Morgunblaðið - 16.07.1957, Side 15
!>riðjudagur 16. júlí 1957
15
MORCZJW15LAÐIÐ
— Gkðír skátar
Framh. af bls. 9
mót. Að því búnu ávarpaði skáta-
höfðinginn mótið, þakkaði Akra-
nesskátunum og mótstjórn þeirra
mikla og góða starf við undir-
búning, og hinum öðrum íyrir
komuna, síðan ræddi hann um
skátahreyfinguna og næstu við-
fangsefni, svo og um stofnand-
ann, sem þetta mót var helgað.
Að lokum var sunginn bræðra-
lagssöngur skáta og kvenskáta-
söngurinn og fáninn dreginn inð-
ur. — Mótinu var slitið.
Xjaldborgin hvarf með skjótari
hætti en hún kom. Hún var bók-
staflega bundin saman á svip-
stundu og hossaðist aftur á bök-
um skátanna niður skógargötuna
þangað sem bílarnir biðu tii heim
ferðar. Eftir stóðu hinar „opin-
beru byggingar“ og nokkur Akra-
nestjöld, þeirra sem áttu nú mik-
ið verk fyrir höndum að ganga
frá og flytja allt aftur til baka —
Þeir sem þurftu að bíða eftir
bílum sínum gengu aftur upp á
svæðið og spurðu sjálfa sig og
þann næsta: — Af hverju þurfum
við að fara heim? Það var svo
gaman hérna. — Að því varð ekki
gert — mótið var búið. Skipst
var á skátahrópum þegar bílarnir
runnu af stað — og kveðjan
breyttist frá þeirri vanalegu í:
„Hittumst á næsta móti!“
Þátttakenður voru frá Reykja-
vík, Kópavogi, Hafnarfirði, Njarð
vík, Keflavík, Selfossi, Hvera-
gerði Ólafsvík, Borgarnesi og
Akranesi. Reykjavíkur-stúlkur
voru fjölmennastar af einstökum
félögum.
Slík mót sem þetta eru mikils
virði. Þar hittist æskan ýmsum
stöðum frá, og nýr kunnings-
skapur myndast og oft vinátta
sem varir. Þarna er lifað heil-
brigðu lífi, í nánum tengslum við
náttúru landsins, þar er ástund-
uð góðvild og hjálpsemi og alltaf
lærist eitthvað, sem hjálpar skát-
unum að fylla upp kjörorð sitt
að vera viðbúinn. — Þegar komið
er af slíku móti, sólbrúnn og glað-
ur, þá virðast manni heimagöt-
urnar þröngar. Botnsdalurinn á
héðan í frá marga nýja vini, sem
gleyma ekki gleðistundunum
þar. Helgi S.
— Hflinnin’g
Framh. af bls. 11.
gat engan svikið. Hann var af
þessum góða gamla stofni sem
mat orð sem eiða og þurfti ekki
að láta nafn sitt á blað til að
hann myndi það sem hann lofaði.
Raungóður var hann þeim sem
bágt áttu og var gott til hans að
flýja ef hann mátti nokkuð við
gera.
Ég þekkti Árna um 15 ára skeið
og alltaf var hann hinn sami. Það
var bæði gagn og gaman við hann
að ræða, hann kunni á mörgu skil,
var ákveðinn í skoðunum og fylgdi
því jafnan fram sem hann vissi
sannast og réttast.
Seinustu árin var heilsu hans
mjög að hraka og um nokkurt
skeið hafði hann ekki komizt úr
rúmi, en sama var æðruleysið hvað
sem á gekk.
Jarðarför hans fer í dag fram
frá Stykkishólmskirkju. Ég á
margar góðar minningar við hann
tengdar og vil nú er leiðir skiiur
kveðja þennan vin minn með inni
legri þökk fyrir samfylgdina um
leið og ég hið honum allrar bless-
unar á landi eilífðarinnar. Þeir
verða margir sem undir þá ósk og
kveðju taka. — Á. H.
Félagslíf
FerSafélag íslands
Ferðir um næstu heigi:
Þrjár 1% dags ferðir:
1 Þórsmörk.
1 Landmannalaugar.
Um Kjalveg, Kerlingarfjöll og
Hveravelli.
Hringferð um Borgarfjörð 2%
dagur. — Uppl. í skrifstofu félags
ins Túngötu 5 sími 19533.
Handknattleiksdeild K.R.
áríðandi æfing í kvöld, stúlkur
kl. 8 og piltar kl. 9. Mætið vel.
—. Stjórnin.
Ffam — knattspyrnumenn
Æfingar verða á Framvellinum
1 kvöld sem liér segir:
Kl. 6—8 „bronsæfing".
Kl. 8—9,30 III. flokkur.
Kl. 9,30—11 Meistara og I. fl.
— Þjálfarinn.
Miðsumarsmót 4. fl. B
þriðjudagim. 16. júlí á Háskóla
vellinum kl. 19.00 Fram —K.R.
— Mótanefndin.
Vinna
Hreingerningar
Simi 12173. Vanir og liðlegir
inenn.
Samkomnr
Fíladelfia
Almennur biblíulestur kl. 8,30.
•— Allir velkomnir.
