Morgunblaðið - 26.05.1956, Side 1
1
Eisenhower hvetur til stofn-
unar Bandaríkja Evrópu
Washington, 25. maí — Reuter — NTE.
IT'ISENHOWER Bandaríkjaforseti hvatti eindregið til þess í dag,
lí að stofnuð yrðu Bandaríki Evrópu. Komst forsetinn svo að
orði í ræðu, sem hann flutti í Baylorháskólanum í Texas, og fjallaði
ræðan mestmegnis um utanríkismál.
Davíð Ólafsson, formaður Varð
ar, stjórnaði fundinum. Hann
skýrði írá því, að þeir Bjarni
Benediktsson og Gunnar Thor-
oddsen, sem áttu að tala þar,
hefðu orðið veðurtepptir vestur
á íjörðum. Myndu aðrir tala í
þeirra stað.
Fyrsti ræðumaður á fundinum
var Björn Óla/sson alþm. Ræddi
hann atkvæðabrask Hræðslu-
bandalagsflokkanna og skýrði
frá, að Sjálfstæðisflokkurinn
hefði krafizt úrskurðar lands-
kjörstjórnar um það atriði. Björn
Ólafsson ræddi einnig nokkuð
varnarmálin og komst m. a.
þannig að orði, að allir Sjálf-
stæðismenn mvndu fagna því ef
hægt væri að láta varnarliðið
fara úr landi án þesS að stefna
öryggi íslands í hættu og án
þess að hlaupast frá skuldbind-
ingum okkar við vinaþjóðir okk-
ar. Hann lauk máli sínu með því
að segja, að aðeins Sjálfstæðis-
flokkurinn gæti tryggt uppbygg-
ingu og heilbrigðar framfarir í
landinu næsta kjörtímabil.
Tryggið kosningu ungu kofi-
unnar í 5. sætinu á lista Sjálf-
stæðismanna í Reykjavík. Það
er verðugt svar við upplausn
og axarsköftum glundroða-
liðsins, sagði Björn Ólafsson
að Iokum.
Asgeir Sigurðsson skipstióri.
sem er 7. maður á framboðslista
Sjálfstæðisflokksins, talaði næst-
ur. Ræddi hann um skattamál,
landhelgismál og varnarmál.
Sagði hann m.a., að sjómenn við
Faxaflóa ættu erfitt með að skilja
það, að utanrikisráðherra Fram-
sóknarflokksins gerðu samning
við Bandaríkin um byggingu
landshafnar fyrir 200 milljónir
króna í Njarðvíkum, svo að segja
á sama tíma og hann beitti sér
fyrir tillögu á Alþingi um upp-
sögn varnarsamningsins.
San-. ' urinn væri sá, að
Framsóknarmenn væru að
reyna að leika á fólkið með
braski sínu með varnarmáiin.
Ásgeir Sigurðsson ræddi all
ýtarlega um landhelgismálin
og liina stórfelldu þýðingu,
sem aukin vernd fiskimiðanna
við landið hefði þegar haft.
Að þeim málum yrði aðvinna
af festu og dugnaði, eins og Sjálf
stæðismenn hefðu gert á undan-
förnum árum. Af glundroðaliðinu
er einskis góðs að vænta, tryggj-
um kosningu konunnar í baráttu-
sætinu á lista Sjálfstæðismanna,
sagði Ásgeir Sigurðsson að lok-
um.
FRÚ RAGNHIBDUR
H ELG AÐÓTTIR
Þá tók næst til máls frú Ragn-
hildur Helgadóttir, yngsti fram-
bjóðandi Sjálfstæðisflokksins við
þessar alþingiskosningar, sem
Frh. á bls. 2
Vænta má breytinga
á stfórninni í Bonn
BONN. — Allt bendir til þess,
að talsverðar breytingar verði
gerðar á Bonnstjórninni á næst-
unni. Dr. Adenauer tilkynnti ný-
lega, að hann hefði í hyggju að
fækka meðlimum ráðuneytis síns
úr 20 í 17 í Iok júnímánaðar.
Adenauer mun samt bíða þess,
að stofnfundur Frjálsa þjóð-
flokksins verði haldinn — þeir,
sem gengu úr flokki Frjálsra
demókrata stofna þennan flokk
— 23. júní. Ef til vill mun Bliic-
her varaforsætisráðherra fara úr
stjórninni, og öruggt er, að svo
verður, ef Bliicher verður kosinn
formaður hins nýja fiokks.
Líklegt er, að Fritz Scháffer,
fjármálaráðherra taki við em-
bætti varaforsætisráðherra, en
gegni samt eftir sem áður eai-
bælti fjármálaráðherra.
Sgálislæðismenn óska árskurðar
landskjörstiórnar um atkvæða-
verzlun HræðsiuStandalagsins
AFUNDI landskjörstjórnar, sem hófst kl. 3 í gær, lýstu umboðs-
menn lándslista Sjálfstæðisflokksins því yfir, að þeir teldu
,.að til framboða Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins við
■Iþingiskosningarnar 24. júní n.k. sé stofnað með þeim liætti, að
raunverulega sé um framboð eins og sama flokks að ræða. Þar
af Iciðl, að við úthlutun uppbótarþingsæta beri að miða við sam-
■nlagðar atkvæðatölur beggja þessara flokka, eins og um einn
flokk sé að ræða og úthluta þingsætum, ef til kemur samkvæmt
•w" ÓSKAÐ EFTIR ÚRSKURÐI
Tfmboðsmenn landslista Sjálfstæðismanna, þeir Tómr.s
Jíónsson og Fáll Líndal, óskuðu eftir úrskurði landskjör-
•tjórnar um þennan skilning. Jafnframt lögðu þeir fram
greinargerð, þar sem færð eru fram rök fyrir kröfu þeirra.
