Morgunblaðið - 26.10.1957, Side 2
2
MOKCVyBT 4 Ð1Ð
Laugardagur 26. okt. 1957
Markús Jónsson bóndi í Svartagili. — Bærinn í baksýn. —
Markús segir að þó mörgum virðist Svartagil harðbalakot, þá
sé það góð fjárjörð. Myndin er tekin í sumar
(Ljósm. J. JúIIusson).
Mér varð fyrst hugsað til
dýranna er ég sá bœinn
brenna
— ÞEGAR ég sá bæinn brenna
varð mér fyrst hugsað til dýranna
minna, og hirti minna um það á
því augnabliki, að 30 ára erfiði
á jörðinni, var að leggjast í rústir.
— Já en þó vonandi aðeins um
stundarsakir. Ég ætla mér að
byggja upp jörðina ef ég með
nokkru móti get og fer austur í
dag.
Það var Markús Jónsson bóndi
í Svartagili sem þannig komst að
orði við tíðindamann Mbl. í gær-
kvöldi, en Markús sat í vistlegri
stofu frú Lilju Halldórsdóttur að
Bergþórugötu 45 og drakk mola-
sopa eftir kvöldmatinn.
— Ég ætla að koma upp til
bráðabirgða skýli yfir kýrnar
mínar og mig sjálfan, svo ég geti
annast um þær í vetur, ásamt
sauðfé mínu. í hiöðunni sem
brann voru 300 hestar af heyi. Nú
stend ég uppi heylaus að mestu.
Ég á um 170 kindur núna.
Um ryskingarnar við þá bræður
Sveinbjörn og Reyni Hjaltasyni
sagði Markús, að þeir hefðu verið
farnir að slást niðri í eldhúsi,
er hann kom ofán af lofti.
Ég skipaði þeim á dyr,
Sagði þá ekkert erindi við mig
eiga og ég greip í stól til að sýna
þeim að skipuninni myndi ég
framfylgja með hörku ef á þyrfti
að halda En svo sleppti ég tak-
inu á stólnum, og þá stukku þeir
á mig báðir og höfðu mig undir.
Leikurinn barst yfir í hliðarher-
bergi við eldhúsið, en þar inni
hafði ég haglabyssuna mina. Reyn
ir sem var miklum mun verri
kom auga á hana. Sleppti hann
takinu á mér, greip byssuna og
sagði: nú drepum við þig. Hvar
eru skotin, en Reynir hafði opnað
byssuna og sá að hún var tóm.
Var Sveinbjörn nú einn ofan á
mér. Á svipstundu svipti ég hon-
um af mér, stóð upp og hljóp
út úr bænum. Ég sá að ég átti
ekki annara kosta völ, ef ég ætl-
aði að halda lífi og limum.
— Markús telur að hann hafi
fengið höfuðhögg með skefti
haglabyssunnar . Að ég hafi grip-
ið til hennar og ógnað þeim bræðr
um, er helber uppspuni
En i sambandi við brunann er
eitt sem ég get ekki fyri-gefið
sjáifum mer en það er að hafa
livorki vátryggt, innanstokks-
muni, hey né annað, sagði Mark
ús.
Það var ekki til setunnar boðið,
því hann átti að mæta hjá Þórði
Björnssyni rannsóknardómara
að lítilli stundu.
Vill Tíminn leggja
gögnin á borðið ?
„TÍMINN“ segir með stóru letri
á forsíðu sl. fimmtudag þá sögu,
að maður nokkur hafi kvartað
við blaðið út af því, að Niður-
jöfnunarnefnd Reykjavíkur hafi
hinn 28. sept. lækkað útsvar
hans um kr. 1490.00, en afturkall-
að þessa lækkun með annarri til-
kynningu hinn 18. október!
Þetta átti að sýna hve vinnu-
brögð Niðurjöfnunarnefndar
Reykjavíkur væru fráleit og er
þetta einn liðurinn í árásunum á
nefndina.
Samkvæmt upplýsingum Skatt
stofunnar, sem annast útsending-
ar slíkra tilkynninga, sem hér um
ræðir, hefur engin slík tUkynn-
ing verið dagsett hinn 28. sept.,
eins og Tíminn segir. Mbl. hefur
borið frásögn Tímans undir for-
mann Niðurjöfnunamefndar og
segir hann, að ekki komi tU
greina, að nefndin hafi veitt slika
lækkun og afturkallað hana á
þann hátt, sem Tíminn segir.
