Helgarpósturinn - 17.09.1987, Blaðsíða 24
LISTVIÐBURÐIR
Árbæjarsafnið
Opið 12.30 til 18.00 laugardaga og
sunnudaga út september. Frá 1.
október opið eftir samkomulagi.
Ásgrimssafn, Bergstaöa-
stræti 74
Opið alla daga nema laugardaga frá
13.30 — 16.00. Yfir stendur sumar-
sýning á úrvali verka Ásgríms Jóns-
sonar.
Ásmundarsafn
Abstraktlist Ásmundar Sveinssonar,
opið daglega frá 10—16.
FÍM-salurinn v/Garöastræti:
Félagar úr SÍM sýna verk sín á sam-
sýningu sem haldin er til að afla fé-
laginu fjár.
Gallerí Borg <■
Yfir stendur samsýning í Austur-
stræti 10 og v/Austurvöll opnar
Anna Gunnlaugsdóttir sýningu í
dag. Flennar fyrsta einkasýning sem
stendur til þess 29.
Gallerí Hallgerður
Kristján Kristjánsson sýnir klippi-
myndir.
Gallerí Gangskör
Frjálst upphengi meðlima gallerís-
ins. Opið frá 12—18 virka daga og
14—18 um helgar.
Gallerí Grjót
Samsýning aðstandenda. Málverk,
grafík, skúlptúr, silfur o.fl.
Gallerí Svart á hvítu
Helgi Þorgils Friðjónsson opnar á
föstudagskvöldið sýningu á vatns-
litamyndum og grafík, sem stendur
til 20. sept.
Gallerí Langbrók Textíll
Vefnaður, tauþrykk, myndir, fatnað-
ur o.fl. á Bókhlöðustíg 2.
Gallerí Vesturgata 17
Sumarsýning Listmálarafélagsins.
Margir af okkar fremstu málurum
með sölusýningu á verkum sínum.
Opið virka daga frá 9—17.
Hafnargallerí
Guðbjörg Hjartardóttir sýnir oliu-
málverk.
Kjarvalsstaðir
Til 20. sept. sýna Helgi Þorgils Frið-
jónsson, Septem-hópurinn og Eydís
Lúðviksdóttir.
Listasafn Einars Jónssonar
er opið alla daga nema mánudaga
frá kl. 13.30—16.00. Höggmynda-
garðurinn er opinn daglega frá kl.
10—17.
IMorræna húsið
Vilhjálmur Bergsson sýnir málverk,
vatnslitamyndir og teikningar út
mánuðinn.
Nýlistasafnið við Vatnsstíg
Ragna Hermannsdóttir sýnir bækur,
grafík, málverk og klippimyndir til
27. sept.
Mokkakaffi
Gunnar Kristinsson sýnir myndir
unnar með blandaðri tækni frá 11.
sept. til 9. okt.
KVIKMYNDAHÚSIN
Strindberg
í Iðnó
Faðirinn, eitt þekktasta verk Strindbergs,
á fjölunum í leikstjórn Sveins Einarssonar
Fyrsta frumsýning vetrarins hjá
Leikfélagi Reykjavíkur veröur hiö
margfrœga leikrit Strindbergs, Faö-
irinn. Verkiö veröur frumsýnt þann
22. september, leikstjóri er Sveinn
Einarsson, fyrrum Þjóöleikhússtjóri
og leikhússtjóri í lönó, en þetta er
fyrsta verkiö sem hann leikstýrir í
Iönó í 14 ár. Faöirinn er án efa eitt
frœgasta verk Strindbergs, byggt á
persónulegri reynslu hans, og hefur
í gegnum tíöina oröiö tilefni til mik-
illa bollalegginga og athugana,
jafnt lœröra sem leikra.
Með helstu hlutverk í sýningunni
fara þau Sigurður Karlsson, sem
leikur höfuðsmanninn, Ragnheiður
Elfa Arnardóttir, sem leikur konu
hans, og ef undirritaðan brestur
ekki minni eru ekki ýkja mörg ár
síðan hún fór með hlutverk Fröken
Júlíu sama höfundar. Dóttur þeirra
leikur Guðrún Marinósdóttir, sem
síðastliðið ár lék hjá LA, Jakob Þór
Einarsson leikur lækninn, prestinn
leikur Jón Hjartarson, Sæla leikur
Hjálmar Hjálmarsson, snöfurlegur
Dalvíkingur sem útskrifaðist úr leik-
listarskólanum síðastliðið vor. Skó-
sveinninn er í höndum Valdimars
Flygenring og fóstruna leikur Guð-
rún Þ. Stephensen, en hún leikur
þarna gestaleik hjá Iðnó eftir að
hafa verið fjarverandi í 14 ár.
