Morgunblaðið - 23.05.1962, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvíkudagur 23. maí 1962
Borgararnir þurfa að gera meírihluta
Sjálfstæðisflokksins að veruleika
GEIR Hallgrímsson, borgar-
stjóri, hóf ræðu sína í út-
varpsumræðunum í gær-
kvöldi með því að rifja upp
ummæli þau, er sagan hefur
eftir Karla, þræli Ingólfs
Arnarsonar, þegar Ingólfur
settist hér að:
„Til ills höfum vér farit um
góð héruð, er vér skulum byggja
útnes þetta“.
Þessj ummæli muni að vísu
ekki skráð fyrr en öldum eftir
að þau voru talin sögð, — og
eigi ef til vill fyrst og fremst að
gera þá frásögn áhrifameiri, að
ihér tók Ingólfur sér bólfestu að
tilvíaun guðanna, þótt staður-
inn virtist ekki byggilegur við
fyrstu sýn.
Menn telja að vísu, að hér í
Reykjavík hafi verið öllu bú-
sældarlegra til foma en ummæl-
in gefa til kynna. En hvað sem
því líði sé hitt vist, að Reyk-
víkingar 20. aldarinnar megi
meta og geti þakkað gjafir for-
sjónarinnar.
Leit að heitu og köldu vatni ber
árangur.
Borgarstjóri vék að því, að í
vetur hefðu nokkurra áira vís-
indalegar rannsóknir og leit að
heitu og köldu vatni borið þann
árangur, að traustur grundvöll-
ur væri fyrir framkvæmdum
Vatnsveitu og Hitaveitu til að
fullnægja þörfum borgarbúa í
framtíðinni.
Boranir við
Bullaugu hefðu
sýnt, að þaðan
má leiða til borg
arbúa 500 sek.
lítra af vatnj til
viðbótar þeim
700 sek. lítrum,
sem við fáum
nú frá Gvendar-
brunnum. Ætlunin sé að ljúka
þessari virkjun ásamt byggingu
vatnsgeymis á Litlu-Hlíð, sem
verður stærri en allir hitaveitu-
geymarnir, á næstu 2 árum.
Framkvæmdir þessar muni kosta
yfir 30 millj. kr., — en helming
þess kostnaðar muni sjálf Vatns-
veitan geta lagt til.
Hitaveita í öll hverfi borgarinnar
á næstu 4 árum.
Borgarstjóri kvað boranir í
borgarlandinu hafa gefið svo
góða raun, að fundizt hefðu 125
sek. lítrar af 130° C heitu vatni,
— en það jafngildi 95% af Mos-
fellssveitarvatninu, en verð-
mæiti þess varma sé áætlað
minnst 250 millj. kr. miðað við
olíuverð.
Framkvæmdir séu nú hafnar
á þeirri áætlun að leggja hita-
veitu í öll hverfi borgarinnar á
neestu 4 árum, en það muni kosta
240 millj. kr. og sé búið að afla
þess fjármagns við upphaf verks-
ins.
Lánveiting Alþjóðabankans, að
upphæð 86 millj. kr. fyrir milli-
göngu fjármálaráðherra og rík-
isstjórnar, er í senn gleðilegur
vitnisburður þessarar viður-
kenndu fjármálastofnunar um
hagkvæmi hitaveituframkvæmd-
anna og um traustan efnahag
lanclsins eftir viðreisnarráðstaf-
anirnar. En lán Alþjóðabankans
rýfur 7 ára hlé á lánveitingum
bankans til íslands.
Sker úr um batnandi lífskjör.
Þá kvað borgarstjóri engum
íslending blandast hugur um, að
virkjun fallvatna og nýting ann-
arra orkulinda landsins til raf-
orkuframkvæmda skæri úr um,
hvort lífskjör geti batnað hér
í framtiðinnj eins og í nágranna-
löndunum. Á kjörtímabilinu
hefði Steingrímsstöð við Efra-
Sog verið tekin í notkun og véla-
afl rafstöðvanna þá aukizt um
30%. Dreifikerfi Rafmagnsveitu
Reykajvíkur hefði verið aukið
og endurbætt, en almennt gerðu
menn sér ekki grein fyrir, að
jafn mikill stofnkostnaður sé tal-
inn vera við kerfi til að dreifa
hverju kw til neytandans og að
virkja það í vatnsaflsstöð.
Stækkun hafnarinnar.
