Helgarpósturinn - 03.09.1987, Blaðsíða 20

Helgarpósturinn - 03.09.1987, Blaðsíða 20
FRÁ AMERÍKU TIL ÍSLANDS AÐ VIRÐA ÁHORFANDAN EFTIR ÞÓRMUND BERGSSON Wally og Igor sjá um að allir fái nóg af bjór og hnetum í The Metrodome í Minnea- polis í Minnesota. FRÁ AMERÍKU TIL ÍSLANDS: AÐ VIRÐA ÁHORFANDANN Svo „skemmtilegt" atvik gerðist í öðrum undanúrslitaleiknum í knatt- spyrnu á PanAm-leikunum sem haldnir voru í Indianapolis í Banda- ríkjunum í ágúst að bandarískar sjónvarpsstöðvar sáu ástæðu til að greina frá þessum Ieik og úrslitum hans. Knattspyrna er annars ekki hátt skrifuð hjá Kananum og þegar hornaboltatímabilið (baseball) stóð sem hæst í ágúst þótti það allt að því undravert að greint skyldi frá knatt- spyrnuleik — sérstaklega þar sem PanAm-leikarnir voru lítið í sviðs- ijósinu fyrir utan pólitískar erjur. Að yfirlögðu ráði var ég staddur í Indianapolis um þetta leyti og sá þvi atvikið „skemmtilega" oftar enn einu sinni í imbakassa þeirra Banda- ríkjamanna — sýnu oftast þó á ESPN sem er sjónvarpsrás er sendir út iþróttir allan sólahringinn. Rétt er nú að rifja upp atvikið. Brasilíumenn og Mexíkanar áttust við og staðan var 1-0 fyrir Brassa er um þrjár mínútur voru eftir af leikn- um. Mexíkanar sóttu nokkuð þétt á þessum tíma og í einni sóknarlot- unni vatt sér einn inn í vítateig Brassanna. Þar var brotið á honum svo víti virtist ekki umflúið. Dómar- inn var hinsvegar ekki í góðri að- stöðu og flautaði því ekkert. Brass- inn tók boltann og óð af stað upp kantinn. Þegar hann var um miðjan sinn vallarhelming með um hálft mexíkanska liðið á eftir sér brá einn vatnsberi Mexíkananna sér af varamannabekknum og inn á völl- inn, elti uppi Brassann og sparkaði undan honum fæturna aftan frá svo menn bjuggust við að Brassinn væri limlestur (svo var þó ekki). Dómara leiksins þótti þetta athæfi ekkert sniðugt og hugðist vísa þessum aukamanni af velli. Mexíkanarnir voru hinsvegar svo æstir að eftir að hafa veitt fimm þeirra rauða spjald- ið flautaði dómarinn leikinn af og Brassar unnu 1-0. Þeir spiluðu síðan gegn Chile í úrslitunum og unnu þann leik einnig. Það sem Bandaríkjamönnum þótti hvað sniðugast í þessu öllu saman var skaphiti og ofsafengni S-Ameríkubúanna. Vitnuðu þeir hjá ESPN m.a. í frammistöðu Uruguay- manna á HM í Mexíkó og áttu bágt með að trúa að slíkt gæti gerst í íþróttum. Þeir gleyma hinsvegar að líta sér nær og skoða t.d. McEnroe slá niður djúsglös og fatnað á stór- móti eftir að dómarinn hafði dæmt honum í óhag. Það er þó léttara að bæta eitt djúsglas en heilan leik- mann og það veit Kaninn, Hjá Bandaríkjamönnum hefur annað vakið athygli í sambandi við knattspyrnuna en ólæti leikmanna og varamanna (og vatnsbera) en það eru ólæti áhorfenda. Þó óiæti áhorfenda fyrirfinnist í Bandaríkj- 20 HELGARPÓSTURINN unum eru þau ekki í neinum mæli miðað við skipulögð ólæti t.d. enskra áhorfenda. Kemur hér margt til, en sennilega hefur aðstaðan hjá Könunum mikið að segja. Stæði eru nánast óþekkt fyrirbæri á öllum stærri íþróttaleikvöngum og reynd- ar á flestum minni völlum einnig. Þá býr Kaninn það vel að í þeim fylkj- um er norðarlega liggja eru gjarnan byggðir vellir með ÞAKI. Þessar hallir, sem bera nafn með rentu, taka gjarnan um 65—85 þúsund áhorfendur og alla í sæti. Þá er það einföld staðreynd að þáttur áhorf- enda í íþróttum er mikill og þeir metnir að verðleikum enda væri ekkert sport án áhorfenda. Þess vegna fær áhorfandinn sitt sæti og honum er þjónað stanslaust allan leiktímann. Eg átti til að mynda í hálfgerðum vandræðum með að neita mér um bjór, pylsur, popp- korn, nachos með heitum osti og hnetur þegar ég sat á meðal 33 þús- und áhorfenda á Wrigley Field í Chicago og fylgdist með „mínum mönnum", Chicago Cubs, vinna Houston Astros í æsispennandi hornaboltaleik. Það skal síðan ekki dregið úr því að á leiknum voru nær engir fylgismenn Astros enda langt að fara og leikurinn sýndur í sjón- varpi