Morgunblaðið - 26.05.1956, Side 15
Laugardagur 26. maí 1956
MORCUlSBLAÐlBi
15
Tíbetbuar eru ekki þakklátir
Hauða Kína fyrir „freísunina“
Oolokæftflokkurinn gerði uppreisn vegna „umbóta'
kommúnista í landbúnaðarmélum
r'BETBÚAR hafa enga ástæðu
til að bera hlýjan hug til
Kínverja, sem undanfarnar aldir
hafa leitað á sjálfstæði Tíbcts.
Kínverskir kommúnistar tóku
skarið af, er þeir komust til vaida
í Kína, og fyrir fimm árum
„frelsuðu“ þeir Tibet. En Tíbct-
búar eru ekki hrifnir af „frels-
uninni“, og undanfarin fimm ár
hafa Tíbetbúar stöðugt stofnað til
óeirða, enda þótt Peking-stjórnin
hafi ekki verið eins harðhent í
framkvæmd „sósíalismans“ í Tí
bet og í ÖTðum löndum, sen:
Rauða-Kína hefur svælt undi:
sig. Það á að heita svo, að hif
forna prestaveldi sé enn við lýði
og bæði Dalai Llama og embætt
Dalai Llama — beygði sig fyrir
ofurcfiinti.
isbróðir hans og keppinautur,
l’anchen Llama, scu enn æðstu
menn landsins. En þó að Tíbet
hafi haldið sjálfsforræði stnu að
nafninu til, er landið samt raun-
verulega aðeins leppríki undir
járnhæl Rauða-Kína.
Vitanlega hefur Peking-stjórn-
in lýst yfir því, að ailar fregnir
um óeirðir í Tíbét séu helber
lýgi. Það er þó enginn vafi á því
að þsssar fregnir styðjast við
staðreyndir. Landið á langa sögu
að baki sem sjálfstætt, mjög ein-
angrað ríki, og heldur er ólíklegt,
að landsbúar kunni því vel, að
flugumenn frá Rauða-Kína segi
þeim fyrir verkum í einu og öllu.
★ ★
Víðtæk uppreisn hefur nú ver-
ið gerð í Austur-Tíbet, enda hef-
ur það verið svo, að landamærin
milli Tíbets annars vegar og Kína
hins vegar hafa löngum verið ó-
ljós. Fregnirnar um uppreisn
þessa komu frá Lhasa og einnig
frá Nýju-Delhi. Golok-ættflokk-
urinn — um 80 þús. manns —
í norð austur hluta landsins greip
til vopna vegna mikillar óánægju
með „umbætur" kommúnista í
landbúnaðarmálum. Segir í
fregnunum, að Golok-ættflokk-
urinn hafi unnið glæsilegan sigur
yfir kínverska setuliðhiu — 800
manns.
Svo virðist sem kommúnistar
hafi misst tökin á þessum lands-
hluta. Kommúnisíar hafa samt
hreiðrað svo vel um sig í Tíbet,
að það er aðeins tímaspursmá:,
hvenær þeim tekst að brjóta mót-
spyrnu Golok-manna á bak aftur
— og þá koma víðtækar hreins-
anir og hegningar í kjölfar upp-
reisnarinnar. Hættan á vaxandi
óeirðum í landinu er því mikil —
ekki sízt þar sem kommúnistar
hafa nú boðað „lýðræðislegar
umbætur“.
★ ★
Til að viðhalda blekkingunni
um sjálfsforræði Tíbets hafa
kommúnistar sett á laggirnar
stofnun, sem heitir því fallega
nafni „hin fasta sjálfsforræðis-
nefnd“, en er eins og gefur að
eskilja handbendi Peking-stjórn-
arinnar. Þessi nefnd hélt stofn-
fund sinn í Lhasa fyrir skömmu
síðan, og svo er að sjá sem hinn
ungi Dalai Llama hafi beygt sig
íyrir ofureflinu og heitið nefnd-
inni samvinnu. A.m.k. var sam-
þykkt á stofnfundinum „endur-
bótaáætlun“, þar sem gert er ráð
fyrir, að ákvarðanir nefndarinnar
verði gerðar „opinberar“ — sem
er á sinn hátt mjög athyglisvert
— og undirbúningsnefnd sér um
framkvæmd ákvarðananna. Ýms-
ar framkvæmdir eru í undirbún-
ingi, og þjóðinni hefur þegar ver-
ið tilkynnt, að þessar fram-
kvæmdir verði að sitja í fyrir-
rúmi fyrir öllu öðru .— öllu verð-
ur að fórna í þágu „endurbót-
anna“.