Innilegustu þakkir færi ég öllum þeim, sem glöddu mig
á sjötugsafmæli mínu 9. júlí með heimsóknum, gjöfum og
skeytum.
Helga Eggertsdóttir,
Melum, Melasveit.
Stúlka
geíur fengið atvinnu á blaðafgreiðslu.
Umsóknir, er greini aldur og fyrri störf
sendist Morgunblaðinu fyrir föstudag
merkt: Rösk — 7825.
Lokað
vegna sumarleyfa frá 15. júlí til 5. ágúst
Radíóstofa Vilbergs og Þorsteins
Laugavegi 72
Hafnarfjörður
Afgreiðsiustúlka, rösk og háttprúð, óskast í haust
til starfa í sérverzlun. Fyrir áhugasama stúlku er
hér um skemmtilegt framtíðarstarf að ræða. Æski-
legur aldur um tvítugt.
Umsókn, ásamt mynd sem endursendist, og uppl.
um aldur, menntun og fyrri störf, leggist inn á afgr.
Morgunblaðsins fyrir fimmtudagskvöld, auðkennt
„Skemmtilegt starf — 7824“.
Tilboð óskast
í nokkrar fólksbifreiðar, er verða til sýnis að Skúla-
túni 4, kl. 1—3 miðvikudaginn 17. þ.m.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5 sama
dag.
Nauðsynlegt er að taka fram símanúmer í tilboði.
Sölunefnd varnarlið'seigna.
Lokað í dag
vegna jarðarfarar
Verzlunin Unnur
Grettisgötu 64
Lokað ■ dag
vegna jarðarfarar
KfÓtverxlanir Hjalta Lýðssonar hf.
Þakka góðar gjafir og mér sýnda vinsemd á sjötíu ára
afmæli mínu.
Arni Jónsson,
málmsteypari.
Öllum þeim, sem sýndu mér vinarhug á 80 ára afmælis-
degi mínum með gjöfum, símskeytum og vinarbréfum,
votta ég mínar innilegustu þakkir. Arna þeim öllum árs
og friðar.
Hákon í Haga.
Frú
ÞÓRA LAUFEY FINNBOGADÓTTIR
andaðist að heimili sínu Laugavegi 46, hinn 14. þ.m.
Aðstandendur.
Móðursystir okkar
JÓHANNA ÞORSTEINSDÓTTIR
fyrrverandi handavinnukennari lézt 13. þessa mánaðar.
Björg Jakobsdóttir, Inga Erlendsdóttir.
Hjartkær faðir minn og sonur
SVERRIR HALLDÓRSSON
símvirki andaðist að morgni 14. þ.m.
Sverrir Sverrisson, Málfríður Jóhannsdóttir.
Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi
JÓN JÓNSSON
Smirilsvegi 29, Grímsstaðaholti lézt að heimili sínu laug-
ardaginn 13. júlí. Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda.
Lilja Sigurjónsdóttir.
Hjartkæri faðir minn og bróðir
EINAR JÓHANNSSON
landbúnaðarkandidat, Bergstaðastræti 48A, verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni miðvikud. 17. þ.m. kl. 3 e.h.
Valgarð Einarsson, Jón Jóhannsson.
Eiginmaður minn og sonur
RAGNAR G. GUÐMUNDSSON
Merkurgötu 9, Hafnarfirði, lézt af slysförum 13. þ.m.
Elín Kristjánsdóttir, Guðrún Þórðardóttir og böm.
Jarðarför
GUÐRÚNAR FUNCK RASMUSSEN
ljósmyndara fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn
19. þ.m. kl. 2 e.h.
Margrét Hinriksdóttir.
Útför móður okkar og fósturmóður
HILDAR MARGRÉTAR PÉTURSDÓTTUR
fer fram frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 19. þ.m. og
hefst með bæn á heimili hennar kl. 13,30.
Lára Magnúsdóttir, Ludvig C. Magnússon,
Kristján C. Magnússon, Páia Sveinsdóttir,
Útför sonar míns
SIGURÐAR GUÐJÓNSSONAR
verzlunarmanns Hrefnugötu 4, fer fram frá Fríkirkjunni
miðvikudaginn 17. júlí kl. 1,30 e.h. —Blóm eru vinsam-
legast afþökkuð; en þeim sem vildu minnast hins látna
er bent á sumarstarf K. F. U. M.
Guðný Guðnadóttir.
Innilegt þakklæti til allra, er sýndu okkur hluttekningu
og vináttu við fráfall móður okkar
GUÐRÚNAR BRYNJÓLFSDÓTTUR BECH
Guðrún S. Bech, Svala S. Bech
Símon S. Bech, Brynjólfur S. Bech.
Þökkum innilega sýnda samúð við fráfall móður okkar
GUÐRÚNAR EINARSDÓTTUR
Haraldur Sigurðsson, Ólöf Sigurðardóttir,
Ásgeir Sigurðsson, Heiðar Haraldsson.
Ég þakka innilega samúð og hluttekningu við andlát og
jarðarför konunnar minnar
VIGFÚSÍNÚ MARGRÉTAR SVEINSDÓTTUR
Kamp Knox 15-E.
Ágúst Þjóðbjörnsson.