Morgunblaðið - 16.07.1957, Page 2
*
MORGVNBLAÐIÐ
In-iðjudagur 16. júlí 1957
■*
<0
tJrslit á skákmötinu
Skýrsla Fiskifélagsins:
1 3. UMFERÐ áttust við ísland
og Equador. Gæfan var ekki hlið-
holl löndum vorum, t. d. gat Jón
unnið hrók án þess að gefa svo
mikið sem peð fyrir, en hann var
sleginn skákblindu, lék mjög
slæman leik og tókst aldrei að
rétta hlut sinn eftir það. Friðrik
beitti Nimzo-indv. vörn gegn
Munoz og eftir ónákvæma tafl-
mennsku af hálfu Munoz náði
Friðrik frumkvæðinu, sem hann
jók smám saman, þar til hann
vann peð, en þá skeði slysið.
Munoz fórnaði manni í örvænt-
ingu, en Friðrik yfirsást hið rétta
framhald og tapaði.
Guðm. hafði hvítt og fékk
snemma yfirburðastöðu, sem
hann átti örugglega að vinna, en
honum varð á í messunni,
skipti upp á biskup fyrir riddara
og gat ekki unnið endataflið.
Ingvar tefldi kóngs-indv. vörn
og komst snemma í sókn á kóngs-
væng, sem var ekki verulega
sannfærandi, því andstæðingur
hans gaf sér tíma til að hirða
tvö peð á drottningarvæng Ing-
vars, án þess að Ingvar kæmist
verulega áfram með sókn sína.
En fátt er svo með öllu illt,
að ekki boði nokkuð gott, því
Ingvar fékk sendan ókeypis hrók
og vann auðveldlega.
Um 700 manns komu til að
fylgjast með keppni íslands og
Danmerkur. Friðrik beitti kóngs-
indv. gegn riddaraleik Larsens,
sem virðist tefla nokkuð undir
sínum vanalega styrkleika. Eftir
nokkurt þóf á miðborðinu, vann
Friðrik peð og sigraði án veru-
legra erfiðleika.
Guðm. fékk allgóð sóknarfæri
gegn Danmerkurmeistaranum
Ravn, en þau nýttust ekki sem
skyldi og lenti Guðmundur í
tímahraki sem leiddi af sér tap
á tíma í vonlausri stöðu.
Ingvar sem teflir öllum stund-
um kóngs-indv. fórnaði snemma
peði og fékk í staðinn vel stað-
setta menn. Þennan ávinning
notaði hann sér mjög vel, þving-
aði peð af Andersen og sömu-
leiðis til uppgjafar þegar mát var
óumflýjanlegt í næsta leik.
Þórir fékk aldrei að byggja
upp stöðu sína að fullu, því Din-
sen byrjaði að fleygja í hann
mönnum sínum áður en undir-
búningi var lokið. Þórir fékk því
það hlutverk að tína þá upp
hvern af öðrum unz hann hafði
3 menn yfir. Þá fannst andstæð-
ing hans nóg komið og gaf
Þriðja umferð
Búlgaría Danmörk
Kolarov 1 Larsen 0
Minev 1 Ravn 0
Padevsky 1 Andersen 0
Tringof Vt G. Dinsen y2
Mongólía Rúmenía
Tumubaator Drimer
Munhu Vz Ghitescu Vz
L. Miagmarsuren % Szabo v*
Tseveldidoff 0 Botez i
Ráðstjórnarrikin A-Þýzkaland
Tal 1 Dittmann 0
Spassky Vz Berholt y2
Polugaueski 0 Liebert í
Gipslis 1 Jiittler 0
Tékkóslóvakía Finnland
dr. Filip 1 Lahti 0
Blatny 1 Kajasti 0
Marsalek 1 Aaltio 0
Vaslovzil 1 Sammalisto 0
Ungverjaland Svíþjóð
Benkö 1 Söderborg 0
Portisch Vi Hággquist 0
Navarofsky 1 Sehlstedt 0
Molnar 1 Palmkvist 0
England Bandaríkin
Persitz 0 Lombardy 1
Martin Vt Mednis Vz
Davis 0 Feuerstein 1
Gray Vz Sobel Vz
Ecuador ísland
Munoz 1 Friðrik 0
Yepes y2 Guðm. %
Benites 0 Ingvar 1
Yepes 1 Jón 0
FJórða umferð
Danmörk ísland
Larsen 0 Friðrik 1
Ravn 1 Guðmundur 0
Andersen 0 Ingvar 1
Dinsen 0 Þórir 1
Bandaríkin Ecuador
Lombardy Vz Munoz y2
Mednis 0 Yepes 1
Feuerstein 1 Benites 0
Saidy 1 Yepes 0
Svíþjóð England
Söderborg Persitz
Hággquist 0 Martin 1
Sehlstedt 0 Davis 1
Palmkvist 0 Gray 1
Finnland Ungverjaland
Lahti 0 Portisch 1
Rannanjárvi 0 Forintos 1
Aaltio 0 Navarofsky 1
Sammalisto 0 Haag 1
A.-Þýzkaland Tékkóslóvakía
Dittmann % dr. Filip y2
Berholdt Vz Kosma %
Liebert 1 Marsalek 0
Jiittler 0 Vaslovzil 1
Búmenía Ráðstj órnarríkin
Mititelu 0 Tal 1
Drimer Vt Spassky Vz
Ghitescu Gurgenidze
Szabo Vz Nikitin Vz
Búlgaría Mongólía
Kolarov Tumubaator
Minev Munhu
Padevski 1 Miagmarsuren 0
Bogdonon 1 Teseveldidoff 0
237 skip búið oð fá einhvern afla
358 þúsund ntál og tunnur á land niú <
en 203 þúsund á sama tíma í fyrra
VEIÐI var allgóð í vikunni nema á föstudag og laugardag, þá
daga barst lítill afli á land. Veður var hagstætt til veiða alla
vikuna. Vikuaflinn var 34.119 uppsaltaðar tunnur, 1695 uppmæld-
ar tunnur til frystingar og 115.918 mál í bræðslu.