í Houston. Þessi aðstaða skap- ar ákveðna samstöðu á meðal áhorfenda sem m.a. kemur fram í þeirri athöfn er fylgir hálfleik í sjö- undu lotu. Þá standa allir áhorfend- ur upp og teygja úr sér og syngja baráttulag Clubs undir stjórn Harrys Carey, sem er sjónvarpsþulur á leikj- um Cubs en er jafnframt þekktur sem „The Bud Man“. Framleiðendur Budweiser-bjórs eru miklir styrktar- aðilar Cubs og Carey auglýsir „Buddinn" sinn jafnt á leikjum sem í sjónvarpi. Já, það er annað að sitja í sínu sæti með Bud og hnetur en að kúldrast í kulda og trekki í stæði á knatt- spyrnuleik í Newcastle og þurfa að gæta þess að hafa hendur í vasa til að „Húlíganarnir" rúlli ekki upp leik- skránni og pissi í vasann þinn. Því miður eru áhorfendur ekki metnir að verðleikum á knattspyrnuvöllun- um í landi Járnfrúarinnar. Þeim er hrúgað á bak við gaddavírsgrind- verk í eina kös sem hvorki gefur þér færi á að komast á salerni né í sjopp- una. Knattspyrnufélögin virðast hvorki hafa peninga né áhuga á að gera betur við sína stuðningsmenn, enda hefur áhorfendum fækkað gíf- urlega í Englandi á síðasta áratug. Sömu sögu er að segja víðar í Evr- ópu. Reyndar er vandamál í sam- bandi við áhorfendur t.d. í Englandi mun djúpstæðara en svo að bætt að- staða bjargaði málunum, en vissu- lega myndi góð aðstaða hjálpa. Sé litið á aðstöðu fyrir áhorfendur á leikvöllum hér á landi þá er ekki rétt að bera hana saman við millj- ónaborgir í Bandaríkjunum og Evr- ópu. Hinsvegar hefur aðstaða smám saman verið að skapast á völlum víða um land. Stórkostlegust virðist hún ætla að verða í Krikanum í Hafnarfirði en þar vantar helst áhorfendur. Víðar á landsbyggðinni er þessum málum þó verulega ábótavant og nefni ég sem dæmi Siglufjörð og Vopnafjörð þar sem áhorfendur eru varla steinsnar frá vellinum og eiga auðvelt með að hafa áhrif á leikinn. Ein stétt manna hefur þó rétt til að kvarta meira en aðrir en það eru íþróttafréttamenn sem fá víðast hvar enga aðstöðu og eru vellirnir í Laugarda! til hreinnar skammar hvað þetta varðar. í framhaldi af aðstöðu íþrótta- fréttamanna á knattspyrnuvöllum verð ég að benda á að HSÍ hefur viðrað þá hugmynd að halda bæri HM í handknattleik hér á landi. Nánast ekkert iþróttahús á landinu myndi fá grænt ljós frá Alþjóða- samtökum íþróttafréttamanna (AIPS) varðandi aðstöðu fyrir frétta- menn nema til kæmu ótrúlegar breytingar. Því miður er skilningur margra forráðamanna og áhang- enda íþróttafélaganna á gildi íþróttamennsku enginn og því er um litlar úrbætur að ræða fyrir þessa stétt vinnandi manna. KNATTSPYRNUVERTÍÐIN AÐ LOKUM KOMIN UM LÍF OG DAUÐA í DEILDUNUM — Valur vinnur þá fyrstu en í annarri er allt í hnút Senn fer að hausta allóþyrmilega og þá fara knattspyrnumenn að huga að hvíld eftir erfiði sumarsins. Einhverjir hafa frestað sumarfríi sínu þar til knattspyrnuvertíðinni er lokið en enn aðrir snúa sér að öðr- um íþróttum eða hvíla sig hreinlega í sófanum heima hjá sér. Þegar tvær umferðir eru eftir í 1. og 2. deild sér enn ekki fyrir endann á neinu. Það eina sem er öruggt í þessum deild- um er að ísfirðingar eru fallnir í 3. deild en fyrir fjórum árum voru þeir í þeirri fyrstu — en þannig er knatt- spyrnan, ekkert er öruggt. 1.DEILD— EINSOG SPÁÐ VAR! Það lítur út fyrir að knattspyrnu- snillingar, forráðamenn, þjálfarar og íþróttafréttamenn ætli að hafa rétt fyrir sér eins og svo oft áður varðandi meistaratitilinn i knatt- spyrnunni. Nánast ekkert getur komið í veg fyrir að Valsmenn sigri í deildinni. Þeir eiga eftir að fást við Völsunga frá Húsavík á heimavelli eftir að hafa kljáðst við KR-inga í Vesturbænum en þó bæði þessi lið geti tekið á móti Valsmönnum á ég ekki von á öðru en að þeir innbyrði titilinn í öðrum hvorum leiknum. Skagamenn hreppa annað sætið með sigri í báðum þeim leikjum sem þeir eiga eftir, þ.e. gegn Víði og KA. Það hefur gjarnan gætt nokkurs misskilnings hjá forráðamönnum vissra félaga er þeir