Tíminn - 24.12.1938, Page 8

Tíminn - 24.12.1938, Page 8
I 8 T í M I N N Sankti Pétur virtist vera í þungum þönkum. „En ertu nú ekki illgjarn í garð mannanna, Blær minn, þegar þú heldur því fram, að þeir hafi engar eigin sálir? Við höfum alltaf trúað, að þeir hefðu það, og hegðað okkur eftir því.“ „Þeir hafa haft það, en ekki nú orðið,“ skýrði Blær borginmannlega frá. „Jæja þá! En að hugsa sér þær miklu framfarir!“ „Já, það eru framfarir í heiminum núna, frændi. En hér.... “ „Við skulum þá ekki spyrja um sálirnar, því að þar sem ekkert er, hefir keisarinn einskis að krefjast. Eða hvað, drengir?“ „Alveg rétt, frændi. Mennirnir hafa sjálfir orðið þess sér meðvitandi, að þeir hafa enga sál, nema þá sameiginlegu, og eftir henni á að dæma þá, ef réttlætið á að ríkja,“ sagði Blær með áherzlu. „Og hjá okkur verður réttlætið að ríkja,“ fullyrti Bláinn. „Það er mála sannast! Réttlæti verður að ríkja,“ skaut Sankti Pétur fram í. „Hald- iö áfram, ég hlusta.“ Báðir englarnir lutu lítið eitt fram yfir Pétur frænda, sem sat á milli þeirra, studdi hendinni undir hökuna og lét olnbogann hvíla á hnénu. Þeir undirstrikuðu orð sín með fjörlegum armhreyfingum yfir höfði hans. Blær hafði orð fyrir þeim. „Það er þá annað atriðið, að það er ekki hægt að dæma sál eftir syndum hennar eða góðverkum eða neinu af þessu gamla, sem enn er við líði hjá okkur, heldur eftir því, sem hún hefir afrekað í þágu heildar- innar. í einu orði sagt, verður að skipta gersamlega um yfirheyrsluaðferð. Hefir sálin átt þátt í þróuninni? Hefir hún safnað auði til hagsældar fyrir mannkynið? Hefir hún notað líf sitt eins vel og hún gat? Hefir hún verið happasæl, komizt vel áfram og lyft sér og öðrum á hærra síífir?“ „Hvað sagðirðu? Sti... .?“ „Stig, sagði ég.“ „Hefir hann verið framtakssamur," skaut Bláinn inn í. „Hafa athafnir hans borið ríkulegan á- vöxt?“ tók Blær undir. Sankti Pétur baðaði út höndunum: „Hægan, hægan, drengir, ef ég á að geta skilið öll þessi nýju orð! Við eigum sem sagt að dæma mennina eftir frammistöðu þeirra, eftir því, hve vel þeim hefir gengið að vaka yfir velferð sjálfra sín í jarðlífinu? Ó, já, það má hugsa sér það! Það er nú ekki svo auðvelt fyrir fiskimann að verða heildsali, svo ég taki dæmi, eh-he, eða fyrir dyravörð að verða húseigandi. Og það er ekki heldur svo auðvelt að gera jörðina að himnaríki, þótt manni virðist það komið vel á veg. Já, það má íhuga málið.“ „Það heppnast, ef við megum leggja orð í belg,“ sagði Blær og virtist ánægður með árangurinn. Hann sveiflaði axlakápunni yfir vinstri öxlina og krosslagði hendumar á brjóstinu. „En það er samt sem áður sitt af hverju, sem ég geri mér ekki grein fyrir,“ byrjaði nú Sankti Pétur og virtst leggja hart að sér til að skilja. „Til dæmis: mennirnir gera víst allt, sem þeir gera, einnig sjálfra sín vegna? Eg á við, að sérhver hugsi víst líka ofurlítið um sjálfan sig, þegar hann er „framtakssamur“, og hvað það nú allt heitir. Og þetta er hverju orði sannara, því þannig er maðurinn gerður, en það er líka til dálítið meíra, og þessu meira höfum við bætt við, svo að maðurinn hafi alltaf eitt- hvað að berjast fyrir, eitthvað, sem ekki er hægt að vega á vogina þarna niðri. Eg á við hið ósýnilega og innhverfa, sem ekki er ætlð goldið með áþreifanlegum vinningi, en er meira virði en allir fjársjóðir. Það, sem gerir mann að manni, hvort heldur hann klæðist purpura eða tötrum. Skiljið þið?