Helgarpósturinn - 17.09.1987, Page 28

Helgarpósturinn - 17.09.1987, Page 28
BRIDGE eftir Hermann Lárusson Sveit Flugleiða vann bikarinn Undanúrslit og úrslit í bikar- keppni BÍ voru spiluð sl. helgi. „Stormsveit" Flugleiða, skipuð Jóni Baldurssyni, Sigurði Sverris- syni, Aðalsteini Jörgensen, As- geiri Þ. Ásbjörnssyni, Val Sigurðs- syni og Ragnari Magnússyni, stóð eftir ósigruð. Þeir félagar eru því handhafar bikarsins 1987, en sveitin vann einnig í fyrra, þá undir nafni Sam- vinnuferða. í undanúrslitum áttust við Ás- grímur Sigurbjörnsson, Siglufirði, og Sigurður B. Þorsteinsson, Rvk., og hinsvegar Örn Arnþórsson og Flugleiðir. Sveit Sigurðar B. vann sína við- ureign með 28 impa mun, eftir slæma byrjun. Sveit Flugleiða vann allar loturnar í landsliðsupp- gjörinu og leikinn með tæplega 50 impum. Liðsuppstillingin var ,,a la Brighton", allar 4 loturnar. Hér er sakleysislegt spil úr leik Arnar og Flugleiða. A gefur/O: ♦ 97 KG104 ♦ 1043 ♦ KG53 ♦ KDG852 ♦ - OÁ732 D865 ❖ 2 O ÁG97 + 98 + Á10762 ♦ Á10643 O 9 O KD865 + D4 sveit Sigurðar B. Þorsteinssonar. Hér er annað spil sem lætur lítiO yfir sér: ♦ KG10 ♦ D54 ^ 1052 O ÁG863 O D64 O 7 + Á1093 + KG75 Eftir tvö pöss vakti Ásgeir í A á 1-hjarta. S 2-hjörtu (spaði og láglit- ur). Aðalsteinn í V 3-hjörtu. Pössuð út. Það er rétt að upplýsa að inná- koman lofar í flestum tilfellum 5-5. Útspil suðurs var tígul-2. N fékk á gosa og hélt áfram með ás á tromp. Ásgeir spilaði nú trompi að heiman. S vann á drottningu. Tíg- ulkóngur fékk að eiga næsta slag, Ásgeir kastaði spaða til að geta ráðið við trompið 4-1. S tók næst á spaðaás, sem gafst ekki vel og hélt síðan áfram með tígul í tvöfalda eyðu, besta vörn. Ásgeir trompaði í borði og kastaði laufi heima. Hann var nú á krossgötum. Það sýnist rökrétt að spila STRAX lauf-10 og síðan tromp-10. (Ef N leggur á laufdömu er laufkóngur næst yfirtekinn með ás og þú hefur yfirhöndina, þ.e. ef þú gætir þess að grýta laufgosa í tígulkóng!!!) Ásgeir reyndi fyrst tromp-10, kóngur og ás. Nú var Ásgeir í þvingaðri stöðu: Laufkóngur og laufgosi. . . drottning birtist í Suð- ur! Lauftía sá fyrir 7. slagnum og trompkúppið fyrir þeim 8. og 9. Vel leikið! í lokaða salnum keyrðu Hjalti Elíasson og Ásmundur Karlsson AV-spilið í 4-hjörtu, sem Sigurður Sverrisson í N doblaði. 100 til NS. í opna salnum hófust sagnir eins, uns breytti um átt. N A S V Guðl. Ásgeir Örn Aðalst. 1-T 1-S pass pass dobl 2-T dobl! Dobl Aðalsteins hafði ekkert með tígul að gera, en ábyrgðist vörn gegn hugsanlegum spaða- samningi! Ásgeir ákvað að láta kyrrt liggja. Með laufi út virðist stefna í 300, en Aðalsteinn valdi trompinnspil- ið; og nían kostaði drottningu. Laufdrottning átti næsta slag. Þá I lokin spil sem bauð upp á tak tísk færi í sókn og vörn. N gefur/AV á: ♦ Á5 Á97632 ❖ K + G973 + K10 ♦ DG8743 <9 1084 5 O ÁG106 O D82 + ÁD62 +K105 ♦ 962 <Þ KDG O 97543 + 84 hjarta-9 sem fór hringinn. Asgeir fékk á drottninguna. Nú er líklega öruggast að leggja niður laufás og spila síðan trompás og gosa og sætta sig við einn niður, skiptingin í S er orðin Ijós. En Ásgeir spilaði trompgosa. Örn vann og skilaði trompi til baka á ás. Ásgeir skipti í hjarta og Örn var feginn að losna við einn spaðatapara. Aðalsteinn fékk því á ás og spilaði laufi á ás fé- laga. Spilamennskan fram til þessa hafði tekið um 15 mínútur, þegar Ásgeir, nauðbeygður, spilaði sig út á tígul-7. Örn var of fljótur að seilast eftir áttunni. Tveir tapslagir á spaða urðu ekki umflúnir. 100 til AV. EF Örn leyfir tromp-7 að halda slagn- um er borðið skyndilega 3ja slaga virði! Spilið vinnst. Sveit Flugleiða náði strax ör- uggri forystu í úrslitunum gegn í lokaða salnum vakti Ásgeir á 1-hjarta. Sigurður B. 2-spaða og Aðalsteinn í S 2-Gr. sem sýndi lélega hjartahækkun. Guðni Þorsteinsson í V lét 3-spaða duga. Meira en lítið hæglæti í stöðunni. 170. 1 opna salnum vakti Haukur Ingason einnig á 1-hjarta. Jón Bald. stakk inn 1-spaða. Runólfur Pálsson hækkaði í 2-hjörtu og 3-hjörtu hjá Val Sigurðssyni í V. Tækifærið var nú hjá Hauki. Með spaðaás og möguleika á 2 hjarta- slögum í vörn gegn 4-spöðum er tígulútspil aðkallandi. 4-tíglar er taktískt góð sögn í stöðunni. En Haukur valdi 4-hjörtu og Jón Bald- ursson fékk síðan 11 slagi í spaða- geiminu, eftir hjartaútspil. Það gefur EKKI bestar vinningslíkur að stinga upp ás, eftir tígulútspil, ef N notar tækifærið. i í myrkri gildn að sjást. Notaðu endurskinsmerki! M | UMFERÐAR Famrheifíf\ Uráð ZSZtI? ÍÞRÓTTIR Þrumusumar í boltanum — Keppnin í 2. deild var œvintýraleg — 1. deildin fyrirsjáanlegri — sóknarbolti í hávegum haföur Það hefur varla farið framhjá neinum að knattspyrnu- vertíðin er að lokum komin. Lokið er Ieikjum í deilda- keppninni og aðeins eftir að fylgjast með útreið íslensku liðanna í Evrópukeppninni (fyrri leikirnir eru búnir er þetta birtist). Að lokinni slíkri vertíð sem þessari er ekki úr vegi að líta yfir sumarið og velta sér upp úr hinu og þessu sem setti svip og ekki svip á sumarið. Pétur Ormslev og McLintock. FYRIRSJÁANLEG 1.DEILD Eins og svo margir spekingar sáu fyrir voru það Valsmenn sem sigr- uðu í deildinni á afar sannfærandi hátt. Liðið leiddi deildina nánast allan tímann og eftir að KR-ingar „skitu í buxurnar" um miðbik móts- ins var nokkuð Ijóst að Ieikurinn var Valsmönnum auðveldur. Lið Vals er skipað gífurlega reyndum leik- mönnum sem allir kunna sitt hlut- verk. Liðskipan Vals breyttist ekkert að ráði yfir sumarið og meiðsl settu ekkert strik í reikning þeirra. Jafnt og gott sumar skilaði þeim titli. Frammarar voru daprir í byrjun móts og skorti þá verulega á sóknar- menn liðsins. Þá kom Raggi Mar- geirs til bjargar og síðan Gummi Steins. Árangurinn varð bikarmeist- aratign og annað sætið í deildinni. Skagamenn voru