Mörg og fögur orð voru við-
höfð á stofnfundinum, og fulltrúi
Peking-stjórnarinnar, Chen Yi,
þakkaði þeim Dalai Llama og
Panchen Llama fyrir að hafa
skuldbundið sig til að vinna að
„einingu landsins og traustari
sambandi við Rauða-Kína“. —
Dalai Llama sagði m.a. að „Dalai
Llamá fimmti hefði sameinað
Tíbet, hinn sjöundi hefði eflt
Llamaismann hvað mest“, og
Chen Yi svaraði með miklum
glæsibrag: „Dalai Llama fjórt-
ándi efldi sósíalismann og vinnur
með því að því að auðga Tíbet“.
★ ★
En auðæfin hafa látið standa
á sér, og falleg orð mega sín
einskis. Þjóðit> fékk raunveru-
lega ekkert að leggja til málanna
á stofnfundinum í Lliasa, enda
munu Kínverjar eiga fullt í fangi
með að láta Tíbetbúa sitja og
standa cins og þeim þóknast.
Samke>mur
Hjálpræðisherinn
Sunnudaginn kl. 11: Helgunar-
samkoroa. Kl. 4: Útisamkoma. Kl.
8,30: Hjálpræðissamkoma. For-
ingiar og hermenn taka þátt í
samkomunni. — Velkomin.
I. O. G. T.
Barnaslúkan linnur »r. 38
Farið í ferðalagið á sunuudags
morgun kl. 10 eí veður leyfir. —
Hafið með ykkur nesti. Tilkynnið
’. átttöku eftir hádegi í dag í
síma 7183. — Gæzlumenn.
St. Svava nr. 23
Fundur í Góðtemplarahúsinu á
morgun kl. 1,30. Kosning fulltrúa
á Stórstúkuþing. Verðlaun veitt
fyrir vetrarstarfið. Rætt um ferða
lag. Til skemmtunar leikrit o. fl.
Gæzlumenn.
Vorþing Umdæmisstúkunnar nr. 1
hefst laugardaginn 26. maí
1956 kl, 2 e. h. í Templarahöllinni
a. Fríkirkjuvegi 11.
Þorsteinn J. Sigurðsson
Umdæmistemplar.
Maríus Ólafsson
Umdæmisritari.
Nemeudutónleiku TónUstu-
skólons verðo í dng og 2. júní
Á efrsisskrá fyrri tánleikanna er m.a.
verk eftir einn nemandann
STARFI TÓNLISTARSKÓLANS
á þessu skólaári er nú að ljúka,
og verða árlegir nemendatónleilc-
ar skólans haldnir í dag og
annan laugardag (2. júní). Hvorir
tveggja tónleikarnir eru kl. 3
síðdegls I Austurbæjarbíói. Fjór-
tán nemendur mur.u koma fram
é tónleikunum. og ljúka tveir
þeirra burtfararprófi: Sigurður
Björnsson lýkur söngnámi, og
er hann lyrsti nemandinn, sem
tekur burtfararpróf í söng frá
Yfirlýsing
VEGNA þjófsorOs þess, sem síð-
asta tölublað Frjálsrar þjóðar,
reynir að prýða mig með, í sam-
bandi vi® myndatökur af kon-
ungskomunni, lýsl ég liér með
yfir, a* frásögn snepilsins er
ósannindi og atvinnurógur, sem
forráðamenn hans munu fá að
avara til saka fyrir á réttum vett-
▼angi.
„Margur heldur mann af sér“!
Pétur Thomsen.
Tónlistarskólanum, og Árni Arin-
bjarnarson, sem lýkur námi í
fiðluleik.
Önnur markverð nýjung á
þessum tónleikum er, að á efnis-
skrá fyrri tónleikanna verður
m.a. tónverk eftir einn nemand-
ann, Tríó fyrir blásturhljóðfæri
eftir Jón S. Jónsson, og verður
tónverkið leikið af hljóðfæra-
leikurum úr Sinfóníuhljómsveit-
inni.