“ „Það er enginn galdur að skilja það,“ svaraði Blær tafarlaust. „Einmitt hérna skýtur það allra elzta og úreltasta upp koll- inum, sú skoðun, að maður geti ekki einu sinni snert við því fínasta og bezta. Nei, það verður ekki dulið, það kemur fram sem kraftur og hamingja fyrir auglit allra! Það umskapar heiminn. Menn trúa ekki lengur á beiningamann, sem heldur því fram, að hann sé konungur — menn hlæja að hon- um.“ „Já, það er öldungis of þægilegt að krefj- ast engra sannindamerkja um hina innri framtakssemi. Þá getur hver sem vill haldið því fram, að hann sé beztur,“ bætti Bláinn við, „það leiðir til yfirdrepsskapar, en það, sem mennirnir krefjast núna, er einlægni og hispursleysi. Því hefir fleygt fram.“ „Fyrst og fremst verðum við að losa okkur við þá skoðun, að maðurinn beri innan í sér heilan heim, sem hann sé ábyrgur fyrir. Það er enginn til, sem trúir á það lengur — sérhver maður er bara lítið hjól í stórri vélasamstæðu." Blær sveiflaði kápunni á nýjan leik yfir öxlina með drembilegri hreyfingu, svo að hvítu lokkarnir hans Sankti Péturs flöks- uðust til. „En því getum við ekki kippt burt, dreng- ir,“ sagði hann með sinni hógværu rödd og hristi höfuðið. „Eg á nú t. d. við þá litlu góðsemi vegna góðseminnar sjálfrar, sem við höfum gefið sérhverjum manni, eins og lítið fræ við hjartarætur hans. Því að þeir eru víst ekki þeirrar skoðunar þarna niðri, að þeir hafi ekkert hjarta. Við höfum að minnsta kosti gefið hverjum þeirra eitt.“ „Jú, það viöurkenna menn. En þeir geta notað það á ýmsan hátt. Og nú hafa þeir nýja hætti.“ „Það hefi ég ekki komið auga á í gamla sjónaukanum mínum. En það er gaman, að menn viðurkenna eitthvað.... Eg ann mönnunum alls góðs, hverju sem þeir finna upp á, nýju og gömlu, en stig og framtaks- semi og allt þetta, sem þið masið um, dugir ekki til — þróun, vélar og allt hvað heiti hefir — nei, drengir, það eru gerðar meiri kröfur hérna uppi og líka þarna niðri, það get ég sagt ykkur.“ Sankti Pétur snýtti sér í bláa vasaklútinn sinn; ekki vegna þess að hann beinlínis þyrfti þess, heldur eins og til merkis um að nú væri nóg masað. „Frændi gleymir heilsu, gleði og fegurð," sagð Blær dálítið stuttur í spuna. „Maður verður agndofa yfir, hversu baráttan gegn fátæktinni og sjúkdómunum hefir borið góðan árangur þar niðri. Ber það ekki hjartanu gott vitni?“ „Jú, vinur minn! En betur má, ef duga skal — vegna sjálfra þeirra, annars blása önnur gæði bráðlega burt. En það skilur þú ekki.“ „Má ég spyrja um eitt, svo skal ég þegja. Er himnaríki til mannanna vegna eða mennirnir vegna himnaríkis?" „Mér finnst þú vera frakkur," sagði Sankti Pétur og leit á slóttuga engilinn. „Við verðum að mætast á miðri leið, og það er hérna fyrir utan hliðið! Værum við ekki strangir hérna — og það er sannarlega ekki of háskalegt — þá myndi fljótlega hlaupa snurða á þráðinn þarna niðri. Við höldum í það gamla, því að við erum að minnsta kosti elztir. Ja-há, það gerum við. Að lok- um!