Helgarpósturinn - 17.09.1987, Blaðsíða 32
NÆRMYND
fékk því framgengt á miðstjórnar-
fundi Framsóknar 1968 að skoð-
anakannanir skyldu viðhafðar við
val á frambjóðendum flokksins.
Slíkar skoðanakannanir tók Fram-
sóknarflokkurinn síðan upp fyrir
þingkosningarnar 1971 fyrstur
allra flokka. Það sama ár var
flokksþing Framsóknarflokksins
opið öllum sem það vildu sækja og
hafði það aldrei gerst í sögu ís-
lensks stjórnmálaflokks.
Það var þó á landsþingi Sam-
bands ungra framsóknarmanna á
Hallormsstað 1970 sem þessi
vinstri alda í Framsóknarflokki
reis hvað hæst. Þar var samþykkt
söguleg stefnuyfirlýsing, sem
hafði verið undirbúin af þeim
Ólafi Ragnari Grímssyni, Jónatan
Þórmundssyni og Birni Teitssyni. í
henni sagði meðal annars að
Framsóknarflokkurinn ætti að
beita sér fyrir myndun víðtækrar
vinstri hreyfingar og rækja kröft-
uglega það grundvallarhlutverk
sitt að vera höfuðandstæðingur
íhaldsaflanna á íslandi. Nauðsyn-
legt var talið að stjórn SUF hæfi
viðræður við aðila innan Fram-
sóknarflokks og utan um myndun
víðtækrar hreyfingar félags-
hyggjuafla. Grundvallarhugmynd-
in var í raun sú að Framsóknar-
flokkurinn yrði burðarásinn í
nýrri breiðfylkingu vinstri manna.
1 samræmi við þessar hugmyndir
um samvinnu og jafnvel samein-
ingu vinstri aflanna gekk Sam-
band ungra framsóknarmanna til
viðræðna við Samtök frjálslyndra
og vinstri manna í upphafi árs
1971. Þá höfðu verið í gangi þreif-
ingar á milli Framsóknarflokks,
Samtakanna og Alþýðuflokks í
nokkra mánuði, en hvorki gekk
né rak. Þegar ofan á þetta bættist
sókn vinstri manna á flokksþingi
Frámsóknar i apríl 1971 er ekki
laust við að margir hægri menn
innan flokksins hafi verið teknir
að ókyrrast. Á téðu flokksþingi
fengu þeir meðal annars sam-
þykktar yfirlýsingar sem voru í
andstöðu við hugmyndir þeirra
sem þá fóru fyrir flokknum; til
dæmis um það að herinn skyldi
hverfa úr landi og að Framsóknar-
flokkurinn skyldi vinna til vinstri.
Það stefndi í uppgjör innan Fram-
sóknarflokksins.
Ólafur Jóhannesson var kosinn
formaður Framsóknarflokksins
árið 1968. Samkvæmt skilningi
Ólafs var Framsóknarflokkurinn
miðflokkur, flokkur smáatvinnu-
rekenda, embættismanna og mið-
stéttarfólks. Vinstra bröltið í ungu
mönnunum var honum því lítt að
skapi, enda lét hann eitt sinn svo
um mælt að Framsóknarflokkur-
inn væri „opinn í báða enda“. Það
var svo í stjórnarkjöri í Félagi
ungra framsóknarmanna í Reykja-
vík haustið 1971 að hægri menn
undir forystu Ólafs og Kristins
Finnbógasonar köstuðu stríðs-
hanskanum. Þar átti sér stað svo-
kölluð „laugardagsbylting", en þá
stóðu hægri menn fyrir stórfelldri
smölun og fengu því framgengt að
gamla stjórnin var felld en í stað-
inn kosin ný, leiðitamari Ólafs-
mönnum.
Laugardagsbyltingin var að-
dragandinn að stofnun hinn-
ar eiginlegu Möðruvalla-
hreyfingar, sem leit dagsins Ijós á
Akureyri haustið 1973, í húsi því í
eigu Menntaskólans sem nefnt er
Möðruvellir. Möðruvallahreyfing-
in var í raun ekki annað en fram-
hald af viðleitni ungra framsókn-
armanna í nær áratug á undan.
Hins vegar höfðu andstæðurnar í
flokknum skerpst til muna, eins og
kannski má ráða af eftirfarandi
kafla úr stefnuávarpi Möðruvalla-
hreyfingarinnar; „Þótt odda-
mennirnir týni þeirri átt, sem í
upphafi var stefnan, getur hug-
sjónakraftur liðsmanna enn verið
svo sterkur, að tekið sé í taumana.