Fyrir fjórum árum samþykkti
bor^arstjórn tillögu Sjálfstæðis-
manna um stækkun hafnarinn-
ar og fól hafnarstjórn undirbún-
ing og rannsóknir. Álitsgerð
liggur nú fyrir um þær niður-
stöður, sem fram eru komnar,
og fjallar um hafnarstæði frá
Örfirisey og inn í Sund. Rann-
sóknir halda nú áfram og á
grundvelli þeirra verður endan-
leg ákvörðun tekin um stækk-
un hafnarinnar, — en að því er
stefnt að ný hafnarmannvirki
verði tilbúin, þegar þeirra ger-
ist þörf. Jafnframt er unnið að
frekari nýtingu innri hafnarinn-
ar, en þar má lengja bólvirki
enn um 25%.
Ef ráðizt verður í Sundahöfn,
en þar mun verða 12,2 km ból-
virkja lengd, mun það kosta 855
millj. kr., en auðvelt er að
byggja þá höfn í áföngum. Hún
mun fullnægja borg með hálfa
milljón íbúa og er þá ekki reikn-
að með stækkunarmöguleikum í
Viðey og lengra austur.
Þörf fyrir nýjan miðbæ.
Breytingar á kröfum og lifn-
aðarháttum fólks komi eigi sízt
til athugunar við framtíðarskipu
lagningu borgarinnar. Við vitum,
að meðalfjölskyldustærð muni
verða minni og íbúðarþörf auk-
ast'vegna þess, að fleiri einstakl-
ingar og gamalt fólk muni með
batnandi efnahag geta haldið
sjálfstæðu heimili, — við gerum
ráð fyrir, að hver íbúð þurfi
meira landssvæði, vegna fjölgun-
ar bifreiða, umferðarmannvirkja,
opinna svæða og skrúðgarða. —
í grundvallaráætlunum um skipu
lag „Stór-Reykjavíkur“ er þann-
ig gert ráð fyrir, að í framtíð-
inni þurfi að meðaltali að gera
ráð fyrir 1000 fermetra lands-
svæði fyrir hverja íbúð í stað
550 fermetra eins og nú er. Gert
sé ráð fyrir, að Reykjavikur-
svæðið byggist upp í 5 þúsund
manna hverfum, þar sem komið
sé fyrir skólum, íþrótta- og leik-
svæðum, barnaheimilum, tóm-
stundaheimilum, bókasafni og
kirkju í a. m. k. öðru hverju
slíku hverfi. Jafnframt sé kom-
ið þar upp verzlunum og bæki-
stöðvum fyrir smærri iðnað og
atvinnurekstur.
Á þessu ári verður væntanlega
gengið endanlega frá skipulagi
miðbæjarins. En hvernig sem á
málið sé litið sé þörf fyrir nýjan
miðbæ og hafi tillögur verið
gerðar um staðsetningu hans
sunnan Miklubrautar milli
Kringlumýrarbrautar og Hvassa-
leitis, — en með þeirri staðsetn-
ingu mæli góðar aðliggjandi að-
alumferðaræðar, hæfileg fjar-
lægð frá gamla miðbænum og
nálæg þéttbýl íbúðarhverfi, sem
muni tryggja uppbyggingu nýja
miðb'æjarins á tiltölulega skömm
um tíma.
Heildaráætlun im gatnagerð í
Reykjavík.
Samfara skipulagi borgarinnar
og í kjölfar hinna miklu hita-
veituframkvæmda verður á
næsta áratug gengið frá mal-
bikun eða steypu og gangstétta-
lagningu allra gatna í Reykja-
vík, — bæði gatna, sem nú eru
til og liggja samkvæmt skipu-
lagi og einnig hinna nýju gatna,
sem lagðar verða á tímabilinu
til ársins 1970. Fjárþörfin til að
framkvæma þessa áætlun nem-
ur samtals 909 millj. kr. Er gert
ráð fyrir, að veita megi úr borg-
arsjóði 675 millj. kr. á tímabil-
inu án þess að útsvarsbyrði auk-
ist, þannig að núverandi fram-
lag til þessara framkvæmda, sem
er 41,5 millj. kr. hækki um sem
næst 5 millj. kr. á ári upp í 90
millj. kr. árið 1972. Miðað við
6% árlegri hækkun á heildar-
tekjum borgarsjóðs, þá er gatna
og holræsakostnaður 1972 14,9%
af heildartekjum borgarsjóðs í
stað 12,3% á yfirstandandi ári.
Er ljóst, að borgarsjóðux þarf
ekki að vanrækja önnur verk-
efni, svo sem skóla-, sjúkrahús-
og barnaheimilisbyggingar, þótt
aukinn hundraðshluti af tekjum
borgarsjóðs verði að þessu leyti
lagður í gatnagerð.
Bygging Borgarsjúkrahússins
stærsta átakið.