Þórsurum sterkari í baráttunni um UEFA-sæti og kom það mér bæði á óvart og ekki. Gömlu brýnin hjá Skaganum eru seigari en allt seigt og á Skaganum eru gerðar slíkar kröfur að UEFA- sæti þykir lítið. Þórsarar ollu mér vonbrigðum en um mitt mót sá ég fyrir mér lið sem væri líklegast til að velgja Valsmönnum undir rassi. Þórs-Iiðið hefur þó þann galla að ef illa gengur skortir oft manndóm í liðið til að ná sér upp úr eymdinni. Þannig hætta sumir leikmenn að einbeita sér að leiknum og nöldur í dómara og annað í þeim dúr verður fótboltanum yfirsterkara. FH-ingar féllu í 2. deild á knatt- spyrnulegri getu sem ekki mörg lið geta státað af. Liðið var hinsvegar algjörlega „karakterlaust" og það að missa unna leiki niður í jafntefli eða tap trekk í trekk kostar bara sæti í deildinni. Haldi þeir Hafnfirð- ingar hinsvegar utan um sína menn á næstu árum og komi upp féiags- legri aðstöðu í Krikanum er framtíð- in í lagi. Eitt mark varð Garðsbúum að falli og nú er draumurinn úti í bili. Eitt verður þó að segjast um Garðinn, sem ekki á við mörg önnur lið. Þeir gefast ekki upp. Að koma úr 0-5-tapi í úrslitaleik bikarkeppninnar og vinna Skagamenn á þeirra eigin heimavelli 4-3 er nokkuð sem að- eins örfáum liðum gæti tekist. Það sýnir svo ekki verður um villst að Garðsbúar taka knattspyrnuna al- varlega. Völsungar héldu sæti sínu í deild- inni — naumlega. Liðið byggði á gömlum jöxlum sem stóðu fyrir sinu þegar á reyndi. Þeir Húsvíkingar eiga hrós skilið en vel þarf að halda á hlutunum á þeim bæ til að halda liði í 1. deild. Keflvíkingar og KR-ingar voru vonbrigði ársins. KR-ingar spiluðu fínan fótbolta í upphafi móts og unnu leiki. Þegar þeir spiluðu síðan fínan fótbolta í seinni hluta mótsins töpuðu þeir — gengi KR-inga var skrítið og kann ég enga skýringu þar á. Keflvíkingar voru án varnar í mörgum leikja sinna og á þeim bæ var líka skipt um „stjóra" sem hafði sitt að segja er upp var staðið. ÓTRÚLEG 2. DEILD Keppnin í 2. deild var ótrúlega spennandi og réðst ekki fyrr en með tveimur úrslitaleikjum í síðustu um- ferð. Það leit reyndar ekki út fyrir spennandi keppni eftir nokkrar fyrstu umferðirnar. Þá voru Víking- ar komnir með 19 stig en næsta lið var einum sjö stigum á eftir og Sel- fyssingar, sem spiluðu til úrslita við Víkinga síðastliðinn sunnudag, höfðu þá aðeins 9 stig. Þessi forysta Þorgrímur fyrirliði Vals með íslands bikarinn. Víkinga lá að miklu leyti í ótrúlega auðveldri uppröðun leikja í fyrstu umferðunum. En síðan mættu Vík- ingar í sinn fyrsta verulega útileik á grjótinu á Ólafsfirði og steinlágu. Þá vöknuðu hin liðin af svefni og nánast helmingur af liðum deildar- innar komst í efsta sæti hennar um tíma. Að lokum voru það malarpilt- arnir frá Leiftri sem komu, sáu og sigruðu bísperrta Þróttara á þeirra eigin heimavelli undir kröftugum hvatningarópum frá áhorfendum sem fæstir sáu leikinn sökum