Hinn almenni félagsmaður vill
ekki átölulaust láta fórna hinum
margþætta umbótatilgangi fyrir
tímabundin völd fámennrar klíku.
Til sjávar og sveita, í öllum lands-
hlutum, rís hinn almenni flokks-
maður upp til að slá skjaldborg um
þá grundvallarstefnu, sem flokkn-
um var ætlað að fylgja, og þau við-
horf, sem móta skulu framtíðar-
sýn hans."
Það mátti glöggt sjá að viö
óbreytt ástand sigldi Möðruvalla-
hreyfingin hraðbyri út úr Fram-
sóknarflokknum.
Fyrir kosningarnar 1974 er
þessum hópi svo ekki lengur vært
í Framsóknarflokknum. Fyrir
borgarstjórnarkosningarnar það
sama ár áttu þeir Ólafur Ragnar,
Baldur Óskarsson og Bragi Guð-
brandsson viðræður við Alþýðu-
bandalagsmenn um sameiginlegt
framboð. Alþýðubandalagsmenn
buðu sæti á framboðslista sínum,
en það gátu Möðruvellingar ekki
sætt sig við. Næsta skrefið var að
ganga til liðs við Samtök frjáls-
lyndra og vinstri manna fyrir Al-
þingiskosningarnar. Möðruvell-
ingar lýstu því yfir að Framsókn
stefndi í stjórn með Sjálfstæðis-
flokki eftir kosningar og Ólafur
Ragnar fór í framboð fyrir Sam-
tökin á Austurlandi. I þeim kosn-
ingum biðu Samtök frjálslyndra
og vinstrimanna afhroð.
Það hefur verið haft eftir Kristni
Finnbogasyni, sem á þeim tíma
var mestur bandamaður Ólafs
Jóhannessonar, ásamt Steingrími
Hermannssyni, Alfreð Þorsteins-
syni og Guðmundi G. Þórarins-
syni, og mikill áhrifamaður í
Framsóknarfélögunum í Reykja-
vík, að Möðruvallahreyfingin hafi
verið stofnuð utan um einn mann
— Ólaf Ragnar Grímsson. Ólafur
hafi viljað fá mikil völd í flokknum
og hafi reyndar fengið meira en
flestir aðrir. Kristinn: „Ég held að
ef hann hefði verið látinn hafa
dúsu, eins og sagt er, þá hefði
hann aldrei farið neitt — ef hann
hefði til dæmis verið gerður að
vararitara eða fengið eitthvert
álíka embætti."
Sjálfur áréttar Ólafur að skoð-
anaágreiningurinn einn hafi vald-
ið því að hann gekk úr Framsókn-
arflokknum: „Pólitískir andstæð-
ingar mínir hafa reynt að koma
því inn hjá fólki að ég sé í pólitík
metorðanna vegna. Morgunblað-
ið hóf þennan söng á árunum
1967—70 með markvissum, hat-
römmum áróðri gegn persónu
minni. Öfl í Framsóknarflokknum
voru svo fljót að taka undir þessi
vein og reyndu að skýra málefna-
ágreininginn sem var í flokknum á
þennan hátt — sögðu sem sé að ég
væri óflokkshæfur vegna metn-
aðargirni og hroka. Hitt er annað
mál, að á sínum tíma vildu margir
mig í framboð fyrir Framsóknar-
flokkinn. Þegar skoðanaágrein-
ingur okkar vinstri mannanna í
flokknum við forystuna stóð sem
hæst vildu margir koma á sáttum.
Það var til dæmis ákveðinn hópur
Framsóknarmanna i kjördæmi
Ólafs Jóhannessonar — Norður-
landi vestra — sem vildi fá mig á
lista flokksins með Ólafi við kosn-
ingarnar 1974. Ólafur hins vegar
harðneitaði þessari uppástungu
og kvaðst ekki vilja heyra á það
minnst að við tveir værum á sama
framboðslistanum. Ég heyrði
þessum möguleika ekki hreyft fyrr
en löngu síðar, svo það kom aldrei
til að ég tæki afstöðu til þessa
máls.“
Líklega er það þó heldur ofmælt
hjá Kristni Finnbogasyni að
Möðruvallahreyfingin og vinstri
andstaðan í Framsókn hafi snúist
um Ólaf Ragnar einan, hann hafi
verið ókrýndur leiðtogi. Hann var
vissulega einn helsti hugmynda-
fræðingur hreyfingarinnar og oft
andlit hennar út á við, en þarna
voru líka aðrir menn sem ætluðu
sér stóran hlut og voru í raun ekki
fjarri því að hreppa hann; nefnum
Baldur Óskarsson, Friðgeir
Björnsson, Má Pétursson og
Jónatan Þórmundsson. Það hefur
verið á það bent að það hafi bæði
verið styrkur hópsins og veikleiki
að hann hafi ekki getað sæst á
leiðsögn eins manns, til þess hafi
leiðtogaefnin verið of mörg. Það
hafi enginn verið sjálfvalinn til
þess að kveða upp úr fyrir hönd
hópsins og því hafi í raun hlotið að
koma til uppgjörs fyrr eða síðar.
