Helgarpósturinn - 03.09.1987, Qupperneq 15

Helgarpósturinn - 03.09.1987, Qupperneq 15
ÓVENJULEGAR MÓTTÖKUR í HONGKONG Sjálf hafa Kid og Guðrún lent í því aö verða tekin fyrir allt annað fólk: ,,Já það var alvegstór- skemmtilegt," segir Guðrún. „Við komum til Hong Kong og höfðum pantað okkur tveggja manna herbergi. Okkur var vísað á þessa líka glæsilegu svítu með setustofu, stóru hjónaher- bergi og því alstærsta baðherbergi sem ég hef nokkurn tíma séð. Baðkarið var eins og sund- laug að stærð og með nuddtækjum. Þau voru svo öflug að við settum einu sinni freyðisápu í vatnið og vissum ekki fyrr en baðherbergið var allt löðrandi í sápu — upp um alla veggi! A her- berginu beið okkar kampavín, blóm og ávaxta- karfa frá hótelstjóranum. Daginn eftir fórum við ásamt öðrum ferðamönnum í bátsferð sem hafði verið pöntuð fyrir okkur frá Englandi. Þeg- ar við komum í matsal skipsins var okkur tveim- ur vísað alveg sérstaklega á skreytt borð. Við skildum ekkert í þessum almennilegheitum og fannst reyndar svolítið ótrúlegt að BBC væri svona vel kynnt t Hong Kong. Það kom í ljós við brottför að hótelstjórinn hélt að Kid væri leikar- inn David Jansen sem var þekktur fyrir leik sinn m.a. í ,,Á flótta", sem var sýndur á Islandi stuttu eftir að sjónvarpið byrjaði. Það besta af öllu var þó það að David Jansen leikari hafði dáið þrem- ur árum áður en við komum til Hong Kong!!“ — Þú sagöir áðan aö börnin heföu veriö meö ykkur á eyju í Karabíska hafinu. Feröast þau mikiö meö ykkur? ,,Já, við tökum þau með okkur í flestallar ferð- ir sem við förum. Þau hafa gaman af að ferðast og sjá heiminn. Einu sinni á ári förum við þó tvö ein í frí. Það er svona til að halda rómantíkinni við...“ — Hvernig er þaö annars með þig. Gerirðu ekkert?! „Geri? Ég get sagt þér í fullri hreinskilni að ég hef alveg meira en nóg að gera þakka þér fyrir. Ég hef alltaf verið sjálfri mér nóg og aldrei þekkt þá tilfinningu að leiðast nokkurs staðar, nokk- urn tíma. Þegar krakkarnir eru í skólanum á vet- urna hef ég drifið mig sjálf í nám, lært allt frá blómaskreytingum upp í listasögu. Ég hef mjög gaman af að fara í leikhús, sjá listsýningar og heimsækja söfn. Það nægir mér ekki að horfa á listaverkin, ég verð að vita allt um listamanninn og eyði gífurlegum tíma í að kynna mér hvað ég er að fara að skoða. Það bjargar mér kannski að ég er svo mikið borgarbarn í mér að það á vel við mig að búa í nágrenni stórborgar." — Aldrei heimþrá? „Aldrei. Fyrir mér er England yheima“. Ég held það sé ekki gott að kalla Island alltaf „heima“. í Englandi er húsið okkar, heimilið okkar og þar eigum við heima. Hins vegar er ég alltaf íslendingur í mér og verð það alltaf. Ég get til dæmis ekki hugsað mér sjálfa mig tala með erlendum hreim. Aður en börnin fæddust talaði ég við hundinn okkar, Arrow, á íslensku og nú tala ég íslensku við börnin sem bæði tala hana og skilja. Ég er svo heppin að hafa tök á því að komast til Islands þegar ég vil. Hingað kem ég að meðaltali tvisvar til þrisvar á ári. Þetta er þriðja ferðin mín hingað á þessu ári og septem- ber er rétt að byrja. Ég held að hluti af óánægju minni í Bandaríkjunum hafi verið sá að mér fannst ég svo fjarri íslandi. England er svo ná- lægt að það er ekkert mál að koma hingað. Ég get sagt þér skemmtilega sögu af því hvað ég er fastheldin á þjóðerni mitt. Kid var að fá breskt vegabréf núna nýlega eftir langa bið. Mesta