skelfi- legra vallaraðstæðna. Ég var reynd- ar ekki hissa á að sjá Leiftur sigra í þessum leik. Það fyrsta sem blasti við augum er á völlinn kom voru nokkrir Þróttarar sem sökum leikbanns og meiðsla voru ekki í 11 manna liði dagsins. Þessir piltar veittu lítinn móralskan stuðning þeim piltum er á vellinum strituðu, heldur helltu í sig kóki og öli og ömuðu sínum mönnum. Hvatning og samkennd einkenndu hinsvegar malarpiltana frá Ólafsfirði og því fór sem fór. Selfyssingar voru hársbreidd frá því að gera deildina að ævintýra- deild. Þeir máttu þó bíða lægri hlut fyrir skynsömum Víkingum í loka- leiknum þar sem keppt var fyrir framan ótrúlegan áhorfendafjölda og lætur sennilega nærri að hálfur Selfossbær hafi komið til að styðja við bakið á sínum mönnum. Frammistaða Leifturs og Selfoss og ekki síður stuðningsmanna þessara liða verður í minnum höfð. Einherji féll í 3. deild á 19 stigum en það er næsta ótrúlegt. Þó ber að hafa í huga að næsta lið var með 25 stig svo töluvert vantaði upp á hjá þeim Vopnfirðingum. ísfirðingar voru með áberandi lakasta liðið í deildinni og sönnuðu endanlega að vera þeirra í 1. deild fyrir örfáum árum var byggð á sandi. BETRI KNATTSPYRNA Knattspyrnan í 1. og 2. deild var góð í sumar. Lið virðast leggja mikið upp úr góðum sóknarleik og þó að íslandsmeistararnir hafi unnið sinn titil á góðum varnarleik fyrst og fremst var það sóknarknattspyrnan sem réð ríkjum. Ein af ástæðum þessa er eflaust þriggja stiga reglan sem nú virðist endanlega hafa unn- ið sér sess og viðurkenningu á með- al leikmanna og þjálfara. Önnur ástæða góðu knattspyrnunnar var endurkoma nokkurra af „útlending- unurn" okkar, s.s. Péturs Pétursson- ar, Sœvars Jónssonar, Ragnars Mar- geirssonar og Gudmundar Steins- sonar. Þjálfarar liðanna virðast einnig hafa lagt sitt af mörkum til að ná fram skemmtilegri knattspyrnu með uppstillingum á sóknarliðum fyrst og fremst. Þá er að skila sér upp í meistaraflokk gott unglinga- starf margra félaga svo og landsliðs- starf KSI með yngri landsliðin. Margir efnilegir leikmenn litu dags- ins Ijós og frammistaða íslenska OL- landsliðsins gegn A-Þjóðverjum ber okkar ungu leikmönnum gott vitni. Þar spiluðum við íslendingar á ný með hjarta og sál og höfðum einnig getu til að láta boltann ganga þegar við átti. A-landsliðið háði erfiðan leik við nágrannana Norðmenn í Evrópu- keppninni og bar sigur úr býtum, 2-1. Þessi leikur var spilaður af skyn- semi. Eftir að hafa horft undir iljar Norömanna allan fyrri hálfieik bit- um við frá okkur og náðum forystu. Eftir það spilaði íslenska liðið skyn- samlega en vissulega leiðinlega. En eftir 0-6-ófarirnar gegn A-Þjóðverj- um í vor var þetta skiljanleg spila- mennska. Að ætla að fara að taka Norsarana á beinið og í nefið var óðs manns æði og því var sigurinn mikilvægari fótlistinni. 28 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.