byrja á afsökun- argreinum sínum í upphafi keppnis- tímabils sumar hvert. Skagamenn kvörtuðu sáran yfir því að hafa misst „alla sína menn" og annað „úthjaratröll", Eyjamenn, skrifaði góða grein í Moggann sem fullyrti að allir leikmenn liðsins væru meiddir og ekki við miklu að búast. Báðum þessum liðum hefur gengið furðanlega miðað við „aðstæður" og sennilega hefur það mest að segja að bæði þessi lið eru skipuð mörgum „gömlum" harðjöxlum með gifurlega reynslu. Þar sannast einnig hið fornkveðna að „maður kemur í manns stað". Það er einnig gaman að rifja það upp að mörgum Gaflaranum þótti sem hið „unga" lið FH þyrfti ein- göngu á hörðum og baráttumiklum þjálfara að halda til að lifa góðu lífi í 1. deildinni. í því skyni (þar sem Hólmbert var ekki á lausu) var ráð- inn skoskur harðjaxl. Hann reyndist síðan vera gæðamenni og því hálf- svikinn enda árangur FH-inga sá að liðið sér nú um tvo þriðju af 2. deild- inni blasa við. Það verður þó að segja FH-ingum ,til hróss að lið þeirra hefur ekki spilað verri knatt- spyrnu en hvert annað lið í deild- inni. Hinsvegar skortir liðið alveg „karakter" og hefur verið óheppið með afbrigðum. Reyndar sagði mér einu sinni gamansamur en góður þjálfari hér á Fróni að það væri ekkert til í knatt-1 spyrnunni sem héti heppni eða óheppni. Það væri til einbeiting og einbeitingarleysi sem gjarnan væri fóðrað undir dulnefnunum heppni og óheppni. Knattspyrnuleikur stendur yfir í 90 mínútur og á þeim tíma reyna liðin að koma knettinum í netið hvort hjá öðru. Hvort það er gert á fyrstu eða áttugustuogníundu mínútu skiptir engu máli. Þegar upp er staðið eftir heillt keppnistímabi! er það gjarnan besta liðið sem er í efsta sæti en þau er lakari eru í því neðsta. Þetta er staðan í dag eins og ávallt. Þetta um góðu liðin og þau lakari sannaðist illilega í úrslitaleik bikar- keppninnar um daginn. Fram tók piltana úr Garðinum í kennslustund og reif úr þeim hjartað, sem ég hafði spáð að myndi skipta meginmáli í leiknum, strax á fyrstu 20 mínútun- um með þremur mörkum. Eftir það var leikurinn leikur kattarins að músinni. Niðurstaðan: FH og Víðir leika í 2. deild að ári. 2. DEILD — LÍF OG DAUÐI Þó keppnin í 1. deild hafi verið spennandi í sumar og lengi vel ekki víst um sigurvegara eða botnlið þá er keppnin í 2. deiid helmingi meira spennandi. ísfirðingar eru fallnir en það er það eina sem er vist fyrir tvær síðustu umferðirnar. Fimm lið berast á banaspjót um sætin tvö í 1. deild og þó Víkingar standi óneitan- lega vel að vígi eiga þeir erfiðar rimmur við Eyjamenn og Seifyss- inga fyrir höndum. Selfyssingar, sem virtust vera búnir að missa af lestinni eftir tap fyrir KS á heima- velli í 15 umferð, hafa allt í hendi sér þar sem þeir eiga eftir að mæta Þrótturum og Víkingum. Leiftur, sem sumir kölluðu ,',spútniklið“ deildarinnar en þeir skynsömu kalla „malarlið" deildarinnar, stend- ur mjög vel að vígi enda ætti liðið að fá gefins þrjú stig um næstu helgi er Einherjar koma á mölina á Ólafs- firði. Síðasta viðureign þeirra er síð- an við Þróttara í höfuðborginni. Ein- herjar komu á óvart um síðustu helgi er liðið steinlá á grasblettinum á Vopnafirði fyrir Selfyssingum. Hafa menn haft á orði á þeim bæ að það sé skynsamlegra að vera í þriðju deild en annarri þar sem ferðakostnaður þeirra Vopnfirðinga er slikur að mörg sterk 1. deildarlið myndu ekki vilja vera í þeirra spor- um. Liðið er þó ekki alveg búið að vera og sigur í öðrum leiknum sem þeir eiga eftir gæti tryggt þeim áframhald í „dýru deildinni". Fyrir tvær síðustu umferðirnar er staða efstu liða í 2. deild sú að Vík- ingar eru með 29 stig og 7 mörk í plús. Þróttarar hafa 28 og 7 í plús, Leiftur 26 og 7 í plús, Selfyssingar 26 og 6 í plús en Blikar hafa 25 og 8 í plús. Hinsvegar er líkiegt að lið falli í 3. deild á um 20 stigum og er það algjört einsdæmi að því er ég best veit. V

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.