Flestum ber saman um að verkið
sé að mestu byggt á persónulegri
reynslu Strindbergs, enda stóð hann
í skilnaði við Siri von Essen, ieik-
konuna þekktu, þegar hann skrifaði
verkið. Strindberg hefur lengi verið
talinn einn mesti kvenhatari sem
sett hefur staf á blað og í þessu leik-
riti kemur fram ýmislegt sem rennir
undir það stoðum. Strindberg hat-
aðist við von Essen þegar þarna var
komið sögu, auk þess sem hann átti
í heilögu stríði við allt sem kallast
gat femínismi á þessum tíma. Leik-
ritið snýst að mestu um samsæri
sem höfuðsmaðurinn telur að kona
hans sem og fóstra séu að gera gegn
honum, svo að hann geti ekki notið
eðlilegra samvista við barn sitt.
Menn hafa skrifað um þetta ástand
karlhetjunnar langar og lærðar rit-
gerðir og sett fram ýmsar kenning-
ar og dregið af þessu líkingar. Ein sú
frumlegasta og jafnframt skemmti-
legasta er að hann sé eins og sæðis-
fruma sem er að reyna að brjótast
fram og út úr þeirri skurn sem kon-
urnar hafa hlaðið í kringum hann.
Faðirinn er harmleikur í klassískri
merkingu þess orðs og í honum fer
fram kröftug umræða um efni sem
eiga fullt erindi til fólks nú á tímum,
ekki síður en þegar leikritið var
skrifað; um stöðu og eðli hjóna-
bandsins, vald föðurins og rétt hans
gagnvart rétti móðurinnar. Um
hreinskilni, tortryggni og tortím-
ingu.
Það er Þórarinn Eldjárn sem hef-
ur gert þýðinguna, um lýsingu sér
Árni Baldvinsson, leikmynd og bún-
inga gerir Steinunn Þórarinsdóttir
og leikstjóri er sem fyrr segir Sveinn
Einarsson.
★★★★
Btáa Betty (Betty Blue)
Sýnd kl. 9 í Bíóborg.
Bláttflaueli Blue Velvet). Sýnd kl. 10.
í Bíóhöllinni.
Herdeildin (Platoon). Sýnd kl. 5 og 9
í Regnboganum.
★★★
Nedanjaröarstödin (Subway). Sýnd
kl. 7 og 11 í Stjörnubíói.
Tveir á toppnum (Lethal Weapon).
Meö Mel Gibson. Sýnd kl. 5, 7, 9 og
11 í Bíóborg og kl. 9 og 11 í Bióhötl-
inni.
Óvænt stefnumót (Blind Date).
Notalegur húmor í Stjörnubiói kl. 5,
7, 9 og 11.
Logandi hræddur (The Living Day-
lights). Nýja James Bond-myndin.
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10 í Bíóhöllinni.
Ottó (Otto: Der Film) Endursýnd
mynd, full af fyndni og skemmtileg-
heitum. Sýnd íd. 3.05, 5.05, 7.05, 9.05
og 11.15 í Regnboganum.
Villtir dagar (Something Wild)
Bráðskemmtileg mynd sem er í senn
spennandi og fyndin. Ærslafull.
Sýnd kl. 3, 5,7,9og 11.15 í Regnbog-
anum.
★★
Valhöll. Barna- og fjölskyldumynd í
Laugarásbíói kl. 5, 7, 9 og 11.
Wisdom. Hasarmynd. Sýnd kl. kl. 5
og 9 í Stjörnubíói.
Sérsveitin (Extreme Prejudice).
Plottiö spillir fyrir annars ágætri
spennumynd. Kl. 5, 7 og 11.05 í Bíó-
borg.
Vild'ðú værir hér (Wish you were
here). Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15 í
Regnboganum.
Geggjað sumar (One Crazy Sum-
mer). Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 í Bíóhöll-
inni.
Hvererég (Square Dance). Sýnd kl.
5, 7, 9 og 11 í Laugarásbíói.
Svarta ekkjan (Black widow). Sýnd
kl. 5, 7, 9 og 11 í Bíóborg.
★
Rugl iHollywood. Sýnd kl. 5, 7, 9 og
11 í Laugarásbíói.
Ginan (Mannequin). Gamanmynd.
Sýnd kl. 3, 7.15 og 11.15 í Regnbog-
anum.
Superman Þaö hljóta aö vera ein-
hver takmörk. Sýnd kl. 5 og 7 í Há-
skólabíói.
O
Lögregluskólinn 4 Langþreytt grín-
mynd í Bíóhöllinni kl. 5 og 7.
NÝJAR
Hinn útvaldi. (White of the Eye).