Til þess að vernda líf og heilsu
borgarbúa kvað borgarstjóri
byggingu Borgarsjúkrahússins í
Fossvogi nú stærsta átakið. I
byrjun s.l. árs hefði í borgar-
stjórh verið samþykbt með at-
kvæðum allra borgarfulltrúa á-
ætlun um byggingarframkvæmd-
ir og fjáröflun til þeirra. Þeim
áætlunum hefði verið fylgt og
sjúkrahúsið því tekið í notkun
um áramótin 1964—1965 hið
síðasta. Starfsemi Heilsuverndar
stöðvarinnar og heilbrigðiseftir-
litsins hefði verið aukin á liðnu
kjörtímabili. en á þeim vettvangi
væri unnið mikilvægt verk i
kyrrþey, svo að fullyrða megi, að
þessum málum sé óvíða betur
fyrir komið en hér í Reykjavík.
T'-austur grundvöllur.
Loks kvaðst borgarstjóri hafa
drepið á nokkra þætti borgar-
mála, en aðrir borgarfulltrúar
meirihlutans mundu fylla þá
mynd. Af þessu stutta yfirliti
mætti þó sjá að margvíslegum
verkefnum hefði verið sinnt. Því
væri nauðsynlegt, að stjómkerfi
borgarinnar sjálfrar sé í eðlilegu
samræmi við þau verkefni, sem
leysa þurfi. Farið hafi Verið inn
á þá braut að sameina undir
einni stjórn málaflokka, sem áð-
ur hafi heyrt undir fleiri aðila.
En með þessu hafi skapazt meiri
festa og aukin hagkvæmni í
rekstri.
I vaxandi borg verði ávallt
mörg verkefni sem leysa þurfi,
og ný og ný myndast í samræmi
við auknar kröfur fólksins og
bættan efna'hag. Sjálfstæðisflökk
urinn vill leysa þessi verkefni
með það meginsjónarmið fyrir
augum, að borgarstjóm og borg-
arfélag sé til fyrir borgarana, en
ekki þeir fyrir það, — að borg-
arbúum verði veitt svigrúm til
að byggja þessa borg mað þeim
glæsibrag, sem hingað til.
Sérstök ástæða væri til að
þakka Gunnari Thoroddsen, fyrr
verandi borgarstjóra og núv. fjár
málaráðherra, 24 ára störf borg-
arfulltrúa og 13 ára störf borg-
arstjóra nú í lok þessa kjörtíma-
bils. Honum bæri fyrst og fremst
að þakka þá hagstæðu þróun
borgarmála, sem raun ber vitni
um, en sú þróun verður traust-
ur grundvöllur áframhaldandi
stórframkvæmda borgarbúum til
heilla.
Þá er sigurinn vis.
Andstæðingar okkar Sjálf-
stæðismanna reka nú einkenni-
legan áróður, sagði borgarstjór-
inn. Þeir hafa fyrirfram lýst
sigri Sjálfstæðismanna en eigin
ósigri. Þeir reyna að telja Reyk-
víkingum trú um, að meirihluti
Sjálfstæðisflokksins sé öruggur
og þess vegna sé óþarfi að kjósa
hann. En meirihluti Sjálfstæðis-
flokksins er ekki ömggur, fyrr
en borgararnir sjálfir gera hann
að veruleika; hann er ekki or-
uggari en svo, að flokkinn skorti
nær 2400 atkvæði við siðustu
almennu kosningar í borginni til
að vera í meirihluta.
Hver er framtíð Reykjavikur
Þórir Kr. Þórðarson, síðari ræðu-
maður Sjálfstæðisflokksins í um-
ræðunum, varpaði fram þeirri
spurningu. hver væri framtíð-
Reykjavíkur. Það ætti að vera
okkur öllum umhugsunarefni, að
það er undir okkur sjálfum kom-
ið, að framtíð Reykjavíkurborg-
ar einkennist af sama starfs-
þróttinum, sama iðandi lífinu og
dagurinn í dag. Það er styrk
og stefnuföst stjórn borgarmála,
sem hefur skapað þann ramma
utan um líf borgaranna sjálfra,
sem við njótum öll góðs af. Skoð
un sín væri, að
það sé hag okk- "
ar allra fyrir v
beztu, að sami
borgarstjórinn,
Geir Hallgríms-
son, fari áfram I
með stjórn borg
arinnar næsta
kjörtímabil. Við
þurfum ekki að-
eins að halda því sem náðst hef-
ur: fallegri borg, sem býr borg-
urunum hentug starfsskilyrði;
við þurfum að takast á við mörg
vandamál, sem enn bíða óleyst
af eðlilegum ástæðum og leysa
önnur, sem á hverjum tíma
verða til.
