Morgunblaðið - 15.08.1965, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 15. águst 1965
Höfðaströnd:
Heyskapur ágætur—
Hafsíld veiöist í lagnet
BÆ, Höfðaströnd, 14. ágúst.
Tíðarfar hefur verið með
miklum ágætum og nær allir
búnir að hirða fyrir sláttinn,
snjög vel verkaðan. Lítur út fyr-
ir að heyfengur verði með allra
mesta móti hér.
Mjög ltíil dragnótaveiði og
ufsaveiði hefur verið í sumar en
aftur á móti er farin að veiðast
síld í lagnet og t.d. hefur einn
maður fengið frá hálfri tunnu
upp í tunnu á dag af góðri haf-
síld.
Silungsveiði í Höfðavatni hef-
ur verið ágæt í lagnet síðan dag-
inn fór að stytta, og eins hefur
veiðst þar nokkuð af stórri milli
síld.
— Björn.
4,88 prs. verðlcags'
uppbót á laun
KAUPLAGSNEFND hefur reikn
að vísitölu framfærslukostnaðar
í byrjun ágúst 1965 og reyndist
hún vera 172 stig eða einu stigi
hærri en í júlibyrjun 1965.
Vísitala framfærslukostnaðar í
ógústbyrjun er nánar tiltekið
172.3 stig eða 0,9 stigum hærr
en í júlíbyrjun. Hækkunin staf-
af aðallega af hækkun rafmagns
taxta og strætisvagnafargjalda í
Reykjavik.
Kaupgreiðsluvísitalan
KAUPLAGSNEFND hefur reikn
að kaupvísitölu eftir vísitölu
framfærslukostnaðar í ágúst-
byrjun 1965, í samræmi við
ákvæði fyrri málsgr. 2. gr. laga
nr. 63/1964, og reyndist hún vera
171 stig.
í fyrri málsgr. 3. gr. sömu laga
er svo fyrir mælt, að greiða skuli
verðlagsuppbót sem svarar
0,61% af launum og öðrum vísi-
tölubundnum greiðslum fyrir
hvert stig, sem kaupgreiðsluvísi-
Norðmennirnir skoða tilraunareit á Korpúlfsstöðum í gær.
15 manna hópur frá Sölusam
bandi bænda í Noregi í hsimsókn
Vfirlýsing
Vegna auglýsinga þar sem
Lönd og Leiðir m.a. tilkynna að
Geir Aðils sé fulltrúi þeirra í
Kaupmannahöfn skal tekið fram
að undirritaður er ekki full-
trúi L. og L. og annast ekki fyr-
irgreiðslu farþega þeirra í Kaup
mannahöfn.
Fyrrgreind auglýsingastarfs-
semi L. og L. er mér algerlega
óviðkomandi.
Geir Aðils
Kaupmannahöfn
UNDANFARNA viku hefur dval
. , , , . , ,. izt hér á landi 15 manna hópur
ta a hvers þnggja manaða tima- fr> Sölusambandi bænda eða
bils er hærri en vjsi ala 163 stig. FælIesköbet j Noregi. f þessum
Samkvæmt þvi skal a timab.l- hó i eru gtjórn solusambandsins
tímabil-
inu 1. september til 30. nóvem-
ber 1965 greiða 4,88% verðlags-
uppböt á laun og aðrar vísitölu-
framkvæmdastjórar o.fl. Um fyr
irgreiðslu hópsins hér annast
Mjólkursamsalan, Atvinnudeild
bundnar greiðslur. Athygli er Háskólans og Samband íslenzkra
vakin á því, að þessi verðlags- samvinnufélaga. Hópurinn held-
uppbót (3,66%), sem gildir a ur utan t dag
tímabilinu júní—ágúst 1965, i „ * ' • , , , ,
, , , Norðmennirnir hafa undanfar-
heldur miðast hun við grunn- .
laun og aðrar grunngreiðslur. | ferðast mikið um Suðurland
Verðlagsuppbót á vikulaun og og heimsótt þar ýmsa merkis-
mánaðarlaun skal, Mmkvæmt staði, svo sem Laugardæli, Gunn
ákvæðum nefndra laga, reiknuð arsholt, Hvolsvöll o. fl. Þá hafa
í heilum krónum, þannig að þeir farið til Akureyrar og skoð-
sleppt sé broti úr krónu, sem að starfsemi KEA þar. í gær-
ekki nær hálfri krónu, en annars morgun heimsóttu þeir svo
hækkað í heila krónu. Korpúlfsstaði og skoðuðu til-
(Frá Hagstofunni). 1 raunadeild Háskólans þar. Blað-
Nýjar, sovézkar
myndir af mánanum
— verða birtar almenningi
ið hafði í gær tal af fram-
kvæmdastjóra Sölusambandsins,
Lars S. Spildo.
Spildo kvað Fellesköbet hafa
talsverð skipti við ísland en hing
að seldi það aðallega grasfræ.
Kvaðst hafa komið hingað fyrir
15 árum og sagðist hann hafa
veitt því athygli nú, að landbún-
aðurinn hér hefði tekið miklum
framförum síðan og væri hann
nú fyllilega sambærilegur við
landbúnaðinn erlendis. Spildo
kvaðst hafa orðið hrifnastur af
Gunnarsholti af þeim Stöðum, er
hann hefði komið til, og þá sér-
Staklega af sandgræðslunni, sem
hann kvaðst hafa mikla trú á.
Sagði hann að hvergi í Evrópu
myndi finnast jörð jafn stór og
Gunnarsholt. Spildo kvaðst að
lokum vera mjög ánægður með
för sína hingað til lands og von-
aðist til að meiri samvinna yrði
eftirleiðis milli Fellesköbet og
hliðstæðra fyrirtækja hér.