Aflamagn veiðiskipanna er mjög misjafnt að vanda og sýnir eftir-
farandi tafla þetta. Tölur í svigum sýna aflaskiptinguna á sama
tíma í fyrra.
59 skip hafa aflað 500—1000 mál og tunnur (48)
86 skip hafa aflað 1000—2000 mál og tunnur (77) *
44 skip hafa aflað 2000—3000 mál og tunnur (16)
17 skip hafa aflað 3000—4000 mál og tunnur ( 3)
3 skip hafa aflað 4000—5000 mál og tunnur (0)
1 skip hefir aflað 5000—6000 mál og tunnur (0)
Síðastliðinn laugardag (13. júlí) á miðnætti var síldaraflinn
sem hér segir. (Tölur í svigum sýna aflann á sama tíma í fyrra).
í bræðslu 308.235 mál ( 56.992)
í salt 45.249 upps. tn. (141.090)
í frystingu 5.219 uppm. tn. ( 5.162)
Samtals mál og tunnur 358.703 (203.244)
Á þeim tíma, sem skýrsla þessi er miðuð við var vitað um 231
skip sem var búið að fá einhvern afla (í fyrra 173), en af þeim
höfðu 210 skip (í fyrra 144) aflað 500 mál og tunnur samanlagt
og meira. Afli einstakra báta verður birtur síðar.
Keflavík o" Isa-
fjörðor í úrslitnm
UM helgina fóru fram ýmsir
knattspyrnukappleikir í deild-
um. í 1. deild vann Fram lið
Akureyrar með 2:0 í lélegum
leik í Reykjavík. Mörkin skoruðu
Björgvin Guðmundsson og Skúli
Nielsen.
1 Keflavík sigraði lið Keflavík-
ur lið Suðurnesjamanna með 1:0
og hefur Keflavík því komizt í
úrslit í 2. deildarkeppninni, en
úrslitaleikurinn fer fram í Rvík
26. júlí.
Mótherjar Keflvíkinga verða
þá ísfirðingar, sem í úrslitaleik
unnu Húnvetninga á sunnudag
með 7:3.
BEIRUT. — 1 gær kom banda-
rískt skip til Beirut með vopna-
farm, sem Libanon fær samkv.
„Eisenhower-áætluninni" svo
nefndu.
ísland:
Friðrik Vt
Guðmundur bið
Ingvar 0
Þórir Vz
ÁLASUND. — Norsku síld-
veiðiskipin á íslandsmiðum hafa
aflað misjafnlega. Flest eru með
400—600 tunnu afla.
London, 13. júlí.
MEÐAL manna, sem áhangandi
eru sendisveitum í London, er
uppi þrálátur orðrómur um, að
mikill áreiningur og valdakeppni
sé nú innan æðstu stjórnar Rauðá
hersins.
Samkvæmt þessum orðrómi á
Wassiljewski marskálkur, sem
veit herráðsforingi Stalins meðan
á stríðinu stóð, að vera í ein-
dreginni andstöðu við Zhukov
marskálk, sem í fyrri viku fékk
sæti í æðstu flokksstjórninni.
Wassiljewski er nú varamaður
Zhukovs sem hermálráðherra.
Talið er að hann vilji halda fram
ymferð
Danmörk:
B. Larsen 1
P. Ravn 0
B. Andersen 1
B. Spalk 1
Bandaríkin:
Lombardý %
Mednis bið
Fenerstein 1
Saidy Vz
Afli fyrir 1%
millj. kr.
