Morgunblaðið - 26.05.1956, Side 12
12
MORGWNBLAÐ19
Lauttardagur 26 maí 1956
SYSTURNAR ÞRJÁR
EFTIR IRA LEVIN — Annar hluti: ELLEN
Framhaldssagan 95
„Stöðvaðu þá! Þeir husta á
orð þín Þeir eru viti sínu fjær.
Þeir aetla að myrða mig. Stöðv-
aðu þá! Ég get útskýrt þetta
með listann, ég get útskýrt það
allt saman. Ég sver það, að ég
laug ekki —
Hún hélt áfram að stara á
hann. Loks sagði hún svo: —
„Á sama hátt og þú útskýrðir
það fyrir mér, hvers vegna þú
hefðir ekki sagt mér frá dvöl
þinni í Stoddard?“
„Ég elska þig! Ég sver það
við guð, að ég elska þig. Ég
hugsaði aðallega um peningana
í fyrstu, það játa ég fúslega, en
ég elska þig. Þú veizt að það
er ekki lygi“
„Hvernig get ég vitað það?“
spurði hún.
„Ég sver —
„Þú hefur nú svarið svo margt
og mikið.." Bjúlagaðir fingur
hennar komu í ljós á öxlum mann
anna, langir, hvítir fingur með
ljósrauðum nöglum, sem virtust
ýta, ýta mönnunum áíram í áttina
til hans.
„Marion, þú getur ekki gert
þetta, þar sem við .. eftir að
við höfum . ,N“.
Fingur hennar ýttu þétt fast
á axlir mannanna, ýttu áfram —
áfram.
„Marion", grátbað hann ár-
angurslaust.
Skyndilega varð hann þess var,
að verksmiðjudrunumar hækk-
uðu um allan helming og kæfandi
hitastraumur féll upp með hægri
hlið hans. Kraninn! Hann snéri
sér snöggt á hæl og greip með
báðum höndum um járnstoðina.
Þarna var hann! — Ekki í tuttugu
íeta fjarlægð, á brautarsporinu
þarna uppi og hann nálgaðist með
skrölti og d yn,með stálvxrana
hangandi niður úr botni stýris-
hússíns. í gegnum gatið á fram-
hlið kranahússins sá hann álútt
höfuð með gráa derhúfu. —
„Halló, þú þarna", hrópaði hann
með ýtrustu beitingu raddband-
anna og kjálkavöðvanna. — „Þú
þarna í krananum! Hjálp, þú
þama!“ Hítinn frá steypupottin-
um, sem alltaf nálgaðist, pressaði
lamandi á brjóst hans. ,Hjálp!
þér þarna í krananum!“ Gráa
derhúfan kom nær, en hreyfði
sig ekki. Heyrnarlaus? Var þessi
djöfulsins fáviti þá gersamlega
heyrnarlaus! „Hjálp“ öskraði
hann með andköfum, aftur og
aftur, en slíkt bar engan árang-
ur.
betri ending
með NUGGET
HeildsölubirgOir;
H. Ólafsson & Bernhöft
Reykjavík.
Si'mi 82790 (3 hnur)
uppstreymandi hita og var gráti
nær af örvita skelfingu.
Leo sagði: „Hvergi í allri verk
smiðjunni er hávaðinn og skrölt-
ið jafn yfirgnæfandi og í krana-
húsinu.“ Á meðan hann sagði
þetta, steig hann eitt skref áfram,
hið sama gerði aGnt við hlið hans
og Marion fylgdi fast á eftir.
„Heyrið þið nú“, sagði Bud og
reyndi að telja þeim hughvarf, en
greip um leið með vinstri hendi
um brún skilveggsins. „Verið þið
nú.... “ Hann starði á andlit
þeirra, sem voru svipbrigðalaus
og köld, eins og grímur. — Og
snn komu þau einu skrefi nær.
Lausa brúin kastaðist til og
sveiflaðist, eins og fleki í hafróti
aða teppi sem er hrist til. Hinn
steikjandi hiti við hægri hlið hans
tók að breiðast út um bakið. Þeim
var alvara! Þetta var ekki neitt
gabb! Þau höfðu í hyggju að
drepa hann! — Heitur raki rann
niður um hann allan.
„Jæja, gott og vel“, hrópaði
hann. — „Gott og vel. Hún hélt
að hún væri að leggja út spænsku
fyrir mig. Ég skrifaði bréfið á
spænsku. Ég bað hana um að
þýða —“ Rödd hans lækkaði og
hljóðnaði með öllu.
Hvað gekk eiginlega að þeim?
Andlit þeirra .... hinn grímu-
líki, tómi svipur var horfinn,
breyttur í — í vandræðaleg ráð-
þrot og nístandi fyrirlitningu. Og
þau stóðu eins og steingerfingar
og störðu niður á....
