Tíminn Sunnudagsblað - 18.11.1962, Blaðsíða 1

Tíminn Sunnudagsblað - 18.11.1962, Blaðsíða 1
Vökunæturnar eru orðnar margar - bls. 876-880 I. AR 37. íbl. — SUNNUDAGUR 18. nóv. 1962 Það bar við einn vordag fyrir nálega ellefu hundruð. árum, að undarleg lest silaðist suð- ur Vonarskarð. Þar fór landnemi af Norðurlandi með hyski sitt og búsmala, og hafði gert hverju kvikindi kjálka, að það drægi fóður sitt suður yfir gróðurleysur öræfanna. Enginn kann af 5 því að segja, hversu lengi þessi lest var norðan úr byggð suður í lágsveitir, en söguleg þætti j slík för nú á dögum. Sá, sem fyrir þessari för réð, var Bárður Heyangurs-Bjarnarson, og hafði í öndverðu komið ! skipi sínu í ós Skjálfandaflfóts, numið Bárðardal framanverðan og reist byggð í Lundarbrekku. ÍEn með því að hann varð þess áskynja, að landviðri voru betri en hafviðri, ætlaði hann, að bú- jarðir myndu betri sunnan fjalla Kom þar, að hann afréð að senda sonu sína, en þá átti hann marga, könnunarferð suður á góu. Þeir hafa borið héruðum á Suðurlandi vel söguna, því að næsta vor tók hann sig upp með allt og réðst til suðurferðar. Bárður lét ekki staðar numið, fyrr en í Fljótshverfi. Þar nam hann land að nýju og reisti bæ að Núpum. Fyrir því var hann kallaður Gnúpa-Bárður. Síðan þetta var hafa þrjátíu kynslóðir bænda, eða fleiri, búið að Núpum. En nú er svo kom- ið, að sumir bera kvíðboga fyrir þvi, að Fljótshverfi, vonarland Gnúpa-Bárðar, fari í eyði, enda búskap hætt á sumum jörðum þar. Á Núpum er þó enn búið, og er þaðan myndin hér að ofan. (Ljósmynd: Gísli Gestsson) BLS 868

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.