Helgarpósturinn - 17.09.1987, Síða 9
TOLLUR LÆKKAÐUR
MEÐ TILFÆRINGUM
TOLLYFIRVÖLD GETA EKKI KOMIÐ í VEG FYRIR AÐ MENN FLYTJI
FLUTNINGSKOSTNAÐ MILLI VÖRUFLOKKA TIL AÐ KOMAST HJÁ ÞVÍ AÐ
GREIÐA TOLLA.
„Við höfum enga adstödu til þess
að fylgjast med þuí ad uerð á frakt sé
notað til þess að lœkka tolla," sagði
Matthías B. Stefánsson, deildarstjóri
tollstjóraembættisins í Reykjavík, í
samtali við Helgarpóstinn.,, Við get-
um og höfum gert athugasemdir og
krafist leiðréttinga í nokkrum tilfell-
um, en þau eru öll einstök og I Iitl-
um mœli," bœtti hann uið.
Tollar og önnur aðflutningsgjöld
leggjast ofan á heildarinnflutnings-
verð vöru. Inni í því verði eru frakt-
kostnaður, flutningskostnaður er-
lendis, jafnt sem umboðslaun og hið
raunverulega kaupverð erlendis.
Verð á frakt frá sömu höfn er mjög
mismunandi eftir vöruflokkum og
þessi mismunur hefur orðið enn
fjölbreytilegri með harðnandi sam-
keppni. Það er því nær útilokað fyr-
ir tollyfirvöld að koma í veg fyrir að
fraktkostnaður sé fluttur frá hátolla-
vörum yfir á vörur er bera litla eða
enga tolla.
Flutningskostnaður frá höfn er-
lendis og til Islands getur numið allt
frá innan við 10 prósentum af inn-
flutningsverðinu og upp fyrir 100
prósent. Innflytjandi sem getur fært
flutningskostnað á milli vöruflokka,
en greitt eftir sem áður sama heild-
arverðið fyrir flutninginn, getur
þannig lækkað tollinn sinn umtals-
vert.
Tökum dæmi:
Innflytjandi flytur inn tvo vöru-
flokka. Annars vegar vöru sem ber
100 prósenta toll. Hins vegar toll-
frjálsa vöru. Með því að setja megn-
ið af kostnaði vegna flutninganna á
tollfrjálsu vöruna getur hann lækk-
að tollinn á vörunni sem ber 100
prósenta toll um allt að þriðjungi.
Eins og fram kemur í máli Matthí-
asar B. Stefánssonar hér að ofan
hafa tollyfirvöld gert athugasemdir
við fraktkotsnað í einstaka tilfelli.
Samkvæmt upplýsingum Helgar-
póstsins var eitt dæmið þannig til
komið að forstjóri innflutningsfé-
lags óskaði eftir afslætti á frakt-
kostnaði hjá skipafélagi vegna inn-
flutnings á einkabíl sínum. Bílar eru
tiltölulega hátt tollaðir, svo í þessu
dæmi var um nokkra tugi þúsunda
í tollgreiðslur að ræða. Tollyfirvöld
gerðu hins vegar athugasemdir við
þetta og ákvörðuðu síðan sjálf
ákveðinn fraktkostnað.
Það getur hins vegar reynst erfitt
tollyfirvöldum að koma auga á slík-
ar tilfæringar milli vöruflokka hjá
stórum innflytjendum. Að sögn
embættismanna tollstjórans í
Reykjavík er það svo til ómögulegt.
Þar hafa menn glímt við umboðs-
greiðslur og flutningskostnað er-
lendis. Það er almennt viðurkennt
að það tíðkast að greiða slíkan
kostnað fram hjá tollskýrslum til
þess að lækka tolla. Tollayfirvöld
hafa í raun hvorki mannskap né
getu til að koma í veg fyrir slíkt.
-gse
Björn Þórhallsson: „Heildarhækk-
un kemur ekki til greina."
BJÖRN GRÉTAR FORMAÐUR JÖKULS
Höfum sjálfir sterka samningsaðstöðu
„Við höfum mjög sterka samn-
ingsaðstöðu sjálfir og förum ekkert
að bakka með hana. Við teljum
okkur geta samið fiskuinnslufólk
upp í fjórða flokk og förum ekki að
fallast á að þuí verði stillt upp í
þriöja flokk," sagði Björn Grétar
Sveinsson, formaður verkalýðsfé-
lagsins Jökuls á Höfn, þegar HP leit-
aði eftir áliti hans á stöðu mála inn-
an Verkamannasambandsins. „Viö
fengum í gœr I hendur samþykkt
framkvœmdastjórnar og ég uerð að
segja að við fyrstu sýn líst okkur alls
ekki vel á hana. Þar er ekkert sem
kemur fram varðandi fiskvinnslu-
fólkið."
