Haukur - 01.01.1908, Síða 8

Haukur - 01.01.1908, Síða 8
HAUKUR, Farið, og gætið að, hvað þetta er. Það eru bein: sum stór og klunnaleg, sum litil og grönn. Þau stærri eru úr nautum, þau minni úr mönnum. Stígur þessi er meira en íimmtán hundruð mílur á lengd, og til og frá meðfram honum öllum sjást þessar hryllilegu leifar þeirra, er farizt hafa á leiðinni. — Hinn 4. dag maímánaðar 1847 stóð einmana ferðamaður í brekkunni norðan í Sierra Blanca, og starði ofan á sljettuna og stíginn. Utlit hans var þannig, að hver, sem hefði sjeð hann, hefði vel getað álitið hann vera anda eða illvætt eyðimerkur- innar. Þótt hann hefði verið athugaður nákvæm- lega, þá hefði verið örðugt að dæma um það, hvort hann var nær fertugsaldri eða sextugs. Hanu var grindhoraður í andliti, og mórauður, sólbrenndur bjórinn var sem strengdur utan um holdlaus beinin. Síða, jarpa hárið og skeggið hans var orðið töluvert hæruskotið. Augun voru sokkin langt inn i augna- tætturnar, og úr þeim skein einhver óeðlilegur glampi. Og höndin, sem var kreppt utan um blaupið á rifflinum, var ekkert annað en beinin og bjórinn. Meðan hann stóð þarna, og starði ofan á sljett- una, hallaði hann sjer fram á riffilinn sjer til stuðn- ings, og þó var auðsjeð á vaxtarlagi hans og beina- gildleika, að þetta hafði verið mesta hraustmenni að eðlisfari. En skinhoraða andlitið og fötin, sem hjengu í pokum utan um holdlausa limina, sýndu greinilega hvað það var, sein hafði gert hann svona hruman og ellilegan ásýndum. Maðurinn var að deyja — deyja úr hungri og þorsta. Með miklum erfiðismunum hafði hann staulazt upp gljúfrið, er var bak við hann, og upp á hamar- inn, sem hann stóð á. Hann hafði gert það í þeirri fánýtu von, að honum kynni að auðnast, að sjá það- an einhvern vott þess, að vatn væri í grendinni. En hann sá ekkert, nema saltsljettuna miklu, og eyðifjöllin, sem hillti undir úti í sjóndeildarhringn- um. Hvergi var hægt að sjá nokkurt strá, nokkurn gróður, er bæri vott um raka i jörð. Hann starði í norður, austur og vestur, en hvergi sást neinn bjarmi af von, alstaðar var sama vonleysis-auðnin, og hann skildi það þá, að nú myndi ferð hans vera á enda, og að þarna á berum klettinum yrði hann að leggjast fyrir og — deyja. „Er ekki eins gott, að deyja hjer nú, eins og i rúmi að tíu eða tuttugu árum liðnum ?“ tautaði hann fyrir munni sjer, og settist niður i skugga af steini einum afarstórum. Aður en hann settist, hafði hann lagt frá sjer riffilinn, og sömuleiðis böggul einn, er hann hafði borið á bakinu, vafinn i grátt sjal. Það leit svo út, sem böggullinn væri helzt til þungur fyrir hann, því að þegar hann tók hann af öxlinni og ætlaði að leggja hann frá sjer, var hann nærri búinn að missa hann úr hendi sjer, svo að böggullinn kom töluvert hart niður. Þá heyrðist allt í einu eitthvert veikt hljóð úr bögglinum, og út úr honum gægðist lítið, hræðslulegt andlit með skærum, módökkum augum, og tvær ofurlitlar og þriflegar hendur, „Æ, þú meiddfr mig svo mikið“, mælti barnið með ávítunarröddu. „Gerði jeg það?“ svaraði maðurinn bliðlega. „Jeg gat ekki að því gert“. — 159 — Meðan hann var að segja þetta, leysti hann gráa sjalið og vafði það utan af ofurlítilli, yndislegri stúlku, á að gizka fimm ára að aldri. Snotru skórn- ir hennar, og fallegi, rauði kjóllinn með hvíta, fellda Ijereftskraganum, og hreina, sljetta svuntan hennar, bar vott um móðurlega umhyggjusemi. Barnið var fölt og tekið í andliti, en holdugu handleggirnir og fæturnir sýndu, að það hafði ekki þjáðst eins lengi og mikið af hungri og öðru mótlæti, eins og samferðamaður þess. „Hvernig líður þjer mi?“ spurði hann með bliðri röddu, því að hún stóð enn þá og nuddaði hnakkann með glóbjörtu, hrokknu lokkunam. „Kysstu á það, þá batnar þaðu, svaraði hún með skritnum alvörusvip, og sneri hnakkanum að honum. „Það var mamma min ætíð vön að gera. Hvar er hún mamma?u „Mamma þín er farin frá okkur. En við kom- um til hennar áður en langt um líðuru. „Er hún farin, ha?u spurði litla stúlkan. „Það var skrítið, að hún skyldi ekki kveðja mig. Það var hún þó ætíð vön að gera heima, og það þótt hún færi ekki nema yfir til hennar frænku, til þess að drekka te. En nú er hún búin að vera burtu t þrjá daga. En hvað jeg er þyrst — ertu það ekki líka? Er ekkert vatn hjerna og ekkert til að borða? „Nei, hjer er ekki neitt af neinu, elsku barnið mitt. Þú verður að reyna að vera róleg og þolin- móð dálitla stund: enn þá, og þá verður allt gott — allt gott. Hallaðu höfðinu að mjer — svona, þá liður þjer betur. Það er ekki gott að tala mikið, þegar varirnar eru eins og skorpið skinn. En jeg held samt, að það sje bezt, að jeg segi þjer nú þegar, hvernig ástatt er. Hvað ertu með þarna?“ „0, það eru falleg gull, sko, hvað þau eru inndæl“, svaraði litla stúlkan hrifin, og sýndi hon- um tvær ofurlitlar gljásteinsflögur. „Þegar við komum heim aftur, þá ætla jeg að gefa honu® Bob bróður mínum þauu. „Þú skalt bráðum fá að sjá fallegri gull en þetta“, mælti maðurinn öruggur, „ef þú ert þolin- móð og vilt biða svolítið. En það var það, sem jeg ætlaði að fara að segja þjer frá — þú manst víst eftir því, þegar við fórum frá ánni?u „ Ja. „Jæja, taktu þá eftir, þá treystum við því, að við myndum bráðlega koma að öðru vatnsfalli. En það var eitthvað bkakkt — annað hvort kompásinn eða landsuppdrátturinn, eða þá eitthvað annað, því að við fundum eldrei neitt vatnsfall eftir þetta- Svo þraut vatnið hjá okkur, og við áttum bara eftir ofurlítinn dropa handa þjer og — og —“. „Og þú gazt ekki þvegið þjeru, greip litla stúlkan fram i fyrir honum, mjög alvörugefin, og starði upp i óhreint andlitið á honum. „Nei, og okki heldur fengið neitt að drekka- Og Bender, hann var sá fyrsti, sem dó úr þorsta, og svo fór Indíana Pete og svo frú Mc. Gregor, Johnny Hones, og svo — svo fór — hún móðir þín, elsku litla barnið mittu. (Pramh.) — 160 —

x

Haukur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Haukur
https://timarit.is/publication/48

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.