Tíminn Sunnudagsblað - 18.11.1962, Blaðsíða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 18.11.1962, Blaðsíða 4
ÞORSTESNN JÖNSSON frá Hamri: 5,S0DDAN MANNESKJA SEM ARNES ER ... “ SÖGUBROT ÚR ÍSLENZKA TUKTHÚSINU i. ÁRIÐ 1763 voru tekin föst í Stranda- sýslu hin nafnfrægu útileguhjón, Ey- vindur og Salla og voru þau flutt í gæzlu til Halldórs sýslumanns Jak- obssonar á Felli. Munnmæli halda því fram, að við handtöku þeirra hafi sloppið undan maður nokkur, sem laungum er við þau kenndur, — Arnes Pálsson. Sú sögn þykir nú að eingu hafandi, þar eð sjá má, að nefndur Arnes hefur um það leyti farið um sýsluna eins og hver annar frjáls maður, og aldr- ei þessu vant geingið undir sínu rétta nafní; hlýtur það að teljast bíræfið, þegar þess er gætt, að nokkrum ár- um áður hafði honum verið lýst sem stroknum óbótamanni á Alþíngi — með þessum einkennum: „smár vexti, smá- og snareygur, með mjóa höku og iítið skarð í, hálsgildur, með svarta vörtu hárvaxna neðarlega á kinn, gjarn á að brúka það orðtak „Karl minn“. En þótt Arnes stundaði eilngar útilegur með þeim hjónum í þennan mund og yfirleitt þyki sgnlband hans við þau á fjöllum heldur hæpið í verunni, þá sá hann ástæðu til að fara á stúfana þetta haust og leita eftir skriflegum vitnisburði þeirra manna á Ströndum, er þekktu hann bezt. Sá vitnisburður reynist hinn bezti og er undirritaður af tuttugu mönnum úr Árneshreppi. Sama sumar sluppu Eyvindur og Halla úr gæzlu frá Halldóri sýslu- manni, og var hann settur af embætti fyrir vangæzluna. En á alþíngisdómn um yfir sýslumanni 1765 má sjá, að Arnes Pálsson hefur verið handtekinn og settur i gæzlu hjá sýslumanni, sennilega 1764: „En so vidt sem delinqventinn Arnes Pálsson snertir, þá hefur sýslumaðúrinn bevísað sig að hafa afhent þann sama arresterað- ar, til þess konstitueraða sýslumanns í Strandasýslu, Jóns Jónssonar, og er altso í þeim pósti frikenndur fyrir víðari tiltali". Lýsíng Arnesar á Alþíngi hefur því rifjazt upp fyrir mönnum, og er jafnvel ekki úr vegi að álíta, að beiðni Arnesar um skriflegan vitnis- burð kunni að hafa átt sinn þátt í því — þótt til væri stofnað í örygg- isskyni. Hér með var flækíngur Arnesar á enda, að öðru leyti en því, að hann var fluttur milli sýslumanna suður á land til yfirheyrslu og dóms; sakar- giftir eru sauða- og peníngaiþjófnað- ir, en útilegur koma ekki fram. Dóm- ur var kveðinn upp á Esjubergi 17. júní 1765 af Guðmundi sýslumanni Runólfssyni og hljóðaði svo: „Jafnvel þótt ekkert af þeim stolnu hlutum, hvorki fé né pening- ar, kunni fyrir þennan rétt að fram- vísast né taxerast, samt er af Process- inum og Delinqventsins stöðugu ját- un auðsjáanlegt, að þeir hlaupa sig til stórþjófnaðar, hvar fyrir undir- skrifaðra sameiginlegur dómur er: að Arnes Pálsson skal fyrir soddan sinn játaðan og meðgenginn stórþjófnað kagstrýkjast og brennimerkjast á ennið, samt erfiða í því íslenzka tugt húsi í járnum sína lífstíð". Dómur þessi var þó mildaður með konúngsbréfi 11. apríl 1766, svo að Arnes slapp við brennimerkíngu. Þannig hljóðar í stuttu máli að- dragandi þess; er Arnes komst í hið íslenzka tugthús. Samkvæmt niður- stöðum Hannesar Þorsteinssonar hef ur hann þá verið 47 ára eða þar um bil, en aldur Arnesar í manntölum er mjög á reiki; þar ýngist hann og eldist á víxl. Arnes var fæddur og uppalinn á Seltjarnarnesi. Árið 1749 rataði hann í