Önnur verlc á efnisskrá fyrri
tónleikanna eru eftir Bach, Beet-
^hoven, Haydn, Sigvalda Kalda-
lóns, Sigfús Einarsson, Mozart,
Mendelsohn-Bartholdy og Schu-
mann. Á síðari tónleikunum
verða leikin verk eftir Beethov-
en, Mozart, Chopin, Tartini, Ra-
vel og Bruch.
Hundrað og fimmtíu nemend-
ur hafa stundað nám í Tónlist-
arskólanum í vetur. Skólanum
verður slitið 4. júní n.k.
Félagslái
Reykjavíkurmót II. flokks
hefst á Háskólavellinum laugar
daginn 26. maí ld. 14,00. — Þá
keppa Þróttur—K.R.. Kl. 15,15
keppa Valur—Víkingur.
Reykjavíkurmót III. fl. A
hefst á Háskólavellinum 27. mai
kl. 9,30. Þá keppa K.R.—Valur.
Kl. 10,30 Þróttur—Fram.
Reykjavíkurmót III. fl. B
hefst á Háskólavellinum sunnu
daginn 27. maí kl. 14,00 með leik
K.R.-C.—IC.R.-B. Kl. 15. Fram—
Valur. — Mótanefndin.
Til sölu
R. C. A. útvarpstæki og
plötuspilari. — Tækið er I
mjög fallegum skáp, sem
stendur á gólfi með inn-
byggðu loftneti og stórum
hátalara. Plötuspilarinn út
af fyrir sig, óinnbyggður.
Upplýsingar að Lönguhlíð
9, efstu hæð.
BEZT AÐ AUGLÝSA
t MORGUNBLAÐIIW
Tit leigu
í Miðbænum yfir sumarmán
uðina, 2 stofur með húsgögn
um og aðgangi að eldhúsi.
Stofurnar leigjast annað
hvort saman eða sitt í hvoru
lagi. Tilboð sendist Mbl. sem
fyrst merkt: „Sumarmánuð-
ir — 2245“.
Nýjasta tízka
•%v..
■
m..
Grænir og rauðir
Aðalstræti 8.
JONINA S. DAVÍÐSDOTTIR
frá Veiðilæk, andaðist í Sjúkrahúsi Akraness að morgni
25. maí.
Eiginmaður, hörn og tengdahörn.
Litli sonur okkar
HELGI
andaðist í Landsspitalanum 18. þ.m. Jarðarförin hefir
farið fram.
Guðríður Árnadóttir, Jóhann Sigurjónsson,
Hjallaveg 42.
Jarðarför mannsins míns og föður okkar
EINARS KR. GUÐMUNDSSONAR
Laugarnesvegi 42, fer fram frá Fossvogskirkju kl. 1,30
e ?i. mánudaginn 28. maí n.k.
Una Guðmundsdóttir,
börn og tengdabörn.
Tnnilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
STEINUNNAR EINARSDÓTTUR
frá Norður Reykjum
Systkini hinaar látnu.
Hugheilar þakkir til allra þeirra fjær og nær, fyrir auð-
sýnda samúð og hluttekningu við fráfall og jarðarför
GUNNARS M. ÓLAFSSONAR
Grindavík.
Móðir, eiginkona, börn og aðrir vandamenn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jarð-
arför föður okkar
HELGA GUÐMUNDSSONAR
Melshúsum, Hafnarfirði
Gyða Helgadóttir,
Sigríður Hclgadóttir.
Þórunn Helgadóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför konu minnar
HÖLLU SÆMUNDSDÓTTUR
Fögruvöllum, Garðahreppi. Sérstaklega viljum við þakka
systrunum í Sct. Josephsspítala, Hafnarxirði fyrir góða
hjúkrun.
Guðlaugur Jór.sson og börn.
Innilegustu þakkir fyru- auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför systur minnar
KRISTÍNAR RUNÓLFSDÓTTUR
Sérstaklega beini ég þakklæíi minu til séra Hannesar
Guðmundssonar og hjónanna Jónínu og Friðnks í Mið-
koti.
Guðrún Runólfsdóttir.
Fossi.