“ „Og það hlýtur að enda með því, að eng- inn kemur hingað,“ sagði engillinn Bláinn andvarpandi. En það hefði hann ekki átt að segja, því að skörpu augun hans Sankti Péturs voru fyrir löngu búin að festa sjónir á þrem sálum, sem nálguðust í fjarska. Nú voru þær svo nærri, að hver sem var hlaut að sjá þær. „Spá þín rætist ekki, litli karlinn minn,“ sagði hann, „ég sé þrjár sálir koma á langa, bláa skýjabakkanum. Sjáið þið þær?“ Hvorugur engillinn sá neitt, en það var líka ekki neinn venjulegur bakki, heldur óendanleg himinvíðátta, svo að þeir horfðu margar mílur úr leið. „Jú, það eru þrjár sálir, sem koma þrammandi nú á hallandi degi. Sjáið þið nú?“ Og hann benti í áttina. Jú, nú sáu þeir. Alveg rétt! Þrjár sálir.... Þær virtust ekkert vera að flýta sér, en þær bar þó fljótt yfir, því að þær gengu öðrum skrefum en á jörðinni. „Og þið, sem sjáið svo margt, sem ég get ekki séð,“ sagði Sankti Pétur önugur. „Það var nú heldur en ekki aumt.... Eg sé auk heldur hverjir það eru. Það eru Nils Fálki, járnbrautarstöðvarskrifari á Bláhamri og Jóhann Jóhannsson á Gafli, eimskipskynd- arinn. En hver er með þeim? Eg held þeir hafi fengið Rússa með sér að handan, Rauða-Pétur. Ja-há, það er Pétur og lítur út fyrir að vera samferðamönnunum til lítillar ánægju. Sálirnar nálguðust óðum. „Vertu nú vænn við þá, frændi, þegar þeir koma til okkar,“ bað Bláinn. „Dæmdu þá ekki of hart,“ áminnti Blær. „Takið því með ró — ég veit vel hvað ég geri. Og nú segi ég ykkur: blandið ykkur ekkert í þetta! Þið eruð núna vinnumenn mínir og gerið það, sem ég skipa. Því það getur hent sig, að ég gefi dálitlar fyrirskip- anir.“ „Vertu miskunnsamur, Pétur frændi!“ Engillinn Bláinn horfði á hann grátbæn- andi, með vot augu. „Réttlæti, réttlæti! Hljóðir, þær eru alveg að koma. Eigum við að gera úr þeim eina sál? Nei, þakk, þá verður einn að líða fyrir annan og það er nú um seinan! Við tökum þá hvern í sínu lagi, því að þeir hafa lifað hver fyrir sig. Og ekkert nöldur — nú er það ég, sem tala!“ Sálirnar þrjár stóðu hlið við hlið frammi fyrir Sankti Pétri; þær höfðu gengið mjög hægt og augsýnilega ófúslega síðasta spöl- inn. Pétur leit á þá hvern um sig, byrsti sig og strauk skeggið með báðum höndun- um. Að lokum sagði hann: „Jæja þá, hér eru gestir á ferðinni. Hver hefir gert boð eftir þér, Nils Fálki? Komdu nær, svo að við fáum að heyra erindi þitt.“ Nils Fálki kom nær; hann skalf í hnjá- liðunum og röddin titraði. „Réttláti Sankti Pétur! Eg stend hér frammi fyrir þér, íklæddur syndum mín- um....“ „Já, rétt er nú það....“ „Eg hefi ekkert til að hæla mér af.“ „Ónei, það er nú líka rétt — að mestu leyti. „En líttu á hendur mínar....“ Hann rétti fram hendurnar. „Hvað? Hendur þínar,“ greip Sankti Pét- ur fram í, „hvað koma þær þessu máli við?“ Það var eins og Sankti Pétur yrði dálítið forviða og við það vottaði fyrir óvæntu hug- rekki hjá Fálka. Hann færði sig því enn einu skrefi nær og rétti fram hendumar í áttina til Sankti Péturs. „Mega þær tala máli mínu, því að mér er ekki laust um tungutakið. Hlutskipti mitt í lifinu er skráð í þær. Einu sinni voru þær olíukámugar og skitugar, hrjúfar af heið- arlegri vinnu. Eg var þá vélamaður við járnbrautirnar heima. En ég var borinn til einhvers annars og áleit mig ekki hafa rétt til að misvirða tilgang lífs míns. Eg fór að lesa í tómstundum mínum og lauk prófi

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.