Morgunblaðið - 26.10.1957, Síða 15
Laugardagur 26. okt. 1957
1jor*r.rnvnr 4*>ið
15
— Svarfagil
Frh. af bls. 1.
anum, yfir rústunum. Úti á túni,
skammt frá bænum, stóð snæbar-
in Farmaldráttarvél, en undir
henni lá hundur Markúsar bónda
hríðskjálfandi. Hann hafði kom-
izt úr brunanum, en tveir vinir
hans, hvolpar, höfðu farizt í
eldinum.
Upp úr hústóftinni stóð reyk-
háfurinn og hengu utan í hon-
um nokkrar þakplótur.
— Utan úr heimi
Framh. af bls. 8
geimstöðvarinnar lokið 1980, en
þá koma til sögunnar ný vanda-
mál og ógerlegt er að segja ná-
kvæmlega hve langur tími líður
þá til þeirrar stundar að fyrsta
tunglfarið leggur upp. Ef til vill
tuttugu ár.
Óþekktar orkulindir
Tunglið verður mikilvægur
stökkpallur fyrir okkur til ferða
lengra út í geiminn. Að rúmmáli
er það 1/81 af rúmmán jarðar og
hraði þess á brautinni er um
íV-í míla á sekúndu. Þessi litli
hraði veitir m. a. góða aðstöðu
til þess að setja þar upp bæki-
stöð fyrir allar ferðir lengra
út í geiminn. Tunglið vcitir einn-
ig að öðru leyti góðar aðstöður
til byggingar geimstöðva. Þar
verður auðvelt að byggja elds-
neytisgeyma og vistarverur fyrir
geimfarana. Eins og við vitum —
þá þrífst ekkert líf á tunglinu.
Hins vegar er það mjög sennilegt,
að mennirnir flytji með sér gróð-
ur þangað út.
Enginn vafi leikur á því, að
um það leyti, er komið verður
upp bækistöð á tunglinu, eða um
árið 2000, hefur okkur tekizt að
leysa miklu meiri orku úr læð-
ingi en við nú höfum gert. Fyrst
og fremst er það kjarnorkan, sem
þá verður nýtt betur. Orka sólar-
ljóssins verður einnig nýtt til raf-
magnsframleiðslu og fullvíst má
telja, að á þessum 40 árum finn-
ist nýjar orkulindir, sem nú eru
óþekktar. Með allri þessari orku
munum við geta breytt yfirborði
tunglsins á þann hátt, sem við
frekast kjósum.
Framleiðsla andrúmsiofts
jf
Bergmýndunin á tunglinu er að
mörgu leyti svipuð og a jörð-
unni okkar. Bergtegundirnar inni
halda mismunandi mikið if vatns
kristöllum og vísindamenn telja,
að sumar bergtegundir á tuglinu
séu 13% vatn. Með því að bræða
þetta berg verður hægt að vinna
vatn og er þá fullnægt einu af
frumskilyrðium þess að mannleg-
ar verur geti haft búsetu þar.
En þetta er aðeins upphafið.
Þegar vatnsgufan, sem myndast
við bræðslu bergsins, verður fyr-
ir áhrifum út-fjólublárra geisla
sólarinnar klofna vatnsmólikúlin
í súrefni og vetni — og þá höfum
við fengið það, sem vantar: And-
rúmsloft.
Nýlendan á tunglinu
Þegar súrefnið verður fyrir
hendi á tunglinu verður hægt
að hefja málmvinnslu þar og einn
ig verður hægt að nýta málmana.
Ef allt lætur að líkum verð-
ur hægt að hefja byggingu stórra
plastkúpla á tunglinu skömmu
eftir að tunglstöðvarnar verða
byggðar og undir þessum kúplum
verða reist heil þorp. Undir þess-
um kúplum geta geimfararnir lif-
að eðlilegu jarðnesku lífi. Þar
verður andrúmsloft, yfirborðið
verður ræktað — og sennilega
verða nytjadýr einnig flutt til
tunglsins. Þetta verður sem sé
nýlenda okkar að öllu leyti snið-
in eftir heimakynnum á jöröurni.
Þessar geysimiklu breytingar,
sem þá verða á nágranna ókkar,
tunglinu, verða sýnilegar með
berum augum héðan frá jörðunni.
Tunglið breytir um svip, því að
sólargeislarnir munu speglast í
plastkúplunum og stöðuvötnun-
um, sem gerð verða. Sennilega
verður þá komið árið 2050.
