Helgarpósturinn - 17.09.1987, Qupperneq 20

Helgarpósturinn - 17.09.1987, Qupperneq 20
ÉG SVAF EKKERT í NÓTT!!! ,,Eg hef ekkert sofiö í nótt!" Hver kannast ekki vidyfirlýsingu afþessu tagi, annadhvort frá sjálfum sér eda ödrum? Svefnleysi er nokkud al- gengur kvilli medal fólks í nútíma- þjódfélagi, en er síöur en svo nýtt fyrirbrigði. Öldum saman hefur fólk notað efni til að geta sofnað. Á sex- tándu öld notuðu Astekar í Mexíkó sérstaka sveppi sem svefnlyf og Austurlandabúar gœddu sér á hassi og ópíum til að festa svefn. Nútíma- fólk fœr sér áfengi eða tekur inn svefnlyf. En hversu algengar eru fullyrð- ingar á borð við þá sem fyrst er getið? Hún er mjög algeng. Stað- reyndin mun hins vegar sú að þeir eru fáir sem sofa ekkert á nóttunni. Þeir hinir sömu eiga hins vegar erf- itt með svefn og sofa afar lítið, vakna þreyttir og illa fyrirkallaðir og finnst sem sér hafi ekki komið dúr á auga. Fólk reynir að leysa vandann á ýmsan hátt. Algengasta leiðin til að sofna er að fá sér áfengi. Það veldur syfju, sé það tilgangur- inn og þess neytt í ró rétt fyrir svefn. Gallarnir eru hins vegar fleiri en kostirnir. Áfengið truflar svefn og fólk vaknar fyrr. Hver þekkir ekki tilfinninguna að vakna eldsnemma morguns eftir áfengisneyslu? En eru svefnlyf notuð of mikið á íslandi? Til þess að leita svara við þeirri spurn- ingu var rætt við Ottar Guðmunds- son lœkni á sjúkrastöð SÁÁ á Vogi. ,,Það er talsverð ofnotkun á ró- andi lyfjum og svefnlyfjum hér á landi. Árlega koma á Vog um það bil 400—500 manns sem misnota lyf eins og diazepam og skyid lyf. Þessi lyf eru ekki eingöngu notuð fyrir svefn heldur allan sólarhringinn." Er algengt að fólk œtlisér að nota svefnlyf einungis í stuttan tíma en verði síðan háð þeim? ,,Já, ofnotkun róandi lyfja byrjar einmitt þannig. Þá eru notuð slak- andi lyf og svefnlyf og það endar oft með því að þau eru notuð meira og minna allan sólarhringinn." Veistu hve margir úr neytenda- hópnum verða háðir svefnlyfjum? „Nei, ég held það séu engar tölur til yfir það. Að minnsta kosti þekki ég ekki til þess. En þetta eru talsvert Hvers vegna í ósköpunum tókstu ekki svefnpillu? Eða fékkst þér í glas? Þó hefðirðu sofnað... Algengar lausnir á vandamálinu ,,svefnleysi“. En gerir fólk sér grein fyrir hættunni sem af svefnlyfjum stafar? Kvídi, spenna, titringur og ofheyrnir eru meöal þeirra fráhvarfseinkenna sem svefnlyf valda. BÖN- OG ÞVOTTASTÖÐIN ÖS veitir eftirtalda þjónustu: tjöruþvott, djúphreinsun teppa og sœta, mótorþvott. Mössum lökk, ' bónum og límum ö rendur. Opiö virka daga kl. 8—19. Opiö laugardaga kl. 10-16. Bón- og þvottastöðin Ós, Langholtsvegi 109 Sími 688177 Kennsla hefst mánudaginn 21. sept. Fjölbreytt og skemmtilegt kerfi fyrir alla aldurshópa. Innritun og upplýsingar í sima 38360 kl. 15-19 virka daga. Afhending skírteina laugardaginn 19. sept. kl. 13-16. k.A Ballettskóli ik Eddu ^ Scheving Skúlatúni 4 Meðlimur I Félagi íslenskra listdansara og Danskennarasambandi íslands mikið notuð lyf — og misnotuð." Aukaverkanir af þeim? „Fólk vaknar timbrað. Það vaknar upp með fráhvarfseinkenni. Þetta eru timburmannafráhvarfseinkenni vegna þess að þessi lyf breyta svefn- „rytmanum" sem slíkum þannig að fólk sefur öðruvísi og hvílist oft verr. Þá ber oft á skapgerðarbrestum, þunglyndi og grátköstum hjá fólki sem notar svefnlyf að staðaldri." Afengi er mikið notað til að ná svefni. Hafa svefnlyfin einhverja kosti fram yfir áfengi ef svo má að orði komast? • „Það sem er hollast er auðvitað að taka ekkert inn fyrir svefn!