En það var komin uppdráttar-
sýki í Samtök frjálslyndra
og vinstri manna og þau
fengu hægt andlát á tíma sam-
stjórnar Sjálfstæðisflokks og
Framsóknar 1974—78. Hugmynd-
ir um að Samtökin gætu orðið það
afl sem sameinaði vinstri menn
reyndust heldur haldlitlar, enda
lítill pólitískur vilji fyrir slíkri sam-
einingu eða samstarfi í gömlu
flokkunum. Meðlimir Samtak-
anna og Möðruvallahreyfingar-
innar tvístruðust; sumir höfðu
komið sér út úr húsi víðast hvar og
töldu sig ekki eiga afturkvæmt í
pólitíkina, aðrir urðu hreinlega
fráhverfir stjórnmálum, einstaka
maður sneri hægt og bítandi aftur
í raðir framsóknarmanna, en hjá
flestum stóð valið milli Alþýðu-
flokks og Alþýðubandalags. Al-
þýðuflokkurinn var enn í sárum
eftir ríkisstjórnarþáttökuna löngu
á viðreisnartímanum, en Alþýðu-
bandalagið virtist hafa meiri vaxt-
armöguleika, þrátt fyrir skakka-
föll á tíma vinstri stjórnarinnar
1971—74. Vinstri bylgja sjöunda
áratugarins var langt í frá gengin
sér til húðar og blómatími Alþýðu-
bandaiagsins fór í hönd, þótt hann
reyndist skammær. Ólafur Ragnar
og Baldur Óskarsson völdu Al-
þýðubandalagið. Ólafur gekk í
flokkinn 1976.
Frami hans innan Alþýðubanda-
lagsins varð ógnar skjótur, þótt
sjálfur segi hann að á þessum ár-
um hafi hann helst stefnt að því að
helga sig kennslu og fræðistörf-
um. Margir gamalgrónir Alþýðu-
bandalagsmenn komust að því að
Ólafur ætlaði ekki að vera neitt
skrautblóm, eins og þeir höfðu
kannski vonað. Mörgum líkaði
það miður að slíkur flakkari í
pólitíkinni kæmist til áhrifa jafn-
fyrirvaralaust. í kosningunum
1974 kemst Ólafur inn á þing fyrir
Alþýðubandalagið, fjórði maður á
lista í Reykjavík, í stærsta kosn-
ingasigri sem flokkurinn hefur
unnið.
Og mannvirðingarnar hélt
áfram að reka á fjörur hans. Eftir
kosningarnar 1979 varð hann for-
maður þingflokksins. Á þessum
árum var líka tiltölulega friðlegt
um að litast í Alþýðubandalaginu,
sem er meðal annars þakkað því
að um taumana hafi haldið ákveð-
ið þríeyki manna sem allir höfðu
umtalsverða pólitíska reynslu;
Svavar Gestsson formaður, Ragn-
ar Arnalds og Ólafur Ragnar
Grímsson.
Það fór hins vegar að síga á
ógæfuhliðina fyrir Alþýðubanda-
laginu þegar líða tók á seinni hluta
stjórnarsamstarfsins við Gunnar
Thoroddsen og Framsóknarflokk-
inn. Margir álíta að Alþýðubanda-
lagið hafi gert hrikalega skyssu að
ganga ekki úr ríkisstjórninni strax
haustið 1982. Og þarna var hann
líka að koma upp á yfirborðið
ágreiningurinn um afstöðuna til
verkalýðshreyfingarinnar, sem
líklega hefur leikið Alþýðubanda-
lagið hvað verst — og gert stjórn-
málamanninum Ólafi Ragnari
Grímssyni marga skráveifuna.
að var í forvalinu fyrir Al-
þingiskosningarnar 1983
að fyrst fór að næða veru-
lega um Ólaf Ragnar í Alþýðu-
bandalaginu. Sagan frá framsókn-
arárunum virtist vera að endur-
taka sig; hann var kominn upp á
kant við flokksforystuna. Svavar
Gestsson formaður átti undir högg
að sækja eftir viðskilnað ríkis-
stjórnarinnar og sú kenning fékk
byr undir báða vængi að Ölafur
ætlaði að hirða af honum fyrsta
sætið í Reykjavík. Undir hand-
leiðslu Ulfars Þormóðssonar, eins
helsta stuðningsmanns Svavars,
var róið hart gegn Ólafi og honum
borin á brýn ráðríki og valdafíkn.