1 kjallaragólfinu logaði eno
Eldavél hékk í rörum og rétt við
hana leifar af gasvél. Hafði
Markús látið setja gasvél í hús-
ið, og fékk hún svonefnt Kosan-
gas frá geymi í kjallara. Kola-
eldavélin var notuð til að hita
upp húsið. Einnig hafði Markús
látið leggja gasleiðslur um húsið
til ljósa. í sumar hafði hann
einnig fengið síma heim á bæ-
inn.
Markús Jónsson, sem fluttist
að Svartagili árið 1929, var nú
búinn að búa betur um sig á bæ
sínum en nokkru sinni fyrr.
í kjallara hússins hafði Markús
haft 20 hænur og brunnu þær
inni. Úti á snæviþöktu túni suð-
vestur af bænum, stóðu fjórar
mjólkurkýr Markúsar bónda og
fjórir hálfvaxnir kálfar. Á við
og dreif út um ása og hæðir fyr-
ir ofan bæjarrústirnar voru kind-
urnar frá Svartagili á beit. Fjár-
eign Markúsar mun hafa verið
kringum 170.
Það vakti athygli, þegar litazt
var um í húsatóftinni, að sýni-
lega hafði verið hreyft við gas-
vélinni. Hefir hún verið lögð á
gaflinn, þannig að stútarnir und-
ir hitahellunum stóðu upp í vegg,
sem sýnilega hafði brunnið
niður. Einnig mátti sjá, að
ýmsu lauslegu, sem verið hafði
innan húss, hafði verið kOmið út
á hlað. Þetta bendir til þess að
bræðurnir hafi grýtt húsmunum
út um glugga. Á hlaðinu fannst
t. d. vekjaraklukka, sem kastað
hefur verið út um glugga á fram-
hlið hússins, og hafa vísarnir
stöðvazt. Klukkan hefur þá verið
7,20. Um það leyti kom Markús
Jónsson í Þingvallabæ, eða
nokkrum mínútum áður, eftir
flótta sinn að heiman.
Það er fullyrt, að er Markús
flúði að heiman, hafi hvorki log-
að eldur í gasvélinni, eða í elda-
vélinni, og ekki hafi logað á
gasljósi. — Sveinbjörn, sem ver-
ið hefur í Svartagili í allt sum-
ar, vissi hvernig gasvélin fékk
gas af geyminum.
Það sem hér hefur verið lýst,
er hin almenna skoðun á því,
hvernig eldur var borinn að
Svartagili 1 fyrrakvöld. — Það
er svo annað mál, hvort þeir
Reynir og Sveinbjörn fást til
þess að játa, að þeir hafi brennt
bæinn.
Sveinbjörn Hjaltason, sem í
sumar var á Svartagili, mun hafa
verið lítinn drukkinn, en Reynir
aftur á móti meira, eða svo virt-
ist mönnum eystra brennukvöld-
ið. —
Þingvallabændur mættu Reyni
niðri á Leirunum. Virðist sem
hann muni hafa orðið hræddur,
þá er loga tók í bæjarhúsinu og
hafi hann lagt á flótta út í
myrkrið. Hefur hann orðið að
klöngrast yfir ófærur og girðing-
ar, farið beint af augum, og var
hann skrámaður og rifinn, er
hann var handtekinn. Svein-
björn var einnig lagður af stað
frá brennandi bænum, en hann
hafði skammt farið, þegar bænd-
urnir handtóku hann. •
Voru þeir bræður hafðir í bíl
meðan beðið var eftir lögregl-
unni. Fóru þeir ekki leynt með
það, að þeir hefðu framið þetta
íllvirki og níðingsverk á Markúsi
bónda Jónssyni.
Þá er það vitað mál, að Svein-
björn Hjaltason átti hvorki pen-
inga né annað hjá Markúsi Jóns-
syni. Sveinbjörn þessi hefur
hreinlega legið upp á heimili
Markúsar í allt sumar, og verið
Sveinbjamar var í heimili Mark-
úsar fyrrum tegndadóttir hans,
sem þaðan er nýlega farin.
Þegar Sveinbjörn kom austur
að Svartagili í fyrrakvöld og
hitti Markús bónda, krafðist hann
af honum peninga, sem Svein-
björn sagði að tengdadóttirin
ætti. Bræðurnir áttu þá enga
peninga til þess að borga með
bílinn. Tóku þeir að þrátta um
hvor ætti að borga bílinn, en
upp úr þessu byrjuðu þeir að
slást. — Markús, sem verið hafði
uppi á lofti, er þetta gerðist, kom
þá niður og ætlaði að vísa þeim
út úr húsinu, en þá var það,
sem þeir réðust á hann og börðu
með byssuskefti. Það fannst
brotið úti á hlaði, en byssuhlaup-
ið er ófundið. — Sá Markús sitt
óvænna og flúði bæ sinn í bíl
þeim, er íllvirkjarnir höfðu kom-
ið í, ásamt dönskum manni og
stúlku, og leitaði eftir hjálp 1
Þingvallabæ.
