda eru oft til litlar sem engar heimildir um
örnefni á eldra málstigi. Við Islendingar er-
um að vísu til þess að gera vel settir að þessu
leyti, en aðrir Norðurlandabúar sýnu verr. Ef
skýra á uppruna örnefna, er frumatriði að
rannsaka sögu þeirra. En svo vel vill til, að
saga orðsins Malmö, svo og upprunaleg
merking þess, liggja ljós fyrir.
Samkvæmt þeim heimildum, sem ég hefi
tiltækar, kemur sænska orðmyndin Malmö
fyrst fyrir 1367. Hins vegar eru eldri dæmi
um orðmyndina Malmöughe. Fyrri hluti
þessa síðar greinda orðs er hinn sami og ís-
lenzka orðið málmur, þó í annarri merkingu
en tíðkast í íslenzku, eins og síðar verður
nánara rætt. Síðari hlutinn (-öughe) samsvar-
ar fleirtölu íslenzka orðsins haugur, sem á
fornsænsku var höger. I staðarnafninu hefir
h-ið fallið brott á sama hátt og þegar sagt er
Moldaugnaháls í stað Moldhaugaháls. Orð-
myndina Moldaugnaháls heyrði ég oft, þeg-
ar ég bjó á Akureyri.
En það er við fleira að styðjast en þessa
fornsænsku orðmynd, þegar uppruni orðs-
ins Malmö er skýrður. Það þarf ekki annað
en fletta upp i annarri helztu orðabók yfir ís-
lenzkt fornmál — orðabók Guðbrands Vig-
fússonar — undir málmur, til að sjá, að í forn-
um íslenzkum ritum var staðurinn kallaður -
Málmhaugar, sbr. An Icelandic-English Dic-
tionary. . . by Gudbrand Vigfusson, M.A. . . .
Oxford 1874. Enginn fræðimaður dregur
mér vitanlega í efa, að íslenzkan geymi upp-
runalega mynd orðsins, enda í samræmi við
elztu kunnu sænsku mynd örnefnisins. Sá er
galli á, að Guðbrandur greinir enga tilvitnun
í fornrit um örnefnið Málmhaugar. En
vandalítið er að sjá, að hann fer ekki með
neitt fleipur. Skal hér tekið eitt dæmi um ör-
nefnið úr Sögu Hákonar konungs gamla eft-
ir Sturlu Þórðarson. Sagan er samin á árun-
um 1264-1265. Svo segir í henni: „Hann [þ.e.
Hákon konungur] lét taka kugg einn í Eyrar-
sundi yfir vid Málmhauga, er átti herra Jón,
bródir Jakobs erkibiskups í Lundi. (Hér er
farið eftir Flateyjarbók III, útgáfu frá 1945,
bls. 565.)
Ég þykist nú hafa fært fullgild rök fyrir því,
að sá staður, sem Svíar kalla nú Malmö, hét
á fornri íslenzku Málmhaugar og samsvar-
andi nafni í Svíþjóð. En hvað merkir þá nafn-
ið? Fyrri hlutinn er málmur. En við megum
ekki falla í þá gryfju, að það orð hafi alltaf og
alls staðar haft þá merkingu, sem það hefur
í íslenzku. Nauðsynlegt er að huga að merk-
ingu samsvarandi orðs í öðrum germönsk-
um málum og ekki sízt í sænsku og sænskum
mállýzkum. Orðið málmur er samgerm-
anskt orð og hefir í sumum málum aðrar
merkingar en þá, sem tíðust er í íslenzku
(„metal"). Þannig er til í gotnesku malma í
merkingunni „sandur" og í fornensku sam-
settu orðin mealmstán „auðmulinn steinn“
og mealmiht „sendinn". Orðið er Ieitt af rót-
inni í mala og merkir upprunalega „e-ð sem
hefir verið kramið eða mulið sundur“. I
sænskum mállýzkum kemur malm fyrir í
merkingunni „sendin hæð“, „sendið skógar-
svæði" (sandig höjd, sandig skogstrakt). Þá
má ekki gleyma því, að orðið kemur fyrir í
fleiri örnefnum en Malmö. Þannig eru í
Stokkhólmi hverfi, sem heita Norrmalm og -
Södermalm. Og ekki má gleyma Östermalm
úr hinu ljúfa kvæði eftir Evert Taube um
stúlkuna í Perú: sitter jag hár upp í Nordens
land och vármer mina ben/framför brasan
i mitt rum pá Östermalm.
Með stoð í framan greindum rökum tel ég
mig geta fullyrt, að orðið Málmhaugar
merkir í rauninni Sandhœdir, Sandhaugar.