Fjórir þingmenn bitust um þing-
sæti sem gátu aldrei orðið fleiri en
þrjú. Svavar Gestsson hlaut fyrsta
sætið, Guðmundur J. Guðmunds-
son annað sætið, Guðrún Helga-
dóttir það þriðja, en Ólafur mátti
gera sér fjórða sætið að góðu, þótt
aðeins eitt atkvæði skildi milli
hans og Guðrúnar. Það stefndi í
fylgistap Alþýðubandalagsins og
nær útilokað að Ólafur næði á
þing. Hann átti í raun í höggi við
tvíhöfða andstæðing; sameinaðan
mátt gamla valdakjarnans i
flokknum og verkalýðsarms sem
beitti sér gegn honum og þá
óskrifuðu reglu að í fyrstu þremur
sætunum í Reykjavík skyldu vera
flokksformaðurinn, ein kona og
einn verkalýðsforingi.
í umtöluðu viðtali sem birtist í
tímaritinu Heimsmynd í fyrra var
Ólafur spurður að því hvort Svav-
ar Gestsson hefði unnið gegn hon-
um í forvalinu 1983. Ólafur Ragn-
ar svaraði þá með því að vitna í
fræg ummæli Jónasar frá Hriflu:
„Skjóta byssurnar sjálfar eða er
þeim miðað?"
Þetta svar vakti litla hrifningu
hjá forystu Alþýðubandalagsins.
Einhvern veginn fer varla hjá
því að orðatiltækið „Enginn
er spámaður í sínu föður-
landi“ komi upp í hugann þegar
litið er á feril Ólafs Ragnars Gríms-
sonar eftir að hann datt út af þingi
1983. Haft er fyrir satt að það hafi
orðið honum þung vonbrigði að
komast ekki á þing, en að vissu
leyti hafa árin utan garðs orðið
honum frekar til álitsauka en hitt.
Þótt menn tækju í upphafi varlega
sögum af frægð Ólafs á vettvangi
alþjóðastjórnmálanna var tæpast
hægt að hunsa það þegar marg-
háttuð verðlaun tóku að hlaðast á
„Parliamentarians for Global
Action", alþjóðasamtök þing-
manna, sem hann er í forsvari fyr-
ir. Þar má nefna Indiru Gandhi-
verðlaunin, sem Ólafur veitir við-
töku siðar á þessu ári, og „Better
World Society'-verðlaunin sem
Ólafur þáði úr hendi Yoko Ono. í
fyrstu vissu menn varla hvernig
þeir ættu að taka þessu brölti í
Ólafi — var valdafíknin í honum
kannski orðin útflutningsvara? —
en nú eru hinir fjölmörgu and-
stæðingar hans Iíklega búnir að
kyngja því að líklega hefur enginn
íslenskur stjórnmálamaður um
langa hríð haft jafnmikil og náin
tengsl við erlenda frammámenn
og þjóðarleiðtoga og einmitt
Ólafur.
Það dugði þó ekki til að fleyta
Ólafi inn á þing í kosningunum í
vor. Eftir talsvert þref féllst hann á
að taka annað sætið í Reykjanes-
kjördæmi í stað þess að sækjast
eftir einu af þremur efstu sætun-
um í Reykjavík. í staðinn var sam-
þykkt stjórnmálaályktun, sem tal-
in var sigur fyrir hann og hin frjáls-
lyndari öfl í flokknum. Það varð
því ekki úr í það skiptið að hreint
uppgjör yrði milli Ólafs og Ás-
mundar Stefánssonar, foringja
verkalýðsarmsins í Alþýðubanda-
laginu. Þeir lágu báðir, Ólafur og
Ásmundur. Flokkurinn beið af-
hroð. Hvellurinn í flokknum varð
eftir kosningarnar. Uppgjöri verð-
ur varla frestað lengur. Alþýðu-
bandalagið á varla annan kost en
að reyna að gera upp sín innri
ágreiningsmál, ef þá á að eiga ein-
hverja von til að rétta úr kútnum.