Spennumynd í Háskólabíói kl. 9 og
11.05.
Geimskólinn. (Space Camp). Sýnd
kl. 5, 7, 9 og 11 í Bíóhöllinni.
Sannar sögur. (True Stories). Sýnd
kl. 5, 7, 9 og 11 í Bíóhúsinu.
Herklæði Guðs. (The Armour of
God). Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15 í
Regnboganum.
★ ★ framúrskarandi
★ ★ mjög góö
★ ★ miðlungs
★ þoianleg
o mjög vond
KVIKMYNDIR
eftir Ólaf Angantýsson
Af hinum torrœöari kvenskörungum kvikmyndasögunnar
Bíóborgin: Black Widow (Svarta
ekkjan). ★★
Bandarísk. Árgerö 1987.
Framleiöandi: Harold Schneider.
Leikstjórn: Bob Rafaelson.
Handrit: Ronald Bass.
Kvikmyndun: Conrad L. Hall.
Aöalhlutverk: Debra Winger,
Theresa Russel, Sami Frey,
Dennis Hopper, Nicol
WUliamsson, James Hong o.fl.
Latrodectus mactans er latneska
heitið yfir vægast sagt mjög eitr-
aða köngulóartegund, sem í al-
þýðumunni hefur gegnum tíðina
verið nefnd svarta ekkjan. Dregur
hún nafn sitt af því, að kvendýrið
drepur og étur síðan tiltölulega
meinlaust og lítilmótlegt karldýrið
að mökun lokinni. Kvikmyndin
Black Widow, er okkur gefst þessa
dagana að líta í Bíóborginni, fjallar
um líf og raunir einnar slíkrar. Hún
er að vísu meira en svo verðugur
fulltrúi öllu skynigæddari dýrateg-
undar fánu þessarar plánetu en að
áðurnefndum lystisemdum í engu
eftirbátur þessarar stallsystur
sinnar úr skordýraríkinu. Hún hef-
ur sem sagt lifibrauð sitt af því að
koma sér vel við og giftast síðan
fjárhagslega vel stæðum einstakl-
ingum, sem hún af mikilli list og
kænsku kemur fyrir kattarnef eftir
að hún hefur tryggt sér sinn verð-
uga sess í erfðaskrá þeirra.
Black Widow er þrátt fyrir vissa
vankanta handritsgerðarinnar
einkar hönduglega stílfærð hvað
sviðsetninguna varðar. Hún er
einnig ágætlega leikin og umfram
allt með eindæmum fagmannlega
kvikmyndaður þriller. Lífsneist-
ann sækir hún hins vegar í hina
klassísku film noir fimmta og
sjötta áratugarins, hvar kvenskör-
ungar á borð við Mary Astor í The
Maltese Falcon, Ritu Hayworth í
The Lady from Shangahi og
Simone Simon í Cat People
hrærðu svo um munaði upp í karl-
veldinu með sköruglegri, fram-
göngu sinni og umfram alft hvað
karlpeninginn varðaði: illskiljan-
legum, svo ekki sé talað um ótíma-
bœrum kröfum sínum um per-
sónulegt sjálfstæði.
Að grimmúðleg örlög þessara
klassísku femmes fatales kvik-
myndasögunnar ættu meira en
svo ærið erindi upp á pallborð
kvikmyndahúsagesta eftirstríðsár-
anna er ekki svo erfitt að gera sér
í hugarlund í dag. Þær þjónuðu
einfaldlega sem einskonar var-
naglar eða öryggisventlar á það
að kvenþjóðin ofmetnaðist nú
ekki sökum nýfengins og „tíma-
bundins" frelsis, heldur tæki söns-
um og hyrfi aftur af vinnumark-
aðnum. . . inn á heimilin og allt í
þeim tilgangi að rýma til fyrir karl-
peningnum, sem um þessar
mundir var að snúa aftur heim af
vígvöllunum. Hitt er svo öllu tor-
ræðara hvaða erindi hún á við
okkur í dag þessi vofa aftan úr
forneskju kvikmyndasögunnar,
sem í seinni tíð og í sífellt auknum
mæli hefur tekið að ryðja sér til
rúms á hvíta tjaldinu á ný. Það at-
hyglisverða við Black Widow er
aukinheldur að söguhetjan, sem
fengin er til að temja skassið, ef
svo má að orði komast, heitir ekki
lengur Humphrey Bogart og það-
an af síður Clark Gable. í þess stað
er það einvörðungu á færi öllu
rétttrúaöri kynsystur frúarinnar
svörtu að um síðir koma fyrir
hana vitinu og snúa henni frá villu
síns vegar.
24 HELGARPÓSTURINN