Og ég er ekki einn um þessa skoðun. Fremsti
orðsifjafræðingur Svía á þessari öld, Elof
Hellquist, sem var prófessor í Lundi í ná-
grenni Málmhauga, segir orðið merkja „mal-
ar- eða sandhæðir" (grus- el. sandhögarna) í
hinu mikla verki sínu Svensk etymologisk
ordbok.
Ég hef ekki fundið dæmi þess, að málmur
geti merkt „sandur" í íslenzku, og að því er
ég bezt veit, er orðið fátítt í íslenzkum ör-
nefnum. Því má þó ekki gleyma, að norður
á Skagafirði er Málmey. Sennilega er þetta
örnefni frá landnámsöld, þó að ég geti ekki
sannað það. Hitt get ég fullyrt, að nafnið
kemur nokkrum sinnum fyrir í Sturlungu. Ég
hefi ekki komið út í Málmey, en hefi af því
óbeinar fréttir, að mold sé þar sandborin og
sandstein sé þar að finna. Auðvitað get ég
ekki fullyrt, að Málmey merki Sandey. En at-
huga ber, að íslenzki örnefnaforðinn er einn
þáttur hins norræna. Þess vegna er óvarlegt
að skýra íslenzk örnefni forn án hliðsjónar af
norrænum nafnaforða á landnámsöld. Skipt-
ir merkingin þá ekki alltaf máli.
Það, sem ég nú hefi sagt, varðar nafnfræði.
Hitt er undir málstefnu okkar komið, hvaða
nafn við viljum nota nú um hina sænsku
borg. í stuttu máli er málstefna mín fólgin í
hóflegri fastheldni á fornar málvenjur, jafn-
framt þróttmikilli nýsköpun í máli. I sam-
ræmi við fastheldni mína tel ég affarasælast
að nota nafnið Málmhaugar í íslenzku, en
láta Málmey (sem nafn á borginni) og Malmö
lönd og leið.
Ég sé í hinu ágæta húsblaði Ríkisútvarps-
ins, Tungutaki, nr. 5, nóvember 1984, að
Árni Böðvarsson hefir sömu afstöðu og ég til
notkunar íslenzkra nafna á erlendum stöð-
um.
HVAÐ ÆTLAR »0 AÐ GERA UM HELGINA?
TÓMAS JÓNSSON
RITSTJÓRI
„Á fimmtudagskvöldid, sem er eiginlega
ekki helgi, er ég ad hugsa um að fara í Holly-
wood þar sem Sykurmolarnir spila ásamt
fleiri góðum. Föstudagurinn fer náttúrlega í
það að klára vinnuvikuna, slappa af heima
og svo þykir mér ólíklegt að ég sleppi eftir-
lœtisþœttinum í sjónvarpinu, „Moonlightn-
ing“, sem þeir eru að sýna á Stöð tvö. haugar-
dagsmorgnarnir eru friðhelgar stundir meö
fjölskyldunni, en þá um eftirmiddaginn þykir
mér sennilegt að ég aðgœti hvað kemur und-
an kartöflugrösunum í garðinum. Á sunnu-
daginn er ég svo að vonast til að keyra norð-
ur til Akureyrar í svona tveggja—þriggja
daga frí. Ég hefsatt aö segja ekkert komist út
ár bœnum í sumar."
STJÖRNUSPÁ
Helgin 4.—6. september
Gættu þess að gera ekki mistök á föstudaginn og
mundu eftir skyldum þínum. Þér hættiroft til aðgera
of miklar kröfur til annarra. Samstarfsmenn þínir eru
ekki sammála þér um einhver málefni og þú verður
að stilla skap þitt af þeím sökum. Þú kynnist aðila á
laugardaginn sem getur haft mikil áhrif á líf þitt svo
fremi sem þú ferð eftir þeim ráðleggingum sem
hann gefur þér.
nmsmm
Þú ættir að reyna að hvílast um helgina og jafna
þig. Ekki veitir af að endurnýja kraftana því álagið
sem þú ert undir tekur ekki enda alveg á næstunni.
Vinir þinir eru boðnir og búnir að aðstoða þig og bíða
bara eftir óskum frá þér. Margt í fari þínu á eftir að
koma fólki á óvart, einkum við úrlausn mála sem
þurfa sérstaka meðhöndlun.
TVÍBURARNIR (22/5—21/6]
Forvitni þín er vakin á einhverju málefni sem varð-
ar starf þitt. Gefðu ekki færi á þér, flestir bíða þess að
þú spyrjir nánar út í tiltekin atriði. Gerðu þeim það
ekki til geðs. Þrátt fyrir tilfinningalega erfiðleika um
stundarsakir virðistu vera vel búinn undir að taka
breytingum sem verða á lífi þínu. Þær verða þér til
góðs svo þú skalt fara eftir þvi sem hugur þinn segir
þér.