Eftir því sem fram kemur af
athugun Skattstofunnar og Niður
jöfnunarnefndar er saga Tímans
Allsherjarverk-
fall í Frakklandi
PARÍS, 25. okt. — f dag gerðu
2% millj. franskra verkamanna
allsherjarverkfall til þess að
mótmæla hækkandi verðlagi og
versnandi afkomu. Verkalýðsfé-
lög kommúnista og kaþólskra
hvöttu verkamenn innan sinna
vébanda að taka þátt í verkfall-
inu, en verkalýðsfélög jafnaðar-
manna lögðust gegn því, að verka
menn gerðu allsherjarverkfall,
á meðan stjórnarkreppan er ó-
leyst. — Allsherjarverkfallið
hafði víðtæk áhrif og lamaði allt
athafnalíf í landinu í dag.
Ágmningur um frv. um gjöld af jarðborum
í GÆR voru iögð fram á Alþingi
7 ný þingskjöl, þar af 3 nefnda-
álit. Tvö þeirra eru um frv. um
gjöld af jarðborun, sem flutt er
af þingmönnum úr 3 flokkum.
Er fjárhagsnefnd efri deildar klof
in í málinu. Meirihlutinn Gunnar
Thoroddsen, Eggert Þorsteinsson
og Sigurður Ó. Ólafsson leggur
til, að frumvarpið verði sam-
þykkt óbreytt. Minnihlutinn
(Bernharð Stefánsson Björn
Jónsson, fulltrúar Framsóknarfl.
og kommúnista) vill láta vísa
frumv. frá með rökstuddri dag-
skrá.
Þá flytja 3 Sjálfstæðismenn til-
lögu um að haldið verði áfram
byggingu kennaraskólans og þrír
þingmenn Alfreð Gíslason, Pétur
Ottesen og Sigurvin Einarsson
flytja tillögu um áfnám áfengis-
veitinga á kostnað ríkisins og
stofnana þess. Frá þessum þing-
skjölum verður nánar sagt í biað-
inu. Þá flytur Páll Zóphóniasson
tillögu um annað orðalag á þings-
ályktun varðandi framkvæmda-
áætlun um vegagerð og Alfreð
Gíslason flytur frumv. um breyt-
ingu á póstlögum. Er efni þess
það, að viðtakendui ýmissa
skjala, sem póststjórnm gerir úr
garöi fyrir póstnotendur og frí-
merki eru limd á, gsti haldið
eftir hinum r.otuðu merkjum.
Merkin verða nú eign póstmanna-
sjóðs.
Þingfundir
Fundir voru í gær í báðum
deildum Alþingis.
Frumv. um gjaldaviðauka (sjá
Mbl. í gær) var til 3. umræðu
en engin tók til máls og var málið
afgreitt til neðri deildar.
Frumvarp til umferðarlaga
(sjá Mbl. 22/10.). Friðjnn Skarp-
héðinsson (A) fylgdi frumv. úr
hlaði f.h. allsherjarnefndar efri
deildar, en síðan tóku Björn Jóns
son (K) og Sigurvin Einarsson
(F) til máls. Ræddi Bjórn um að
athuga þyrfti betur ákvæði er
setja hömlur við að heyrnardauft
'oik fái ökuréttindí, S'.gurvin
fcenti á, að skv. frumv. myndu
tæki. sem nú er j tolluð sem drátt
arvélar verða talin með bifreiðum
og því hækka mjög í verði. Einn-
ið varaði hann við ákvæðum
frumv. um ölvun við akstur og
aukinn hámarkshraða í 45 km
klst. í þéttbýli og 70 km klst.
annars staðar. — Frumv. var vís-
að til 2. umr.
í neðri deild var frumvarpi um
áframhaldandi innheimtu bif-
reiðaskatts o. fl. (sjá Mbl. 12. og
16. okt.) vísað til 3. umr. og frv.
um breyt. á sveitarstjórnarlög-
um (sjá Mbl. í gær) til 2. umr.
og nefndar. Skúli Guðmundsson
,'F) og Ágúst Þorvaldsson (F)
mæltu fyrir þessari afgreiðslu.