Aður er vitnað í Kristin
Finnbogason, gamlan
mótherja Ólafs Ragnars
úr Framsóknarfíokknum. Kristinn
hefur látið svo um mælt að enginn
friður verði innan Alþýðubanda-
lagsins fyrr en Ólafur trónir þar á
toppnum. Þar er náttúrlega átt við
að Ólafur muni svífast einskis til
að hljóta æðstu vegtyllur sem
flokkurinn hefur upp á að bjóða.
Samherjar Ólafs í eftirsókninni eft-
ir formannssætinu segja að það sé
hérumbil söguleg nauðsyn að
hann verði formaður, hans tími sé
kominn, það sé hreinlega enginn
annar sem valdi þessu sviptinga-
samastarfi. Forysta flokksins, „hin
ráðandi klíka", leggur alla áherslu
á að koma í veg fyrir að Ólafur nái
kjöri. Margendurtekin ummæli
Svavars Gestssonar um að þeir
skuli draga sig í hlé sem eru
„markaðir af innanflokksátökum"
eru auðvitað ekki annað en bein-
hörð skilaboð til Ólafs Ragnars um
að láta vera. Þar nýtur hún stuðn-
ings Ásmundar Stefánssonar og
verkalýðsarmsins. Þingmenn
flokksins, að undanskilinni Guð-
rúnu Helgadóttur, eru ekki líklegir
til að veita Ólafi brautargengi.
Fylgið yrði hann að sækja neðar,
úr röðum óbreyttari flokksmanna.
Hann hefur óneitanlega styrkt
stöðu sína meðal þessa fólks, eink-
um meðal stuðningsmanna úr
reykvískri millistétt. Honum ætti
líka að vera einhver hjálp í því
hversu klaufalega andstæðingar
hans hafa borið sig í leitinni að
álitlegum mótframbjóðanda.
Hins vegar fer því fjarri að Krist-
inn Finnbogason hafi slegið nagl-
ann á höfuðið þegar hann gerir
því skóna að friður verði í Alþýðu-
bandalagi með Ólaf á toppnum.
Það er ekki ólíklegt að ýmsir for-
ystumenn flokksins í verkalýðs-
hreyfingunni myndu komast að
þeirri niðurstöðu að þeir ættu
enga pólitíska framtíð fyrir sér í
Alþýðubandalagi Ólafs Ragnars
Grímssonar. Ólafur hefur verið
talsmaður aðskilnaðar milli verka-
lýðshreyfingar og flokks og meðal
annars sagt að hann telji sterkara
að forystumenn í verkalýðshreyf-
ingu sem er þverpólitísk sitji ekki
á þingi. Verkalýðsforingjar gætu
því tekið þann kost að róa á önnur
mið verði Ólafur kjörinn formað-
ur. Eins gæti flokkurinn þurft að
horfa á bak einhverjum stuðnings-
mönnum Ólafs — og jafnvel hon-
um sjálfum — ef hann félli eftir
harðan formannsslag.
Herdís Þorgeirsdóttir ritstjóri og
fyrrum nemandi Ólafs Ragnars
Grímssonar við Háskóla íslands
hefur líkt þessum læriföður sínum
við ísbjörn: „Skæður, markviss
drápari, sem getur endalaust synt
í ísköldum sjó. Einfari sem á það
sameiginlegt með kettinum að
hafa gaman af að veiða og gaman
af því að leika sér.“ I Háskólanum
er hann þekktur fyrir að gera
miklar kröfur til nemenda og
miklar kröfur til sjálfs sín. Hann er
stjórnmálafræðingur að mennt og
feiknavel að sér um bæði praktísk
og fræðileg stjórnmál. Hann hefur
lengi verið stjórnmálamaður að
atvinnu og sumir segja að stjórn-
málin eigi hug hans bæði í svefni
og vöku. Það er sagt, honum bæði
til lofs og lasts, að hann líti á stjórn-
málin sem fágað skáktafl. Mestall-
an stjórnmálaferil sinn hefur hann
þó átt í erjum við forystumenn
þeirra flokka sem hann hefur vist-
ast í. Það má spyrja hvort honum
hefðu ekki hlotnast meiri vegtyll-
ur ef hann hefði einfaldlega látið
berast með straumnum. í Alþýðu-
bandalaginu stendur hann aftur í
ekki ósvipuðum sporum og í
Framsóknarflokknum forðum tíð;
á skjön við forystu sem heldur fast
í gamalt ráðslag og stjórnarhætti.
32 HELGARPÓSTURINN