Helgarpósturinn - 17.09.1987, Side 8
FRETTASKÝRINGl
eftir Friðrik Þór Guðmundsson
Gatið fyllt með sköttum
Fjármálaráðherra meö tekjuaukatillögur upp í allt gatið, sem íheild er a.m.k. 3,6 milljarö-
ar króna. Niðurskurðartillögur hafa ekki náö milljaröi. Tekjuskattur einstaklinga hœkk-
ar um allt aö 1,2 milljöröum frá þvísem fyrirhugaö var. Horfiö frá öllum „drastískum“ kerfis-
breytingum, eins og að stokka upp söluskattskerfið. Slagurinn stendur um 1,5 milljarða
króna.
Jón Baldvin Hannibalsson fjár-
málarádherra stendur frammi fyr-
ir ad minnsta kosti 3.600 milljóna
króna fjárlagagati á nœsta ári, en
tala þessi gœti allt eins hœkkad
upp í 4.000 milljónir króna. íyfir-
standandi fjárlagasmíd fyrir 1988
hefur fjármálarádherra lagt fram
skattahœkkunartillögur sem fylla
myndu upp í þetta gat ad mestu
leyti og er nú tekist á um ad skera
nidur ríkisútgjöldin til þess ad
draga úr skattahœkkunarþörf-
inni. En tregdulögmálin eru hvar-
vetna ríkjandi og framkomnar
nidurskurdartillögur sem gœtu
komið til framkvœmda á nœsta
ári ná ekki 1.000 milljónum
króna. Fjármálaráöherra er tilbú-
inn til að skilja eftir 1.200 milljóna
króna gat. Til að endar með þeirri
niðurstöðutölu geti náðst saman
þarf að hœkka skatta enn um
1.500 milljónir króna — eða skera
meira niður sem þessu nemur.
Fjármálaráðherra lagði fyrr í
þessum mánuði fram „tillögur um
skattkerfisbreytingar og aukna
tekjuöflun ríkissjóðs til að draga úr
fjárlagahallanum".
1) Hann leggur til að tekjuskattur
einstaklinga verði 4% af heild-
artekjum þeirra, en í ár verður
hlutfallið um 3% þótt gengið
hafi verið út frá hærra hlutfali-
inu. Ástæðan er að áiagning í ár
reyndist lægri en áætlað var
auk þess sem „tekjur heimil-
anna hafa hækkað miklu meira
á þessu ári en gert var ráð fyrir
við afgreiðslu fjárlaga um síð-
ustu áramót“. Með því að miða
við 4%-markið segir hann að
tekjuaukinn á næsta ári verði
1.200 milljónir króna.
2) Fjármálaráðherra leggur til af-
nám allra undanþága á sölu-
skatti, en að á móti verði skatt-
hlutfallið lækkað, þannig að út-
koman verði hin sama. En á
hinn bóginn vill hann taka hús-
nœðisgjaldið, sem er um 1% af
söluskattsstofninum, og halda
því fyrir utan, „til þess að mæta
mjög aukinni fjárþörf húsnæð-
iskerfisins á næsta ári". Áætlar
ráðherrann í tillögum sínum að
tekjuaukinn af þessu á næsta
ári nemi 1.000 milljónum
króna.
3) Hann leggur til að launaskattur-
inn verði lagður á öll fyrirtæki,
en ekki bara verslunar- og þjón-
ustufyrirtæki. Á móti ætti skatt-
hlutfallið að lækka úr 3,5% í
2,5%. Þó yrðu viðbótartekjurn-
ar um 600 milljónir króna.
4) Fjármálaráðherra leggur til
uppstokkun á tekjuskattsfyrir-
komulagi fyrirtækja, með lækk-
andi hlutfalli, þó þannig að ráð-
stöfun þessi skili á næsta ári í
ríkissjóð 100 milljónum króna.
5) Áður hefur komið fram sú til-
laga að hætta við að endur-
greiða útgerðinni uppsafnaðan
söluskatt og eftir því sem næst
verður komist er upphæðin
sem hér um ræðir tiltekin allt
upp í 700 milljónir króna.