þjófnað, og var honum dæmt húðlát og fégjald; eftir það dvaldi hann sem vinnumaður á Kjal- arnesi og Akranesi, unz árið 1755, pr hann stal sauð og játaði það á sig. Áður en dómur félli, hvarf Arnes og fór eftir það huldu höfði fyrir yfir- völdum fram til þess, er hann var gripinn í Strandasýslu, sem að fram- an er greint. Á þeim árum hélt hann sig á ísafirði og Aðalvík, nokkuð í Akraneshreppi og Kjalarnesi aftur, en síðan enn í Aðalvík, Jökulfjörðum og á Ströndum. Notaði hann oftast íalskt nafn vestra, en hafði trúnað þeirra, er hann hélt sig að syðra. Þar stundaði hann nokkuð sauðaþjófnaði og eitt sinn fór hann í Brautarholts- kirkju á næturþeli og stal þar pen- íngum. Arnes hefur orðið ærið sögu- frægur, fyrst og fremst fyrir útileg- ur með Fjalla-Eyvindi; þær komu raunar ekki í Ijós við réttarhöldin -— eina samband Arnesar við Eyvind, sem þar kemur fram, er vinnu- mennska á Hrafnsfjarðareyrl um þriggja ára skeið, þegar þau Eyvind ur og Halla bjuggu þar, skömmu áð- ur en þau lögðust út. Vert er þó að hafa það í huga, að Arnes varg marg- saga fyrir réttinum í sumum greinum. — Enn hefur Arnes snemma orðið títtnefndur sem heimildarmaður að ýmsum dylgjusögum og ævintýrum um fjallabúa, maðurinn enda hrað- lýginn og búralegur um eigin ævifer- il og virðist hafa verið nokkuð minn- isstæður persónuleiki þeim, er kynnt ust honum. — Þá hefur leikrit Jó- hanns Sigurjónssonar ekki hvað sízt aukið á frægð hans í seinni tíð. Og þegr gárúngarnir í Reykjavík hér fyrrmeir gerðu gys að pápisku bænahjali liðinna tíma með því að skopstæla það í trúarjátningum á eitthvað illþýði, flaut nafn Arnesar með: Hendrik Skel helzt ég treysti, hann hefur skapað mig, Pílatus prúður Ieysti frá píslum á heljarstig. Arnes helgaði einnig, já. Þessa þrenningu þýða þar næst ég treysti á . . . II. Arnes Pálsson kom í hegningarhús- ið við Arnarhól 2. júlí 1766. Þar heit- ir nú Stjórnarráð. Ef við gerum oklk- ur í hugarlund útsýnið úr. dyrum hegníngarhússins í þá daga, er það vís hlutur, að það er hvorki Útvegs- bankinn, Haraldarhornifi né Hreyfill og ekki Morgunblaðshöllin. Reykja- víkurbyggðin var að mestu samankom in undir Grjótabrekkunni, þar sem nú er Aðalstræti, þar voru innrétt- íngarhúsin með vefnaðarstofu, ló- skurðarstofu og öðru þar að lútandi — og kofum þar sem bjuggu þófarar, farvarar, krassarar og spunamenn. Og í nágrenni Arnarhóls, við Tjörn- ina og norður með sjónum stóðu nokk ur býli, hjáleigur og tómthús, gróðr- arstíur þess svalls, fátæktar og „laus úngar“ sem gerði garðinn hvað fræg- astan um þær mundir. Múrhúsið mikla í suðvesturhorni Arnarhóls- lóðarinnar bar lángt af öðru: hið ís- lenzka tugthús. Hafizt hafði verið handa um byggingu þess 1759, en þeg- ar Arnes Pálsson kom þangað til að taka út refsingu, var það ekki full- gert, og varð ekíci fyrr en 1771. Ar- nes kemur þángað-í tíð Guðmundar Vigfússonar tugthússráðsmanns, sem var fyrsti ráðsmaður tugthússins, en Gissur Jónsson hét fángavörðurinn. Gissur þessi var víttur fyrir trassa- skap og að lokum var honum vikið frá starfinu 1768, en Guðmundur ráðsmaður tók að sér starfa hans. Guðmundur Vigfússon var um margt mikilhæfur maður, en með aldrin- um gerðist hann drykkfelldur og hirðulítill og var eitt sinn víttur harðlega fyrir. Um leið var ákveðið að sérstakur fángavörður skyldi ráð- 868 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.