Helgarpósturinn - 17.09.1987, Blaðsíða 19

Helgarpósturinn - 17.09.1987, Blaðsíða 19
um í gang, því vélstjórinn eins og flestir aðrir panikkeruðu og ætlaði frá borði. Að minnsta kosti hélt skip- stjórinn þakkarræðu yfir mér og hrósaði íslenskum sjómönnum al- mennt." Pétur á sem fyrr segir tvo Dalmati- an-hunda, með langa ættartölu á bak við sig. „Þetta eru sérlega þægi- legir heimilishundar sem ekki fyrir- finnast enn á íslandi. Þessi tegund er þekkt fyrir rólegt og gott skap, greind, þol og einstaka tryggð og hlýðni. í Bandaríkjunum gengur þessar stundirnar yfir Dalmatian- æði, þeir eru t.d. mikið notaðir í auglýsingar. ,,Eg sá það í blaði um daginn haft eftir formanni Hundaræktarfélags- ins að mikill vilji væri til að flytja inn þægilega heimilishunda af einmitt þessari millistærð og enn fremur nýjar tegundir. Þegar ég heyri um þessar undanþágur fyrirfólks eða fólks með rétt sambönd verður mér ósjálfrátt hugsað til þess mannorðs sem íslendingar hafa skapað sér í SÓL Þverholti 17-21, Reykjavík HOLDUM LANDINU HREINU indsson, sjómaður með meiru: Ég er eng- dor, nema þá sem sjómaður frá íslandi, en t orð á sér ytra fyrir feikilegan dugnað og KEM EKKIÁN „BARNAy/ MINNA — segir Pétur Gudmunds- son í Seattle, sem uill heim á ný, en ekki án Dalmatian-hunda sinna, Fríðu og Helgu. „Eftir átta ára fjarveru frá Islandi hreinlega vard ég að koma í heim- sókn og ég varö strax það hrifinn af þeim breytingum sem orðið hafa, að ég fór að athuga rneð atvinnutœki- fœri og annað sem því fylgir að flytja heim á ný. Auðvitað fylgja því vandkvœði, en verst er þó að engin leið virðist að fá leyfi til að flytja inn ,,börnin“ mín, Dalmation-hundana sem ég hreinrœktaði, Fríðu og dótt- ur hennar Helgu. Og það kemur bara ekki til mála að koma án þeirra, þótt ég feginn vildi koma til landsins alfluttur." Þetta sagði Pétur Guðmundsson í samtali við Helgarpóstinn, en hann er búsettur í Seattle í Bandaríkjun- um og var nýlega í heimsókn hér á landi. Um árabil hefur Pétur stund- að sjómennsku út af ströndum Alaska, Hawaii og víðar, eins og reyndar margir aðrir íslendingar, sem eru eftirsóttir í fiskveiðarnar sökum dugnaðar og atorku. „Mér skilst á yfirvöldum að í raun gæti komið til að ég fengi undan- þágu, en vandamálið er að engin einangrunaraðstaða er fyrir hendi. Því er öllum umsóknum hafnað er mér sagt — en mér er sagt af öðrum að leyfi hafi samt sem áður verið gefið og hundar settir í sóttkví í heimahúsum. Það munu aðallega vera ambassadorar og annað fyrir- fólk sem fær undanþágu. Og ég er enginn ambassador, nema þá á þann hátt að vera einn af mörgum „fulltrúum" íslands í sjómennsk- unni við Aleutian-eyjar hjá Alaska. íslenskir sjómenn hafa orð á sér fyrir að vera hörkuduglegir, afkasta- miklir, miklar aflaklær og aldeilis óhræddir við veðurofsann sem oft ríkir á þessum slóðum. Nýlega mátti lesa um þegar Kristján Olgeirsson, kunningi minn, bjargaðist úr sjó þarna eftir nokkurra tíma volk og veit ég persónulega um tvo íslend- inga sem hafa farist við þessar veið- ar. Ekki mátti muna miklu hjá mér fyrir nokkrum árum þegar báturinn fór að taka inn á sig. Þótt ég segi sjálfur frá var það fyrir mitt snar- ræði að það tókst að koma dælun- sjómennskunni ytra. Fyrir þetta mannorð ættum við kannski öllu frekar að fá undanþágu til að flytja inn hunda okkar en sumir aðrir! Nú er ég orðinn ástfanginn af landinu upp á nýtt og ekkert stendur í vegin- um fyrir því að koma heim — nema þetta með „börnin" mín, Fríðu og Helgu," sagði Pétur. 'FUNPA&AUN/ NÚNA er veríð að selja milljónustu SÓLDÓSINA! Á örfáum vikum hefur Sól sent frá sér 1.000.000 (eina milljón!) Sóldósir. Af því tilefni færum við öllum stuðnings- mönnum okkar þessi skilaboð: Bestu þakkir! Það er meira á leiðinni!!! Og ekki nóg með það. Við heitum fundarlaunum handa þeim sem finnur milljónustu Sóldósina!!! 100.000 kr. Peningarnir eru þínir ef þú finnur dósina og skilar henni á Sól- safnið. Svona ferð þú að því: Allar Sól- dósir eru merktar á botninum með tveim talnalínum. Ef í seinni línunni ertþú 100.000 kr. ríkari. Aðeins ef þú skilar okkur dósinni! Og mundu: Við vitum ekki hvort milljónasta dósin er með Sól - Cola, Grape eða Límó—með eða án NutraSweet. En við erum vissir um að þú kemst að því! r U fó á ít Nepal er sjálfstætt konungsríki undir stjórn Prithvi Narayan shah hins mikla og er í hjarta Asíu. Staðsett í hlíðum Himalayafjalla, býður það upp á fjöldan allan af fallegum vötnum, fjöllum. fossum. hofum. fornri menningu og grænum dölum. Fararstjórn er í höndum Sigurðar A. Magnússonar rithöfundar sem skrifaði m.a. bókina. Við elda Indlands. 3 vikna ferð og brottför 6. febrúar. Ferðaskrifstofan Ifarandi Vesturgotu 5. Reykjavik simi 622420 HELGARPÓSTURINN 19

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.