Alls er hér um að ræða 3.600
milljónir króna eða nærri allt
fjárlagagatið eins og það legg-
ur sig. Ur því að fjármálaráðherra
er reiðubúinn til að skilja eftir
1.200 milljónir króna á næsta ári
þá er hið raunverulega „gat“ um
2.400 milljónir króna án niður-
skurðar. Fjármálaráðherra hefur
því skattahækkunartillögur langt
umfram þetta gat. En stjórnar-
flokkarnir eru sammála um að
fylla sem mest upp í gatið með nið-
urskurði ríkisútgjalda auk skatta-
hækkana og er nú tekist á um
þennan niðurskurð frá fyrstu fjár-
lagadrögum. Tregðan er fyrst og
fremst fólgin í því að verulegur
hluti ríkisútgjalda er bundinn í lög-
um og þarf því tugi lagabálka áður
en stórir póstar fjúka. Enn sem
komið er virðist niðurskurðurinn
ekki hafa náð 1.000 milljónum
króna.
Rætt er um að lækka framlag til
niðurgreiðslna úr 1.600 milljónum
króna í 600 milljónir króna. Á
móti kæmu útgjöld til að draga úr
áhrifum þessa á hag bænda og
neytenda, hugsanlega um 500
milljónir króna. Niðurskurðurinn
hér gæti því hljóðað upp á 500
milljónir.
Á þessu ári voru áætlaðar 1.300
milljónir króna úr ríkissjóði í bygg-
ingarsjóði ríkisins og verka-
manna. í upphaflegum drögum að
fjárlögum næsta árs var gert ráð
fyrir 2.100 milljónum króna. Nið-
urstaðan gæti orðið 1.900 milljón-
ir króna og „sparnaðurinn" gæti
því numið þessum 200 milljónum
króna.
Þá má nefna að fjármálaráð-
herra hefur lagt til tilflutning verk-
efna ýmissa stofnana til atvinnu-
vega sem þýddi yfir 100 milljóna
króna sparnað ef það ynnist á einu
bretti. Hann vill m.a. endurskoða
tekjuöflun Iðntæknistofnunar,
Rannsóknastofnunar og Veiði-
málastofnunar, væntanlega með
það fyrir augum að tekjur þessara
stofnana dugi þeim. Þá gætu spar-
ast nál. 120 milljónum kr. Þessar
tvær tillögur hljóða því upp á um
220 milljónir króna, ef sarnþykkt-
ar verða, sem er umdeilanlegt því
þær fela meðal annars í sér að af-
nema framlög til ráðunauta Bún-
aðarfélagsins, til héraðsráðu-
nauta, til búfjárræktar, til mats á
landbúnaðarafurðum og annarra
helgra véa Framsóknar!
Enn skal nefna tillögur um sölu
ríkisfyrirtækja og sölu eigna ríkis-
sjóðs í hluta- og sameignarfélög-
um. Það tekur sinn tíma að ganga
frá slíkum hlutum og vafasamt að
ríkið fái af þessu umtalsverðar
tekjur á næsta ári. Þó skal nefndur
til skjalanna Utvegsbankinn og
eitt sinn munaði minnstu að tækist
að selja Sementsverksmiðju ríkis-
ins. Þarna er með öðrum orðum
sýnd veiði en ekki gefin. Þá má
nefna vilja stjórnarliða til að elta
uppi skattsvikara landsins, sem ár-
lega eru taldir svíkja 5 milljarða
undan skatti. Því miður næst ekki
til þeirra á einu bretti.
Áugun beinast að einstökum
ráðherrum og ráðuneytum. 40%
ríkisútgjalda eru ættuð úr heil-
brigðis- og tryggingaráðuneytinu,
þar sem stærstu liðirnir eru
„óskerðanlegar" sjúkra- og lífeyr-
istryggingar og fáum dettur í hug
að hrófla við sjúkrahúskerfinu.