Þórður Björnsson, fulltrúi
sakadómara, hóf þegar í gær-
morgun rannsókn í málinu. Þeir
Sveinbjörn og Reynir eru hafðir
í haldi í hegningarhúsinu og þar
voru þeir yfirheyrðir síðdegis í
gær.
Síðusfu fréttir
Klukkan 10 í gærkvöldi ræddi
Mbl. við Þórð Björnsson fulltrúa
um það sem fram hefir komið
við yfirheyrsluna og mestu máli
skiptir.
Réttarhöldin í gær.
Þórður sagði að þeir bræður,
Reynir og Sveinbjörn Hjalta-
synir, hefðu báðir eindregið neit-
að að vera valdir að brunanum
að Svartagili. Kveðst Reynir
hafa fundið brunalykt þá er
hann gekk út úr húsinu. Svein-
björn aftur á móti segist lítið
muna. Hann kveðst þó muna, að
hann hafi verið kominn einn síns
liðs spölkorn frá húsinu, er
hann hafi veitt því eftirtekt að
Ijósglæta var í bæjarhúsinu. Um
líkt leyti hafi hann séð bíl niðri
á veginum, sem hann hafi gengið
í veg fyrir. Hafi sá bíll ekið heim
að Svartagili. Hafi hann þá séð
að eldur var kominn upp í bæn-
um. Við þessa sjón kvað hann
að hefði mikið runnið af sér
áfengisáhrif.
Bræðrunum ber saman um að
Sveinbjörn hafi átt hugmyndina
að því að fara austur. Gaf hann
þá skýringu á því, að hann hefði
viljað gleðja Markús bónda með
því, að koma með brennivín
handa honum.
Reynir segir að fyrst eftir að
þeir voru komnir inn í bæinn að
Svartagili, hafi þeir ekki orðið
varir við Markús. Hann hafi svo
birzt í eldhúsdyrum með hagla-
byssuna. — Reynir segir hann
ekki hafa miðað henni á þá,
en kveðst hafa gripið í
hana og svipt henni úr
höndum hans. Sigurbjörn segist
minnast þess, óljóst þó, að Reyn-
ir hafi tekið byssuna af Markúsi,
en þvertekur fyrir að þeir hafi
verið að fljúgast á. Reynir segir
aftur á móti að þeir hafi rifizt
í eldhúsinu. — Sigurbjörn segir
að gasljóskúpull í eldhúslofti hafi
brotnað fyrir tilverknað Reynis,
sem hafi verið mjög æstur.
Sveinbjörn þvertekur fyrir það,
að hann hafi að fyrirbragði ávarp
að Markús bónda, þá er bærinn
stóð í ljósum loga og lýst gleði
sinni yfir hvernig komið væri. Aft
ur á móti hafi Markús spurt sig
um hvort honum (Sveinbirni),
þætti þetta ekki skemmtilegt. —
Hafi hann þá svarað Markúsi á
þá leið, hvort hann væri að
kenna sér brunann.
— ★ —
Þórður Björnsson kvað rann-
sókn málsins mundi verða hald-
haldið áfram. Málið er erfitt við-
ureignar og einkum það að upp-
lýsa með hverjum hætti eldsupp-
tökin urðu. Þar koma til greina
íkveikja, eldsupptök af gáleysi
eða bilun á gaslögn eða ljós-
tækjum.
Rannsóknarlögreglumenn fóru
austur í gærdag og gerðu sínar
athuganir á brunarústunum, en
rannsóknardómaranum, Þórði
Björnssyni, ' hafði ekki borizt
skýrsla þeirra í gærkvöldi.
Samkomur
Fíladelfía
Biblíulestrar kl. 2 og kl. 5. —
Almenn samkoma ki. 8,30.
Kristniboðshúsið Betania, Laufás-
vegi 13.
Á morgun: Sunnudagaskólinn
»kl. 2 e.h. öll börn velkomin.
Kristnihoðsvikan
Næst siðasta samkoma Kristn-
boðsvikunnar er í húsi K.F.U.M.
og K. í kvöld kl. 8,30. — Gunnar
Sigurjónsson cand. theol. talar.