Hann leit niður fyrir sig. Fram
an á buxunum hans var dökkur
blettur, sem breiddist út og
hríslaðist í mörgum greinum nið-
ur eftir hægri buxnaskálminni.
Ó, guð! Japaninn.... Japaninn,
sem hann hafði drepið — þessi
skjálfandi, biðjandi skrípamynd
af manni. — Þessi fyrirlitlegi
vesalingur, sem pissaði í buxurn-
ar af vitstola hræðslu — var það
hann? Var það hann sjálfur?
Svarið stóð skýrt ritað í and-
litsdráttum þeirra.
„Nei!“ hrópaði hann. Svo greip
hann báðum höndum fyrir augun,
en þau voru þarna fyrir því. -—
„Nei, ég er ekki líkur honum“.
Hann snéri sér ofsahratt við, til
þess að sleppa frá þeim. Annar
fóturinn rann til í bleytunni og
hann missti jafnvægið. Hendum-
ar flugu frá andlitinu og böðuðu
tryllingslega út í loftið. Hitinn
streymdi upp á móti honum. Með-
an hann hrapaði, sá hann glans-
andi, grænt vökvayfirborðið í
steypupottinum, sem mjakaðist
stöðugt áfram og var nú næstum
beint fyrir neðan hann.
Hendurnar gripu um eitthvað
hart. Stálvíramir. Þungur líkami
hans sveiflaðist og kastaðist niður
á við og í hring, svo að hann
sveið í axlarliðina og olnboga og
stáltrefjar sem stóðu út úr vím-
um, flettu skinninu úr lófimum.
Hann hékk niður með vírunum
og starði upp fyrir sig og sá hvern
ig stálflísarnar stungust eins og
nálar inn í holdið á greipum hans.
Heill hrærigrautur af hljóðum
— skerandi flaut og ískrandi blíst
ur, neyðaróp í konu, raddir uppi,
raddir niðri .... Hann gaut aug-
unum upp til handanna — blóðið
var farið að renna eftir úlnliðun-
um innanverðum — hitinn var
Hann snéri sér undan hinum
ALBOL til allra Tivotta.
Biðjið kaupmanninn um A L B O L
ALBOL er AL bezt.
Evar!akárií!fl FOSTBRÆÐUa
Söngstjóri: Ragnar Björnsson.
Samsöngur
í Austurbæjarbíói í dag klukkan 5.
Einsöngvarar:
Þuríður Pálsdóftir,
Einar Kristjánsson,
Kristjnn H»llsson
Sigtuour xíjoíu^juix.
Við hljóðfærið:
Ásgeir Beinteinssson.
Aðgöngumiðar dags. 22. maí gilda að pessum samsong.
NoWnr aðeöna-nmiðar seldxr í Bókaverzlun S'»fúsar
E,y 1UUUUW.UUCU', L«IU tuu>c.r XJ'uuudi Og x Auú.uíuccjujuujÍ.
da;;si£/:í
haida Siálfstœ&isféiögin
f Reykjavík
fyrir meðlimi sína í Sjálfstæðishúsinu í kvöld kl. 9.
Aðgöngumiðar á skrifstofunni ki. 5—6.
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík.
U.M.S.K.
U.M.S.K.
Ungmennasamband
Kjalarnessþings
heldur almenna skemmtun að Hlégarði í kvöld kl. 9.
Ferð frá B.S.Í. klukkan 8,30.
Húsinu lokað klukkan 11,30 — Ölvun bönrruð.
Netndin.
S/i c Ifurfunglið ansleikur í kvöld kl. 9.
Hin vinsæla hljómsveit Jóse M. Riba leikur.
Aðgöngumiðar seldir eftir kl. 8. Silfurtunglið. — Sími 82611-
MARKÚS^Eftir Ed Dodd -----------td
_ BTvES, SHE'S a pretty ^
GOOD OUTDOORS GIRL...OH,
HERE THEY COME NOW/
NICE TO MEET YOU, TRAIL...
MR. HIS-TTOY/ER, I’M MARK TRAIL) SAY, I HEARTHIS DAVIS _
...DR. DAVÍS AND CMERRY WILL / BASE IS QUITE A GAL...
BE DOWN IN A MOMENT/ / GOOD LOOKS, GOOD SHOT;
' RIDE AND ALL THAT SORT
OF THING/
%
%
1) -v- Þér mun vissulega geðj-
ast að þessum skemmtistað,
SirrL
— Já, hann virðist ekki svo af-
leitur.
2) — Skál fyrir ferðinni okkar
inn í Kongó, að hún gangi vel.
3) — Villtu dansa við mig,
Sirrí.
4) — Hvernig lízt þér á Phil,
Davíð?
— Ja, ég veit það ekki. En vlS
/erðum að gera allt sem við get-
um þar sem faðir hans greiðir
ferðakostnaðinn.