Helgarpósturinn - 03.09.1987, Blaðsíða 16
Þ
að er haft fyrir satt að skrif-
stofur Sjálfstæðisflokksins i Val-
hðll hafi verið eins og „dauðs
manns gröf” fyrir síðustu alþingis-
kosningar, og máski er þar að finna
eina skýringuna á slöku gengi
flokksins í kosningunum. Sagt er að
nú hafi Þorsteinn Pálsson formað-
ur loks skilið að við svo búið megi
ekki sitja, það þurfi að blása ein-
hverju lífi í framkvæmdastjórn
flokksins og daglegan rekstur hans.
í því sambandi er nefnt að ef til vill
fari eitthvað að styttast tími Kjart-
ans Gunnarssonar í stóli fram-
kvæmdastjórá Sjálfstæðisflokks-
ins. . .
Hvítlaukspylsan laðar fram brosið
Sláturfélagiö vill minna grillunnendur á
staöreynd aö þeir sem reynt hafa grillaða
Hvítlaukspylsu, (nýju pylsuna frá SS meö
milda og Ijúfa kryddbragðrnu), gefa henni
brosandi sín bestu meðmæli.
Þ
að getur oft verið hálfgert
kvairæði að reyna að leggja bifreið-
um í miðborg Rey kjavíkur og nátt-
úrlega ennþá meira kvalræði að
þurfa reglulega að borga stöðu-
mælasektir. En sumir, þeir alheppn-
ustu, eru svo lánsamir að eiga sjálfir
lóðir þar sem þeir geta lagt bíium
sínum. Og það sem meira er, við
höfum heyrt af grónu fyrirtæki í
miðbænum sem er farið að leigja út
bílastæði til lysthafenda. Prísinn:
3000 krónur á mánuði, takk fyrir...
AUGLÝSINGASÍMI
16 HELGARPÓSTURINN