Þegar höfð eru í huga ummæli
Guðmundar J. Guðmundssonar, for-
manns Verkamannasambandsins, í
fjölmiðlum, þar sem hann hefur lýst
því yfir fullum fetum að kröfu þeirra
sem gengu út af formannafundi
sambandsins hafi verið hafnað, og
síðan ummæli Björns hér að ofan,
verður ekki annað skilið en að sam-
flot í samningum sem fyrir hendi
eru sé vonlaust.
Björn taldi þó ekki að Verka-
mannasambandið væri að klofna
vegna þessa máls, hann minnti á að
Dagsbrún hefði klofið sig úr sam-
bandinu i fyrra og gengið til sér-
samninga, án þess að sambandið
hefði klofnað. Hann sagði þó að
launþegasamtökin yrðu að aðlaga
sig tímanum og breyta skipulagi
sínu. Samtök fiskvinnslufólks væru
ein leið til slíks. Hann sagði einnig
að vissulega væri ágreiningur um
leiöir, slíkt væri eðlilegt, en hann
skildi hinsvegar ekki hvernig menn
gætu sett sig á móti því að fisk-
vinnslufólk yrði grunnað í efsta
flokk þeirra sem Verkamannasam-
bandið semur um. Einkum þegar til-
lit væri tekið til þess að verkalýðs-
forystan hefði í orði kveðnu haft
uppi þá stefnu að fiskvinnslufólk
þyrfti að fá mest í komandi samn-
ingum.
KK
m
væri möguleiki, sagði Þröstur, að
fara þá leið að sumir fengju meira
en aðrir. Þröstur sagði ennfremur
að ef þeim tækist ekki að gera
samning samhliða því að vísitölu-
hækkunin gengi yfir myndi engin
leiðrétting nást fram og ef ASI
kæmi fram með kröfur eftir ára-
mót, þegar samningar verða laus-
ir, þá þýddi það að allir í þjóðfélag-
inu fengju það sem þeir semdu
um. Björn Þórhallsson, varaforseti
ASÍ, sagði að slík hækkun þýddi
án efa gengisbreytingu og þar
með væri ekki verið að bæta hag
þeirra sem verst væru settir fyrir.
Hann sagðist fyrir sitt leyti vera
afar andsnúinn heildarhækkun,
enda myndi hún ekki þýða neina
kaupmáttaraukningu.
Af þessu má vera Ijóst að ASl er
í klemmu um þessar mundir. Þeir
geta ekki, þrátt fyrir að eiga odda-
mann í launamáíanefnd, látið vísi-
töluhækkunina koma til fram-
kvæmda án þess að gera samhliða
henni kjarasamninga, þar sem
hinum lægst launuðu yrðu tryggð-
ar bætur vegna verðhækkana,
sem þegar hafa orðið. Á hinn bóg-
inn er ljóst að almennir félagar í
ASÍ munu ekki láta það óátalið að
vísitöluhækkunin verði tekin af
þeim, að hluta eða í heild. í samtali
serh HP átti við Björn Grétar
Sveinsson, formann verkalýðsfé-
lagsins Jökuls á Höfn, kom fram,
að hann teldi að þeir ættu þessa
hækkun og að hann tryði því ekki
á nokkurn mann innan verkalýðs-
hreyfingarinnar að þeir færu að
versla með vísitöluhækkunina,
sem félagsmenn ættu að fá sam-
kvæmt núgildandi kjarasamn-
ingum.
Fóðraðir, ítalskir
gæðaskór frá
campos
HIGH TECHNOtOGY
IN SHOES MANUFACT
Svart leður og
vaskaskinn.
m/gúmmisóla.
Stærðir 41-46.
Verð kr. 2.980,-
Svört
mokkasfa
Mr vaskaskinnl
m/gúmmisóla.
Stærðir 41-46.
Verð kr. 2.980,-
Svart leður
m/gúmmfsóla.
Stærðir 36-46.
Verð kr. 2500,-
Svart vaskaskinn
m/gúmmísóla.
Stærðlr 41-46.
Verð kr. 2980,-
Skóbúðin,
Snorrabraut 38
Sími 14190.
Skóbúðin Lipurtá
Borgartúni 23.
Sími 29350.
Póstsendum
HELGARPÓSTURINN 9