Fulltrúar Hræðslubandalagsins, Framsóknar og Alþýðu-
flokksins, báðu um frest til þess að íhuga málið. Var þeim
velttur hann og fundi landskjörstjórnar frestað þar til kl. 10
i dag. Leggja Hræðslubandaiagsmenn þá væntanlega fram
grelnargerð fyrir atkvæðabraski sínu. En væntanlega fellir
landskjörstjórn úrskurð sinn um þetta atriði í dag, þar sem
gert hafðl verið ráð fyrir, að kosning utan kjörstaða, hæfist
á morgun.
f grelnargerS þelrrl, sem full- . fram á fundi landskjörstjórnar, er
trúar Sjálfstæðisflokksins lögðu | fyrst vitnað í ýmis ummæli mál-
gagna og leiðtoga Framsóknar-
flokksins og Alþýðuflokksins, um
„algert kosningabandalag“
þeirra í öllum kjördæmum, um
„sameiginleg framboð", og „sam-
eiginlega stefnuyfirlýsingu“. Síð-
an segir á þessi leið:
ALGER SAMEINING
FLOKKANNA
„Þessar tilvitnanir ,og fjölmörg
önnur ummæli helztu ráðamanna
flokkanna, sýna, að stofnað er til
sameiginlegra framboða í öllum
kjördæmum, stofnað til algers
kosningabandalags, algerrar sam-
einingar flokkanna. Þetta hefir
einnig orðið svo í framkvæmd.
Framboðin eru reyndar lögð
fram sem framboð tveggja
flokka. En á milli flokkanna hefir
ríkt alger eining um öll framboð-
in, eftir blöðum flokkanna að
dæma, og hvergi bjóða þeir fram
hvor á móti öðrum.
Frh. á bls. 2
Geysifjölmennur kcsningafundur Sjálfstæðismanna
VjtYRSTI kosningafundur Sjálfstæðismanna í Reykjavík fyrir al-
* þingiskosningarnar í sumar, sem haldinn var í gærkvöldi, var
geysifjölmennur. Voru salir Sjálfstæðishússins troðfullir út úr dyr-
um þegar í fundarbyrjun. Kjörorð fundarins var fyrst og fremst
eitt: Unga konan í 5. sæti Sjálfstæðislistans, Ragnhildur Helga-
dóttir, skal á þing. Sjálfstæðisflokkurinn fékk í siðustu kosningum
4 þingmenn kjörna í Reykjavík. Innan hans ríkir nú meiri eining
cn nokkru sinni fyrr. Allar líkur benda því til, að Ragnhildur
Ilelgadóttir muni ná kosningu, ef að því er unnið af festu og
samhug.
Ragnhildur Helgadóttir: Lóðið, Fundurinn í gærkvöldi sýndi mikinn og lifandi áhuga fólksins
sem æskan leggur á meiaskálarn- á því að gera sigur Sjálístæðisflokksins í Reykjavík glæsilegan
ar er þungt. 24. júní í sumar.
Sagði forsetinn, að stjórnmála-
mönnum í Vestur-Evrópu hefði
lengi verið ljós nauðsyn þess að
stofna sambandsríki í V-Evrópu,
þar sem ekki væri hægt að
tryggja öryggi allra nema með
samvinnu ríkjanna á þessu svæði.
Ymis vandkvæði hefðu verið á
því að stofna slíkt sambandsriki,
og hefðu þjóðarmetnaður og óiti
Við menningarleg og efnaleg af-
skipti ráðið þar mestu um, en
engu að síður hefði mikill ár-
angur náðst eins og sjá mætti
af stofnun Efnahagssamvinnu-
stofnuuar Evrópu, stofnun Kola-
og stálsamsteypunnar o. fl. —
Draumurinn um Bandaríki Ev-
rópu væri því nær því að rætast
en nokkru sinni áður. Ríki V-
Evrópu réðu yfir miklum auð-
lindum og ættu sameiginlega
merkan menningararf, og ekki
væri hægt að draga í efa að
Bandaríki Evrópu yrðu ríki auð-
sældar og framfara.
GUATEMALABORG, 25. mai.
— Dakoiaflugvél með 28 far-
þega og þriggja manna áhöfn
hrapaði í dag i fjallahéraði,
130 km norðaustur af Guate-
malaborg. Óttazt er, að allir
um borð hafi farizt.
Kjörorð Reykvlkinga i alþingiskosningunum:
HVAR ER HIN DÓTTIRIN?
í góða veðrinu í fyrradag, labb-
aði ung húsmóðir með tvær litlar
dætur sinar niður að Tjörn. Og
hérna sjáið þið, hvar hún situr.
Eldri dóttirin stendur frammi á
Rognhildur Helgndóttir sknl d þing
steinpallinum og virðir fyrir sér
„andríkið“ á Tjörninni. En hvar
er hin telpan eiginlega?