Með fullri einurð kvaðst ræðu
maður benda samborgurum sín-
um á þau verk, sem unnin hafa
verið, og bað þá hyggja að, hvört
ekki hafi verið vel að verki
staðið, og hvort ekki útlit sé
fyrir, að áfram verði haldið á
sömu braut um lausn hinna fjöl-
þættu verkefna vaxandi borgar
undir stjórn hins dugmikla borg-
arstjóra, ef honum verður falið
umboð til þess.
Hver borgari er ábyrgur
Okkur dreymir um það öll að
skapa hér svo fullkomið þjóðfé-
lag, sem framast er unnt. Hugar-
sýn hins fullkomna þjóðfélags,
þar sem menn gætu lifað saman
óhultir og hamingjusamir, hefur
sifelít vakað í vitund manna frá
upplhafi vega. Aldrei verður
markinu náð til fulis hér á þess-
ari jörð, en sífellt skal að þvi
stefnt. öll eigum við þátt í því
að gera borgarfélag okkar svo
úr garði, að hér megi dafna
Og blómgast fjölskrúðugt athafna
líf Og menningarlíf. Við verðum
öll að leggja á eitt um það að
búa hinni uppvaxandi kynslóð
hin beztu þroskaskilyrði og er
hver borgari ábyrgur um þessi
mál. Honum ber að stuðla að
þeim í daglegri umgengni sinni
Og í daglegu starfi sínu og lifs-
háttum. Og á kjördegi er hver
borgari ábyrgur um það lóð, sem
hann leggur á metaskálarnar
með atkvæði sínu. Að köma á
kjörstað og greiða atkvæði eftir
beztu sannfæringu er borgaraleg
skylda hvers þess, sem nýtur at-
kvæðisréttar, sagði Þórir Kr,
■ Þórðarson. Eg vil vekja athygli
á því, að undir stjórn meirihluta
Sjálfstæðisflokksins höfum við
búið við frjálsa stjórnarháttu,
hófsemd og hagsýni samfara
þeim stórhug. sem einkennir t. d,
byggingar skólaihúsa og hitaveitu
framkvæmdir.
Höfðar til þátttöku
unglinganna
Því meir sem borgin stækkar
—- og vöxtur hennar gengur
furðuverki næst — að því sama
skapi stækka úrlausnarefnin og
þeim fjölgar. Mér koma í hug
börnin og unglingarnir. Okkar
þjóðfélag í dag er svo nýtt, opið
og byltingagjarnt, að unglingarn-
ir finna til þess, að umhverfið
kallar á þá og höfðar til þátttöku
þeirra.
Unglingurinn spyr um það, til
hvers þurfi að læra þetta Og hitt,
Hann spyr um gildi og tilgang.
öllum kennurum er ljóst, að þeir
kennsluhæftir, sem við búum
við, fullnægja ekki lengur timant
kröfum. Kennslan þarf að vera
lífrænni; hún þarf að höfða meir
til einstaklingsbundins skilning*
nemandans, og miðast við það
að efla sjálfstæða hugsun og
starfsgetu nemandans.
Auðlegð landsins er fólgin I
hinni upprennandi kynslóð og
þeim peningum er vel varið, sem
notaðir eru í þágu hennar. Hér
þarf ríki og bær að gera samein.
að átak til að bæta kennara.
menntunina og búa barna- og
unglingakennurum þau launa.
kjör, að þeir fái beitt sér við hið
þýðingarmikla hlutverk sitt að
undirbúa unglinginn undir það
að ganga til starfs í þjóðfélagiriu.
Kvað ræðumaður sér ljóst, að
fullur hugur væri á þvi að ráða
fram úr þessum málum, en hér
þurfi að halda áfram enn lengra
og beita nýjum hugmyndum við
þessi vandamál. Hjá okkur séu
vandamál á sviði æskulýðs og
skólamála mjög svipuð því sem
gerist hjá nágrannaþjóðunum á
Nörðurlöndum. En við höfum
það fram yfir að geta spyrnt
við fotum, áður en Reykjavík
verður sú stórborg, sem hún er
óðum að verða. og hindrað það
að hér myndist stórbrotin vanda-
mál.
Utvarps-
uiriræður
í kvöld
Útvarpsumræðumar í kvöM
hefjast kl. 20. Ræðumenn Sjálf-
stæðisflokiksins verða þá þessir:
Gunnar Thoroddisen, fjármála-
ráðherna, frú Auður Auðuns,
forseti borgarstjórnar, Gísli Hall
dórsson, arkitekt, Birgir ísL
Gunnarsson, lögifræðingur og
Geir Hallgrímsson, borgarstjóri.
Talaðar verða þrjár umferðir,
20, 10 og 10 mínútur, og verður
röð flökkanna þessi: Framsóknar
flokkur, Alþýðuflokkur, Alþýðu-
bandalag, Þjóðvamarflokkur, ó«
háðir bindindismenn og Sjálf.
s tæðisflokkur.