Þér getur reynst erfitt að fá þínu framgengt. Það er
oft betra að vera samvinnuþýður, þinn timi kemur
áður en varir. Einhver svíkur loforð sitt við þig og
veldur það þér þó nokkru hugarangri. Þú ættir að ein-
heita þér að því að bæta heilsuna. Málefni sem þú
getur engin áhrif haft á eiga ef tir að snúast þér í hag.
Hafðu samband við vin sem býr fjarri þér.
Hugmyndir þínar mæta óvenju mikilli andspyrnu
hjá ástvinum og fjölskyldu. Hlustaðu á röksemda-
færslu þeirra. Nú er sá tími í lífi þinu þegar þér hentar
ekki að taka áhættu i neinum málum. Þú ert við-
kvæmur um þessar mundir og átt erfitt með að taka
gagnrýni. Bjartsýnin sem fram til þessa hefur ein-
kennt skapferli þitt brýst fram að nýju.
rmiMi
Nú reynir á þolinmæðina. Útskýrðu fyrir þinum
nánustu hvers vegna þér finnst orðið tímabært að
brydda upp á nýjungum. Þeir lesa ekki hugsanir þín-
ar og þú getur ekki húist við stuðningi nema fólk viti
hvað er að gerast. Gerðu þér Ijóst að þú breytir ekki
fjárhagsstöðu þinni á einum degi. Treystu ekki um of
á að fólk láti verða af framkvæmdum sem ættu að
vera þér í hag.
Ættingjar þínir hafa niðurdrepandi áhrif á þig.
Reyndu að halda góða skapinu í lagi og mundu að
það eiga allir sína erfiðu tíma. Sjálfur muntu finna
fyrir smáskapbrestum þessa dagana og gætir mjög
líklega lent í rifrildi við einhvern þér nákominn.
Rómantikin tekur á sig óvænta mynd um helgina og
hlutir gerast sem þú hafðir aldrei átt von á.
SPORÐDREKINN (23/10-22/11
Heilsan verður með lélegra móti enda hefurðu
ekki farið nógu varlega með þig. Þér semur illa við
fólk á vinnustað og verður að f orðast dómhörku. Vin-
ir í fjárhagsvanda leita til þín eftir aðstoð. Á laugar-
daginn verða tímamót í lífi þínu sem verða til þess að
meira öryggi færist yfir lif þitt og fjölskyldunnar. Þú
lætur verða af þvi að gera breytingar sem þig hefur
lengi langað að koma í framkvæmd.
BOGMAÐURINN (23/11-21/12]
Þér verður Ijóst að peningar færa fólki ekki ham-
ingju og unir glaður við þitt. Mál sem hafa verið þér
erfið viðureignar fá farsæla lausn. Þú verður að vera
hreinskilinn við sjálfan þig varðandi hvaða breyting-
ar þú í rauninni vilt á líf i þinu. Það getur enginn annar
tekið ákvörðun fyrir þig. Þér hættir til að vera svolítið
uppstökkur við þá sem þér eru kærastir. Hafðu hóf
á skapsmununum.
STEINGEITIN (22/12-21/V
Einhver óróleiki er í loftinu og þú getur neyðst til
að láta af áformum þínum. Nú þýðir ekki að nota
léttu lundina, hún hefur ekkert að segja í því and-
rúmslofti sem umkringir þig. Sýndu fram á að þú
getur líka verið harður í horn að taka þegar á þarf að
halda. Vertu umfram allt heiðarlegur, bæði gagnvart
sjálfum þér og öðrum. Geymdu vel þær góðu hug-
myndir sem þú færð um helgina.
VATNSBERINN (22/1-19/2
Þú verður heldur betur var við að mörgum þykir
þú ómissandi. Þetta á einkum við ef þú hefur verið
fjarverandi lengi. Samt geturðu ekki forðast eitthvert
álag tilfinningalega og þú virðist ekki hafa stjórn á
ákveðnum hlutum. Þú verður að sýna ákveðni og
láta fólk ekki troða á þér, en forðastu að verða
ókurteis. Gagnrýni sem þú færð á þig reynist ekki á
rökum reist.
FISKARNIR (20/2—20/3
Vinnufélagi þinn tekur upp á að móðga þig allveru-
lega og sýnir hroka. Láttu engan hindra þig í að gera
það sem hugur þinn stefnir til, jafnvel þótt það kosti
smáleiðindi. Vandamál varðandi peninga koma upp
en þú leiðir slíkt hjá þér, enda gerist svo margt já-
kvætt um helgina sem bætir upp leiðindin. Reyndu
samt að komast að því hvað hrjáir vin þinn.
26 HELGARPÓSTURINN