Barnavemdar-
dagurinn er í dag
BARNAVERNDARDAGURINN
er í dag og er þá að venju efnt
til merkjasölu og blað dagsins,
Sólhvörf, selt á götunum.
Foreldrar eru minntir á að
láta börn sín, sem selja merki og
blað dagsins, vera vel klædd. —
Merki eru afgreidd á þessum
stöðum: Skrifstofu Rauða kross-
ins, Thorvaldsensstræti 6, Drafn-
arborg, Barónsborg, Grænuborg,
Steinahlíð, Melaskóla, Eskihlíð-
arskóla, ísaksskóla, Háagerðis-
skóla, Langholtsskóla, Digranes-
skóla, Kársnesskóla og Dvalar-
heimili aldraðra sjómanna.
annaðhvort uppspuni frá rótum
eða byggð á einhverjum misskiln
ingi, sem mundi koma í ljós, ef
Tíminn birti þau gögn, sem blað- á að skrökva“.
ið telur sig hafa undir höndum
um þetta mál. Er hér með skorað
á Tímann að leggja þau á borðið
en að öðrum kosti verður taliff,
að blaðið hafi búið hér til eina af
sinum mörgu skröksögum.
Það á við um Tímann, sem
Truman, fyrrv. Bandaríkjafor-
seti, sagði eitt sinn um Rússann
Gromyko: „Hann segir aldrei satt
ef hann sér nokkurn möguleika
Ekkert unnið við kennnrnskóla-
húsið, þótt ié sé fyrir hendi
KOMIN er fram svohljóðandi tillaga til þingsályktunar:
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að halda áfram bygg-
ingu nýs kennaraskóla, sem undirbúin hefur verið undanfarin ár
og vsitt hefur verið til f járupphæð, er nemur á f jórðu milljón króna.
Flutningsmenn eru 3 þingmenn úr Sjálfstæðisflokknum, Sig-
urður Bjarnason, Gunnar Thoroddsen og Ragnhildur Helgadóttir.
Kennaraskóli íslands hefur um niðri. Hefur það vakið mikla
langt skeið búið við lélegri húsa-
kost en flestar menntastofnanir
landsins. Háir það mjög hinni
þýðingarmiklu starfsemi hans.
Fyrir nokkrum árum var því tek-
in upp barátta fyrir nýrri kenn-
araskólabyggingu. Bar hún þann
árangur, að á árunum 1953—57
var samtals veitt 3,1 millj. kr. á
fjárlögum til byggingarinnar. —
Var síðan hafizt handa um að
grafa grunn nýs skóla.
En á þessu ári hafa byggingar-
framkvæmdir við þetta nauðsyn-
lega mannvirki með öllu legið
óánægju, ekki aðeins meðal
kennarastéttarinnar og forráða-
manna skólans, heldur og meðal
allra þeirra, sem þekkja hin óvið-
unandi húsnæðisskilyrði, sem
kennaraskólinn býr nú við. Fé
er fyrir hendi til þess að koma
nýrri skólabyggingu töluvert á-
leiðis. En ríkisstjórnina virðist
skorta áhuga á málinu. í þings-
ályktunartillögu þessari er lagt
til, að henni verði falið að halda
byggingu kennaraskólans áfram,
eins og undirbúið hafði verið af
fyrrverandi menntamálaráðherra.
Fréttir í sfuttu máli
LUNDÚNUM, 25. okt. — Forseti Pakistans og íranskeisari ræddu
deilumál Tyrkja og Sýrlendinga, þegar þeir hittust í Teheran í dag.
Einnig ræddu þeir um Bagdad-bandalagið.
Á þingi Allsherj arþingsins í dag voru greidd atkvæði um það,
hvort Suður-Kórea og Suður Víetnam ættu ag eiga aðild að sam-
tökunum. Atkvæði féllu þannig, að Suður-Kórea fékk 51 atkv., en
Suður Víetnam 49.
Fjögurra barna móffir í Norður Dakota eignaðist fjórbura
í dag. Móðirin og fjórburarnir voru öll við góða heilsu, þegar
síðast fréttist.