“ Hvað getur fólk gert sem á erfitt með svefn? „Það er ýmislegt hægt að gera og svefnlyf eiga aðeins að vera neyðar- úrræði. Því miður er það hins vegar oft fyrsta úrræðið sem læknar til- reiða fyrir sjúklinga sína. Meðal þess sem gott er að gera er að reyna á sig líkamlega, fara í heitt bað eða slökun, hvorki reykja né drekka kaffi o.s.frv. Þetta eru aðferðir sem ganga út á heilbrigt líferni." Niðurstöður rannsókna sem gerð- ar voru á svefnlyfinu halcion leiddu í Ijós að þeir sem neytt höfðu þess svefnlyfs fóru að gleyma . . . „Halcion hefur hvað stystan helmingunartíma allra þessara lyfja sem þýðir það að líkaminn er mjög fljótur að skilja út halcion-lyfið. Aft- ur á móti er það lyf mikið misnotað hér á landi og ef það er ekki auka- verkun þá veit ég ekki hvað auka- verkun er. Ég hef ekki orðið var við að lyfið valdi gleymsku. Hins vegar koma í ljós einkenni sem fylgja neyslu þessara lyfja s.s. sljóleiki, þreyta og skert einbeiting." Er erfitt að venja sig af svefn- lyfjum? „Já, það getur verið mjög erfitt. Helmingunartími þessara lyfja er mjög langur. Þau eru lengi að skilj- ast úr líkamanum og fólk er lengi í fráhvarfi eftir þessi lyf. Fráhvarfs- einkenni eru oft mjög erfið og reyndar það erfið að einstaklingur sem er að venja sig af þessum lyfjum telur sér trú um að hann geti alls ekki vanið sig af þeim.“ Hvernig lýsa fráhvarfseinkennin sér? „Fráhvarfseinkenni eru yfirleitt mikill kvíði, spenna, titringur, skjálfti, sviti, ógleði, uppköst, kláði, ofheyrnir, minnstu hljóð heyrast sem mikill hávaði og ljósfælni." Eftir hversu langa notkun svefn- lyfja má búast við fráhvarfsein- kennum? „Fólk getur fengið einhver frá- hvarfseinkenni eftir mjög skamma neyslu þessara lyfja. Það fær það sem kallast „rebound effect", þ.e. gömlu einkennin koma aftur af tví- efldum krafti. Tökum sem dæmi manneskju sem sefur ekki nema sex klukkustundir á sólarhring. Hún leitar til læknis og fær svefnlyf. Við inntöku þeirra nær hún átta klukku- stunda svefni. Þessi lyf notar mann- eskjan í hálfan mánuð og hættir þá. Þá fer hún yfirleitt ekki niður á sex tímana, heldur sefur eingöngu í fjór- ar klukkustundir. Þá hugsar fólk með sér: Nú sef ég bara í fjórar klukkustundir, áður svaf ég þó í sex! Þetta veldur því að fólk telur sér trú um að það geti ekki án svefnlyfja verið, byrjar að taka þau að nýju, reynir að hætta og þannig heldur hringurinn áfram. Þessi fráhvarfs- einkenni hverfa með tímanum og fólk þarf að sýna þolinmæði." Hvaða svefnlyfer algengast hér á landi? „Mogadon er langalgengasta svefnlyfið hér. Hefmingunartími þess er mjög langur." Setjum svo að fólk verði að taka svefnlyf vegna aðstœðna, t.d. efþað verður fyrir áfalli eða annað slíkt? „í undantekningartilfellum finnst mér mega nota svefnlyf að mjög vel yfirveguðu ráði, en ekki lengur en í eina viku. Þá ættu fráhvarfsein- kenni ekki að vera alvarleg. Helst á fólk ekki að nota svefnlyf. Það á að reyna aðrar aðferðir því þær eru margar til. Það hefur enginn dáið af svefnleysi." Samkvæmt þessum upplýsingum virðist ljóst að fólk ætti að hugsa sig um oftar en einu sinni og oftar en tvisvar áður en það grípur til þeirra ráða að taka svefnlyf. Aukaverkan- irnar eru nefnilega mun alvarlegri og meiri heldur en sú vanlíðan sem fylgir því að vera syfjaður einn dag. AKM Til sölu Traktorsgrafa Massey Ferguson 70 árgerð 1975 í mjög góðu standi. Upplýsingar í síma 83151. 20 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.