15—16% útgjalda ríkisins liggja í
menntamálaráðuneytinu og þar
liggja engar tillögur fyrir um nið-
urskurð og reiknað, samkvæmt
heimildum HP, með óbreyttu hlut-
falli, þótt augu manna þar beinist
sem fyrr að Lánasjóði íslenskra
námsmanna. Drjúgur skildingur
fer í vegamálin og vafasamt að
Matthías Mathiesen nái að skera
niður í þessu byggðastefnuráðu-
neyti þegar hrópað er á bættar
samgöngur með nýjum vegum,
brúm, ef ekki jarðgöngum.
Niðurstaðan hlýtur óhjákvæmi-
lega að vera: Miklar skattahækk-
anir. Helst er talið að endar nái
saman um hækkun tekjuskattsins
sbr. tillögur fjármálaráðherra hér
að ofan, en hæpið er að tekjur fáist
nú í gegnum uppstokkun á sölu-
skattskerfinu. Niðurgreiðslur
munu lækka, en með samstilltu
átaki Framsóknar og bændaarms
Sjálfstæðisflokks mun takast að
„bjarga" öðrum landbúnaðarlið-
um. Og samkvæmt heimildum HP
„er búið að leggja á hilluna í bili
allar drastískar kerfisbreytingar".
Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráöherra. Hefur
tillögur að skatthækkunum upp í allt 3,6 milljarða
króna gatið. En bilið sem raunverulega þarf að
brúa er 2,4 milljarðar og enn liggja aðeins fyrir til-
lógur upp á 900 milljóna króna niðurskurð. Mis-
munurinn er 1,5 milljarðar. Það bil verður liklega að
mestu brúað með tekjuskattshækkun.
Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra. Vill skera
sem mest niður áður en til skatthækkana kemur.
En stjórnkerfið er þungt í vöfum með lögbundnum
sjálfvirkum útgjöldum. Hann þarf að útskýra hvers
vegna tekjuskatturinn var ekki lækkaður, heldur
hækkaður þvert ofan í yfirlýsta stefnu. Og allar
kerfisbreytingar hafa verið lagðar á hilluna.
Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra.
Framsóknarflokkurinn berst gegn uppstokkun á
landbúnaðarkerfinu, en sér fram á mikla lækkun á
niðurgreiðslum. Á móti kemur að lítt veröur hrófl-
að við Búnaðarfélagsútgjöldum, svo sem búfjár-
ræktarframlögum!
Þröstur Ólafsson: „Möguleiki að
sumir fái meira en aðrir minna."
Vérslað með
visitöluhækk
Miklar líkur eru nú taldar á því
að ASÍnoti vísitöluhœkkun þá sem
koma á til framkvœmda 1. októ-
ber nk. sem skiptimynt í komandi
kjarasamningum. Þetta þýðir að í
stað þess að vísitöluhœkkunin
gangi jafnt yfir alla línuna og
komi til framkvœmda samkvœmt
niðurstöðu launamálanefndar
verði hún innifalin í nœstu kjara-
samningum, gegn því skilyröi að
almenn launahœkkun, sem samiö
yrði um sérstaklega í komandi
samningum, verði lœgri en ASl
haföi upphaflega gert ráð fyrir.
Talsmenn VSÍ hafa marglýst því
yfir á undanförnum dögum að
ekki sé svigrúm til almennra
launahækkana umfram það sem
gert var ráð fyrir í síðustu samn-
ingum. í desember í fyrra var farin
sama leið og heyrst hefur að fara
eigi nú, nefnilega að fresta
ákvörðun launanefndar. Þetta hef-
ur í för með sér að þeir sem hafa
hæst laun fá ekki umsamda vísi-
töluhækkun á laun sín, en í stað
þess verður samið sérstaklega um
að hækka þá sem lægst hafa
launin.
í samtali HP við Þröst Ólafs-
son, framkvæmdastjóra Dags-
brúnar, kom fram að það sem væri
höfuðverkur verkalýðshreyfing-
arinnar um þessar mundir væri
hvernig fara ætti að því að hala
upp lægstu launin, án þess að það
gengi yfir alla línuna. Þröstur
sagðist ekki vita hvaða leið yrði
farin til þess en málið væri stíflað
sem stendur. Mismunur í kjara-
þróun hefði orðið slíkur að það
væri nauðsynlegt að bæta þeim
sem lægstir væru það upp. Það
8 HELGARPÓSTURINN