NESKAUPSTAÐ, 15. júlí. — Tog.
arinn Gerpir frá Neskaupstað
landaði saltfiskfarmi í Esbjerg
fyrir helgina. Sá farmur var sá
stærsti og dýrasti, sem ísl. togarl
hefur landað. 457 tonn af salt-
fiski komu úr lestum togarans og
er verðmæti þess afla 1 milljón
566 þúsund krónur. Auk þess
landaði togarinn 22 lestum af lýsi
og er verðmæti þess um 100 þús.
krónur.
Bifreið í Hólmsá
NÚ UM helgina var bíl ekið út
í Hólmsá hér skammt fyrir aust-
an bæinn og í gær var hann þar
enn úti í miðri ánni. Nánari til-
drög þessa atburðar voru þau að
á sunnudaginn var einkabifreið
að koma austan úr Hveragerði.
Var hún fullsetin farþegum. Er
kom að brúnni á Hólmsá, skammt
frá Gunnarshólma missti bílstj.
stjórn á bifreiðinni, en hann mun
hafa ekið með um 80 km hraða.
Skipti það engum togum að
bifreiðin lenti út í miðja ána.
Engan sakaði af þeim sem í bif-
reiðinni voru.
„harðari" stefnu en Zhukov og
aðhyllist fremur skoðar.ir Molo-
tovs. Búizt er við að þessi valda-
streita milli Zhukovs og Wassil-
jewski muni verða útkljáð á
næstunni.
Talið er að Wassiljewski standi
miklu ver að vígi en Zhukov og
muni þetta ef til vill hafa það
í för með sér að hann verði svipt-
ur stöðu sinni sem vararáðherra.
Talið er, að Wassiljewski hafi
ekki viljað fordæma Molotov,
Malenkov og þá aðra, sem reknir
voru úr stöðum sínum, en hins
vegar hafi aðrir markskálkar
Rauða hersins, svo sem eins og
Konjew, lýst yfir andúð ginni
á þeim félögum og samþykki
sínu við hina nýju „hreinsun".
Á það er bent að ferill Wassil-
jewski hafi verið tengdur Molo-
tov, þannig að þegar sá síðar-
nefndi varð árið 1949 að láta af
embætti utanríkisráðherra, þá
missti Wassiljewski einnig stöðu
sina sem hermálaráðherra. Á
hinn bóginn fékk Wassiljewski
þá stöðu þegar gengi Zhukovs
var sem minnst og Stalin hafði
rekið hann í eins konar útlegð til
Odessa.
Augljóst virðist að hreinsun sú,
sem fram hefur farið nú fyrir
skemmstu sé ekki fullkomnuð og
muni hún smátt og smátt ná til
fleiri manna, sem lægra eru settir
í stjórnarráðunum í Moskvu.
Abúendur
Syðra-Langholts
I SAMBANDI við kafla í Reykja-
víkurbréfinu á sunnudag um Sig-
mund í Syðra-Langholti er rétt
að bæta því við, að afkomendur
Magnúsar Andréssonar búa enn
á hluta jarðarinnar.
I Syðra-Langholti er nú fjór-
býli og á tveimur bæjanna búa
afkomendur Magnúsar. Þeir eru
Bjarni Kristjánsson, sem búið
hefur þar myndarlegu búi í 20
ár og systursonur hans Þórður
Þórðarson, ungur maður, sem
hefur komið upp nýbýli. — Er
vissulega vekjandi athygli á því,
að þarna skuli enn búa afkom-
endur þessarar mikilhæfu ættar
I og gera garðinn frægan á hinu
I nafnfræga ættaróðali. *
Fimmfa
Mongolía:
Tumubaator 0
Munhu 1
Miagmarsuren 0
Tseveloidoff 0
Sovétríkin: Búlgaría:
Tal 1 Kolarov 0
Spasskí Vz Minev y2
Polugétski 1 Padevski 0
Nikitin bið Tringov bið
Tékkóslóvakía: Rúnrenía:
Dr. Filip 1 Mititelu 0
Kosma y2 Drimer y2
Blatný Vz Ghitescu %
Wisslovzil bið Szabo bið
Ungverjaland: Ausáur-Þýzkaland:
Benkö bið S. Dittmann bið
Portisch bið Bertholdt bið
Torintos bið H. Liebert bið
Navavovsky bið H. Juttler bið
England: Finnland:
Persitz y2 Lahti Vz
Martin Vt Rannanjárvi %
Davis bið P. Kajaste bið
Gray Vz Aalto Vz
Equador Svíþjóð:
Munoz Vz B. Sönderborg Vz
Yépes % Hággquist Vz
Benites Vz B. Sehlstedt Vz
O. Yépes 0 S. Palmkwist 1
Barizt um völdin í Moskvu
%