Helgarpósturinn - 03.09.1987, Side 13
jlP^^^iklar mannabreytingar
standa nú fyrir dyrum hjá frétta-
stofu Sjónvarps eins og aðeins hef-
ur verið minnst á í þessum dálkum.
Sigrún Stefánsdóttir hefur sagt
upp fastri stöðu sinni sem hún hefur
haldið á námsárum sínum vestur í
Bandaríkjunum. Sigrún hyggur á
enn frekara nám, rétt eins og Olína
Þorvarðardóttir sem mun að lík-
indum halda til náms við Blaða-
mannaháskólann í Osló eftir ára-
mót. Þá er Arnþrúður Karlsdóttir
á sömu leið á næstu vikum. Erlenda
fréttadeildin verður og fyrir mikilli
blóðtöku á næstunni þegar Albert
Jónsson fer til starfa hjá öryggis-
málanefnd og tekur þar við starfi
Gunnars Gunnarssonar, Sturla
Sigurjónsson fer til starfa í utanrík-
isráðuneytinu og Valur Ingimund-
arson í nám. Nokkrir svokallaðra
pródúsenta á fréttastofunni eru
einnig á förum. Guðbergur
Davíðsson og Gunnlaugur Páls-
son hyggjast helga sig eigin fyrir-
tæki, Myndbandagerð Reykja-
víkur, og Anna Hinriksdóttir
(Bjarnasonar) mun ætla í nám
bráðlega. Samkvæmt heimildum
HP er óvíst hvort bætt verður við
fólki á fréttastofuna í sama mæli og
nú er að hverfa þaðan á braut, en
niðurstöðu nefndar um hugsanleg-
an niðurskurð á þjónustu fréttastof-
unnar við landsmenn er að vænta í
þessari viku. . .
v
Wf eitingahusið Naust fer í
hendur nýrra stjórnenda um næstu
mánaðamót. Þá taka við rekstrinum
vel þekktir einstaklingar úr veit-
ingahúsabransanum. Það eru hjón-
in Kristjana Geirsdóttir og
Sveinn Hjðrleifsson sem hafa í
mörg ár starfað á veitingastöðunum
Broadway og Hollywood. Krist-
jana er mörgum kunn fyrir fram-
kvæmdastörf við Fegurðarsam-
keppni Islands jafnframt því sem
hún gegndi stöðu veitingastjóra í
Broadway. Aðrir stjórnendur
Naustsins verða Sturla Pétursson
framreiðslumaður, sem starfaði
lengst af í gamla góða Klúbbnum
en var síðast í Þórscafé, og kona
hans, Rósa Þorvaldsdóttir, en þau
hjónin opnuðu fyrir þremur vikum
snyrtivöruverslunina Serínu í
Kringlunni. Nýju stjórnendurnir
hyggjast halda hinni gömlu ímynd
Naustsins og endurvekja Geirs-
búð. Þar verður lifandi tónlist og
hægt að fá létta rétti. Um þessar
mundir standa svo yfir lagfæringar
á húsinu að innan sem utan. . .
HANDMENNTASKÓLI ÍSLANDS
STmi 27644 box 1464 121 Reykjavík
Handmenntaskóli fslands er sex ara gömul stofnun,
sem yfir 1250 íslendingar alls staðar ó landinu og
einnig erlendis,hafa stundað nam við. Skolinn
býður uppó kennslu \ teikningu,skrautskrift og barn-
ateikningu \ BRÉFASKÓLAFORMI. Þu fœrð send
verkefni fró okkur og lausnir þinar verða leiðrettar
og sencbr til baka. Innritun \ skólann fer fram fyrstu
tvœr vikur hvers mónaðar,- Biðjið um kvnningarrit
skólans með þvf að senda nafn og heimilisfang til
okkar eða hringið \ 27644 milli kl 17 og 19 (Ath„
breyttur srmatfmi). Þetta er tœkifœrið fyrir þig að
reyna þig við ofannefndar jgreinar^ i ro og nœði
heima hjó þér,hvar sem þu byrð ó landinu. Þu
getur þetta iTka^einaskiiyrðið er óhugi þinn.
I ÉG ÓSKA EFTIR AD FA SENT KYNNINGARRIT
I HMÍ MÉR AD KOSTNAÐARLAUSU
NAFN.
I
I
^HEIMILISF.
Einkareikningur Landsbankans
er tékkareikningur með háum
vöxtum, sem gefur kost á heimild
til yfirdráttar og láni, auk margvís-
legrar greiðsluþjónustu.
Einkareikningur er framtíöarreikningur.
Einkareikningur er nýr reikningur sem kemur til móts við
þær kröfur sem viðskiptahættir nútímans gera um arðsemi
og sveigjanleika.
Vextir eru reiknaðir daglega og eru miklu hærri en áður
hafa þekkst, sem þannig sparar þér snúninga við að færa á
milli tékkareikninga og sparisjóðsbóka til að fá hærri vexti.
Þeir fara ekki stighækkandi eftir upphæðum heldur eru
jafnháir af öllum innstæðum.
Þú getur sótt um allt að 30.000 króna yfirdráttarheimild til
að mæta tímabundinni aukafjárþörf og möguleiki er á allt að
150.000 króna láni til allt að tveggja ára í tengslum við
Einkareikninginn.
Reikningnum fylgir bankakort sem hægt er að nota í
tvennum tilgangi, sem ábyrgðarkort (tékkaviðskiptum og
sem aðgangskort að hraöbönkum. Bankakortið gerir 16-17
ára unglingum kleift að stofna Einkareikning. Þeir nota
bankakortið í stað tékkheftis þar til þeir hafa náð aldri til að
mega nota tékkhefti.
Einkareikningur er þess virði að kynna sér hann betur.
Snúðu þér til næsta afgreiðslustaðar Landsbankans og fáðu
nánari upplýsingar.
Einkareikningur er framtíðarreikningur.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
HELGARPÓSTURiNN 13