Tíminn Sunnudagsblað - 18.11.1962, Blaðsíða 10

Tíminn Sunnudagsblað - 18.11.1962, Blaðsíða 10
»r. Var brúin metin ófær orðin, en nauðsyn hennar ótvíræð. Kom þá til stjórnarvalda að ákveða, hvað gera skyldi. Og þar sem stjórnin féllst á nauðsyn brúarinnar, en ekk- ert fé var fyrir hendi, var það úr- skurður hennar, að ibúar héraðsins skyldu kosta endurbygginguna, svo sem verið hefði. í formála fyrir bók Olaviusa-r segir Jón Eiríksson, að brú hafi verið á Jökulsá alLt frá fornöld (de ældste tider). Hljóta þessi ummæli að eiga við þá brú, sem um var að ræða, brúna hjá Fossvöllum, og staðfesta um leið frásögn Droplau'garsona sögu um fleiri en eina brú á Jökulsá. Sýslumenn í Múlaþingi á þessum tíma voru Hans Wíum og Pétur Þor- s.einsson. Kom þeim ekki saman um málið. Wíum vildi, að brúin væri af- lögð, en Pétur vildi endurbyggja hana. Wíum synjaði þess, að sýslu- búar hans væru látnir taka þátt í er.durbyggingarkostnaði brúarinnar. Akvað stjórnin þá — 1761 — að setja sk ,1'dí ferju á ána í stað brúarinn- ar Pétur tók það þá til ráðs um vo.-ið, 12. júní, það sama ár, að fara m ið tólf manns, hefja brúna með yi.idum, rétta hana við og endurbæta á sinn kostnað. Entist sú viðgerð rr .i tuttugu ár. pað er svo aftur af ferjusetning- urni að segja, að þegar til fram- ik'. æmdanna átti að koma, fannst eng ir. i nothæfur ferjustaður f grennd Vi5 brúna. Ferjustaðir höfðu áður verið á Galtastöðum og Húsey, en þeir höfðu lagzt niður vegna breyt- inga á rennsli árinnar. ítrekuð leit e£ ferjustað árin 1769 og 1772 leiddi ei ki heldur til úrlausnar. pegar Olavíus fór um MúlasýsLur árið 1776, segir hann hina endur- b:-ttu brú Péturs sýslumanns vera o na svo hrörlega, að varasamt sé aö fara með lausa hesta yfir hana. Stjórninni mun nú hafa þótt full- reynt um ferjustaði. Hins vegar var brúin nú komin að falli og aðgerðir aðkallandi. Með konungsbréfi 8. maí 1780 var ákveðið, að brúarefnið, á- samt flutningskostnaði, skyldi greitt úr konungssjóði. Jafnframt var lagt fyrir stiftamtmann og amtmenn að ákveða með reglugerð, hvemig afla skyldi þess fjár, sem vantaði, og til viðhalds brúarinnar. Byggingarkostn- aður var áætlaður 400—500 ríkis- dalir, en efnið með flutningskosfn- aði til Vopnafjarðar 120—130 dalir. Mismuninn var ætlazt til, að sýslu- búar legðu fram. Árið 1783 var gamla brúin rifin og ný brú byggð á þessum grundvelli. Fyrir því stóð Guðmundur sýslumað ur Pétursson í Krossavík, er þá var orðinn aðstóðarmaður föður síns. Pétur sýslumaður tilkynnti stjórn- inni, þegar brúargerðinni var lokið. Lagði hann til, að kostnaðurinn skyldi til bráðabirgða greiðast úr jarðabókasjóði. Síðan skyldi jafna honum niður þannig, að Múlasýslur greiddu tvo þriðju hluta, en Þing- eyjarsýsla, Eyjafjarðarsýsla og Skaga fjarðarsýsla afganginn. Til viðhalds skyldi sett umferðargjald. Amtmað- ur féllst á tillöguna. Reglugerð um viðhald brúarinnar var sett 1. júlí 1788. Er áætlað þar, að með góðu viðhaldi ætti hún að geta staðið 150—200 ár. Til viðhalds og endurbyggingar brúarinnar skyldj efna til sjóðsstofnunar með umferðar gjaldi, brúartolli. Verðir skyldu sett- ir þrír, tveir fyrir austan og einn að vestan, til þess að hafa eftirlit með brúnni og innheimta brúartoll- inn. Brúin skyldi vera opin til um- ferðar aðeins þann tíma ársins, sem áin væri ekki fær á ísi. Umferðargjaldið var ákveðið einn •skildingur fyrir gangandi mann, á með lambi, geit með kið, tryppi og kálf. Tveir skildingar fyrir lausan hest, nautgrip. Þrír skildingar fyrir mann og hest, klyfjahest og hryssu með folaldi. Undanþegnir gjaldinu voru embættismenn í skylduerind- um og kirkjufólk. Brúarverðir voru settir bændurnir á Fossvöllum, Blöndugerði og Giljum. Varzla brúarinnar reyndist til stórra tafa og óþæginda fyrir um- ferðina. Auk þess innheimtist ekki í brúartolli nema tæplega það, sem varzlan kostaði. Brúártollurinn var því afnuminn eftir þrjú ár, en í stað hans lagt gjald til brúarinnar á bænd ur héraðsins, sem getið verður nán- ar síðar. Ending þessarar brúar var furðu- lega lítil, miðað við endingu fyrri brúa. Þegar árið 1817 ritar Páll Mel- steð sýslumaður stjórninni, að brúin sé orðin varasöm. Líklega hafa burð- arviðir brúarinnar verið grannir og 'Melsteð þess vegna talið hana við- sjárverða, því að hann vill fá burðar- tré hálft þriðja eða þrjú fet að þver- máli, og þrjátíu og fimm álna löng. Stjórnin sneri sér um það til verzl- unar Örums & Wulfs, en hún kvað slik tré ófáanleg og óflytjandi. Send- ir voru þá j þeirra stað sex plankar, fimmtán til sextán þumlunga breiðir og átján álna langir, sem ganga skyldu á misvíxl undir miðju brúar- innar sem lengdin leyfði og skeyttir rammlega saman. Andvirði brúarefn is með flutningskostnaði til Vopna- fjarðar, rúmir níu hundruð ríkisdal- ir, var greitt úr konungssjóði. Bygg ingarkostnaðinn skyldi til bráða- birgða greiða úr jarðabókasjóði, en endurgreiðast honum eftir því sem stjórnin, með ráði amtmannsins, á- kvæði síðar. Árið 1819 var brúin svo endur- byggð. Fyrir framkvæmdum stóð Melsteð sýslumaður. Til þess að standa fyrir smíði brúarinnar fékk hann Eyjólf Ásmundsson ísfeld. Kaup hans var þrjátíu ríkisdalir. Efnið til brúarinnar var fiutt sjó- veg frá Vopnafirði upp á Ker. Fyrir flutningi þaðan á ísum stóð Björn Sigurðsson, bóndi á Ketilsstöðum. Að lokinni brúargerðinni tilkynnti sýslumaður stjórninni, að kostnaður- inn við brúargerðina hefði orðið tæP ir níu hundruð dalir, nær jafnhár því, sem efnið hefði kostað, komið til landsins. Lagði Melsteð til, að byggingarkostnaði skyldi jafnað að 874 X í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.