I dag var rússneski njósnarinn R. Abel sekur fundinn um að hafa
látið Rússum í té upplýsingar um hermál Bandaríkjanna. Dómur
verður kveðinn upp yfir honum 15. nóv. n.k.
í aðalstöðvum S.Þ. var álitið í kvöld, að Japanir mundu I
næstu viku leggja fram tiliögu þess efnis, að Hammarskjöld
aðalritari fari til Sýrlands og Tyrklands að athuga ástandiff
á Iandamærum þessara ríkja.
Adenauer leggur ráðherralista sinn fyrir Heuss forseta
n. k. þriðjudag. Þá birtir hann einnig stefnuskrá stjórnar
sinnar og er hennar beðið með eftirvæntingu. — Erhard
verzlunarráðherra verður varaforsætisráðherra og þykir
víst, að Adenauer ætli hinum vinsæla f jármálasnillingi stöðu
sína, þegar hann lætur af embætti.
— Ráðstefna S.U.S.
Frh. af bls. 1.
Vignir Guðmundsson, Akureyri,
Tryggvi Gunnlaugsson, Lónkoti,
Skagafirði, Ásbjörn Sigurjóns-
son, Álafossi, Jón Guðmundsson,
Reykjum, Mosfellssveit og Jón
Ólafsson, Eystra-Geldingaholti,
Árnessýslu.
Kl. 5,30 var fundi frestað og
fulltrúar héldu upp að Korp-
úlfsstöðum og skoðuðu hið glæsi-
lega bú Reykjavíkurbæjar, und-
ir leiðsögu borgarstjóra og bú-
stjóra. Dáðust gestirnir að hinu
sérstæða framtaki hins mikla at-
hafnamanns, Thor Jensen, er
kom þarna upp nýtízku búi fyrir
30 árum, sem enn í dag fullnæg-
ir ströngum kröfum um allt fyr-
irkomulag.
Þaðan var haldið til bæjarins
aftur og snæddur kvöldverður á
heimili Gunnars Thoroddsen
borgarstjóra. Við það tækifæri
ávarpaði hann fulltrúa, en Ásgeir
Pétursson þakkaði boðið f. h. S.U.
S. og Jón Ólafsson ávarpaði borg-
arstjórahjónin af hálfu utanbæj-
armanna.
Kl. 9 í gærkvöldi var aftur
settur fundur í Valhöll, og héldu
þá áfram umræður um ályktun
fundarins. Stóð sá fundur fram
eftir kvöldi. Fundarstjóri var
Haraldur Árnason í Sjávarborg.
Ritarar ráðstefnunnar eru þeir
Stefán Árnason, Kaupangi, Eyja-
firði og Þorsteinn Sigurðsson,
Brúarreykjum, Mýi’asýslu.
Erindi Árna og Guðmundar.
Fyrirlestrar þeirra Árna G.
Eylands og Guðmundar Jónsson-
ar vöktu mikla athygli fundar-
manna og var mjög vel tekið.
Árni G. Eylands ræddi um ný
viðhorf í landbúnaðarmálum.
Kom hann víða við, rakti þróun
landbúnaðarins sl. áratugi, benti
á helztu lagabálka um landbún-
aðarmál og áhrif þeirra. — Þá
ræddi hann um framtíðarverk-
efnin, m. a. um afurðasölu, bú-
stærð, nýbýlastofnanir, ræktun-
armál og fóðrun búpenings.
Guðmundur Jónsson skólastj.
á Hvanneyri flutti fróðlegt er-
indi um vélvæðingu landbúnað-
arins. Ræddi hann afkastagetu
einstakra landbúnaðarvéla, störf
verkfæranefndar og ýmsar til-
raunir, sem gerðar hafa verið
með landbúnaðartæki. Um erind-
ið spunnust nokkrar umræður og
svaraði fyrirlesarinn ýmsum fyr-
irspurnum fundarmanna.
Merk nýbreyttni.
Á fundinum í gær lýstu full-
trúar yfir ánægju sinni með
þessa fyrstu ráðstefnu stjórnmála
samtaka ungra manna um bún-
aðarmál. Töldu þeir sig hafa bæði
gagn og ánægju af erindum og
umræðum og þökkuðu stjórn S.
U.S. fyrir frumkvæði hennar í
þessum efnum.