mál- ið hjá þeim var að vita hvers vegna í ósköpunum eiginkona hans afþakkaði breskt vegabréf! Þeir trúðu ekki að nokkur afþakkaði slíkt sem á ann- að borð stæði það til boða! En það er alveg á hreinu að ef ég fengi nóg af að búa erlendis þá stæði ekki á Kid að flytjast tii íslands." „Það get ég alveg hugsað mér,“ segir Kid. „En við hvað ætti ég að starfa? Það er örugglega ekki grundvöllur fyrir enn einni útvarpsstöð- inni." Talandi um vegabréf. Kid er með kanadiskt vegabréf (og einnig enskt núna), Anna Lísa með breskt, David Alexander með bandarískt og Guðrún Ágústa með íslenskt. Fjögur mismun- andi vegabréf hjá fjórum fjölskyldumeðlimum. Hvernig vegabréf fær nýja barnið? „Islenskt," segir Kid og brosir. .jVið verðum að finna nafn sem hentar jafnvel á Islandi og Bret- landi.' VISSI AÐ ÞAÐ VÆRI ÓDÝRT AÐ MILLILENDA Á ÍSLANDII En hvað vissi Kid um fsland áöur en hann kynntist Guörúnu? „Bara það að það væri ódýrasta leiðin milli Evrópu og Bandaríkjanna að millilenda á ís- landi," segir hann brosandi. „Ég man ennþá þeg- ar ég las um það í ferðabókum þegar ég var barn! Síðar bjó éjg um tíma í Norður-Kanada og hélt lengi vel að Island væri svipað því. Svo kom ég hingað og sá með eigin augum hvað það var ólíkt." — Hvaö finnst þér helst hafa breyst frá því þú komst fyrst? „Veitingastaðirnir og aukningin á bifreiðum. Mér finnst sjávarréttirnir á íslandi bera af. Þeir eru eftirlætið mitt. Ef þið berið Reykjavík saman við stórar borgir í Bretlandi komist þið fljótt að raun um að gæðamatið hér er miklu hærra en þar." Hann segir ennfremur að það hafi komið sér á óvart þegar hann kom núna að sjá Holidaylnn og Hard Rock Café í Reykjavík: „Það er ótrúlegt að þetta skuli vera Reykjavík! Þetta er eins og stórborg." Ekki finnst börnunum það. Að minnsta kosti segir mamman að þau elski að koma til íslands: „Hér geta þau verið úti fram eftir kvöldi og leik- ið sér. Þau geta farið alein út í búð að versla og hér eru þau frjáls. Þeim finnst yndislegt að heim- sækja ömmu og afa og fjölskylduna á íslandi," segir hún. Það eina sem þau virðast ekkert alltof ánægð með er fiskurinn sem foreldrarnir elska: „Hvað fáum við að borða í kvöld," spyrja þau þegar líður að heimferðartíma. „Fisk,“ segir pabbi þeirra glottandi. „Ó, nei!“ segja þau í kór og vonbrigðin leyna sér ekki. „Aftur?‘ Stríðnissvipurinn á Kid kemur upp um hann og svo spyr hann þau hvort þau ætli að vera með í upptöku á sjónvarpsþættinum næsta dag? Þau ætluðu að hugsa sig um: „í rauninni eigum við öll að vera í þættinum," segir Kid. „Við göngum um, förum í bátsferð og í útreiðartúr. Nema Guð- rún. Hún fer ekki á hestbak komin sex mánuði á leið!" Guðrún og Kid verða bæði kynnar í myndinni og eru kynnt þannig: „Introduced by Gudrun and David Jensen." Kannski byrjunin á framabrautinni að ganga um á suðvesturhorni Islands og kynna heimalandið? „Vonandi," segir Guðrún hlæjandi. „Heldurðu það fari ekki að koma að því að einhver kvik- myndaframleiðandinn uppgötvi mig.“ En án gamans verður fróðlegt að fylgjast með hvort ferðamannastraumurinn frá Bretlandi til íslands eykst á næsta ári eftir sýningu á þættin- um „Wish you were here“ — „ICELAND" sem sýndur verður hjá ITV í byrjun janúar á næsta ári. Og fimmtán milljón manns horfa á. „Bara það hætti nú að rigna," segjum við öll í kór og horfum til himins. Hann heyrði óskir okkar.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.