Einsöngur. — Allir velkomnir.
Kristniboðssambandið.
Félagslíf
Aðalfundur íþrótlafélags Kcfla-
víkurflugvallai
verður haldinn í Sjálfstæðishús
inu í Keflavík sunnudaginn 27.
okt. kl. 20. — Venjuleg aðaifund-
arstörf. — Rætt um vetrarstarf-
semina. — Áríðandi að félagar
fjölmenni. — Stjóm ÍKF
Knattspyrnufél. Valur.
Knattspyrnuæfingar félagsins
verða í KR-húsinu í vetur, sem
hér segir: — 3. fl. sunnud. kl.
9,30. — 4. fl sunnud. kl J.0.20. —
M-fl., 1. fl., II. fl. laugard, kl.
7,40. —
Farfuglar.
Munið vetrarfagnaðinn í Heiða
bóli á laugard. Ferð upp eftir kl.
7.30 frá Búnaðarfélagshúsinu og
Hlemmtorgi. Stúlkuv hafið kökur
með. —
Fram — Knattspy rnumenn!
Æfingar fyrir 3. og 4. flokk i
K.R. húsinu á sunnudag. IV fl.
kl. 1 og III fl. kl. 1,50.
— Þjálfarinn.
Valur
Innanhússæfingar verða í ICR-
húsinu sem hér segir:
M.fl. I og II fl.: laugardaga kl.
7,40—8,30 e.h.
IV fl.: sunnudaga kl. 9,30—
10,20 f.h.
III fl.: sunnudaga kl. 10,20—
11,10 f.h.
Knattspyrnufélagið Þróttur:
Dansleikur hjá kvennaflokknum
i kvöld kl. 9. ’
Skíðadeild K.R.
Skiða og vinnuferð í skálann kL
9,30 í fyrramálið. — Stjórnin.
f.R. Frjálsíþróttadeild!
Nú eru innanhússæfingarnar í
fullu f jöri, en áherzla lögð á lyffc-
ingar, körfuknattleik og léttar
leikfimisæfingar. Mætið allir frá
byrjun. Nýir félagar vekomnir.
Allar æfingar eru í ÍR-húsinu.
Æfingaskráin:
Mánudagar: kl. 9,40—10,30.
Miðvikudagar: kl. 8,50—9,40.
Fimmtud.: kl. 9,40—10,30.
Föstudagar: kl. 6,20—7,10.
Æfingargjaldið fyrir veturinn
er kr. 100.00, og greiðist Inga Þór, "
húsverði. Þeir, sem ekki hafa
greitt ársgjaldið fyrir 1957, greifR
það einnig sem fyrst, en það er
kr. 50,00. — Stjórnin.
I. O. G. T.
St. Díana nr. 54
Fundur á morgun kl. 10,15. —
Spurningaþáttur. — Gæzlumenn.
EINAR ASMUNDSSON
hæstaréttarlögmaðui.
daf&teinn Sigurðsson
héraðsdómslögmaður.
Skrifstofa Hafnarstræn 5,
Sími 15407.
Suðurnesjamenn
Gömlu dansarnir
í kvöld, fyrsta vetrardag
í samkomuhúsi Njarðvíkur
Sigurður Ólafsson syngur með
hljómsveit Aage Lorange.
IVESTI-------------------
Hafið þið komið í
NESTI, Fossvogi
Innilegt þakklæti færi ég vinura og vandamönnum
fyrir gjafir, heillaóskaskeyti og heimsóknir á 80 ára af-
mæli mínu 20. þ.m. Sérstaklega vil ég þakka hjónunum
Helgu Þorvaldsdóttur og Hannesi Kristinssyni og fjöl-
skyldu þeirra, Miðstræti 8, fyrir órofa tryggð og vináttu
og margar ánægjustundir, sem ég hef notið á heimili
þeirra.
Þessum góðu hjónum og öllum þeim, sem hafa reynst
mér vel á lífsleiðinni, færi ég mitt innilegasta þakklætL
Filippus Jóhannsson.
Hjartanlega þökkum við öllum þeim, er sýndu okkur
samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför
STEFÁNS ÞORKELSSONAR
' Blönduósi.
Ágústa Jósefsdóttir,
Sigríður Indriðadóttir.
Þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð og hluttekn-
ingu við útför föður okkar
SIGURÐAR SIGURÐSSONAR
frá Flatey, Breiðafirði.
Börn, tengdabörn og barnabörn.