Vegagerö í Felium
Moskva, 14. ágúst. — AP —NTB.
SOVÉZKA geimfarið „Zond 111“
hefur tekið myndir af bakhlið
mánans. Þær myndir, sem nú
voru teknar af þessari hlið, sýna
önnur svæði en þau, sem ljós-
Glímu- og þjóðdansasýningarnar í Árbæ hafa á undanförnum
árum orðið mjög vinsælar. Ekki hefur verið hægt að koma
þeim við fyrr í sumar, en nú hefjast sýningarnar með sýn-
ingu 16 glímumanna úr Ármanni kl. 4.30 í dag á pallinum við
Árbæ. Framvegis verða svo sýningamar til skiptis á laugardög-
um og sunnudögum. Mikil aðsókn hefur verið að Árbæ og
eru gestir sumarsins komnir yfir 10 þúsund. Mestur hluti
gesta eru útleudingar eða aðkomufólk í Reykjavík,
mynduð voru af sovézku geim-
fari í október 1959.
Ljósmyndunin hófst 20. júlí,
er „Zond 111“ var í um 11.600
km fjarlægð frá mánanum.
Myndatakan tók 10 mínútur. 29.
júlí tók geimfarið að senda
myndirnar til jarðar, en þá var
fjarlægðin milli „Zond 111“ og
jörðu um 2,2 milljónir km.
Vísindamenn segja, að mynda- | NORRÆNA
takan hafi tekizt mjog vel, og
hafi myndirnar vísindalegt gildi.
Sérstök nefnd vísindamanna
muni vinna úr þeim, en síðan
verða þær birtar almenningi.
Fljótdalshéraði, 13. ágúst.
NÝLEGA var lokið að byggja
upp og fullgera fjóra kílómetra
á Upp-Héraðsvegi. Kaflinn sem
byggður var, er yfir svonefnt
Ásklif 'og Hafsmela, frá Melnum
utan við Ormastaðaá og inn
undir Hof. Er að þessu hin mesta
saingöngubót, þar sem áður var
að mestu rudd slóð, sem lykkj-
aðist um hæðir og dældir og
varð fljótt erfið í snjóum. Fjár-
veiting til þessa verks var 600
þús. kr. á árinu, en Fellnahrepp-
urlánaði til viðbótar, svo að unnt
væri að ljú.ka þessum áfanga,
sem gjörbreytir vetrarsamgöng-
um á þessum kafla og styttir
leiðina til muna. Tvímælalaust
er að þessi kafli kostaði minna
en ella, af því að hann var byggð
ur í einum áfanga, en varið mun
hafa verið milli 8 og 900 þús. kr.
í verkið í heild eða rúml. 200
þús. kr. á km.
Svona framkvæmdir auka
bjartsýni þeirra er við búa og
eru glöggt vitni um vegi á að
leggja í sem stærstum áföngum.
Verkstjóri var Helgi Gíslason á
Helgafelli, kunnur fyrir dugnað
og útsjón. Hefir hann verið
vegaverkstjóri yfir 20 ár. — J.P.
INIorrænar Ijósmæður
heimsækfa IMývatn
Þinai Ijósmæðra framhaldið
Sending myndanna mun halda
áfram um nokkurt skeið.
Þurrkatíð í
Hornafirði
Höfn, Hornafirði 14. ágúst.
MIKIL þurrkatíð hefur verið
hér í allt sumar fram á síðustu
daga að tók að ýra úr lofti. Horf
ur með kartöfluuppskeru eru
allsæmilegar, en grasspretta á
söndunum hefur ekki verið eins
góð og vonast hafði verið eftir,
einkum á Mýrunum. Það er
helzt á Steinasandi að gras-
spretta hefur verið' með góðu
móti. Fimm humarbátar eru
gerðir hér, út og hafa aflað vel.
Undanfarna tvo daga hefur ver-
ið hér ausandi rigning og bræla
á síldarmlðunum og hafa því
síldarbátárnir, 12 að tplu, legið
inni. Þeii- hafa einkutn haldið
sjg við Hi-ollaugseyjar, en þang
að er um þriggjr tíma stím. Gert
er ráð fyrir, að þeir fari út í
kvöld. — Gumuir.
ljósmæðramótinu,
sem sett var í fyrradag í kennslu
stofu í Landsspítalanum, var
framhaldið í gær. Mbl. átti stutt
samtal við Valgerði Guðmunds-
dóttur, formann Fél. ísl. ljós-
mæðra. Sagði hún, að á morgun
væri ráðgert að fara með hina
erlendu gesti að Gullfossi og
Geysi. Stanzað verður í Sk ) -
holti, þar sem hlýtt verð'ur
þessu hjá sóknarprestinum, séra
Óla Ólafssyni. Á mánudag verða
hjúkrunarkonurnar í boði hjá
forseta íslands. Á þriðjudag verð
ur flogið að morgni til Akur-
eyrar, síðan ekið um Mývatns-
sveit, og komið aftur til Reykja-
víkur að kvöldi. Á miðvikudag
verður þinginu slitið formlega en
þá er einpig ráðgert að heim-
sækja Reykjalund, og um kvöld-
ið verða Ijósmæðurnar í boði
ríkisstj órnarinnar.
I GÆR var yfirleitt SA-átt gerðlíil var skammt fyrir
um allt land, þokugrátt sunn sunnan landið. í dag mun
anlands og sums staðar súld, heldur glaðna til suðvestan
en þurrt veður norðanlands lands og haldast góðviðri
og léttskýjað. Hiti var víðast norðanlands.
12—14 st. Grunn lægð og að-